Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hugleiða safn í Helsinkiborg Guggenheim-stofnunin bandaríska hefur lagt til byggingu safns í Helsinki, höfuðborg Finnlands. 11.1.2012 05:00
Eldur gaus upp og fólk stóð í ljósum logum Tuttugu og fimm létu lífið þegar sprengja sprakk á markaði í Pakistan, nærri landamærum Afganistan, í gær. Árásinni var beint að herliði sem berst við talibana í Pakistan. Að sögn yfirvalda er árásin sú mannskæðasta í nokkra mánuði. 11.1.2012 04:00
Fæddist með líffæri sín utan kviðarholsins Það varð fljótt ljóst að meðganga Kelly Davis yrði ekki hefðbundin. Læknar tilkynntu henni að ófæddur sonur hennir væri haldinn sjaldgæfum fæðingargalla sem leiddi til þess að líffæri hans mynduðust utan á líkama hans. 10.1.2012 23:01
Rafmagn komið á Viðgerðarmönnum tókst að koma rafmagni á álverið á Grundartanga rétt eftir klukkan tíu í kvöld. Verið er að koma álverinu aftur í gang en það getur tekið nokkra klukkutíma. Ef það tekst eru litlar líkur á að tjón hafi orðið í álverinu. Það kemur þó ekki í ljós fyrr en í fyrramálið. 10.1.2012 22:35
Framkvæmdastjórnin vill ekki landsfund í vor Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar mælir ekki með því landsfundur flokksins verði í vor. Á flokkstjórnarfndi þann 30. desember síðastliðinn var lögð fram tillaga um að flýta landsfundi og fjallaði framkvæmdastjórnin um hana í kvöld. 10.1.2012 22:26
Ljón reyndi að gæða sér á þriggja ára stúlku Þriggja ára stúlka gaf lítið fyrir skapsveiflur ljóns er þau horfðust í augu í dýragarði í Nýja-Sjálandi. Karldýrið reyndi á endanum að hrifsa stúlkuna til sín en til allrar hamingju var styrkt gler á milli þeirra. 10.1.2012 21:42
Kærður fyrir að birta mynd af Mikka Mús á Twitter Einn ríkasti maður Egyptalands er sakaður um að hafa móðgað trúarhætti múslima eftir að hann birti mynd af Mikka og Mínu í arabaklæðum á samskiptasíðunni Twitter. 10.1.2012 21:12
Aftanákeyrsla í Grafarvogi og umferðarljós í ólagi Hörð aftanákeyrsla varð við Korpúlfsstaði í Grafarvoginum rétt eftir klukkan átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sakaði engan en báðir bílanir eru mikið skemmdir. Ekkert ferðaveður er í borginni og mælt með því að fólk haldi sig heima. Umferðarljós á Miklubrautinni duttu út áðan, og víðsvegar um borgina, vegna rafmagnstruflana. 10.1.2012 21:08
Flóðbylgjuviðvörun aflétt í Indónesíu Yfirvöld í Indónesíu hafa aflétt flóðbylgjuviðvörun en ekki er lengur talin hætta á að flóðbylgja muni skella á ströndum Súmötru eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir eyjuna seinnipartinn í dag. 10.1.2012 20:47
Engin slys á fólki - eldurinn á fyrstu hæð Eldur kom upp í íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi á Grensásvegi rétt fyrir klukkan hálf átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru allar stöðvar sendar á staðinn. Reykkafarar fóru inn í íbúðina og slökktu eldinn. Engin slys urðu á fólki. Ein stöð er á vettvangi núna og er að reykræsta íbúðina og íbúðir í kring. 10.1.2012 20:09
Sjónvarpsþáttaröð byggð á Goodfellas í bígerð Bandaríska sjónvarpsstöðin AMC vinnur nú að framleiðslu sjónvarpsþátta sem byggðir eru á bókinni Wiseguy en stórmyndin Goodfellas var byggð á sömu bók. 10.1.2012 20:06
Þetta áttu að gera ef það verður heitavatns- eða rafmagnslaust Orkuveitan vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri ef það verður heitavatns- og rafmagnslaust hjá fólki. 10.1.2012 21:20
Vaðlaheiðargöng: Umtalsverð áhætta fyrir ríkissjóð Fyrirhuguð lánveiting ríkisins vegna Vaðlaheiðarganga ber í sér umtalsverða áhættu fyrir ríkissjóð og kallar á endurmat á fjármögnun framkvæmdanna. Þetta kemur fram í skýrslu sem IFS Greining vann fyrir fjármálaráðuneytið. 10.1.2012 20:43
Bensínlíterinn hækkað um 12 krónur á einum mánuði Verð á díselolíu náði nýjum hæðum eftir að olíufélögun hækkuðu eldsneytisverð í gær. Bensínlítrinn hefur hækkað um tólf krónur á einum mánuði. 10.1.2012 20:23
Einhverfuröskun ekki skammarleg "Það er ekkert til að skammast sín fyrir að vera með röskun á einhverfurófi," segir 27 ára gömul kona sem fyrir jól mannaði sig upp í að fara í einhverfugreiningu. Við hittum Mamiko Dís Ragnarsdóttur uppi í Breiðholti í dag, sem vill að fólk með slíka röskun komi úr felum og vonar að saga hennar gagnist öðrum. 10.1.2012 20:00
Fljóðbylgjuviðvörun í Indónesíu Yfirvöld í Indónesíu hafa gefið út flóðbylgjuviðvörun eftir að öflugur jarðskjálfti átti sér stað við eyjuna Súmötru. Skjálftinn var 7.3 stig að stærð. 10.1.2012 19:51
Umferðarljós virka ekki Umferðarljós eru dottin út á sumum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru bilunin aðallega bundin við miðbæ Reykjavíkur en fréttastofa hefur fengið fregnir af því að umferðarljósin á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar virki ekki. 10.1.2012 19:39
Hefði mátt koma í veg fyrir árekstra ef sandur eða salt væri á götum Um 30 árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag þar sem starfsmenn árekstur.is veittu ökumenn aðstoð á vettvangi. Af þessum rúmlega 30 árekstrum urðu 6 árekstrar í Mosfellsbænum á einungis þremur klukkutímum síðdegis. 10.1.2012 19:33
Rafmagn komið á á Akranesi Rafmagn er nú komið á á Akranesi. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, segir að tekist hafi verið að koma því á fyrir stundu. Þó sé mikill óstöðugleiki í rafmagninu en menn hjá Orkuveitunni eru á tánum og eru tilbúnir að grípa inn í ef eitthvað fer úrskeiðis. 10.1.2012 18:55
Íbúar á Ólafsvík beðnir um að fara sparlega með rafmagn Rafmagn í Ólafsvík er nú framleitt með varavélum og er skammtað íbúum á svæðinu. Vinnuflokkur Landsnets er nú staddur í Staðarsveit við bilanaleit á 66 kv flutningslínunni Vegamót - Ólafsvík. Í tilkynningu segir að erfiðlega hafi gengið að komast í spennistöðvar vegna slæms skyggnis og ófærðar. Þessar aðstæður hafa meðal annars tafið mjög fyrir því að koma rafmagni til notenda á Hellissandi sem hafa verið hvað lengst án rafmagns á svæðinu. Beint er til raforkunotenda að fara sparlega með rafmagn þannig að hægt sé að koma rafmagni til sem flestra og þannig komast hjá skömmtun á rafmagni. 10.1.2012 18:52
Lýtalæknar hafa neitað landlækni um upplýsingar Landlæknisembættið fékk upplýsingar um það vorið 2010 að P.I.P sílíkonpúðar væru síðri að gæðum en aðrir. Íslenskar konur voru ekki látnar vita. Nokkrir lýtalæknar hafa neitað landlækni um heilsufarsupplýsingar sem hann óskaði eftir. 10.1.2012 18:45
Nelson vill á Kvíabryggju "Ég get ekki lofað því að Gunnar myndi ráða sig sem fangavörð, en hann yrði eflaust helvíti góður í því,“ segir Haraldur Dean Nelson, umboðsmaður og faðir bardagakappans Gunnars Nelsonar. Haraldur er einn af ellefu umsækjendum um embætti forstöðumanns á Kvíabryggju, sem var auglýst laust til umsóknar fyrir áramót. 10.1.2012 18:00
Lögreglan: Akið varlega! Lögreglan minnir fólk á að fara varlega í umferðinni enda er hálka á öllum vegum. Samhliða þessu er líka minnt á mikilvægi þess að hreinsa hrím og/eða snjó af bílrúðum og ljósum þegar svo ber undir. Sé það ekki gert setja hinir sömu sjálfa sig og aðra vegfarendur í hættu með takmörkuðu útsýni. Að síðustu skal það nefnt að ökutæki skulu búin til vetraraksturs enda gáleysi að aka um á slitnum sumardekkjum um hávetur. Þess eru þó því miður of mörg dæmi um. 10.1.2012 17:38
Á hálum ís á Hellisheiði Fréttamaðurinn grandvari Hödd Vilhjálmsdóttir komst í hann krappan þegar þau Gísli Berg tæknistjóri á Stöð 2, voru að mynda ófærð á Hellisheiðinni í dag. Gríðarlega hált var á heiðinni og áttu þau í mestu vandræðum með að halda bílnum á veginum. Á einum stað snerist bíllinn heilhring á veginum, eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði. Allt fór þó vel og komust þau Hödd og Gísli heilu og höldnu til baka í bæinn. Nánar verður sagt frá fréttinni í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálfsjö. 10.1.2012 17:13
Bílvelta á Vesturlandsvegi Ökumaður velti bíl sínum á Vesturlandsvegi á fimmta tímanum í dag. Tækjabíll frá slökkviliðinu var kallaður út auk lögreglu og sjúkraliðs, en ekki er vitað hvort alvarleg meiðsl hafi orðið. 10.1.2012 16:47
Bílaþjófur dæmdur fyrir að slá síbrotamann Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í síðustu viku fyrir að slá samfanga sinn hnefahöggi á Litla Hrauni í maí á síðasta ári. 10.1.2012 16:04
Þroskahamlaðir borga meira fyrir matinn en borgarfulltrúar Þroskahamlaðir starfsmenn Reykjavíkurborgar greiða meira fyrir hádegismat en borgarfulltrúar og embættismenn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, vekur máls á þessu atriði á bloggi sínu á vefsvæði Smugunnar. 10.1.2012 16:03
Straumsvíkursmygl: Meintur smyglari áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóm Reykjavíkur yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa smyglað tæpum tíu kílóum af amfetamíni, rúmlega átta þúsund MDMA töflum og talsverðu magni af sterum til landsins 10.1.2012 15:43
Fólk beðið um að spara rafmagnið Erfiðlega gengur að koma rafmagni á alla notendur í Ólafsvík og Hellissandi rafmagn fór af bæjunum og Rifi um klukkan níu í morgun þegar bilun varð á flutningslínunni frá Vegamótum til Ólafsvíkur. 10.1.2012 15:30
Grænlenska ofsaveðrið mun ekki valda usla Búist er við því að óveðrið sem við höfum orðið vör við í dag verði gengið yfir að mestu um hádegið á morgun. 10.1.2012 15:30
Mæðgur frá Brisbane sáu norðurljósin en ekki Lárus Welding "Við erum bara ævintýragjarnar konur," sagði Margret Murphy sem, ásamt dóttur sinni, sátu í þingfestingu dómsmáls gegn Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis. Hvorugir mættu í þingfestingu Svartháfsmálsins svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag því báðir voru þeir staddir erlendis. 10.1.2012 15:13
Frost á Langjökli - veðrið hamlar tökum Rúmlega tuttugu manna kvikmyndatökulið er nú að tygja sig niður af Langjökli sökum veðursins sem gengur yfir landið. Verið er að gera hörkuspennandi íslenskan vísindatrylli sem á að heita Frost en myndin er í leikstjórn Reynis Lyngdal. 10.1.2012 14:52
Fékk sér PIP brjóst og missti hárið Tveggja barna móðir byrjaði að missa hárið eftir að hún fékk sílíkonpúða frá PIP. Hún fann fyrir margs konar öðrum óþægindum og hafði samband við landlækni, sem aðhafðist ekkert. 10.1.2012 14:20
Grænlenskt ofsaveður gæti náð til Íslands Danska veðurstofan varar við ofsaveðri, eða svonefndu Piterak veðri í Ammasalik og þar í grennd. 10.1.2012 07:23
Nokkrir klukkutímar þar til álið storknar Starfsmenn Norðuráls eru í miklu kappi við tímann eftir að rafmagnslaust varð í álverinu á Grundartanga. Nú er búið að vera rafmagnslaust í tvo og hálfan klukkutíma - en samkvæmt upplýsingum frá Norðuráli er talið að ekki megi vera rafmagnslaust lengur en þrjá til fjóra klukkutíma. 10.1.2012 21:30
Eldur í fjölbýlishúsi Eldur er kominn upp í fjölbýlishúsi að Grensásvegi 60. Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru á leið á vettvang. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru að minnsta kosti þrír sjúkrabílar og tveir slökkviliðsbílar fyrir utan blokkina. Nánari upplýsingar þegar þær berast. 10.1.2012 19:29
Álverið á Grundartanga án rafmagns - mikið tjón getur orðið Rafmagnslaust er í álverinu á Grundartanga og vinnur nú Landsnet að viðgerð. Ágúst Hafberg, upplýsingafulltrúi Norðuráls, segir í samtali við fréttastofu að ekki sé ljóst hvað olli því að rafmagnið í álverinu sló út en líklega sé það vegna veðurs. Ef álverið er án rafmagns í meira en örfáa klukkutíma getur tjónið hlaupið á milljörðum. Rafmagn hefur slegið út víðsvegar um land í dag og í kvöld. 10.1.2012 19:22
Rafmagnslaust á Akranesi Rafmagnslaust er á Akranesi en rafmagn í bænum sló út fyrir nokkrum mínútum síðan. Að sögn bæjarbúa sem fréttastofa talaði við fyrir stundu er allt svart og kertaljós eru í öllum gluggum. Ekki er vitað hvenær rafmagnið kemst aftur á. Ekki náðist í upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur við vinnslu fréttarinnar. 10.1.2012 18:37
Tafir á póstútburði vegna óveðurs Vegna slæmrar færðar um land allt mun verða töf á útburði og útkeyrslu á pósti í dag og næstu daga. 10.1.2012 15:52
Opnar nýjan vef um ferðamennsku Fyrirtækið Já opnar nýjan vef sem ætlað er að veita erlendum ferðamönnum betra aðgengi að upplýsingum um Ísland og vörur og þjónustu sem þeim standa til boða hér á landi. Vefurinn, sem verður á slóðinni www.iceland.ja.is er samstarfsverkefni Já og aðila í íslenskri ferðaþjónustu, og verða íslensk fyrirtæki sýnilegri ferðamönnum bæði áður en þeir koma til landsins og á meðan á dvöl þeirra stendur. Öll þau fyrirtæki sem þegar eru skráð hjá Já verða sjálfkrafa skráð á hinn nýja vef þeim að kostnaðarlausu. 10.1.2012 14:33
Reykjanesbrautin þokkalega fær þrátt fyrir éljagang Loka þurfti Reykjanesbraut til móts við Stekki um tíma rétt fyrir hádegið vegna umferðaróhapps. Tveir bílar skullu saman enda skyggni með eindæmum slæmt. Engin meiðsli urðu á fólki. Brautin hefur verið opnuð aftur og að sögn lögreglu þokkalega fær þótt ekki sé færðin góð. Gengið hefur á með mjög dimmum og hvössum éljum og hefur það gert ökumönnum mjög erfitt fyrir á stundum. 10.1.2012 13:51
Lekir PIP púðar fjarlægðir - ríkið borgar Konur sem fengu ígrædda PIP-brjóstapúða á árunum 2000 - 2010 og eru sjúkratryggðar hér á landi munu fá bréf á næstu dögum þar sem þeim verður boðið að koma sér að kostnaðarlausu í ómskoðun á brjóstum til að kanna ástand púðanna. Reynist púðar lekir tekur ríkið þátt í kostnaði við að fjarlægja þá samkvæmt almennum reglum um greiðsluþátttöku hins opinbera vegna aðgerða. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti aðgerðaáætlun heilbrigðisyfirvalda vegna þessa máls á fundi ríkisstjórnar í dag. 10.1.2012 13:07
Reykjanesbrautin lokuð vegna óhapps Búið er að loka Reykjanesbrautina frá Stekk, til Reykjavíkur vegna umferðaróhapps. Þar er slæm færð, mikil hálka og ekkert ferðaveður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum má gera ráð fyrir því að vegurinn verði lokaður næsta hálftímann. 10.1.2012 12:04
Alþingi með skýra heimild til að afturkalla málshöfðun í landsdómsmáli Alþingi hefur skýra lagaheimild til að afturkalla málshöfðun á hendur fyrrverandi forsætisráðherra og ekkert í stjórnarskránni takmarkar þetta vald Alþingis. Þetta segir Róbert Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands. 10.1.2012 11:57
Trylltur ökumaður boðaður í skýrslutöku - vitni búið að gefa sig fram Maðurinn sem braut rúðu á bíl fatlaðs manns í Hafnarfirði á fimmtudaginn í síðustu viku, hefur verið boðaður í skýrslutöku hjá lögreglunni í Hafnarfirðinum. Þá gaf vitni sig fram við lögreglu í gær sem sá herlegheitin. 10.1.2012 11:46