Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óskabörn þjóðarinnar frá reiðhjólahjálma Eimskipafélagið og Kiwaninshreyfingin gefa öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1. bekk grunnskóla í vor reiðhjólahjálma. Verkefnið er árviss viðburður félaganna til að stuðla að umferðaröryggi yngstu hjólreiðarmanna landsins, en þetta er í áttunda skipti sem félögin standa fyrir hjálmagjöfum. Í ár hefur verkefnið hlotið nafnið „Óskabörn þjóðarinnar", en samtals munu um 4.300 börn fá reiðhjólahjálma að gjöf í þetta skipti. Meðalfjöldi barna í 1. bekk á þessum átta árum hefur verið um 4.200 börn hvert ár, sem þýðir að yfir 30.000 börn eða 10% af þjóðinni hafa notið góðs af verkefninu. „Verkefnið er okkur ómetanlegt og stendur okkur nærri" segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips. „Á hverju ári fáum við fregnir af því frá foreldrum, lögreglu og skólayfirvöldum að hjálmarnir sem við höfum verið að gefa hafið bjargað barni frá alvarlegum meiðslum." Á næstu dögum og vikum mun Kiwaninshreyfingin fara í alla grunnskóla landsins og afhenda börnum 1. bekks grunnskóla hjálma. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að vera vakandi fyrir því þegar börn þeirra koma heim með hjálma og aðstoða þau við að stilla þá rétt. Nánari upplýsingar um hjálmaverkefnið og öryggi barna í umferðinni er hægt að fá á facebooksíðunni www.facebook.com/oskaborn <http://www.facebook.com/oskaborn>. 27.4.2011 11:36
Eldingu laust niður í fótboltavöll - níu slasaðir Að minnsta kosti níu einstaklingar eru slasaðir, þar af einn alvarlega, eftir að eldingu laust niður í fótboltavöll í bænum Portage í Michigan í Bandaríkjunum. 27.4.2011 11:14
Gunnar hjá lögreglu vegna ásakana um kynferðisbrot Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður í Krossinum, mætti í morgun í skýrslutökur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna ásakana um kynferðisbrot. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum hafa nokkrir safnaðarmeðlimir úr Krossinum sakað Gunnar um kynferðislega áreitni. 27.4.2011 10:48
Húðflúraði 305 þjóðfána á líkama sinn Indverjinn Har Prakash komst í Heimsmetabók Guinnes á dögunum fyrir að vera með flesta þjóðfána húðflúraða á líkama sinn. 27.4.2011 10:40
Íslenskir neytendur fá ekki að velja: Skortur á lífrænu kjöti Hvorki er hægt að kaupa lífrænt kjúklingakjöt né lífrænt svínakjöt af á Íslandi. Sáralítið framboð er af eggjum úr lífrænni framleiðslu en um 85% eggja sem seld eru á Íslandi koma frá verksmiðjum sem hafa hænur í búrum. Þetta kom fram í erindi Oddnýjar Önnu Björnsdóttur, sem situr í framkvæmdanefnd Samtaka lífrænna neytenda, á málþingi um aðbúnað dýra í íslenskum landbúnað sem haldið var í Norræna húsinu í gær. Oddný segir íslenska neytendur nánast ekki hafa neitt val þegar kemur að lífrænum búfjárafurðum. Framboðið er einna mest af lambakjöti sem fæst í lífrænum sérverslunum, á bændamörkuðum og hefur einstaka sinnum sést í stórmörkuðum. Mikið hefur verið fjallað um aðbúnað búfjár á Íslandi að undanförnu og virðist sem einskonar vakning sé að eiga sér stað meðal neytenda sem vilja í auknum mæli kaupa vörur af dýrum sem ekki eru alin í verksmiðjubúskap. Framboðið er hins vegar afar lítið enn sem komið er. Aðeins tvö sláturhús á landinu eru vottuð til móttöku á lífrænu sláturfé, á Blönduósi og á Hvammstanga. Þegar staðan í heild sinni er metin hér á landi hvað varðar lífræna framleiðslu er úrvalið afar takmarkað, fáir framleiðendur eru á markaðnum og lítil nýliðun. Oddný segir að ef neytendur tækju við sér og færu í auknum mæli að kaupa lífrænar vörur yrði strax skortur á þeim í landinu, vegna þess hve lítið af þeim er á boðstólnum. Ein af ástæðum þessa er, að mati Oddnýjar, sú að Íslendingar hafa í gegn um tíðina gert litlar kröfur til framleiðenda þegar kemur að velferð dýra. Hún segist ítrekað hafa orðið var við að fólk lifi í þeirri blekkingu að hér á landi gangi búfénaður almennt frjáls og tekur hún ímynd íslenska fjallalambsins vera blekkingarmynd sem verksmiðjubúin lifi á. Vegna þessa hefur nánast enginn þrýstingur myndast á að bjóða lífrænt vottaðar afurðir. Erfitt hefur verið að finna upplýsingar um hvar hægt er að kaupa lífrænar búvörur. Oddný birti því í gær samantekt á búum og fyrirtækjum sem bjóða upp á þær. VALKOSTIR NEYTENDA – LÍFRÆNAR AFURÐIR: Lambakjöt Mælifellsá í Skagafirði, Árdal í Kelduhverfi, Brekkulæk í Miðfirði, Miðhrauni II á Snæfellsnesi og Skaftholti í Gnúpverjahreppi. Sauðfjárbýlið Selvogsgata er í lífrænni aðlögun. Þess er að vænta að minnst þrjú önnur býli hefji lífræna aðlögun sauðfjár í sumar. Nautakjöt Finnastaðir í Eyjafjarðasveit, Búland í Rangárvallasýslu, Skaftholt og Neðri-Háls Mjög takmarkað magn sem eingöngu fæst í lífrænum sérverslunum og á bændamörkuðum / "beint frá bónda” Svínakjöt Neytendur verða að kaupa "beint frá bónda“ ef þeir vilja ekki verksmiðjuframleitt svínakjöt Kjúklingakjöt Hægt er að fá svokallaðan vistvænan kjúkling frá Brúneggjum sem býr við betri skilyrði en verksmiðjualinn kjúklingur, en uppfyllir þó ekki skilyrði um lífræna ræktun Egg Sáralítið framboð er af lífrænum eggjum. Þau bú sem þau framleiða eru Sólheimar í Grímsnesi og Skaftholt í Gnjúpverjahreppi Örlítið magn kemur frá svokölluðum landnámshænum sem búa við mjög góðan aðbúnað Tæp 15 prósent koma frá "frjálsum” hænum en aðferðafræðin tilheyrir verksmiðjubúskap. Þau egg sem þar um ræðir eru Brúnegg, Hamingjuegg (Nesbú), Omega 3 egg (Stjörnuegg) og egg frá Gerði ehf. Mjólk og mjólkurafurðir Hægt er að kaupa lífræna gerilsneydda, ófitusprengda mjólk í lítra umbúðum frá MS í sérverslunum og flestum stórmörkuðum. Mjólkin kemur frá Neðri-Hálsi í Kjós. BioBú framleiðir lífræna jógúrt, skyr, rjóma, smjör og ís úr mjólk frá Neðri-Hálsi, Búlandi í Austur Landeyjum og Finnastöðum í Eyjafjarðasveit. Skaftholt framleiðir einnig lífræna mjólk, gerilsneyðir hana og framleiðir eigin ost. Heimild: Oddný Anna Björnsdóttir– "Aðgangur að lífrænum dýraafurðum“ - erindi á málþingi um aðbúnað dýra í íslenskum landbúnaði 27.4.2011 10:37
Pólitískur arftaki Dalai Lama kjörinn Lobsang Sangay var kjörinn forsætisráðherra útlagastjórnar Tíbets, en landið er á valdi Kína. 27.4.2011 09:00
Sá sem fann upp lesvélina er látinn Bandaríski verkfræðingurinn Hubert Schlafly er látinn, 91 árs að aldri, en hann fann upp Teleprompterinn eða lesvélina. 27.4.2011 08:34
187 lík í mexíkóskum fjöldagröfum Yfirvöld í Mexíkó tilkynntu í dag að þau hefðu alls fundið 183 lík í fjöldagröfum í norðausturhluta Mexíkó en talið er að fíkniefnahringurinn Zetas séu ábyrgir fyrir morðunum. 27.4.2011 08:28
Termítar átu milljónir á Indlandi Starfsfólk indversks banka hefur verið sakað um að bera ábyrgð á að termítar átu sig í gegnum milljónir rúbía. í Almenningur þarf ekki að borga tapið. 27.4.2011 08:18
Fann 500 ára gamla bók á háaloftinu Bandarískur maður fann fimm hundruð ára gamla þýska bók á háaloftinu heima hjá sér. Í ljós kom að bókin hafði verið á háaloftinu í tugi ára. 27.4.2011 08:08
Sonur lögreglumanns ákærður fyrir að kveikja í lögregluskóla Fjórir danskir menn á aldrinum 20 til 23 ára voru í gær ákærðir fyrir að reyna að kveikja í lögregluskóla í Kaupmannahöfn. 27.4.2011 08:03
Byrjuð að að undirbúa verkfallsaðgerðir Nokkur stór verkalýðsfélög hafa byrjað undirbúning verkfallsaðgerða með því að vísa deilum sínum við atvinnurekendur til Ríkissáttasemjara. 27.4.2011 07:59
Gefa hjálma Eimskipafélagið og Kiwaninshreyfingin gefa öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1. bekk grunnskóla í vor reiðhjólahjálma. 27.4.2011 07:57
Á ofsahraða á Reykjanesbrautinni Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bílstjóra sem ók á um 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um sex leytið í morgun. Bílstjórinn má reikna með hárri sekt fyrir ofsaaksturinn. 27.4.2011 07:55
SÞ kanna mannréttindabrot í Líbíu Þriggja manna teymi frá Sameinuðu þjóðunum munu fara til Trípolí höfuðborgar Líbíu og kanna hvort þar hafi verið framin mannréttindabrot. 27.4.2011 07:54
Gasleiðslur sprengdar í loft upp Gasleiðslur í Sínaí héraðinu í Egyptalandi voru sprengdar í loft upp af vopnuðu gengi í dag. 27.4.2011 07:06
Kosning til vígsubiskups ógilt Kosið verður aftur um frambjóðendur til embættis vígslubiskups innan Þjóðkirkjunnar, þar sem fyrri kosning hefur verið lýst ólögmæt. 27.4.2011 07:05
Dýrara að reka Gæsluna á Miðnesheiði en í Reykjavík Hugsanlegur flutningur Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja gæti haft umtalsverðan kostnað í för með sér vegna flutningsins sjálfs og aukins rekstrarkostnaðar til lengri tíma. 27.4.2011 06:30
Framhald samnings við Ekron óráðið „Við erum að endurskoða alla þjónustusamninga ráðuneytisins nú er varða starfsendurhæfingu í landinu, þar á meðal samninginn við Ekron. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort sá samningur verður framlengdur eða ekki.“ 27.4.2011 06:15
Fær bætur fyrir slys í ofsaakstri Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Tryggingafélagið Vörð til að greiða manni ríflega 7,3 milljónir króna í bætur vegna vélhjólaslyss sem hann lenti í árið 2007. Maðurinn örkumlaðist í slysinu. 27.4.2011 06:00
Kosning vígslubiskups ólögmæt Kosning vígslubiskups í Skálholtsumdæmi var ólögmæt samkvæmt úrskurði yfirkjörstjórnar þjóðkirkjunnar, sem gefinn var út í gærkvöldi. 27.4.2011 05:45
Allir á vakt í Eyjafjallagosinu Alþjóðasamtök félagasamtaka flugumferðarstjóra (IFATCA) veittu fyrir hálfum mánuði flugumferðarstjórum á Íslandi æðstu viðurkenningu fyrir framúrskarandi fagmennsku á meðan á gosinu í Eyjafjallajökli stóð í fyrra. 27.4.2011 05:00
Stal tíu sinnum af reikningi Tæplega fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir þjófnað. Meðal annars stal hann tíu sinnum af sama bankareikningi, samtals ríflega 138 þúsund krónum, en hann hafði komist yfir bankakort eiganda reikningsins, svo og leyninúmer. 27.4.2011 05:00
Þolinmæðin á þrotum hjá aðildarfélögum ASÍ Samninganefnd Alþýðusambands Íslands (ASÍ) beinir því til aðildarfélaga sinna að vísa kjaradeilum til ríkissáttasemjara og undirbúa um leið aðgerðir sem þrýsti á atvinnurekendur og tryggi launahækkanir á þessu ári. „Deilan verður ekki leyst með rökum þegar við mætum bara rökleysu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og kveður vel geta komið til verkfalla. 27.4.2011 04:00
Félagsmenn fá afmælisgjafir Félagsmenn í Framsýn stéttarfélagi fá tíu þúsund króna gjöf frá félaginu í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Gjöfina má nota til að greiða ýmsan útlagðan kostnað. 27.4.2011 04:00
Hætt að prófa úr bók leiðtoga Fimm árum eftir að Saparmuran Niyazov, hinn sérstæði leiðtogi Túrkmenistans, lést, hafa skólayfirvöld í landinu loks ákveðið að ekki verði lengur lögð fyrir nemendur, sem sækja um inngöngu í framhaldsskóla, próf upp úr bók hans, Bók sálarinnar. 27.4.2011 03:45
Össur þakkaði stuðning innan AGS Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra þakkaði Indverjum veittan stuðning innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fundi með S. M. Krishna, utanríkisráðherra Indlands, í Nýju-Delí í gær. 27.4.2011 03:00
Vilja láta endurskoða Schengen-samstarfið Ítalir og Frakkar vilja endurskoða Schengen-sáttmálann með hliðsjón af því ástandi sem skapast hefur þegar tugir þúsunda flóttamanna hafa streymt frá Túnis og fleiri ríkjum Norður-Afríku til Ítalíu. 27.4.2011 01:00
Þrír sitja inni vegna nauðgana Tvær konur kærðu nauðgun til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um nýliðna páska. Þrír karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi vegna þessara tveggja mála. 27.4.2011 00:00
Lögreglumessa í Neskirkju Lögreglumessan verður haldin í Neskirkju í Reykjavík sunnudaginn 1. maí kl. 11. Helgihald annast séra Örn Bárður Jónsson. Lögreglukórinn leiðir söng undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar en organisti er Steingrímur Þórhallsson að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. „Ræðumaður er Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Eftir messu verða kaffiveitingar í boði Landssambands lögreglumanna og Lögreglukórsins.“ 26.4.2011 20:20
Hvalfjarðargöng lokuð næstu nætur Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna viðhalds vinnu næstu daga. Göngin verða lokuð aðfaranótt miðvikudags 27. apríl, fimmtudags 28.apríl og föstudags 29. apríl. 26.4.2011 19:31
Bílvelta við Grensásveg Bílvelta varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Grensásvegar um klukkan hálf sjö í kvöld. Tveir voru í bílnum og komust þeir út úr flakinu af sjálfsdáðum. Að sögn slökkviliðsins slösuðust þeir lítið sem ekkert. 26.4.2011 19:03
Tromsö eflist sem heimsborg norðursins Þrátt fyrir að bærinn Tromsö í Norður-Noregi sé talsvert norðar en Kolbeinsey fjölgar fólki þar tvöfalt hraðar en í Reykjavík og gæti svo farið að þessi höfuðstaður Norður-Noregs verði stærri en höfuðborg Íslands á næstu áratugum. 26.4.2011 18:49
Minningarsíður á Facebook án vitundar ættingja Minningarsíður á samskiptavefnum Facebook hafa verið ansi umdeildar og þá sérstaklega fyrir þær sakir að þær eru oft stofnaðar skömmu eftir andlát einstaklinga, án leyfis eða jafnvel vitundar fjölskyldu hins látna. 26.4.2011 18:45
Viðræðum SA og SGS lokið án árangurs Fundi Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins er lokið. Björn Snæbjörnsson formaður SGS segir að viðræðurnar hafi verið árangurslausar. SA hafi hafnað tilboði SGS um skammtímasamning og að samtökin hafi heldur ekki verið tilbúin til þess að gera samning til þriggja ára vegna ágreinings SA og ríkisstjórnarinnar. 26.4.2011 18:28
Ætla ekki að stofna nýjan þingflokk að svo stöddu Þingmennirnir Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, sem öll yfirgáfu þingflokk Vinstri grænna á dögunum, ætla ekki að stofna nýjan þingflokk „að svo stöddu“. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þau hafa sent frá sér. Þar segir að þau hafi í dag og undanfarna daga farið yfir stöðuna eftir úrsögnina úr þingflokki VG. 26.4.2011 18:03
Stjórnlagaráð skipar í nefndir Meðlimum Stjórnlagaráðs hefur verið skipað í þrjár nefndir, A,B og C, og skiptast fulltrúar í ráðinu jafnt niður á þær. Á heimasíðu ráðsins segir að nefndirnar hafi alls 14 þætti til umfjöllunar sem er í samræmi við þingsályktunartillögu um Stjórnlagaráð auk tillagna í skýrslu stjórnlaganefndar. „Nefndunum ber að gera ráðsfundi reglulega grein fyrir framvindu starfs síns, segir ennfremur en nefndirnar hófu störf í dag. 26.4.2011 17:57
Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn tekjulágra Börn tekjulágra fá ókeypis tannlæknaþjónustu á næstunni. Velferðarráðherra hefur sett reglugerð um tímabundna tannlæknaþjónustu án endurgjalds og tekur Tryggingastofnun ríkisins við umsóknum frá 28. apríl næstkomandi og til 1. júní. 26.4.2011 17:37
Gengur betur án ríkisstjórnar Belgar náðu í dag áfanga sem þeir fagna raunar ekkert sérstaklega. Áfanginn er sá að engin ríkisstjórn hefur verið í landinu í heilt ár. 26.4.2011 16:56
Fór konuvillt á Lundanum - aðsúgur gerður að lögreglu við Prófastinn Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið enda páskahelgin oft erilsöm. Í tilkynningu frá lögreglu segir að töluverður fjöldi fólks hafi skemmt sér á öldurhúsum bæjarins og fór nokkur tími lögreglunnar í að sinna fólki sem ekki gat bjargað sér sökum ölvunar. 26.4.2011 16:56
Fimmtán drukknir og sex dópaðir stoppaðir um páskana Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um páskana og sex voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. 26.4.2011 16:43
Innbrotsþjófar teknir tvisvar sama daginn Karl á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri voru handtekin í tvígang fyrir þjófnað og innbrot í Hafnarfirði á laugardag. Að sögn lögreglu voru þau fyrst handtekin snemma morguns eftir að hafa stolið GPS-tæki og fleiri verðmætum úr ólæstum bílum. 26.4.2011 16:37
Flóafélögin vísa kjaradeilunni til sáttasemjara Sigurður Bessason, formaður samninganefndar Flóafélaganna afhenti í dag ríkissáttasemjara, Magnúsi Péturssyni bréf þar sem kjaradeilu stéttarfélaganna Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og VSFK var formlega vísað til embættis sáttasemjara. 26.4.2011 16:32
Tony Blair er ekki boðið Tony Blair er ekki boðinn í brúðkaup þeirra Vilhjálms og Kate á föstudaginn. Raunar ekki heldur Gordon Brown og frú. Hinsvegar er Margrét Thatcher sem einnig er fyrrverandi forsætisráðherra boðin. 26.4.2011 16:23
Össur lagði blómsveig á minnismerki um Gandhi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lagði í dag blómsveig að minnismerki um Mahtma Gandhi, og heimsótti síðan heimili Gandhis þar sem hann var ráðinn af dögum, en það er nú safn í minningu sjálfstæðishetju Indverja. Össur er nú í opinberri heimsókn á Indlandi. Á fundi í Nýju-Delí fyrr í dag með utanríkisráðherra Indlands, óskaði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra formlega eftir því að Indverjar styddu áfram framgang efnahagsáætlunar Íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann þakkaði jafnframt hversu vel Indverjar hefðu brugðist við óskum íslensku ríkisstjórnarinnar um liðsinni þegar langar tafir urðu á afgreiðslu áætlunarinnar á fyrri stigum Icesave-málsins.. Ráðherrarnir fögnuðu umtalsverðri aukningu í viðskiptum milli ríkjanna og ræddu leiðir til að efla þau enn frekar, m.a. með því að flýta gerð fríverslunarsamnings milli Indlands og EFTA-ríkjanna. Utanríkisráðherra Indlands óskaði eftir frekara samstarfi við Íslendinga á sviði sjávarútvegs og nefndi sérstaklega uppbyggingu fiskimjölsverksmiðja á sjávarútvegssvæðum Indlands og tækni varðandi pökkun og merkingu fiskafurða. Ráðherrarnir bundust fastmælum um að næsta skrefið í frekari samvinnu á sviði sjávarútvegs yrði að indversk stjórnvöld myndu senda indverska sérfræðinga til náms við sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins 26.4.2011 15:50