Fleiri fréttir

Hollande heimsækir Afganistan

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mætti óvænt í heimsókn til Afganistan í morgun og heimsótti þar franska hermenn. Búist er við því að hann hitti einnig Hamid Karzai forseta landsins en Hollande tilkynnti á dögunum um þá ákvörðun að kalla franskt herlið heim frá landinu ári fyrr en áætlað var.

Læknast hraðar og síður veikir

Karlkyns bavíanar sem eru í ráðandi stöðu í sínum hóp verða sjaldnar veikir og sár þeirra læknast hraðar en sár annarra bavíana, samkvæmt umfangsmikilli rannsókn vísindamanna á heilsufari þessarar apategundar.

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta á Íslandi. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir: „Frjálst flæði fjármagns er einn meginþátturinn í fjórfrelsinu á sameiginlegum innri markaði Evrópu og því liggur fyrir að ríki með gjaldeyrishöft geta ekki gerst aðilar að Evrópusambandinu.“

Tilraun til hættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjölmörg brot. Hann hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi.

Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook

Kærumál streyma inn vegna vandræðagangs við markaðsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á því hvort fjárfestingarbankinn Morgan Stanley hafi mismunað fjárfestum í hlutafjárútboði og upplýst suma um neikvæða matsskýrslu.

Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru á leiðinni. Sakfelling hefur fengist í öllum málum sem lokið hefur með dómi. Stærstu málin sem rannsökuð eru snúast um milljarða undandrátt.

Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áður en þeir losna úr einangrun, samkvæmt fyrirmælum fangelsismálastjóra. Þar verða þeir einir og réttindi þeirra í löglegu lágmarki.

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst 18. september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Kosið um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveitarfélögin.

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregið úr vindi svo nemi allt að 0,1 metra á sekúndu á hverjum áratug frá því um 1950. Þetta kemur fram í grein sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ritar í fyrsta tölublað Skógræktarritsins á árinu sem nú er komið út.

Herferðin kom til af nauðsyn

Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. Formaður LÍÚ segir Svavari Hávarðssyni að um lamandi hækkun fyrir fyrirtækin sé að ræða eftir sem áður. Hann segir að völd LÍÚ séu ofmetin og hagkerfið sjái um að kom

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini dagana 10. til 13. maí. Átakið var til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.

Mannréttindabrot framin á báða bóga

Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Mest af ofbeldinu má þó rekja til stjórnarhersins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rannsókarnefndar SÞ.

Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kærði tvo fyrrum starfsmenn til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu. Málið hefur ekki áhrif á dómsmál þrotabús Milestone, segir skiptastjóri.

50 milljónir gegn glæpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að undirbúa aðgerðaáætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þá vill nefndin að 50 milljónir fari á fjáraukalög í heimild fyrir lögreglu til að starfrækja sérstakt rannsóknar- og aðgerðateymi gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali.

50 missa vinnuna í hagræðingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta útibúum verður lokað eða þau sameinuð öðrum og deildir í höfuðstöðvum bankans verða sameinaðar.

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því að veita Wow air þjónustu við flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Vallarvinir, annað fyrirtæki sem annast flugafgreiðslu í Keflavík, hefur einnig hafnað því að þjónusta Wow air.

Segir jafnréttismál í ólestri

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki hafa staðið við gefin fyrirheit í jafnréttismálum, þrátt fyrir að hafa sett þau í öndvegi.

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ sinn. Hann fór til höfuðborgarinnar Peking til þess að ráðfæra sig við lögfræðinga, en sonur hans hefur verið ákærður fyrir morðtilraun.

Loftsteinadrífa skellur á Jörðinni

Bandaríski geimfarinn Don Pettit hefur mikið dálæti af því að deila ljósmyndum sínum. Þetta er afar jákvætt enda eru myndirnar hans vægast sagt sérstakar. Pettit tekur nefnilega ljósmyndirnar úr 400 kílómetra hæð og á rúmlega 28 þúsund kílómetra hraða.

"Þetta er Nelson. Hann stal símanum mínum"

Bandarísk kona sem glataði iPhone snjallsímanum sínum í skemmtisiglingu fyrir nokkru hefur nú haft upp á ræningjanum. Þjófurinn tók nokkrar ljósmyndir með símanum en þær birtust allar í tölvu konunnar.

Starfsfólk Heathrow undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana

Starfsfólk Heathrow flugvallarins í Lundúnum undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í borginni í sumar. Umferð um flugvöllin kemur til með að aukast um 65 prósent í kringum leikana og hið sama má segja um farangurinn.

Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess máls við stöðu Radko Mladic við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Björk fékk Webby verðlaunin

Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. Webby verðlaunin er árlegur viðburður og í ár eru 16 ár liðin frá því að Webby verðlaunin voru stofnuð. Verðlaunin eru veitt framúrskarandi árangri tengdum internetinu. Þau eru framsett af The International Academy of Digital Arts and Sciences, en meðlimir eru einstaklingar á sviði tækni og viðskipta og eru einhver helsta viðurkenning sem veitt er í Bandaríkjunum á því sviði.

Búinn að skila meðmælendalista

„Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi. Alls vantaði 126 undirskriftir á listann svo að hann yrði samþykktur af yfirkjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norðurs og suðurs.

Rætt um lofthelgi Íslands í Finnlandi

Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, neitaði í dag ásökunum stjórnarandstæðinga um að þátttaka Finnlands í loftrýmiseftirliti í íslensku lofthelgi sé tilraun til að koma landinu inn í Atlantshafsbandalagið.

Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp

Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa Íslendinga í áhöfn, þeir hafi ekki úthald í langa túra. Við ræddum í gær við eiganda Valbergs VE en skipið fer eftir helgi á Drekasvæðið sem aðstoðarskip í norskum rannsóknarleiðangri að leita merkja um olíu með hljóðbylgjumælingum.

"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á kannabisefnum. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi við þáttastjórnendur um það mikla framboð fyrir kannabisefnum sem myndast hefur hér á landi.

Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu.

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí síðastliðinn ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni, furðar sig á því hvernig rannsóknargögn málsins hafi ratað í hendur fjölmiðla.

Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrendur í sumar vegna tollalaga. Félaginu er gert að greiða háar fjárhæðir í skatta og aðflutningsgjöld umfram önnur skemmtiferðaskip þar sem ætlunin er að taka nýja farþega um borð hér á landi.

Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli

Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú síðdegis um ólögmæta gengistryggingu þúsunda lánasamninga. "Vonbrigði,“ segja hjónin sem eiga fyrirtækið Smákrana og töpuðu málinu.

Hæstiréttur sýknar Fylki

Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann slasaðist alvarlega þegar hann stökk yfir vegg við Fylkisheimilið í september árið 2005. Sveinn féll 3.8 metra og lenti á steinsteyptri stétt hinum megin við vegginn.

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið í gær þegar tilkynning barst um byssumann á ferli á höfuðborgarsvæðinu.

Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu

Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurðssyni, samfanga sínum á Litla Hrauni ásamt Berki Birgissyni, segja að ekkert bendi til þess, á þessu stigi, að Annþór eigi hlut að máli. Hann hafi staðfastlega neitað sök.

Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó

Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrrahafi. Vindhraðinn mælist á um 170 kílómetrum á klukkustund. Gert er ráð fyrir að hann nái landi í Mexíkó síðdegis á morgun og hefur almenningur verið varaður við. Ekki er búist við að þessi fyrsti bylur tímabilsins valdi miklum skemmdum.

Könnuðust ekki við að styðja Ástþór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að minnsta kosti tíu einstaklingar kannast ekki við að hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda.

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um tillögur stjórnlagaráðs

Þingmenn samþykktu nú á þriðja tímanum tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs um stjórnarskrána. 35 þingmenn samþykktu atkvæðagreiðsluna en 15 voru á móti. Því er ljóst að þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram ekki síðar en 20. október næstkomandi.

Íbúar kjósa um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu í haust greiða atkvæði um það hvort að sameina eigi sveitarfélögin. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna samþykkti þetta samhljóða á fundi sínum fyrr í dag.

Kannabis í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gær. Við húsleit fundust 25 kannabisplöntur og viðurkenndi húsráðandi, karl á fertugsaldri, aðild sína að málinu.

Björgunarsveitarmaður: Kraftaverk hvað þau sluppu vel

"Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni Víkverja í Vík, en sveitin kom fyrst á vettvang eftir að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig með þeim afleiðingum að tveir ferðamenn, karl og kona, féllu niður um 40 metra. Eins og sjá má á myndunum er hreint út sagt ótrúlegt að þau hafi sloppið lifandi.

Sjá næstu 50 fréttir