Innlent

Skjöldur settur við Langabar

Hjálmar Sveinsson leiddi göngu um slóðir Vögguvísu að lokinni athöfninni. Fréttablaðið/anton
Hjálmar Sveinsson leiddi göngu um slóðir Vögguvísu að lokinni athöfninni. Fréttablaðið/anton
Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, afhjúpaði bókmenntamerkingu til heiðurs rithöfundinum Elíasi Mar í Aðalstræti í gær. Þetta er fyrsti skjöldurinn af níu sem Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO, kemur upp í borginni á þessu ári í tilefni af fyrstu Lestrarhátíðinni í Reykjavík. Bókin Vögguvísa eftir Elías Mar er í brennidepli á hátíðinni. Skjöldurinn er staðsettur í Aðalstræti 6 til 8 þar sem Sódabarinn Adlon, oft kallaður Langibar, var um miðja síðustu öld, en sá bar spilar stórt hlutverk í Vögguvísu.- trs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×