Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Almannavarnir: Hugið vel að híbýlum Mikilvægt er að íbúar á jarðskjálftasvæðum hugi vel að híbýlum sínum, hillum, húsgögnum, málverkum og myndum og öðru lauslegu, þannig að ekki skapist hætta í jarðskjálftum. Sérstaklega á þetta við um svefnherbergi og eldhús. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum ríkislögreglustjóra en undanfarna daga hafa jarðskjálftar orðið bæði á Suðvesturlandi og fyrir norðan. 2.3.2012 16:05
Landsbankinn tilkynnti meint brot Gunnars til stjórnar FME Starfsmaður Landsbankans, sem liggur undir grun um brot á lögum um meðferð trúnaðarupplýsinga innan bankans, hefur verið settur í ótímabundið leyfi frá störfum á meðan rannsókn stendur yfir. 2.3.2012 14:52
Reyndi að verjast ofbeldismanni með kíttispaða Átján ára gamall piltur var dæmdur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn sló niður karlmann og sparkaði í hann í jörðinni í janúar árið 2010. 2.3.2012 14:25
Segir umræðuna hafa snúist upp í ofsóknir gegn Jens Ottó Guðjónsson, formaður Félags íslenskra lýtalækna, segir umræðuna um iðnaðarsílikon í brjóstum íslenskra kvenna hér á landi, hafa snúist upp í ofsóknir gegn Jens Kjartansson lýtalækni. 2.3.2012 13:24
Kæru á hendur Snorra í Betel vísað frá Lögreglustjóraembættið á Akureyri hefur vísað kæru Péturs Maack forstöðusálfræðings á hendur Snorra Óskarssyni kennara í Brekkuskóla, sem jafnan er kenndur við Betel, frá. Pétur lagði fram kæru hjá lögreglunni á Akureyri fyrir síðustu helgi, vegna skrifa Snorra um samkynhneigða á bloggi sínu. 2.3.2012 13:13
Nágranni sá glóð í glugganum Karlmaður fórst í eldsvoða í Ólafsvík í nótt og annar liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir bruna í Reykjavík í nótt. 2.3.2012 12:05
Dalla verður aðstoðarframkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar Dalla Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri og lögfræðingur fjölmiðlanefndar en hún er dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. 2.3.2012 11:03
Má heita Kvikkfix Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að sýkna fyrirtækið Nýir Tímar ehf., af því að nota nafnið Kvikkfix í heimildaleysi. 2.3.2012 10:27
"Mér fannst eins og sumir væru komnir í framboð svolítið snemma" "Nei, það kom ekkert upp á milli okkar Lilju en það voru þarna innan um einstaklingar sem ég hafði ekki áhuga á að vinna með," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur. Hann hefur nú sagt skilið við nýja stjórnmálaaflið Samstöðu þar sem hann var varaformaður. Hann kveður sáttur en segist aldrei hafa ætlað í framboð. 2.3.2012 10:07
Ástþór ætlar aftur í forsetaframboð Ástþór Magnússon mun að öllum líkindum bjóða sig fram sem forsetaefni fyrir væntanlegar forseatkosningar í vor. 2.3.2012 08:14
Siggi fékk póst fyrir mistök - ætlar ekki að kjósa Samstöðu "Ég ætla ekki að kjósa Samstöðu eftir þetta,“ sagði Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi stormur eins og hann er kallaður, en hann fékk fyrir misskilningi póstsamskipti á milli Lilju Mósesdóttur og Marinó G. Njálssonar. 2.3.2012 10:49
Ríki ESB samþykktu nýjan sáttmála um aga í fjárlögum Öll ríkin 27 innan Evrópusambandsins nema tvö hafa undirritað nýja sáttmála sem miðar að því að koma á meiri aga á opinber fjárlög ríkja innan sambandsins og koma í veg fyrir að ríkin skuldsetji sig upp úr rjáfrinu. 2.3.2012 10:33
Siggi stormur hættur í Samstöðu Sigurður Þ. Ragnarsson, oft kallaður Siggi stormur, hefur sagt skilið við Samstöðu flokk lýðræðis og velferðar en hann var þar í forsvari þar ásamt Lilju Mósesdóttur. 2.3.2012 08:24
Aðstoðuðu fólk í erfiðleikum á Þrengslavegi Björgunarsveitin í Þorlákshöfn var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða fólk í erfiðleikum á Þrengslavegi í afleitu veðri. 2.3.2012 07:26
Rauði krossinn fær að fara inn í borgina Homs Sýrlensk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa fulltrúum Rauða krossins að fara inn í Baba Amr hverfið í borginni Homs í dag. Með þeim í för verður fólk frá systursamtökunum Rauða hálfmánanum í Sýrlandi. 2.3.2012 07:18
Liggur þungt haldinn á gjörgæslu eftir eldsvoðann í Tunguseli Karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að slökkviliðsmenn björguðu honum meðvitundarlausum út úr brennandi íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Tungusel í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt. 2.3.2012 07:16
Grýttu eggjum í Sarkozy í borginni Bayonne Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti þurfti að flýja inn á bar í borginni Bayonne í gærdag eftir að hundruðir mótmælenda þar hófu að kasta í hann eggjum. 2.3.2012 07:07
Meirihluti Þjóðverja andvígur neyðarláninu til Grikkja Ný skoðanakönnun í Þýskalandi sýnir að töluverður meirihluti Þjóðverja eða 62% vilja ekki að Grikkland fái nýtt neyðarlán en 33% þeirra eru meðmæltir slíku. 2.3.2012 07:01
Fertugur maður lét lífið í eldsvoða í Ólafsvík Tæplega fertugur karlmaður lét lífið í eldsvoða í litlu einbýlishúsi í Ólafsvík í nótt. 2.3.2012 06:57
Leiðari Fréttablaðsins Vegna mistaka vantaði síðustu línuna aftan á leiðara Fréttablaðsins í prentaðri útgáfu blaðsins í dag. Lokamálsgrein leiðarans, sem Ólafur Stephensen skrifar, er í heild þannig: 2.3.2012 06:00
Klerkastéttin gegn forseta Stjórnarandstaðan í Íran á fyrirfram litla möguleika í þingkosningunum, sem haldnar verða í dag. Tveir helstu leiðtogar hennar hafa því hvatt landsmenn til þess að taka ekki þátt í kosningunum. 2.3.2012 06:00
Þingmenn ósáttir við viðbrögð fjármálafyrirtækja Þingmenn gera athugasemdir við að fjármálafyrirtæki sendi út greiðsluseðla líkt og ófallinn sé nýlegur dómur Hæstaréttar um gengislán. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis fundaði á miðvikudagskvöld um viðbrögð fjármálafyrirtækja. 2.3.2012 05:00
Eldur í Tunguseli Tveir voru fluttir á slysadeild þegar eldur kom upp í íbúð á þriðju hæð í Tunguseli 8 í Breiðholti á öðrum tímanum í nótt. Mikinn reyk lagði um allt húsið og því var ákveðið að rýma allar íbúðir í húsinu. Bíll frá Rauða krossinum kom á staðinn til að hýsa alla íbúanna í húsinu og þeim verður fundinn samastaður í nótt. Engar upplýsingar hafa enn fengist um ástand þeirra sem fluttir voru á slysadeild. 2.3.2012 01:31
Jack Nicholson á fölsuðum skilríkjum Brasilískur maður hefur verið ákærður fyrir skjalafals eftir að hann reyndi að opna bankareikning með fölsuðum skilríkjum. Á skilríkjunum var mynd af leikaranum víðfræga Jack Nicholson. 1.3.2012 22:30
Ikea hefur sölu á búslóðum Húsgagnaframleiðandinn Ikea hefur gengið skrefinu lengra og mun brátt hefja sölu á heilum íbúðum. Allar vinsælustu vörur Ikea fylgja með húsinu en það mun eflaust taka lengur en einn eftirmiðdag að setja húsið saman. 1.3.2012 22:00
Þorpsbúar stela jarðgasi til að hita heimili sín Vetrarmánuðirnir reynast fátækum þorpsbúum í Shandong-héraði Kína erfiðir. Þeir neyðast til að stela jarðgasi úr nálægri olíuvinnslustöð. 1.3.2012 21:00
Framleiðendur Mad Men sakaðir um vanvirðingu Framleiðendur sjónvarpsþáttanna Mad Men hafa verið sakaðir um að vanvirða minningu þeirra sem létust í Tvíburaturnunum árið 2001. 1.3.2012 20:30
Kirkjan krefst þess að þjóðkirkjan verði áfram í stjórnarskrá Kirkjuráð hefur sent öllum alþingismönnum og fulltrúum í stjórnlagaráði áskorun kirkjuþings þess efnis að ákvæði um þjóðkirkju verði áfram í þeirri stjórnarskrá sem Alþingi hefur í hyggju að afgreiða. Að öðrum kosti verði þess gætt að ákvörðun um afnám þjóðkirkju úr stjórnarskrá verði tekin á þann veg sem núgildandi stjórnarskrá býður svo að þjóðin sjálf fái notið þess réttar að greiða sérstaklega atkvæði um slíka ákvörðun. 1.3.2012 19:49
Vonbrigði að tillögu Bjarna skuli hafa verið vísað frá "Þetta voru vonbrigði, en ég get ekki sagt að þetta komi endilega svo mikið á óvart,“ segir Birgir Ármansson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Hann segir að sjálfstæðismenn hafi grunað að fylgjendur ákærunnar hafi verið búnir að tryggja máli sínu stuðning þegar tillaga Bjarna Benediktssonar um að fella málið niður var afgreidd út úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með þeirri niðurstöðu að vísa ætti tillögu Bjarna frá. 1.3.2012 19:13
Hæstiréttur dæmir Herbert til að greiða milljónir Herbert Guðmundsson söngvari og Svala Guðbjörg Jóhannesdóttir, fyrrverandi eiginkona hans, voru í dag dæmd til að greiða 3,6 milljónir króna vegna vangoldinna hússjóðsgjalda. Hæstiréttur kvað upp dóminn í dag og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sama efnis, sem kveðinn var upp 25. júní 2010. 1.3.2012 18:29
Gunnar lýsir sig saklausan af sakargiftum "Gögn frá Landsbankanum um umræddan stjórnamálamann hefur umbjóðandi minn aldrei séð þrátt fyrir fullyrðingar fjölmiðla nú í dagum hið gagnstæða.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Þ. Andersen, sem hann sendi á fjölmiðla vegna brottreksturs síns frá Fjármálaeftirlitinu. Þá hefur hann verið kærður til lögreglu fyrir að afla gagna með ólögmætum hætti. Það var RÚV sem greindi frá því að gögnin sem hann fékk í hendur hafi varðar Guðlaug Þór Þórðarson, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 1.3.2012 15:34
Mottumars ýtt úr vör Mottumars, árvekni og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins var formlega ýtt úr vör í dag, þriðja árið í röð. Formaður félagsins segir átakið hafa náð vel til karla en markmiðið er að safna þrjátíu og fimm milljónum í mars. 1.3.2012 19:37
Segir annmarka á hugmyndum Helga Hjörvar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að annmarkar séu á hugmynd Helga Hjörvars um fjármögnun á leiðréttingum verðtryggðra lána. Hún vill ná sáttum í skuldamálum heimilanna með fulltrúum allra flokka. 1.3.2012 19:21
Ísbjörn kallar á tugi nýrra starfa á Ísafirði Í fyrsta sinn í tvo áratugi hefur togari bæst í flota Vestfirðinga. Hartnær þrjátíu störf eru að bætast við á Ísafirði vegna kaupa á rækjutogara, sem fer í sína fyrstu veiðiferð í næstu viku. Eigendur ætla með skipakaupunum að styrkja rækjuiðnaðinn í höfuðstað Vestfjarða. 1.3.2012 18:58
Reynt að þvinga stúlku í sendibíl - lögreglan óskar eftir vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna að atviki er varð á Skothúsvegi við Tjarnargötu í Reykjavík föstudagskvöldið 24. febrúar klukkan 22.20. Þar var reynt að þvinga stúlku, sem var fótgangandi á vesturleið, inn í hvítan sendibíl sem var staðsettur á gangstétt við götuna. 1.3.2012 16:47
Rauðir Krossinn aðstoðar í Homs Alþjóðaráð Rauða Krossins og Rauða hálfmánans tilkynnti í dag að samtökin hafi fengið leyfi frá yfirvöldu í Sýrlandi til að fara inn í borgina Homs. 1.3.2012 16:42
Guðlaugur Þór: "Grafalvarlegt og með ólíkindum ef rétt reynist“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki fengið formlega staðfestingu á því að Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hafi komist yfir gögn um fjárhag þingmannsins, með ólögmætum hætti. Stjórn FME hefur kært Gunnar fyrir að hafa komist yfir gögnin, auk þess sem hann var rekinn í morgun. 1.3.2012 16:23
Vigtaði vitlaust - Eins og að fá egg í andlitið Friðrik Höskuldsson, sá sem vigtaði matvörur og komst að þeirri niðurstöðu að pakkningarnar voru ítrekað vitlaust merktar, segir á Facebook síðu sinni að hann hafi gert mistök. Þannig biðst hann afsökunar og skrifar: 1.3.2012 15:43
Sárast að hafa fallið eftir 26 ár edrú Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður haldin um helgina þrátt fyrir að stofnandinn Páll Reynisson hafi verið handtekinn í fyrra. 1.3.2012 15:30
Svindl ef vörur eru of léttar - Neytendastofa skoðar málið "Miðað við þær upplýsingar sem þarna koma fram þá er verið að svindla á neytendum,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, um vigtun Friðriks Höskuldssonar á matvælum, sem hann birti á Facebook. Þar kom fram að raunþyngd á öllum innlendum vörum reyndist minni en uppgefin þyngd á umbúðum varanna. 1.3.2012 13:55
Einelti mælist minna í skólum Reykjavíkurborgar Niðurstöður úr viðhorfskönnun foreldra grunnskólabarna sem lögð var fyrir í febrúar 2012 sýna að hlutfall þeirra foreldra sem segja barn sitt hafa lent í einelti í skólanum hefur lækkað mikið frá síðustu könnun 2010. 1.3.2012 13:12
Fangi á Suðurnesjum lést af völdum höfuðhöggs Maður sem lést í fangaklefa Lögreglustjórans á Suðurnesjum í byrjun september á síðasta ári lést vegna heilablæðingar af völdum höfuðhöggs sem hann hlaut skömmu áður en hann var handtekinn. 1.3.2012 13:11
Bjarni Ben: Þetta er ekki áfall fyrir mig "Ég gerði mér fyrir því að það hafi verið mikil átök bakvið tjöldin. Flokksfélög hafa verið að álykta um þessi mál og þingmenn hafa verið settir undir mikinn þrýsting,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og flutningsmaður tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde. 1.3.2012 12:10
Landsdómsmálið heldur áfram - frávísunartillaga samþykkt Frávísunartillaga á þingályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að afturkalla ákæru á hendur Geirs H. Haarde, var samþykkt á Alþingi nú fyrir stundu, með 33 atkvæðum gegn 27. Það þýðir að þingmenn munu ekki greiða atkvæði um hvort að ákæra verður afturkölluð. Landsdómsmálið heldur því áfram. Aðalmeðferð fer fram á mánudaginn. 1.3.2012 11:51
Faldi fíkniefni fyrir milljónir í sandkassa Lögreglan á Akureyri lagði hald á um 300 grömm af ætluðu MDMA dufti í gær. MDMA, sem er virka efnið í e-töflum, er nú farið að finnast í auknum mæli í duftformi og er iðulega sterkara en í töfluformi. 1.3.2012 11:34