Fleiri fréttir

Pétur Blöndal: Gjaldeyrishöftin eins og ópíum

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, líkti gjaldeyrishöftunum við ópíum á þingfundi í dag. Hann lýsir sig andstæðan frumvarpi ríkisstjórnarinnar um framlengingu gjaldeyrishaftanna.

Flugfreyjur skrifa undir kjarasamning

Nýr kjarasamningur Flugfreyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara laust eftir miðnætti í gærkvöldi. Samningafundur hafði þá staðið frá því klukkan tíu í gærmorgun samkvæmt vef Morgunblaðsins.

Nóttin róleg hjá lögreglu

Nóttin var róleg hjá lögreglunni á landinu öllu. Á höfuðborgarsvæðinu gistu þrír menn fangageymslur lögreglunnar. Dælubílar slökkviliðsins voru ekki kallaðir út, en sjúkraflutningamenn fóru hins vegar í um þrjátíu útköll.

Geðlæknir metur litháísku móðurina sakhæfa

Litháísk kona, sem grunuð er um að hafa skilið andvana barn sitt eftir í ruslageymslu í júlí, er sakhæf samkvæmt niðurstöðu geðrannsóknar sem nú liggur fyrir. Endanleg ákvörðun um sakhæfi hennar er í höndum dómara að aðalmeðferð málsins lokinni.

Ráðherra efast um sjálfbærni hvalveiða

Íslensk stjórnvöld mótmæltu aðgerðum bandarískra stjórnvalda vegna veiða á langreyði á fundi með bandaríska sendiherranum. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að efast megi um að langreyðaveiðar séu sjálfbærar á meðan ekki sé markaður fyrir afurðirnar.

Vilja vísa tillögu um staðgöngumæðrun frá

Lagt hefur verið til á Alþingi að þingsályktunartillögu um skipun starfshóps sem semja á frumvarp um heimilun staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni verði vísað frá. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Mörður Árnason, þingmenn Samfylkingarinnar, lögðu frávísunartillöguna fram í gær.

Gefið eftir í stóru málunum

Gjaldeyrishöft verða framlengd um tvö ár í stað fjögurra og vald til að ákvarða fjölda ráðuneyta og verkaskiptingu milli þeirra verður áfram á höndum þingsins en ekki forsætisráðherra. Þetta eru helstu breytingarnar sem gerðar voru á tveimur umdeildum frumvörpum ríkisstjórnarinnar í gær svo nást mætti sátt um að ljúka þingstörfum í dag. Vonast er til að hægt verði að slíta þingi síðdegis.

Launamunur kynja eykst meira hjá hinu opinbera

Óútskýrður launamunur kynjanna hefur aukist úr 9,1 prósenti í 13,2 á milli ára meðal félagsmanna SFR. Á sama tíma jókst óútskýrður launamunur hjá VR, stærsta stéttarfélagi landsins, úr 10,1 prósenti í 10,6 prósent.

Hryssur stórslasaðar eftir meintan níðing

Hryssa fannst sárkvalin og blæðandi, með illa útleikin kynfæri, í girðingu í Kjós um síðustu helgi. Hún hefur verið til aðhlynningar á Dýraspítalanum í Víðidal undanfarna daga. Önnur hryssa í sömu girðingu hafði áður verið færð undir læknishendur af sömu ástæðu. Eigendur hryssanna hafa kært athæfið til lögreglu.

Kaupin breyta verðmati á ósnortnu víðerni

Fyrirhuguð kaup kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum munu breyta verðmati á ósnortnu víðerni. Þetta segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.

Eineltisfé verður deilt á alla skólana

Reykjavíkurborg er hætt í samstarfi við Olweus um eineltisáætlanir í grunnskólum. Sigrún Björnsdóttir hjá menntasviði Reykjavíkur segir að undanfarin ár hafi verkefnastjóri Olweus-áætlunarinnar á Íslandi fengið fasta 2,5 milljóna króna greiðslu fyrir að veita 21 grunnskóla í Reykjavík stuðning. Skólarnir hafi unnið gegn einelti í samræmi við áætlunina.

Pólitísk skylda segir Ingibjörg

Það var pólitísk skylda íslenskra stjórnvalda að taka á móti flóttakonum frá Írak vegna stuðnings íslenskra stjórnvalda við Íraksstríðið, að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra.

Rússum spáð kosningasigri

„Það er mjög mikilvægt að Samhljómsflokkurinn komist í ríkisstjórn,“ sagði Nils Usakovs, leiðtogi flokksins, sem spáð er stórsigri í þingkosningum í Lettlandi í dag.

Baráttan er ekki búin þrátt fyrir sigurinn

„Okkur tókst það!“ sagði Helle Thorning-Schmidt, formaður jafnaðarmanna, í hópi stuðningsmanna í fyrrakvöld, þegar ljóst varð að vinstriflokkarnir hefðu náð þingmeirhluta eftir tíu ára valdasetu hægrimanna.

Flutti sömu ræðuna tvisvar - þingmenn endurtóku frammíköllin

„Við sátum þarna og hlustuðum á Jón Gunnarsson þegar ég uppgötvaði skyndilega að ég hafði heyrt þessa ræðu áður,“ segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, en hann segist hafa hlustað á Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, flytja sömu ræðuna tvisvar í umræðum um Stjórnarráð Íslands.

Forseta Hells Angels á Íslandi vísað frá Noregi

"Ég var handtekinn í gær og mér hent í gæsluvarðhald. Svo var mér flogið frá Noregi til Íslands í dag,“ sagði Einar Marteinsson, forseti Vítisenglanna á Íslandi, en hann er einn af þremur Vítisenglum sem var snúið við í Noregi í gær af þrjúhundruð. Hinir voru frá Englandi og Frakklandi.

Mikið um árekstra í rigningunni

Í dag og í gær hafa starfsmenn Áreksturs.is aðstoðað ökumenn , við að fylla út tjónaform, í meira en 50 árekstrum, sem orðið hafa á höfuðborgarsvæðinu.

Sextíu manns í vinnu við skriðjöklagöngur

Gönguferðir á skriðjökla með ferðmenn hafa stóraukist á síðustu árum. Kallað er eftir því að reglur verði settar til að tryggja öryggi. Um sextíu manns höfðu atvinnu af því í sumar að ganga með ferðamenn um íslenska skriðjökla og um fimmtán manns hafa orðið lifibrauð af skriðjöklum árið um kring, en þetta einn helsti vaxtarsprotinn í íslenskri ferðaþjónustu.

Helmingur bifhjóla í ólagi

Ástand bifhjóla virðist misgott ef marka má niðurstöður skyndiskoðunar sem lögreglan, í samvinnu við Umferðarstofu og skoðunarstöðvar, stóð fyrir í vikunni.

Hátt í 1700 leituðu á Vog

Alls fengu 1.676 manns innlagnarmeðferð hjá Sjúkrahúsinu Vogi á síðasta ári. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Alþingi. Skjólstæðingum sem þiggja innlagnarmeðferð hefur fækkað lítillega frá árinu 2007 en þá voru þeir 1800. Áætlað er að mun fleiri, eða 4000, sæki meðferð á dag- og göngudeild.

Hitti Ben Stiller: Þetta var bara geðveikt

"Þetta var mjög skemmtilegt og bara "made my day“ og alla mína daga núna,“ segir Dagný Ósk Hermannsdóttir, heimavinnandi húsmóðir á Stykkishólmi, sem hitti á stórleikarann Ben Stiller fyrr í dag.

Enn allt á huldu um milljónamæringinn

Hinn heppni íslenski Víkingalottóspilari sem vann 50 milljónir á miðvikudaginn hefur enn ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Þegar dregið var á miðvikudagskvöldið reyndust þrír heppnir spilarar vera með allar tölur réttar. Auk Íslendingsins var einn frá Noregi og einn frá Finnlandi. Íslendingurinn stálheppni keypti sér einnar raða miða í Jolla í Hafnarfirði og kostaði miðinn aðeins 50 krónur.

Sóttu veikan mann frá Vestmannaeyjum

Landhelgisgæslunni barst rétt fyrir klukkan eitt í dag beiðni, í gegnum Neyðarlínuna, frá lækni í Vestmannaeyjum um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna manns sem slasaðist alvarlega í bænum. Vegna þoku er ekki hægt að lenda flugvél í Eyjum. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 12:57 og lenti í Vestmannaeyjum rétt fyrir klukkan tvö. Flogið var með mannin rakleiðis á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann fékk aðhlynningu.

Ben Stiller kominn til Stykkishólms

Stórstjarnan Ben Stiller er nú kominn í Stykkishólm en hann birti fyrir stundu færslu á Twitter-síðu sinni þess efnis. Í morgun var hann á staddur á Austurlandi og ferðast hann því hratt á milli staða.

Breytingar líklegast gerðar á stjórnarráðsfrumvarpinu

Líklegt er að gerðar verði breytingar á frumvarpinu um stjórnarráðið þannig að forsætisráðherra mun ekki einn og sér geta stjórnað því hvaða ráðuneyti eru starfandi hverju sinni. Samkvæmt heimildum Vísis er verið að vinna að nýrri útfærslu á þessu ákvæði þannig að forsætisráðherra mun þurfa að bera tillögu um ráðherraskipan undir Alþingi með þingsályktunartillögu. Þingfundur hófst að nýju klukkan um klukkan korter í þrjú en hann hefur tafist mikið í dag vegna ágreinings um þau málefni sem þarf að ljúka á þessu þingi.

Tveir Ítalir fara yfir Friðarsúluna

Tveir menn frá ítalska fyrirtækinu Space Cannon eru staddir hér á landi vegna viðhalds á Friðarsúlunni í Viðey. Kostnaður Reykjavíkurborgar er um sextíu þúsund krónur vegna dvalar þeirra hér á landi.

Ráðherralistinn ekki tilbúinn um helgina

Helle Thorning-Schmidt, formaður jafnaðarmanna í Danmörku, segir að hún verði ekki tilbúin með ráðherralista áður en helgin er á enda. Þetta kemur fram í danska blaðinu Jyllands Posten.

Hjúkrunarheimili byggð í Reykjanesbæ og á Ísafirði

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að heimila velferðarráðherra og fjármálaráðherra að ganga til samninga við Reykjanesbæ um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis og við Ísafjarðarkaupstað um byggingu 30 rýma hjúkrunarheimilis. Framkvæmdir verða fjármagnaðar með svokallaðri leiguleið.

Jóhanna fundar með forystumönnum stjórnarandstöðunnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sitja nú og ráða ráðum sínum um það hvernig hægt verður að ná samkomulagi um stjórnarráðsfrumvarpið svokallaða.

Tveir undir áhrifum

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í nótt. Þeir voru stöðvaðir í miðborginni og Árbæ. Um var að ræða konu á þrítugsaldri og 18 ára pilt en hann hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.

Össur: Íslendingar eiga fullt af öðrum vinum

Utanríkisráðherra segist vera hundfúll yfir aðgerðum bandarískra stjórnvalda gegn Íslandi vegna hvalveiða. Rök Bandaríkjaforseta í málinu séu þjóðinni ekki boðleg. Hann segir þó Íslendinga eiga fullt af öðrum vinaþjóðum.

Grunur um fíkniefnaneyslu 11 ára barns

Grunur leikur á að ellefu ára gamall piltur, sem fannst í annarlegu ástandi í vikunni, hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Barnaverndarnefnd hefur verið tilkynnt um málið.

Segir bandarísk stjórnvöld ósamkvæm sjálfum sér

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna útnefndi Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í júlí síðastliðnum og lagði til við Bandaríkjaforseta að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi vegna hvalveiða Íslendinga. Forsetinn ákvað í gær að fara að tillögu viðskiptaráðherrans og tilkynnti jafnframt að ekki yrði gripið til neinna viðskiptalegra aðgerða.

Þingflokkar stilla saman strengi

Þingfundi var frestað í morgun um klukkutíma. Fundurinn átti að hefjast klukkan hálfellefu en nú er gert ráð fyrir að hann hefjist klukkan hálftólf. Fundað hefur verið á Alþingi langt fram á nótt undanfarna daga vegna frumvarps um breytingar stjórnarráðinu. Samkvæmt upplýsingum Vísis er ástæðan fyrir frestun þingfundarins nú sú að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vildi gefa þingflokkum tækifæri til að fara yfir málin áður en fundurinn hæfist. Samkvæmt upphaflegri dagskrá Alþingis átti að slíta haustþingi fyrr í þessari viku, en sú áætlun hefur ekki gengið eftir.

Tófan að útrýma rjúpunni

Tófan er að útrýma rjúpunni norðan Ísafjarðardjúps, segir Indriði Aðalsteinsson bóndi á Skjaldfönn í grein í Bændablaðinu í dag. Hann segir að ófremdarástand ríki vegna fjölgunar refs. Sjálfur hefur hann verið iðinn við að halda ref og mink í skefjum í kring.

Undrast ekki aðgerðir Obama

Þær þvingunaraðgerðir gegn Íslendingum sem Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti um í gær ættu ekki að koma mönnum á óvart, segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Hann kvaðst ekki hafa séð tilkynninguna frá Obama en vissi af því í gær að hún væri komin.

Ben Stiller á Austurlandi

Stórleikarinn Ben Stiller er á Austurlandi. Þangað fór hann í gærkvöld, eftir því sem fram kemur á Twittersíðu kappans.

Ögmundur með efasemdir um stjórnarráðsfrumvarp

Umræðu um frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu var frestað í nótt rétt fyrir klukkan tvö en til stóð að þing lyki störfum í gær. Fundur hefur aftur verið boðaður í dag klukkan hálf ellefu og þá á enn að ræða málið. Í umræðunum í nótt kom fram í máli Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hann hefði ákveðna fyrirvara gagnvart frumvarpinu þar sem í því fælist aukin miðstýring stjórnarráðsins sem hann sé andvígur. Þá hefur Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra einnig gagnrýnt frumvarpið. Alls liggja fjörutíu og átta mál fyrir þinginu í dag.

Kominn að bryggju í Seyðisfirði

Báturinnn sem tilkynnti um bilun úti á Seyðisfirði í morgun er kominn til hafnar. Bátur frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu dró bátinn til hafnar á Seyðisfirði. Fjórir voru í áhöfn bátsins og amaði ekkert að þeim enda veður gott á svæðinu og höfðu dælur bátsins vel undan við að dæla vatni. Rannsóknarnefnd sjóslysa mun nú taka atvikið til skoðunar.

Enn kom lyktin upp um kannabisrækt

Síðdegis í gær uppgötvaði lögreglan kannabisræktun í í Barmahlíð. Þrjátíu og þrjár plöntur uppgötvuðust í íbúðarhúsnæði í hverfinu en fyrr um daginn hafði lögreglan upprætt ræktun í Síðumúla. Líkt og í Síðumúlamálinu þá runnu lögreglumennirnir á lyktina frá ræktuninni þegar þeir voru við störf í hverfinu. Eigandi íbúðarinnar hefur verið yfirheyrður vegna málsins.

Vélarvana bátur á Seyðisfirði

Landhelgisgæslunni barst rétt eftir klukkan sex neyðarkall frá vélarvana skipi sem leki hafði komið að í miðjum Seyðisfirði. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að fjórir menn séu um borð í bátnum og segja þeir að dælur bátsins hafi vel undan auk þess sem ágætt veður er á svæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir