Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja engin ný rök komin fram Átta manna hópur sérfræðinga frá Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Íslenskri erfðagreiningu hafa sent flutningsmönnum þingsályktunartillögu um bann við útiræktun erfðabreyttra lífvera opið bréf, þar sem spurt er hvaða upplýsingar eða rök liggja að baki því að tillagan um bannið sé endurupptekin á þinginu. 27.4.2012 11:00
Arnarhreiður skemmt af mannavöldum Í vikunni vaknaði grunur um að spillt hefði verið fyrir varpi hafarnarhjón í eyju á sunnanverðum Breiðafirði, því það sást ekki lengur til parsins sem vikurnar á undan hafði undirbúið varp og byggt hreiður. Málið hefur verið kært til lögreglu. 27.4.2012 10:47
Þriðjungur ók of hratt á Borgavegi Brot 82 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fylgst hafi verið með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í vesturátt, að Strandvegi. "Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 219 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tólf óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83. Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 24-54%,“ segir í tilkynningunni. 27.4.2012 10:41
Mikill meirihluti vill að tillögur Stjórnlagaráðs verði að frumvarpi Tveir þriðju hluti þjóðarinnar vill að tillögur Stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR. 27.4.2012 10:23
Vara við siglingum með skemmtiferðaskipum á Norðurslóðum Breska utanríkisráðneytið hefur varað breska ferðamenn við því að sigla með skemmtiferðaskipum um Norðurslóðir. 27.4.2012 10:04
Samningaviðræður eru nær hálfnaðar Viðræður um 15 af 33 köflum í samningum við Evrópusambandið eru hafnar. Þar af er 10 lokið. Samningsafstaða hefur verið samþykkt í 5 köflum í viðbót við það. Stefnt er að því að samningsafstaða í sjávarútvegsmálum verði tilbúin fyrir sumarfrí. Utanríkisráðherra kynnti skýrslu sína í gær. 27.4.2012 10:00
Þrír menn teknir í Leifsstöð Þrír menn með fölsuð vegabréf voru stöðvaðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag. Tveir karlmenn sem ferðuðust saman framvísuðu frönskum vegabréfum er lögregla hafði afskipti af þeim í flugstöðinni. Þeir komu með flugi SAS frá Ósló í Noregi. Við skoðun vegabréfanna kom í ljós að þau eru grunnfölsuð. Mennirnir kveðast báðir vera frá Alsír. 27.4.2012 09:10
SA kynnir áætlun um afnám hafta Samtök atvinnulífsins (SA) hafa kynnt áætlun um afnám gjaldeyrishafta sem er að mörgu leyti frábrugðin þeirri áætlun sem stjórnvöld og Seðlabankinn vinna eftir. 27.4.2012 09:00
Samdómarar Jóns Steinars fullyrða að þeir hafi ekki rætt við blaðamann Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari fullyrðir að samdómarar sínir í Hæstarétti hafi þverneitað því að hafa talað nafnlaust við Sigríði Dögg Auðunsdóttur blaðamann áður en hún skrifaði grein í nýjasta hefti Mannlífs. Í greininni fjallar Sigríður Dögg um meint ósætti og flokkadrætti í Hæstarétti, þar sem persónulegir vinir Davíðs Oddssonar skipi annan hópinn en Markús Sigurbjörnsson forseti Hæstaréttar og aðrir dómarar skipi hinn. 27.4.2012 08:55
Óhjákvæmilegt að loka kirkjum Agnes M. Sigurðardóttir, verðandi biskup Íslands, segir fjárhagsvanda kirkjunnar orðinn slíkan að erfitt sé að halda öllum kirkjunum gangandi og starfseminni þar innandyra. 27.4.2012 08:00
SUS gerir tilboð í plastmál forsætisráðherra "Í tilefni af því að í dag er nákvæmlega ár þar til alþingiskosningar þurfa í síðasta lagi að fara fram hefur Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) gert Sjónlistarmiðstöðinni á Akureyri tilboð í plastmál sem miðstöðin keypti nýlega og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafði drukkið úr.“ 27.4.2012 07:57
Undir meira álagi og ósáttari við laun Forstöðumenn ríkisstofnana upplifa meira álag og streitu í starfi nú en fyrir fimm árum. 94 prósent þeirra telja nær alltaf eða oft mikið álag í starfi sínu. Þetta kemur fram í könnun á störfum og starfsskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana, sem gerð var á vegum fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. 27.4.2012 07:30
Heimaey VE að komast inn á Panamaskurðinn Fjölveiðiskipið Heimaey VE er nú um það bil að komast inn á Panamaskurðinn á heimleið sinni frá Chile, þar sem það var smíðað, og er það væntanlegt til Eyja eftir hálfan mánuð. 27.4.2012 07:23
Aldrei hafa fleiri farist í vinnuslysum í Noregi en í fyrra Alls fórust 52 Norðmenn í vinnuslysum í fyrra og er það mesti fjöldi sem ferst í slíkum slysum í landinu frá upphafi. 27.4.2012 07:20
Úrskurðað um aðgang ferðamanna að hasskaffihúsum Dómari í Hollandi í dag mun kveða upp úrskurð um hvort banna eigi aðgang erlendra ferðamanna að svokölluðum hasskaffihúsum í landinu. 27.4.2012 07:08
Vændishneyksli leyniþjónustunnar vindur upp á sig Hneykslismálið í kringum leyniþjónustumennina sem sjá um öryggi Bandaríkjaforseta heldur áfram að vinda upp á sig. 27.4.2012 07:03
Mannréttindafrömuðir fagna dóminum yfir Taylor Mannréttindafrömuðir víða um heiminn hafa fagnað dóminum yfir Charles Taylor fyrrum leiðtoga Líberíu. 27.4.2012 07:01
Of erfitt er að saksækja fyrir hatur á netinu Breyta þarf lögum til að auðveldara sé að saksækja fyrir hatursáróður á samfélagsmiðlum og öðrum vefsíðum sem ekki teljast til hefðbundinna fjölmiðla, að mati Margrétar Steinarsdóttur, framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands. 27.4.2012 07:00
Samið um fækkun hermanna á Okinawa eyju Japönsk og bandarísk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um að draga verulega úr fjölda bandarískra hermanna á Okinawa eyju. 27.4.2012 06:59
Tannlæknar segja munnskol geta verið hættulegt fyrir heilsuna Danskir tannlæknar hafa varað við því að dagleg notkun á munnskoli geti verið hættuleg heilsu manna. 27.4.2012 06:56
Danir fá leyfi til að setja upp sprautuherbergi fyrir fíkla Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa bæjar- og sveitarfélögum landsins að koma á fót svokölluðum sprautuherbergjum þar sem sprautufíklar geta dælt í sig fíkniefnum. 27.4.2012 06:50
Líkamsárás í Mjóddinni í nótt Þrír menn réðust á einstakling við Nettó í Mjóddinni í Reykjavík um miðnæturbil og gengu í skrokk á honum. 27.4.2012 06:45
Varðskipið Ægir bjargar norskum togara Varðskipið Ægir kom í nótt norska togarnum Torito til hjálpar, þar sem hann lá með bilaða vél undan austurströnd Grænlands. 27.4.2012 06:42
Geðrænn vandi ein helsta ástæða fjarvista frá vinnu Einn af hverjum þremur sem hefur leitað til VIRK – starfsendurhæfingarsjóðs síðan haustið 2009 gefur upp geðrænan vanda sem ástæðu þess að leitað sé aðstoðar. Alls eru þetta um eitt þúsund manns. Stoðkerfisvandi er önnur meginástæða fjarvista frá vinnumarkaði; geðrænn vandi er nefndur af 34% þeirra sem leita til sjóðsins og stoðkerfisvanda nefna 39%. 27.4.2012 06:00
Undirskriftalisti gegn frumvarpi Stjórnmálasamtökin Dögun hófu í gær undirskriftasöfnun gegn kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Samtökin hvetja stjórnvöld til að virða loforð í kvótamálum og hvetja forseta Íslands til þess að synja frumvarpinu annars staðfestingar. 27.4.2012 05:30
ASÍ mótmælir launahækkun Miðstjórn ASÍ mótmælir þeirri ákvörðun ársfundar Framtakssjóðs Íslands að hækka laun stjórnarmanna sjóðsins um 80 prósent, úr 100 þúsund krónum á mánuði í 180 þúsund krónur á mánuði. 27.4.2012 05:00
Atvinnulausum konum fjölgar Atvinnulausum hefur fækkað um 1.000 frá fyrsta ársfjórðungi 2011. Að meðaltali voru, á fyrsta ársfjórðungi 2012, 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit. Það jafngildir 7,2 prósentum vinnuaflsins. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. 27.4.2012 04:00
Sungu barnalag gegn Breivik Meðan fólk, sem lifði af árásir Anders Behrings Breivik í sumar, skýrði frá skelfilegri reynslu sinni við réttarhöldin í Ósló, komu tugir þúsunda saman í miðborginni og sungu lítið barnalag, sem hryðjuverkamaðurinn hafði reynt að koma óorði á. 27.4.2012 03:00
Hjóli rænt með 8 mínútna bili Að meðaltali var tilkynnt um 200 reiðhjólaþjófnaði dag hvern í Danmörku á árunum 2007 til 2010. Það jafngildir því að reiðhjóli sé rænt á áttundu hverri mínútu. Vefur Politiken segir frá þessu. 27.4.2012 02:00
Flugskeyti sögð gerviflugskeyti Sex flugskeyti, sem sýnd voru með viðhöfn á hersýningu í Norður-Kóreu nýverið, voru ekki alvöru flugskeyti heldur eftirlíkingar. Og þær lélegar. 27.4.2012 01:00
Taylor sakfelldur fyrir stríðsglæpi Mikill fögnuður braust út meðal íbúa í Freetown í Síerra Leóne þegar Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, var sakfelldur fyrir stríðsglæpi í gær. 27.4.2012 00:30
Ásakanirnar hafa gengið á víxl Stjórnvöld og uppreisnarmenn í Sýrlandi saka hvorir aðra um sprengjuárás í borginni Hama á miðvikudag, sem varð að minnsta kosti sextán manns að bana. 27.4.2012 00:00
Neyddi félaga sinn til að dansa "moonwalk“ Maður í Idaho í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir líkamsárás eftir að hann neyddi annan mann til að framkvæma dansspor sem Michael Jackson gerði frægt á sínum tíma. 26.4.2012 23:00
Kung Fu naggrís réðst á hunda Kona í Slóvakíu trúði vart eigin augum þegar naggrís réðst á hundana hennar. Hún segir að litla dýrið hafi hoppar til og frá og sparkað að hundunum eins og karatemaður. 26.4.2012 22:30
Roosevelt er framhjóladrifin hetja Rétt eins og nafni sinn neyðist merkjakolinn Roosevelt að nota hjólastól. Það var þó ekki mænusótt sem orsakaði ástand hans. Hann fæddist með vanskapaða framfætur. 26.4.2012 22:00
Hver á ekki heima á þessari mynd? Umhverfisráðherra Svíþjóðar fékk óvæntan gest þegar hún hélt matarboð fyrr í vikunni. Ráðamenn í Svíþjóð fengu boð en svo virðist sem að boðskort fyrrverandi landbúnaðarráðherra landsins hafi ekki borist réttum aðila. 26.4.2012 21:30
Segir verslun hafa stórminnkað þegar umferð var bönnuð á Laugaveginum "Það hefur komið í ljós að verslun dróst saman um 10 til 20 prósent hjá ýmsum umsvifamiklum verslunum í júlí miðað við árið áður en aukning varð svo í ágúst,“ segir Björn Jón Bragason, talsmaður kaupmanna við Laugaveg sem vitnar þarna til verslana sem voru á Laugaveginum þegar umferð þar var lokað í júlí á síðasta ári. 26.4.2012 21:00
Innbrot í ljósmyndaverslun: Hryllingur að lenda í þessu Ljósmyndaverslun á Laugavegi sem brotist var inn í nótt var einungis búin að vera opin í sex vikur. Vörum fyrir hátt í milljón var stolið. 26.4.2012 20:30
Segir laxarökin ekki virka á alla Þjórsá Örlög rammaáætlunar eru nú komin í hendur atvinnuveganefndar Alþingis. Formaður þingnefndarinnar, Kristján L. Möller, efast um laxarök gegn virkjunum í Þjórsá og segir að skapa verði þverpólitíska sátt ef rammaáætlun eigi að lifa af ríkisstjórnina. 26.4.2012 20:00
Vill taka upp ríkisdal og flatan 20 prósenta skatt Upptaka ríkisdals og flatur tuttugu prósenta skattur eru meðal stefnumála Hægri Grænna sem kynntu forystu flokksins og stefnu sína á fjölmennum fundi í dag. Formaðurinn segir að núverandi ríkisstjórn muni springa á næstu vikum. 26.4.2012 19:30
Söng hópsöng í Osló Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók þátt í hópsöng í Osló í dag til að sýna samstöðu með fjölmenningu. Sungið var í tilefni af réttarhöldunum yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik. 26.4.2012 19:00
Sóley Tómasdóttir: Besti flokkurinn í mótsögn varðandi umhverfismál Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir stofnun hlutafélags um fjármögnun Hverahlíðavirkjunar skynsamlega leið í ljósi þess að enginn peningur er til hjá Orkuveitunni fyrir framkvæmdum. Borgarfulltrúi Vinstri grænna segir þetta vera óskynsamleg einkavæðingaráform sem láta ætti af. 26.4.2012 18:30
"Niðurskurður hefur haft áhrif á öll svið lögreglunnar" Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Landssambandið fundaði um helgina og ályktuðu lögreglumenn að leggja skuli niður Lögregluna í núverandi mynd. 26.4.2012 18:12
Staðfesta morðdóm yfir Naoui Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Redouane Naoui, sem var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember á síðasta ári. 26.4.2012 17:16
Helmingur vill Þóru Arnórsdóttur sem næsta forseta Um 49% landsmanna ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur í komandi forsetakosningum. Ólafur Ragnar Grímsson mælist með um 35% fylgi. Ari Trausti Guðmundsson er með 11,5% fylgi á meðan aðrir eru með um eða undir 3%. 26.4.2012 16:53