Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 24. maí 2012 18:30
Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú síðdegis um ólögmæta gengistryggingu þúsunda lánasamninga. „Vonbrigði," segja hjónin sem eiga fyrirtækið Smákrana og töpuðu málinu. Málið snýst um lán sem lítið fjölskyldufyrirtæki á Smiðjuvegi í Kópavogi tók til að kaupa krana sem notaður er til að hífa ýmislegt innanhúss og -utan. Kraninn sem fyrirtækið keypti er núna í verkefni fyrir álverið í Straumsvík. Lánið sem hjónin tóku hjá Lýsingu var upphaflega 6,1 milljón króna en snarhækkaði við gengishrunið. Ágreiningsefnið í málaferlunum var hvort fjármögnunarsamningurinn sem Smákranar gerðu við Lýsingu væri lán klætt í búning leigusamnings eins og fyrri gengisdómar hafa kveðið á um. Við slíka túlkun hefði gengistrygging samningsins verið ólögmæt. Smákranar unnu málið í héraði en Hæstiréttur sýknaði Lýsingu í dag og kvað upp þann dóm að samningurinn væri í raun og sann leigusamningur en ekki lán. Meðal annars vegna þess að ósannað taldist að Smákranar myndu eignast kranann við lok leigutímans. „Lýsing var sem sagt sýknuð í þessum dómi á þeim grundvelli að fjármögnunarsamningar Lýsingar væru skýrir leigusamningar og þar af leiðandi er heimilt að gengistryggja þá," segir Árni Ármann Árnason, lögmaður Lýsingar. Lögmaður Smákrana, Einar Hugi Bjarnason, var hins vegar ekki sáttur við niðurstöðuna. „Niðurstaðan er auðvitað vonbrigði og ekki í samræmi við það sem lagt var upp með." Hann segir dóminn ganga þvert á niðurstöðu Hæstaréttar í sambærilegum málum. „Og mér sýnist í fljótu bragði að niðurstaða Hæstaréttar grundvallist á því að þessi samningsform séu ólík að ákveðnu leyti sem leiðir þá til ólíkrar niðurstöðu."
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira