Fleiri fréttir

Segir málið pólitískt og að vísa eigi því frá

Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill vísa frá tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Ella eigi að fella málið. Minnihluti nefndarinnar vill láta reyna á hvort nýr meirihluti sé nú á þingi fyrir að afturkalla ákæru.

Dæmdir fyrir hrottalega árás

Tveir menn, Guðni Guillermo Gorozpe og Halldór Arnar Karlsson, voru í gær dæmdir í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur. Sá þriðji hlaut sextán mánaða fangelsisdóm fyrir sinn þátt.

Söfnuðu rúmlega 60 milljónum fyrir bágstadda

Hjálparstarf kirkjunnar safnaði 61 milljón krónur í gegnum frjáls framlög almennings, samtaka og fyrirtækja í desember og janúar síðastliðinn. Féð rennur til neyðarhjálpar neyðarhjálpar á hungursvæðum Austur-Afríku og til innanlandsaðstoðar samkvæmt tilkynningu frá kirkjunni.

Áfram réttað yfir Agné

Framhald aðalmeðferðar fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Agné Krataviciuté, sem hefur verið ákærð fyrir að bana nýfæddu sveinbarni sínu í júlí á síðasta ári, veita því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif.

Vilja almenna niðurfærslu á verðtryggðum lánum

Þingmenn Hreyfingarinnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um almenna niðurfærslu á verðtryggðum fasteignaveðlánum heimila og afnám verðtryggingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hreyfingunni.

Ákært fyrir manndráp af gáleysi

Gefin hefur verið ákæra á hendur tveimur mönnum fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot vegna banaslyss sem varð að kvöldi 27. desember 2010. Þá rákust saman tveir vöruflutningabílar með tengivagna á Norðurlandsvegi í Húnavatnshreppi.

Elsta hlaupársbarn þjóðarinnar 22 ára

Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir á einungis afmæli á fjögurra ára fresti og heldur því upp á 22 ára afmælið sitt í dag. Hún er elsti Íslendingurinn fæddur á hlaupári 29. febrúar og hefur lifað í 88 ár, þrátt fyrir að hafa átt mun færri afmælisdaga. „Það er oft sagt í gríni að ég sé svona ung. En ég hef upplifað ýmislegt á minni ævi sem 22 ára manneskja hefði sennilega ekki getað,“ segir Ragnheiður. Fyrir um tíu árum byrjaði hún að missa sjónina og er lögblind í dag.

Yfir 7.500 manns hafa fallið í Sýrlandi

Sameinuðu þjóðirnar hafa áætlað að yfir 7.500 manns, flest almennir borgarar, hafi fallið í átökum sýrlenskra stjórnvalda við uppreisnarmenn í landinu frá því að átökin hófust í mars á síðasta ári.

Um 400.000 Danir þjást af þvagleka

Um 400.000 Danir þjást af þvagleka en það sem verra er um 90% þeirra segja ekki fjölskyldu sinni eða vinum frá þessu vandamáli vegna þess hve mikið þeir skammast sín fyrir það.

Romney sigraði í Michigan og Arizona

Mitt Romney náði að sigra í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Michigan í nótt. Þegar nær öll atkvæði voru talin var Romney með 41% atkvæða á móti 38% hjá Rick Santorum helsta keppinaut hans.

Óvirkir nemendur áhyggjuefni

Margir kennarar í Háskóla Íslands hafa áhyggjur af áhugaleysi nemenda og segja þá koma ólesna í tíma auk þess sem þeir mæti illa. Kennslumiðstöð Háskóla Íslands er í miklu samstarfi við kennara og deildarstjóri þar segir vandann margbreytilegan og flókinn.

Tveir menn sáust forða sér frá húsinu

lögreglumálLögreglan rannsakar nú tilraun til íkveikju í Hafnarfirði á mánudag þar sem eldsprengju var kastað á íbúðarhús tveggja meðlima vélhjólagengisins Outlaws. Vitni sá tvo menn forða sér af vettvangi í kjölfar atviksins.

Opnaði vef um íslenskar kvikmyndir

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði formlega á föstudaginn gagnagrunn með ítarlegum upplýsingum um íslenskar kvikmyndir. Kvikmyndavefurinn hefur verið í smíðum um nokkurt skeið og hefur nú þegar að geyma nöfn um 8.000 manns, 700 fyrirtækja og ríflega 1.200 kvikmyndatitla, eftir því sem fram kemur á vef ráðuneytisins.

Niðurskurður hafði hvorki áhrif á álag starfsmanna né þjónustu

Þótt opinberar fjárveitingar til hjúkrunarheimila hafi dregist saman að raungildi milli áranna 2008-2010 verður ekki sé að álag á starfsmenn heimilanna hafi aukist á tímabilinu, né að þjónusta hafi skerst. Þetta eru niðurstöður Ríkisendurskoðunar sem vann skýrslu að beiðni forsætisnefndar Alþingis.

Kung Fu hæfileikar Pamirs vekja hrifningu

Myndband af rússneskum skógarbirnir sem sýnir Kung Fu hæfileika sína hefur vakið gríðarlega athygli. Rúmlega 200.000 manns hafa horft á myndbandið frá því að það birtist á YouTube í síðustu viku.

Sektuð fyrir að hlusta á Rihanna

Par í Bretlandi hefur verið sektað fyrir að hlusta of hátt á plötur söngkonunnar Rihanna. Þau voru afar ósátt við niðurstöðuna og sögðu fyrir rétti að tónlist söngkonunnar hentaði öllum og að hún væri afar myndarleg.

Ökuþór "twittaði" í miðjum kappakstri

Ökuþórinn Brad Keselowski lét sér ekki leiðast þegar Daytona 500 kappakstrinum var frestað tímabundið. Hann dró fram snjallsímann og "twittaði" beint úr bílnum.

Tillaga Bjarna rædd á morgun

Þingsályktunartillaga Bjarna Benediktssonar um að afturkalla ákæru á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verður tekin til annarrar umræðu á morgun. Samkvæmt upplýsingum Vísis verða svo greidd atkvæði um hana á fimmtudaginn.

Erfitt að örva vöxt

Það er lítið hægt að gera til þess að örva skeggvöxt, en menn geta gert ýmislegt til þess að gera skeggið fallegra. Þetta segir Torfi Geirmundsson hársnyrtir. Það styttist í að marsmánuður gangi í garð og það þýðir að Mottumars hefjist, en það er átak sem blásið hefur verið til árlega til að vekja athygli á þeim krabbameinum sem herja á karla.

Þýskur raðmorðingi í lífstíðarfangelsi

Þýski raðmorðinginn Martin Ney var dæmdur í ævilangt fangelsi í dag fyrir að nema á brott og drepa þrjá unga drengi. Ney er 41 árs gamall og uppeldismenntaður. Hann braust inn á heimili fólks og réðst á börn. Brotin áttu sér stað með nokkurra ára millibili og í þremur tilfellum enduðu slíkar árásir með því að börnin dóu. Þrettán ára piltur dó 1992, átta ára strákur dó 1995 og níu ára drengur dó 2001. Ney játaði öll morðin á sig og viðurkenndi jafnframt að hafa ráðist á eitt barn til viðbótar fyrir síðustu aldamót, eftir því sem fullyrt er á vef þýska blaðsins bild.

Sakar þingmann um að reiða til klámhöggs

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, sakaði Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokks, um að fara með ósannandi þegar hann hélt því fram að þingkonan hafi haft óeðlileg afskipti af störfum lögreglunnar í mótmælunum 2009. Jón tók til máls undir liðnum störf þingsins og vísaði til umræðunnar um að nokkrir þingmenn hafi stýrt fólki fyrir utan alþingishúsið þegar mótmælin á Austurvelli stóðu sem hæst. Álfheiður greip þrívegis fram í fyrir Jóni og kallaði hann lygara.

Lögreglumenn styðja frásögn meints höfuðpaurs

Stærsta fíkniefnamál síðasta árs, Straumsvíkurmálið svonefnda, var tekið til aðalmeðferðar í dag. Þar báru tveir lögreglumenn að ekkert benti til þess að annar af meintum höfuðpaurum hefði vitað nokkuð af fíkniefnunum.

Tveir látnir eftir skotárás í skóla í Ohio

Tveir eru nú látnir eftir skotárásina í skólanum Chardon í Ohio í gær. Læknar hafa staðfest að sautján ára gamall piltur hafi verið úrskurðaður heiladauður en hann var fluttur á sjúkrahúsið í Cleveland stuttu eftir árásina.

Sprengimaður á Suðurnesjum handtekinn

Karlmaður sem handtekinn var með vopn og sprengiefni á Suðurnesjum aðfararnótt mánudags, var yfirheyrður í dag. Ekki er útilokað að hann hafi sprengt upp fiskikar til prófa virkni sprengiefnisins.

Þrír dæmdir fyrir að misþyrma grískum ferðamanni

Þrír karlmenn voru dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir alvarlega líkamsárás gegn grískum ferðamanni í maí árið 2010. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa veist að manninum með ofbeldi, meðal annars með ítrekuðum höggum og spörkum víðsvegar í líkama hans, höfuð og andlit.

Í gæsluvarðhald fyrir lífshættulega líkamsárás

Einn karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald til föstudags fyrir að ganga illþyrmilega í skrokk á öðrum manni í fjölbýlishúsi á Laugavegi í fyrrinótt. Tveir aðrir menn voru á vettvangi en þeir eru ekki grunaðir um að hafa tekið beinan þátt í árásinni.

Tuttugu starfsmönnum sagt upp - starfsfólki fækkað alls um 200

Uppstokkun í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur, sem staðið hefur undanfarin misseri, lauk í dag. Skipulagi og verklagi er breytt hjá fyrirtækinu og 20 manns var sagt upp störfum. Starfsfólki Orkuveitunnar hefur nú fækkað um 200, úr rúmlega 600 þegar þeir voru flestir árið 2008, í rúmlega 400 nú í lok febrúar.

Sjá næstu 50 fréttir