Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Áhyggjur vegna brúðkaupsmótmæla Breska lögreglan hefur áhyggjur af tveim hópum sem vilja hafa sig í frammi þegar Vilhjálmur prins og Kate Middleton gifta sig á föstudaginn. Annarsvegar eru það samtök múslima sem kalla sig Múslimar gegn krossferðum. Þau sætta sig ekki við skilyrði sem lögreglan hefur sett fyrir því að þau fái leyfi til mótmælastöðu. 26.4.2011 13:57
Önnur skipalest til Gaza strandarinnar Stuðningsmenn palestínumanna á Gaza ströndinni ætla að senda fimmtán skipa lest til strandarinnar í næsta mánuði til að reyna að rjúfa hafnbann Ísraela. 26.4.2011 13:39
Hjólað í vinnuna - skráning hafin Árlega átakið „Hjólað í vinnuna" fer fram dagana 4. til 24. maí og hefur verið opnað fyrir skráningu. Fyrirtæki geta því byrjað að setja saman lið og skrá þau til leiks. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið að þessu verkefni frá árinu 2003 og fjölgar þátttakendum ár frá ári. Fyrsta árið tóku þátt 45 vinnustaðir en í fyrra voru þeir 551. Nánari upplýsingar um verkefnið og skráningu er að finna á heimasíðunni www.hjoladivinnuna.is http://www.hjoladivinnuna.is 26.4.2011 13:13
Þriggja milljóna styrkur til rústahópsins Aurora velgerðasjóður hefur veitt Rústahópi Björgunarsveitarinnar Ársæls þriggja milljón króna styrk til tækjakaupa. Sveitin tók meðal annars þátt í björgunaraðgerðum á Haítí í kjölfar jarðskjálftans í janúar 2010 en þeir voru með fyrstu björgunarsveitum á svæðið. Komið var að ýmsu viðhaldi og endurnýjun á þeim sérhæfða búnaði sem hópurinn hefur yfir að ráða Styrkur sem þessi gerir rústahópnum kleift að efla til muna þann búnað sem nauðsynlegur er til rústabjörgunar og því ljóst að styrkurinn verður mikil lyftistöng fyrir hópinn sem stendur nú mjög vel að vígi þegar kallið kemur. Rústabjörgunarsvetin Ársæll er hluti af Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar og sinnir óveðursaðstoð, viðbrögðum við jarðskjálftum og ofanflóðum í byggð á landsvísu. Fulltrúar Auroru velgerðasjóðs fengu skoðunarferð um húsakynni Rústahópsins Ársæls nú í vikunni og afhentu um leið nýja búnaðinn sem er sérhæfð leitarmyndavél, línubjörgunarbúnaður, kjarnaborvél, naglabyssa, steinsög og sérhannaðir bakpokar fyrir aðila er sinna rústabjörgun. 26.4.2011 12:52
Íslenska ríkið gæti þurft að greiða gengislánaskuldurum skaðabætur Íslenska ríkið - en ekki fjármálafyrirtæki - gæti þurft að greiða gengislánaskuldurum skaðabætur, fallist eftirlitsstofnun EFTA á það sjónarmið grasrótarsamtaka að ríkið hafi brotið á rétti neytenda með því að lögbinda seðlabankavexti á ólögleg gengislán. 26.4.2011 12:17
Tveir menn í gæsluvarðhald grunaðir um nauðgun Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á föstudeginum langa grunaðir um að hafa nauðgað rétt rúmlega tvítugri konu. 26.4.2011 11:51
Segir skotgrafahernað SA hafa gengið of langt Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkafólk grípa til verkfallsvopnsins verði ekki gengið frá nýjum kjarasamningum á næstunni. Það sé ekki hægt að búa við það lengur að skotgrafarhernaður stjórnvalda og Samtaka atvinnulífsins haldi launafólki í gíslingu. 26.4.2011 11:22
Kannabisræktandi handtekinn Lögreglan á Selfossi stöðvuðu kannabisræktun í Flóahreppi fyrir helgi. Lögreglan fann sautján fullvaxta kannabisplöntur eftir að þeim barst ábending um að kannabisrætkun væri stunduð á bæ í hreppnum. 26.4.2011 11:08
Göngumaður með opið fótbrot - missti mikið blóð Björgunarsveitarmenn komu göngumanni í Reykjadal til aðstoðar um klukkan sex í gærdag. 26.4.2011 11:00
Norðmenn sagðir hafa rústað höll Gaddafis Það voru norskar orrustuþotur sem lögðu höfuðstöðvar Moammars Gaddafist í rúst aðfararnótt mánudagsins, sað sögn bandarísku fréttastofunnar NBC. Talsmaður norska flughersins vildi ekki staðfesta þetta í samtali við norska blaðið Aftenposten. 26.4.2011 10:32
Fjarðabyggð fær undanþágu vegna gæslu við sundlaugar Umhverfisráðuneytið hefur veitt Fjarðabyggð undanþágu frá þeirri reglu að gæslumaður í sundlaug sinni ekki afgreiðslustörfum samhliða. Fjarðabyggð óskaði eftir undanþágu frá þessari reglu í sundlaugunum á Eskifirði, Norðfirði og Stöðvarfirði, á þeim tímum þegar aðsókn er sem minnst í laugarnar. Ráðuneytið veitti hins vegar ekki undanþágu frá reglum um aldursviðmið, en þess er krafaist að börn þurfi að vera orðin 10 ára til að fara ein í sund. Fjarðabyggð hafði óskað eftir því að miðað væri við árið sem börnin verða 10 ára en ekki fæðingardaginn, eins og reglugerði segir til um. 26.4.2011 10:30
Troy Davis bíður enn aftöku Amnesty International hvetja til þess að Bandaríkjamaðurinn Troy Davis verði ekki tekinn af lífi og að hann fái að njóta sanngjarnar málsmeðferðar. Á íslenskri vefsíðu samtakanna hafa þegar 316 manns skrifað undir áskorun þessa efnis. Troy Davis var dæmdur til dauða árið 1991 fyrir morð á lögreglumanni í Savannah í Georgíu-ríki. Á vef Amnesty International segir að hann hafi alltaf haldið fram sakleysi sínu og flest vitna ákæruvaldsins, sem báru vitni gegn honum við réttarhöldin, hafa síðar dregið framburð sinn til baka eða gerst sek um mótsagnakenndar yfirlýsingar. Samkvæmt Amnesty leikur grunur á að sum þeirra hafi sætt þrýstingi frá lögreglunni að gefa framburðinn. Árin 2007 og 2008 var þrisvar settur aftökudagur á Troy Davis, sem var svo frestað þegar einungis voru nokkrir dagar eða klukkustundir í aftökuna. http://www.amnesty.is/undirskriftir 26.4.2011 10:05
Vinna jafnréttisáætlun fyrir Ísafjarðarbæ Launadeild Ísafjarðarbæjar hefur verið falið að afla upplýsinga um fjölda karla og kvenna sem starfa hjá bæjarfélaginu, launamun kynjanna og skiptingu veikindadaga milli kynjanna. Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar samþykkti þetta á síðasta fundi sínum. Ragnhildur Sigurðardóttir bæjarfulltrúi lagði þar fram tillögur um hvernig staðið verði að fyrsta áfanga við gerð jafnréttisáætlunar fyrir Ísafjarðarbæ. Þá hefur skóla- og fjölskylduskrifstofu bæjarins hefur verið falið að senda spurningalista til stofnana og deilda innan Ísafjarðarbæjar og safna svörum saman um vinnuumhverfi, vinnutíma, samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs, hæfniþróun og menntun. Í fundargerð félagsmálanefndar segir að tillögur Ragnhildar séu settar fram "Til að hægt sé að greina hvort starfsmönnum Ísafjarðarbæjar sé mismunað á grundvelli kyns, þarf ákveðin vitneskja, um aðstæður og störf starfsmanna að vera til staðar. Því er lagt til við félagsmálanefnd að fyrsti áfangi við gerð jafnréttisáætlunar verði kortlagning og þekkingaröflun, þar sem upplýsingar verða greindar eftir kyni.“ 26.4.2011 09:15
Hárþjófa leitað Lögreglan í Chicago leitar þjófa sem brutust inn í vöruskemmu í eigu snyrtifyrirtækis og stálu miklu magni af hári. 26.4.2011 08:45
Safna fyrir skýli í Úkraínu Forseti Úkraínu hefur beðið um fjárhagslega aðstoð til þess að byggja skýli í kringum kjarnaofnana í Tsjernóbýl. 26.4.2011 08:41
Jarðskjálfti í Indónesíu Talsverð skelfing greip um sig í nótt þegar jarðskjálfti skók jörðu í Indónesíu. Samkvæmt bandarískum vísindamönnum mældist jarðskjálftinn um 5,4 á richter. Upptök hans voru neðansjávar, um 140 kílómetra frá borginni Cirebon. 26.4.2011 08:40
Gengið til kosninga í Nígeríu í skugga ofbeldis Íbúar Nígeríu ganga til kosninga í dag en þegar hafa forsetakosningar farið fram. Þær sigraði Goodluck Jonathan, sem er kristinn, en andstæðingur hans var múslimi. 26.4.2011 08:39
Vara bandaríska ríkisborgara í Sýrlandi við Bandarísk stjórnvöld hvetja bandarískra þegna í Sýrlandi að yfirgefa landið hið allra fyrsta. Mikil átök eru á milli mótmælenda og stjórnvalda í Sýrlandi þrátt fyrir tilraunir stjórnvalda til að sefa mótmælendur meðal annars með því að aflétta herlögum sem voru í gildi í áratugi. 26.4.2011 08:12
20 börn í Guantanamó Meðal þeirra hundrað og fimmtíu manna sem sátu saklausir í hinu alræmda Guantanamó fangelsi á Kúbu voru 20 börn samkvæmt leyniskjölum Wikileaks. 26.4.2011 08:09
Dingó-hundar meiddu barn í Ástralíu Stjórnvöld í Queensland í Ástralíu ætla að lóga tveimur Dingó-hundum sem réðust á þriggja ára stúlkubarn á strönd á Fraser eyju í gær. 26.4.2011 08:03
Jimmy Carter kominn til Norður-Kóreu Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kom til Norður-Kóreu í dag ásamt föruneyti til þess að hefja samningaviðræður við leiðtoga landsins, Kim Jong Il og son hans Kim Jong Un. 26.4.2011 08:00
Japanskir bændur mótmæla vegna geislamengunar Rúmlega 200 bændur sem búa í grennd við kjarnorkuverið í Fukushima, komu saman með hjörð af nautgripum í Tokýó í dag, og kröfðust þess að ríkisstjórnin bætti þeim skaða af geislamengun frá kjarnorkuverinu. 26.4.2011 07:58
Ítalir taka þátt í hernaði gegn Líbíu Ítalir hafa samþykkt að taka þátt í hernaðinum í Líbíu. Það var Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu sem tilkynnti Barack Obama Bandaríkjaforseta þetta í gær. 26.4.2011 07:57
Stjórnvöld Sri Lanka sökuð um stríðsglæpi Í skýrslu sem gerð var fyrir Sameinuðu þjóðirnar koma fram ásakanir um að stjórnvöld á Sri Lanka hafi framið stríðsglæpi árið 2009. Þá eru Tamíl tígrar sakaðir um að nota almenning sem mennska skildi. 26.4.2011 07:44
Fjórir grímuklæddir menn réðust á tvo menn í Fischersundi Fjórir grímuklæddir menn réðust á tvo menn í Fischersundi í Reykjavík um eitt leytið í nótt vopnaðir barefli. Mönnunum tókst að stökkva árásarmönnunum á flótta og komu sér sjálfir á slysadeild til aðhlynningar og létu lögreglu vita. 26.4.2011 07:40
Áfangaheimili Ekron lokað Stjórn Ekron, kristilegra samtaka sem annast meðal annars starfsþjálfun og endurhæfingu óvirkra vímuefnaneytenda, hefur ákveðið að loka áfangaheimili samtakanna. Þetta staðfestir Hjalti Kjartansson, forstöðumaður Ekron, en hann var í síðasta mánuði kærður til lögreglu fyrir meint kynferðisbrot. 26.4.2011 06:45
Kæra bæinn fyrir að hygla heimamönnum „Ég vísa ásökunum um fyrirgreiðslupólitík og spillingu á bug,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, um ásakanir Jóns Ármanns Steinssonar forsvarsmanns byggingarverktakans Hamarsfells. 26.4.2011 06:00
Lokun flugvalla var réttlætanleg „Við sýndum fram á að þessi gjóska er mjög fínkornótt þannig að hún barst langt með loftstraumum,“ segir Sigurður R. Gíslason, jarðvísindamaður við Háskóla Íslands, sem stjórnaði ásamt Susan Stipp við Kaupmannahafnarháskóla rannsókn á gjóskunni úr eldgosinu í Eyjafjallajökli á síðasta ári. 26.4.2011 06:00
Útilokar samning til eins árs Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, útilokar að gengið verði að tilboði Starfsgreinasambandsins um kjarasamning til eins árs og hækkun lágmarkslauna í tvö hundruð þúsund krónur. 26.4.2011 05:30
Trúnaður yfir endurfjármögnun láns Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill ekki ræða um endurfjármögnun 4,3 milljarða króna láns sem var á gjalddaga 7. apríl síðastliðinn. Tillaga um að koma málinu á dagskrá var felld á bæjarstjórnarfundi í dymbilvikunni. 26.4.2011 05:00
Þorskur í hjarðeldi vex þrefalt hraðar Tilraunir með hjarðeldi á þorski í Arnarfirði benda til að slíkt eldi sé arðbært. Niðurstöðurnar hafa vakið athygli erlendis og meðal annars fengið umfjöllun í fréttadálki hins virta vísindatímarits Nature. 26.4.2011 04:00
Aldarfjórðungur frá slysinu í Tsjernobyl Heimsbyggðin minnist þess að í dag verður liðinn aldarfjórðungur frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl, fjórtán þúsund manna bæ í Úkraínu sem þá tilheyrði Sovétríkjunum. 26.4.2011 03:15
Hjálmar og Ingimar í kjöri til formanns BÍ Tveir hafa lýst yfir framboði til formanns Blaðamannafélags Íslands. Núverandi formaður, Hjálmar Jónsson, hefur lýst því yfir að hann sækist eftir endurkjöri og þá hefur Ingimar Karl Helgason boðið sig fram. Kosið verður á milli þeirra Hjálmars og Ingimars á aðalfundi félagsins sem fram fer á fimmtudaginn kemur. 25.4.2011 19:41
Óperudraugurinn í Miðgarði Skagfirðingar æfa nú af fullum krafti Óperudrauginn eftir Andrew Lloyd Webber en verkið verður frumsýnt í félagsheimilinu Miðgarði um næstu helgi. Það er hin góðkunna leikkona Guðrún Ásmundsdóttir sem leikstýrir. Það er sönghópurinn Draumaraddir norðursins og ópera Skagafjarðar sem standa fyrir uppfærslunni sem er ansi metnaðarfull. 25.4.2011 18:56
Rokkarar fengu syndaaflausn í sundi Rokkarar og popparar sem tróðu upp á Aldrei fór ég suður um helgina létu líða úr sér mestu þreytuna og fengu syndaaflausn í sundlauginni í Bolungarvík í gær. Þeim var svo boðið upp á hamborgarhrygg í félagsheimilinu. 25.4.2011 18:39
Lífvörður hraunaði yfir Kate Middleton á Facebook Hinn átján ára gamli Cameron Reilly, sem er í lífvarðasveit bresku konungsfjölskyldunnar, verður ekki á meðal lífvarða þeirra Vilhjálms krónprins og Kate Middleton þegar þau ganga í það heilaga eins og stóð til. Ástæðan er sú að hann fór miður fögrum orðum yfir krónprinsessuna tilvonandi á Facebook síðu sinni. Hann var ekki ánægður með stúlkuna sem honum fannst sína sér litla virðingu á dögunum: „Hún og Vilhjálmur keyrðu fram hjá mér á föstudaginn var og eina sem ég fékk var smá vink á meðan hún horfði í hina áttina. Heimska snobbaða belja, ég er greinilega ekki nógu góður fyrir hana!“ 25.4.2011 17:18
Bandaríkin hugleiða beitingu refsiaðgerða gegn Sýrlandi Bandaríkin hugleiða nú að beita refsiaðgerðum gegn Sýrlandi í mótsvari við harðar aðgerðir sýrlenska hersins í borgaralegum mótmælum þar í landi. Þessar refsiaðgerðir gætu falist í frystingu á sýrlenskum eignum og viðskiptabanni við Bandaríkin en bandarísk yfirvöld vilja með slíkum aðgerðum gera stjórnvöldum það ljóst að hegðun þeirra sé óásættanleg. 25.4.2011 16:32
Tólf látnir í miklum aurskriðum í Brasilíu Tólf hafa látist í flóðum og aurskriðum í suðurhluta Brasilíu um helgina og hafa yfirvöld á svæðinu lýst yfir neyðarástandi í sjö borgum. Miklar rigningar hafa haft áhrif á líf um 40.000 manns sem búa á svæðinu og hafa hundruð manna misst heimili sín. 25.4.2011 15:56
Þriggja bíla árekstur við Mjódd Þriggja bíla árekstur varð við Mjóddina í Reykjavík nú um klukkan hálf fjögur. Þrír voru fluttir á slysadeild en fimm voru í bílunum. Meiðsli þeirra virðast þó vera minniháttar að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu. Svo virðist sem einn bíllinn hafi ekið í veg fyrir hina tvo sem voru á leið upp Breiðholtsbraut. 25.4.2011 15:42
Illa lyktandi blóm dregur til sín ferðamenn Þúsundir flykkjast nú til svissnesku borgarinnar Basel til að bera augum og nefi hið tveggja metra háa náblóm sem nú blómstrar í fyrsta skipti á sinni 17 ára löngu ævi. 25.4.2011 15:32
Stjórnarandstæðingar sniðganga kosningar Helstu stjórnarandstæðingar í Chad hyggjast sniðganga forsetakosningar sem nú standa yfir þar í landi sökum þess að kröfum þeirra um umbætur á kosninakerfinu hefur ekki verið mætt. Óttast er að þetta muni hafa neikvæð áhrif á kosningaþátttöku í landinu. 25.4.2011 14:54
Mikið stuð á Aldrei fór ég suður Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður var haldin með pompi og pragt um helgina á Ísafirði eins og hefð er orðin fyrir. Rósa Jóhannsdóttir ljósmyndari Fréttablaðsins var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir sem sýna glöggt stemmninguna sem skapast í bænum þar sem allir skemmta sér konunglega við undirspil helstu tónlistarmanna þjóðarinnar. 25.4.2011 14:31
Flugræningi yfirbugaður af farþegum og áhöfn Flugræningi var snögglega yfirbugaður af áhöfn og farþegum í flugi Alitalia frá París til Rómar á níunda tímanum í gær. Maðurinn ógnaði flugliða með smáum hníf og krafðist þess að flugvélinni yrði beint til Tripoli, höfuðborgar Líbíu. Áhöfn og farþegar brugðust hratt við og yfirbuguðu manninn sem svo var sprautaður með deyfilyfi af lækni sem var farþegi í vélinni. 25.4.2011 14:06
Bílvelta á Biskupstungnabraut - Lögreglan skutlaði farþegum í Herjólf Fjórir sluppu ómeiddir þegar bíll valt á Biskupstungnabraut í morgun. Fólkið var á leið til Þorlákshafnar til þess að ná Herjólfi. Að sögn lögreglu virðist óhappið hafa orðið með þeim hætti að bíll tók fram úr bílnum sem valt og við það slettist snjór og krap upp á framrúðuna. 25.4.2011 13:28
Össur á Indlandi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kom til Nýju Delhí á Indlandi í dag en hann er í níu daga opinberri heimsókn í landinu. Á vefnum DailyIndia.com segir að Össur muni hitta umhverfisráðherra landsins á morgun og einnig ráðherra endurnýjanlegra orkugjafa. Þá mun ráðherrann einnig hitta ferðamálaráðherra Indlands. 25.4.2011 13:20