Innlent

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

mynd/Stefán

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí síðastliðinn ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni, furðar sig á því hvernig rannsóknargögn málsins hafi ratað í hendur fjölmiðla.

Í tilkynningu frá Inga Frey Ágústssyni, hdl., kemur fram að ekkert bendi til að Börkur beri ábyrgð á dauða Sigurðar.

„Þá er rétt að halda því til haga að samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings var ekki hægt að fullyrða hvort dánarorsök hins látna væri af mannavöldum eða ekki," segir í tilkynningunni.

Þá bendir Ingi á að þeir Annþór og Börkur njóti nú réttarstöðu sakbornings í málinu, samt sem áður hafi fjölmiðlar þó greiðari aðganga að upplýsingum en þeir eða verjendur þeirra.

Hægt er að lesa tilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan:

Reykjavík 24. maí 2012.

Undirritaður, verjandi Barkar Birgissonar, vill að gefnu tilefni koma eftirfarandi á framfæri við fjölmiðla:

Það hefur ekki farið framhjá landsmönnum að hörmulegur atburður átti sér stað í fangelsinu að Litla-Hrauni þann 17. maí s.l. Var skjólstæðingur minn fyrr í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna þessa til 13. júní n.k. af héraðsdómi Suðurlands.

Hafði hann þá verið yfirheyrður í gærdag þar sem hann lýsti því sem fram fór á fangagangi umræddan dag. Viðstaddir þá skýrslutöku var undirritaður, sakborningur og tveir lögreglumenn frá lögreglunni á Selfossi. Síðar þann sama dag er skýrsla skjólstæðings míns lesin nánast orðrétt í fréttatíma a.m.k. einnar útvarpsstöðvar. Hvorki undirritaður né sakborningur höfðu haft samband eða gefið nokkrar upplýsingar um málið til fjölmiðla.

Rannsókn málsins er á upphafsstigum og því viðkvæm. Verjendum hafa ekki verið afhent nein þau gögn sem þó eru tiltæk lögreglu. Af einhverjum orsökum virðast fjölmiðlar hafa greiðari aðgang að gögnum málsins. Þá er rétt að halda því til haga að samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings var ekki hægt að fullyrða hvort dánarorsök hins látna væri af mannavöldum eða ekki. Það er því ekkert sem bendir til þess að skjólstæðingur minn eigi hér hlut að máli á þessu stigi málsins.

Vert er að hafa í huga að nú njóta tveir menn réttarstöðu sakbornings, en fjölmiðlar virðist þó fá betri og greiðari upplýsingar um rannsókn þess en þeir eða verjendur þeirra. Því má velta fyrir sér hvort það réttarríki sem við búum við sé á villigötum.

Virðingarfyllst,

Ingi Freyr Ágústsson, hdl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×