Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Löggan hafði rétt fyrir sér Tveir gistu fangageymslur í Reykjanesbæ í nótt. Annar aðilinn var tekinn á rölti í bænum með kannabis í fórum sínum. Vísbendingar lögreglu voru því á rökum reistar, því fyrr um kvöldið hafði lögreglan afskipti af honum og grunað að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hinn aðilinn gisti fangageymslu vegna ölvunar. 6.2.2011 09:42
Ungmenni tekin með gras og hvítt duft Lögreglan á Sauðárkróki stöðvaði þrjú ungmenni á Þverárfjalli í nótt en á þeim fundust fíkniefni. Eitthvað var af kannabis og einnig hvítt duft sem menn eiga eftir að rannsaka betur. Að sögn lögreglu voru ungmennin yfirheyrð og gistu fangageymslur í nótt. 6.2.2011 09:40
Leikskólastjóri: Börnin þjást vegna sameiningaráforma Leikskólastjóri á höfuðborgarsvæðinu segir fyrirhugaðar viðræður um sameiningu leikskóla sýndarleik. Hún óttast að missa vinnuna og segir þá óvissu sem nú ríki bitna á leikskólabörnum. 5.2.2011 19:56
Enginn með allar tölurnar réttar Lottópotturinn verður tvöfaldur næst en enginn var með allar tölurnar réttar. Tveir voru með 2. vinning, og fær þeir rúmlega hundrað þúsund krónur á mann en miðarnir voru keyptir í Hagkaup Smáralind og hinn var í áskrift. Einn var með fjórar jókertölur í réttri röð og fær hann hundrað þúsund krónur. 5.2.2011 19:40
Mátti ekki gefa blóð vegna kynhneigðar sinnar Nemi við Fjölbrautarskólann í Garðabæ vildi fara að fordæmi pabba síns og gerast blóðgjafi strax við 18 ára aldur. Honum var hins vegar tjáð í vikunni að það gæti hann ekki, kynhneigðar sinnar vegna. 5.2.2011 19:00
Mubarak búinn að segja af sér? Enn hefur aukist á ringulreiðina í Egyptalandi. Egypska ríkissjónvarpið hefur greint frá því að Hosni Mubarak hafi sagt af sér sem leiðtogi Egypska lýðræðisflokksins. 5.2.2011 18:53
„Þýska ófreskjan" komin til Íslands Einn stærsti vaxtaræktarmaður heims, Markus Rühl, er í heimsókn á Íslandi. Markus er margverðlaunaður vaxtaræktarkappi, gengur undir nafninu „Þýska ófreskjan" og er kominn hingað til lands til að kynna fæðubótarefni í Hafnarfirði. 5.2.2011 18:26
Óska eftir upplýsingum um vörubifreið Lögreglan í Borgarfirði og Dölum óskar eftir upplýsingum um hvíta vörubifreið með eftirvagn og á vagninum var blár gámur. 5.2.2011 18:11
Ræða Bjarna Ben í heild sinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á rúmlega fimm hundruð manna fundi í Valhöll í dag að íslenska þjóðin geti ekki komist undan tugmilljarða skuldbindingu í Icesave málinu. Þá sagði hann að sú niðurstaða sem nú hefur fengist í samningaferlinu væri ekki fenginn með hótunum Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum. 5.2.2011 16:50
Sýnir Bjarna stuðning og samstöðu „Þetta var mjög góður og öflugur fundur. Formaður flokksins flutti greinargóða skýrslu þar sem hann gerði grein fyrir sinni afstöðu í málinu," sagði Geir H. Haarde í samtali við fréttastofu eftir fundinn í Valhöll í dag. Hann lýsir yfir stuðningi við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. 5.2.2011 16:47
Áfrýja niðurstöðu dómstólsins í New York „Skilyrði sem dómarinn setti hafa ekki verið uppfyllt og eins teljum við rétt að láta reyna á þetta fyrir áfrýjunardómstól,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis sem hefur áfrýjað niðurstöðu dómstóls í New York í Bandaríkjunum um að vísa frá skaðabótamáli á hendur fyrrverandi eigendum og stjórnendum bankans og endurskoðunarfyrirtækinu Price Waterhouse Coopers. 5.2.2011 16:34
Bubbi skorar á þingmenn að hjálpa Jussanam „Hvers vegna er enginn sem vill hjálpa þessari listakonu frá Brasilíu að setjast hér að?" spyr Bubbi Morthens í pistli sínum á Pressunni. 5.2.2011 16:12
Játuðu rán í söluturn í Breiðholti Þrír piltar á aldrinum 18 til 19 ára hafa játað aðild sína að ráni í söluturni í Breiðholti á síðastliðið þriðjudagskvöld. 5.2.2011 15:31
Vinna við að hreinsa götur bæjarins Öflugur hópur vinnur í dag við snjóhreinsun í Reykjavík og notuð eru 27 stórvirk vinnutæki til verksins. Í nótt var helstu umferðargötum haldið opnum og í dag hefur verið unnið við snjóhreinsun á fáfarnari götum og húsagötum og miðar því verki vel. Jafnframt er reglulega farið yfir stofnbrautir og strætisvagnaleiðir, sem njóta forgangs, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 5.2.2011 15:05
Ítrekuð krafa um þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarni Benediktsson var ítrekað hvattur til þess að beita sér fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um Icesave samniginn fundi í Valhöll í dag. „Ég vil þakka Bjarna fyrir þessa ræðu, hún sæmdi formanni vel. Það eina sem ég hefði viljað væri að málstaðurinn væri skárri,“ sagði Skafti Harðarson, einn fundarmanna. 5.2.2011 14:38
Kom sjálfur upp um marijúanaræktunina Robert Michelson nemandi í háskóla í Connecticut í Bandaríkjunum kom sjálfur upp um marijúanaræktun sína á dögunum. 5.2.2011 14:30
,,Ég hef séð svona klapp fyrir hrun" Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, var klappað lof í lófa eftir að hann hélt ræðu sína í Valhöll í dag. 5.2.2011 14:06
Komumst ekki undan tugmilljarða skuldbindingum Íslenska þjóðin getur ekki komist undan tugmilljarða skuldbindingum í Icesave málinu, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fjölmennum fundi í Valhöll í dag. Hann sagði að sú niðurstaða sem nú hefði fengist í samningaferlinu væri ekki fengin með hótunum Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum. Þær hafi vissulega verið hafðar uppi á fyrri stigum málsins, til dæmis með hryðjuverkalögum sem sett voru á Ísland og innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þegar leið að endurskoðun efnahagsáælun Íslands. 5.2.2011 13:50
Húsfyllir í Valhöll þegar Bjarni útskýrir ákvörðun sína Gríðarlegur fjöldi fólks er samankominn í Valhöll, húsnæði Sjálfstæðisflokksins, þar sem Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, ætlar að gera grein fyrir ákvörðun sinni og hluta þingflokksins um að styðja Icesave frumvarpið sem liggur fyrir þinginu. 5.2.2011 13:15
Stjórnarandstaðan ræðir við varaforsetann Mótmælendur í Kaíró hafa komið á frumstæðu stjórnmálakerfi til að samræma kröfur sínar. Búist er við að stjórnarandstaðan ræði við varaforseta landsins í dag. 5.2.2011 13:00
Samningurinn ekki nógu góður Krafan um að Icesavesamningurinn fari í þjóðaratkvæðagreiðslu virðist njóta æ meira fylgis í þingliði Sjálfstæðisflokksins. Formaður flokksins segist ekki hafa útilokað þann möguleika, en hann hefur boðað til fundar um málið í Valhöll í dag. Búist er við fjölmennum fundi en afar skiptar skoðanir eru um málið innan flokksins. 5.2.2011 12:13
Hermdi best eftir mökunarhljóðum dádýra Andreas Toepfer varð hlutskarpastur í óvenjulegri keppni í Þýskalandi í gær. Hann þótti geta hermt best eftir mökunarhljóðum dádýra. 5.2.2011 11:15
Viktoría á von á stelpu - draumurinn að rætast Viktoría Beckham hefur fengið ósk sína uppfyllta því hún og eiginmaður hennar, David Beckham, eiga von á stelpu. Í síðasta mánuði tilkynnti Viktoría að hún væri ófrísk og í sextán vikna sónar nýlega kom í ljós að barnið sem hún ber undir belti er stúlka. 5.2.2011 10:46
Mubarak á að fara frá völdum strax Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sendi starfsbróður sínum í Egyptalandi, Hosni Mubarak, skýr skilaboð á blaðamannafundi í gær. 5.2.2011 10:38
Mikil ólga í Sjálfstæðisflokknum Mikil ólga er í Sjálfstæðisflokknum vegna afstöðu meirihluta þingflokksins til Icesavemálsins. 5.2.2011 10:03
Bundu snjóþotu aftan í bíl Það var rólegt hjá lögreglu embættum víða um land í nótt. Lögreglan á Selfossi þurfti að aðstoða marga ökumenn eftir miðnætti í gær vegna snjóþunga en það snjóaði mikið í bænum í gærkvöldi. 5.2.2011 09:59
Hlíðarfjall opið - Bláfjöll lokuð Opið verður á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag frá klukkan 10 til 16. Klukkan átta í morgun var þar 1 metri á sekúndu og fimm stiga frost. 5.2.2011 09:54
Innlendar vörur hefðu hækkað mikið „Það hefur fátt hjálpað íslenskum neytendum síðustu misseri eins og tollvernd,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna. Án tollverndar í landbúnaði, segir hann, er engin ástæða til að ætla annað en að bændur, aðrir framleiðendur og aðilar á markaði hefðu hækkað verð til neytenda um sextíu prósent í takt við þá hækkun sem varð á innfluttum vörum þegar krónan féll 2008. 5.2.2011 08:00
Vill nýja menn við stýrið „Þegar eigendastefnan er ekki sú sama og við höfum fylgt og ekki ljóst hvert skal stefna finnst mér að nýir menn eigi að taka við stýrinu,“ segir Finnbogi Baldvinsson, fráfarandi forstjóri fisksölufyrirtækisins Icelandic Group. 5.2.2011 07:00
Guðbjarti dauðbrá við lestur ofbeldisskýrslu Ekki hefur miðað sem skyldi við útrýmingu launamunar kynjanna og í ofbeldismálum gegn konum ættum við að vera að gera mun betur. Þetta kom fram í máli Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á fjölmennu Jafnréttisþingi í gær. Ráðherrann kynnti skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála hér á landi. 5.2.2011 06:00
SÞ segja yfir 300 hafa fallið Sameinuðu þjóðirnar telja að yfir 300 manns hafi fallið í mótmælum í Egyptalandi frá 25. janúar og um fjögur þúsund manns séu sárir, margir lífshættulega. Samkvæmt frétt BBC hafa stjórnvöld í landinu hins vegar aðeins gefið upplýsingar um mannfall í höfuðborginni Kaíró og sagt að átta hafi látið lífið og yfir 800 séu þar sárir. 5.2.2011 06:00
Keypti vörur fyrir 1,7 milljónir til einkanota Engin gögn eða fylgiskjöl er að finna í bókhaldi fyrir fangelsið á Kvíabryggju vegna kaupa á eldsneyti fyrir rúmlega 750 þúsund krónur. Eldsneytið var keypt með svokölluðum N1-inneignarkortum, sem forstöðumanninum var óheimilt að nota, þar sem notkun þeirra hafði verið bönnuð í mörg ár. 5.2.2011 06:00
Dómsmál margfalt áhættusamara Nýr Icesave-samningur er betri en Lárus Blöndal, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefndinni, bjóst við. Lárus segir að verði ekki gengið frá samningi þá blasi dómsmál við. Kostnaður við nýja samninginn sé brot af kostnaði sem hlytist af töpuðu máli. Núna deili viðsemjendur ábyrgð og kostnaði. 5.2.2011 05:00
Vill stöðva aðildarviðræður vegna makríls Umhverfis- og sjávarútvegsráðherra Breta tekur undir með gagnrýnisröddum stjórnarandstöðu þar í landi og segist „alveg sammála“ því að krefjast skuli af Evrópusambandinu að aðildarviðræður Íslands verði stöðvaðar uns leysist úr makríldeilunni, að því er kemur fram á skosku vefsíðunni Press and Journal. 5.2.2011 05:00
Bændur farga dýrum vegna eiturs frá Funa Niðurstöður díoxínmælinga Matvælastofnunar staðfesta staðbundna mengun frá sorpbrennslunni Funa á Ísafirði. Díoxín greinist í mjólk, kjöti og fóðri. Fella verður búpening, allt að 400 skepnur, og bann hefur verið sett á nýtingu búfjárafurða á bæjum í Skutulsfirði. 5.2.2011 04:00
Áhersla lögð á að eyða óvissunni Menntaráð Reykjavíkurborgar leggur áherslu á skjót vinnubrögð til að hægt verði að eyða óvissu um framtíðarskipulag skólamála í borginni. Þetta segir Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, í samtali við Fréttablaðið, en hugmyndir um sameiningu skólastofnana og frístundaheimila Reykjavíkurborgar voru kynntar fyrir stjórnendum leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs í gær. 5.2.2011 03:15
Seldi ríkisbíl og hirti andvirðið sjálfur Afdrif vörubíls í eigu Fangelsismálastofnunar, sem notaður var á Kvíabryggju, eru meðal atriða sem eru til rannsóknar vegna gruns um misferli fyrrverandi forstöðumanns fangelsisins, Geirmundar Vilhjálmssonar. 5.2.2011 00:01
Innbrotsþjófur gleymdi símanum - löggan hringdi í vin hans Lögreglan í Washington DC hafði hendur í hári seinheppins innbrotsþjófs sem gleymdi símanum sínum á einu heimilinu sem hann braust inn á. Innbrotsþjófurinn, hinn 25 ára Cody Wilkins, var í óða önn að gramsa í eigum íbúanna þegar hann heyrði einhvern koma heim, og flúði út um glugga. Síminn hans varð þó eftir og gátu lögreglumenn því haft uppi á honum með því að hringja í vini hans, tilkynna þeim að eigandi símans hefði lent í slysi og að þeim vantaði nafnið hans. Ástæða þess að Cody þurfti að hlaða símann er sú að hans eigin heimili varð rafmagnslaust í stormi nýverið og lá honum því á að hlaða hann. Cody ákvað að nota tækifærið en þá fór sem fór. Hann hefur verið ákærður fyrir að brjótast inn á tíu stöðum. 4.2.2011 21:00
Umferð gengið vel þrátt fyrir mikinn snjó Þrátt fyrir að snjó hafi kyngt niður og færðin í Reykjavík verið afar slæm í dag hafa fá óhöpp orðið í umferðinni, samkvæmt upplýsingum Vísis. „Það er nú bara mesta furða. Það hafa ekki orðið margir árekstrar í dag. Umferðin hefur náttúrlega gengið mun hægar en í venjulegu árferði, en fólk virðist hafa farið varlega,“ segir lögreglumaður hjá umferðardeild lögreglunnar sem Vísir talaði við. 4.2.2011 20:01
Býst ekki við því að Sjálfstæðisflokkurinn klofni Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að fara klofna vegna Icesave málsins að mati stjórnmálafræðings sem telur ennfremur að Bjarni Benediktsson sé ekki að ganga gegn ályktun síðasta landsfundar. 4.2.2011 18:42
Landsdómur kemur saman í næstu viku Landsdómur verður að öllum líkindum kallaður saman í næstu viku, í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Fyrsta mál dómsins verður að úrskurða um hæfi dómenda. 4.2.2011 18:34
Íslendingar og Þjóðverjar með hæsta kólesterólmagnið Hæst mælist kólesteról magn hjá Íslendingum og Þjóðverjum en lægst hjá Afríkubúum samkvæmt niðurstöðum sem birtar voru í læknatímaritinu Lancet.Meðaltalsþyngd hefur tvöfaldast frá árinu 1980 og þyngdaraukningin virðist ekki ætla að taka enda. 4.2.2011 17:26
Björn nýr formaður Starfsgreinasambandsins Björn Snæbjörnsson hefur tekið við formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands eftir að Kristján Gunnarsson tilkynnti um afsögn sína fyrr í dag. 4.2.2011 16:41
Vopnað rán framið á Evrópuþinginu Vopnaðir ræningjar ruddust inn á pósthús sem staðsett er í byggingu Evrópuþingsins í Brussel í dag og kröfðust þess að fá peninga afhenta. Ránið var framið á sama tíma og margir evrópuleiðtogar voru saman komnir í næstu byggingu á fundi. 4.2.2011 16:40
Díoxínmengað kjöt og mjólk í Skutulsfirði Matvælastofnun, MAST, hefur fengið niðurstöður mælinga á díoxíni og díoxínlíkum efnum úr búfjárafurðum og fóðri, sem tekin voru á Vestfjörðum og í Öræfum. Þessi sýnataka fór fram í kjölfar gruns um díoxínmengun sem kom fram við sýnatöku MS í desember síðastliðnum á bæ í Skutulsfirði. 4.2.2011 15:52