Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Færðu lán á milli banka með afslætti Lánasöfn gamla Kaupþings voru færð yfir til Arion banka með sextíu prósenta afslætti. Bæði Arion banki og Íslandsbanki hafa á síðustu átján mánuðum uppfært virði lánasafna, enda reikna þeir með betri heimtum en gert var ráð fyrir í kringum bankahrunið. 7.10.2010 02:45
Uppgjörið tók eitt og hálft ár Slitameðferð ALMC, sem áður hét fjárfestingarbankinn Straumur, lauk í fyrradag. Ný stjórn tók þá til starfa og tekur hún við af skilanefnd sem stýrt hefur bankanum frá því FME greip inn í reksturinn. Óttar Pálsson, forstjóri félagsins, á sæti í nýju stjórninni. Kröfuhafar Straums eignuðust bankann fyrir mánuði. 7.10.2010 02:15
Aðför að heilbrigðisþjónustu Bæjarráð Bolungarvíkur mótmælir harðlega þeirri aðför að heilbrigðisþjónustu á svæðinu sem birtist í fjárlagafrumvarpinu. 7.10.2010 02:00
Ræða áhrif landsdóms á stöðu Hæstaréttar Þingmenn munu ræða stöðu Hæstaréttar vegna landsdómsmálsins í utandagskrárumræðum á Alþingi. 7.10.2010 01:24
Vilja ekki léttvægar færslur Algengast er að vinskap á Facebook-samskiptavefnum sé slitið vegna þess að annar aðilinn setur inn ítrekaðar færslur sem hinum þykja ómerkilegar, færslur um stjórnmál eða um trúmál. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á vinslitum á þessum vinsæla samskiptavef. 7.10.2010 00:45
Styttist óðum í björgunina Námumennirnir þrjátíu og þrír, sem hírast á 700 metra dýpi niðri í lokuðum námugöngum, fengu ástæðu til að fagna í vikunni þegar yfirvöld í Chile sögðust vongóð um að þeim verði bjargað úr prísundinni strax í lok næstu viku. 7.10.2010 00:30
Danir spá Degi Kára sigri Danska blaðið Politiken spáir því að Dagur Kári hljóti kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndina Good Heart. 7.10.2010 00:01
Mengað til langframa Óttast er að eiturleðjan sem lak úr súrálsverksmiðju í Ungverjalandi geti valdið alvarlegri mengun í Dóná og víðar í nágrenninu. 7.10.2010 00:00
Mótmælum lokið Mótmælunum , sem voru á Austurvelli í kvöld, er lokið. Á annað hundrað manns mættu og börðu búsáhöld og tunnur til þess að minnast að tvö ár eru liðin síðan Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, ávarpaði þjóðiina vegna efnahagshrunsins. 6.10.2010 21:54
Slori dreift við heimili Steingríms og Jóhönnu Hundruðum kílóa af fiskúrgangi var dreift við heimili Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra fyrir helgi samkvæmt frétt sem birtist á dv.is. 6.10.2010 21:25
Maðurinn fundinn Maðurinn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld, er fundinn heill á húfi. 6.10.2010 21:18
Úlfar aftur á veiðilista Dýraverndarsinnar í Bandaríkjunum eru slegnir yfir því að þingmenn ætla að taka úlfa af lista yfir dýr í útrýmingarhættu. 6.10.2010 16:36
Bruggstarfsemi náð nýjum hæðum Svört atvinnustarfsemi og undanskot frá skatti hafa færst í aukana að undanförnu vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag. 6.10.2010 16:15
Ríflega 21 milljón safnaðist Ríflega 21 milljón króna safnaðist í „Göngum til góðs" landssöfnun Rauða kross Íslands sem haldin var síðastliðinn laugardag. 6.10.2010 15:46
Sjaldgæft að menn séu dæmdir í áfengismeðferð Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir ekki algengt að dómstólar dæmi menn í áfengismeðferð en sér ekkert því til fyrirstöðu. 6.10.2010 15:37
Lúbarði þjón sinn og kyrkti hann Saudi-Arabiskur prins hefur verið ákærður fyrir að myrða þjón sinn á hóteli í Lundúnum. Þeir áttu í kynferðissambandi. Meðal sönnunargagna var myndband sem tekið var í lyftu hótelsins þar sem prinsinn sést berja þjóninn sundur og saman. 6.10.2010 15:08
Dæmdur í meðferð eftir ítrekuð brot Karlmaður var, í Héraðsdómi Suðurlands í dag, dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sækja áfengismeðferð á meðferðarstofnun í allt að eitt ár fyrir ítrekuð áfengislagabrot. 6.10.2010 14:57
Barnaheill mótmælir skerðingu fæðingarorlofs Barnaheill - Save the Children á Íslandi mótmæla hugmyndum, sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011, um niðurskurð á fjárframlögum til Fæðingarorlofssjóðs sem og um styttingu fæðingarorlofsins. Slíkar hugmyndir vinna gegn markmiði laganna sem er meðal annars að tryggja barni samvistir við báða foreldra og brjóta gegn ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 6.10.2010 14:51
Fimmtungur ók of hratt í Mosfellsbænum Brot 7 ökumanna voru mynduð á Öldugötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldugötu í austurátt, á milli Ölduslóðar og Öldutúns. 6.10.2010 14:32
Tekist á um skattastefnu ríkisstjórnarinnar Þingmenn ræða skattastefnu ríkisstjórnarinnar í utandagskrárumræðum á Alþingi klukkan fjögur í dag. 6.10.2010 14:25
Mörður spyr forseta Alþingis um níumenningana Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til forseta Alþingis um „atvikin í Alþingishúsinu þann 8. desember 2008,“ eins og hann orðar það. Þennan dag áttu sér stað þeir atburðir sem urðu til þess að níumenningarnir svokölluðu voru ákærðir fyrir að ráðast á Alþingi. 6.10.2010 14:11
Reynt að verja Evrópu úr fjarlægð Mjög hertar eldflaugaárásir Bandaríkjamanna á stöðvar hryðjuverkamanna í Pakistan undanfarnar vikur eru raktar til fyrirhugaðra árása á stórborgir í Evrópu. 6.10.2010 14:10
Hreyfingin segist ekkert fundarboð hafa fengið Þingmenn Hreyfingarinnar segjast ekki hafa verið boðuð á fund forsætisráðherra með stjórnarandstöðunni í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þeir hafa sent frá sér. Þar segir að þingmenn Hreyfingarinnar, þau Baldvin Jónsson, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, hafi fullan vilja til samstarfs um raunverulegar lausnir í landinu og blása þau á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um áhugaleysi stjórnarandstöðunnar. 6.10.2010 13:37
Öllum harmdauði Sígarettu Charlie hefur safnast til feðra sinna, 52 ára að aldri. Charlie var sjimpansi og átti heima í dýragarði í Bloemfontain í Suður-Afríku. 6.10.2010 13:23
Marinó: Hugmyndir okkar fengu góðan hljómgrunn Það stefnir í að 73 þúsund heimili, eða flestallar íslenskar fjölskyldur, verði eignalausar að ári, að mati Hagsmunasamtaka heimilanna. Eiginfjárhlutfall þessara fjölskyldna var 54% í byrjun 2008, lækkaði í 40% í árslok 2008 og lauslega áætlað, verður eiginfjárhlutfall þessara heimila uppurið í árslok 2011 miðað við spá um verðbólgu og fasteignaverð á næsta ári. 6.10.2010 13:03
Íslensk þjóð ekki reiðubúin fyrir blessun Guðs „Það er þannig með Drottinlega blessun að maður verður að þiggja hana standandi. Íslensk þjóð er ekki risin á fætur," segir sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, aðspurður um það hvort Guð hafi blessað Ísland. 6.10.2010 13:00
Bleikur föstudagur Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands hvetur fyrirtæki til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum og hafa „Bleikan föstudag." Krabbameinsfélagið mælist því til þess að starfsfólk mæti til vinnu á föstudag í bleikri flík eða með bleikan fylgihlut. 6.10.2010 12:57
Hvers vegna er verið að styrkja listamenn? Alþingismenn tókust á um áherslur í fjárlagafrumvarpinu á þingi í gær. Þar sagðist Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins til dæmis ekki skilja hvers vegna verið er að styrkja listamenn. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og verðandi formaður fjárlaganefndar, segir að það verði að koma í veg fyrir að niðurskurðurinn bitni á byggðum landsins. 6.10.2010 12:23
Skynsamleg stefnumörkun á landsbyggðinni, segir fjármálaráðherra Mótmælin halda áfram að hellast inn af landsbyggðinni vegna niðurskurðar á sjúkrahússþjónustu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra varði niðurskurðinn í fjárlagaræðu sinni í gær með því að nauðsynlegt væri að bæta nýtingu opinberra fjármuna og að sú faglega stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda, sem með þessu væri boðuð, væri á margan hátt skynsamleg. 6.10.2010 12:00
Óður hrafn drepinn á Akranesi Árásargjarn hrafn réðst á barn og hund á Akranesi í gær. Hann var aflífaður í viðurvist lögreglumanna eftir árásina, segir á fréttavefnum Skessuhorni. 6.10.2010 11:41
Talibanar vilja semja frið -Washington Post Washington Post segist hafa fjölmarga heimildarmenn fyrir frétt sinni. Þeir hafa allir óskað nafnleyndar þar sem viðræðurnar eru leynilegar. 6.10.2010 11:30
Lesblindir ánægðir með Snilldarlausnir Marel Snævar Ívarsson, starfsmaður Félags lesblindra á Íslandi, segir það sérstakt fagnaðarefni fyrir lesblinda að hugmyndum í samkeppnina Snilldarlausnir Marel skuli skilað inn á myndbandi. „Það vakti strax áhuga minn að þeir biðja um að fá hugmyndirnar á myndbandi og hvað þetta verkefni er því aðgengilegt fyrir okkar skjólstæðinga, þá sem eru lesblindir," segir hann. 6.10.2010 11:05
Stjórnarandstaðan mætti ekki á fund ráðherra Enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar á Alþingi mætti á fund með fimm ráðherrum í morgun þar sem átti að ræða aðgerðir til þess að koma til móts við skuldavanda heimilanna. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekkert fundarboð hafa fengið. Hrannar B. Arnarson aðstoðarmaður forsætisráðherra segir hinsvegar að stjórnarandstaðan hafi verið boðuð á fundinn að loknum fyrsta fundi hópsins sem haldinn var í gær. 6.10.2010 10:52
Gerir ekki lengur kröfu um arf Fischers Aðild Marilyn Felonia Young að máli vegna arfs eftir skákmeistarann Bobby Fischer hefur verið felld niður. Young gerði kröfu í arfinn fyrir hönd dóttur sinnar, Jinky Young, sem hún sagði að væri dóttir Fischers. Niðurstöður DNA-rannsókna í haust leiddu hins vegar í ljós að svo var ekki. 6.10.2010 10:43
Ófrískum konum óhætt að drekka -mjög lítið Samkvæmt nýrri rannsókn í Bretlandi er verðandi mæðrum óhætt að drekka áfengi á meðgöngutímanum. Ef það er gert í hófi skaðar það ekki fóstrið. 6.10.2010 10:15
Tvö ár frá því að Geir bað guð um að blessa Ísland Tvö ár eru í dag síðan að neyðarlög vegna bankahrunsins, sem þá var yfirvofandi, voru sett. Geir Haarde forsætisráðherra flutti sjónvarpsávarp eftir hádegi þann daginn og klykkti út með því að biðja guð um að blessa Ísland. Hann mælti svo fyrir frumvarpi að lögunum á þingfundi. Frumvarpið var svo samþykkt seint um kvöldið. 6.10.2010 09:49
Kjalnesingagoði: Þjóðernissinnar misnota sólkrossinn Jóhönnu Harðardóttur, Kjalnesingagoða Ásatrúarfélagsins, var brugðið þegar hún komst að því að svokallaðir þjóðernissinnar notuðu fána með sólkrossinum í mótmælunum við Alþingishúsið á mánudag. 6.10.2010 09:35
Vill að bankarnir einbeiti sér að smærri fyrirtækjum Viðskiptabankarnir þurfa að fara að einbeita sér meira að smærri fyrirtækjum í stað þess að hafa hugann einungis við stór fyrirtæki, segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 6.10.2010 09:24
Leita allra leiða vegna fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í gær létu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar bóka að skýrt komi fram í lögum að þegar sveitarfélög geta ekki lengur staðið í skilum skuli leita aðstoðar sveitastjórnarráðuneytisins sem getur heimilað jöfnunarsjóði sveitarfélaga að veita bæjarstjóði styrk eða lán. 6.10.2010 08:37
Leðjan flæddi yfir þrjú þorp Neyðarástandi var lýst yfir í þremur sveitarfélögum í Ungverjalandi í gær eftir að rauð og þunnfljótandi báxítmenguð eiturleðja flæddi um stórt svæði úr álverksmiðju. 6.10.2010 08:00
Aftur ráðist á olíubílalest NATO í Pakistan Talibanar í Pakistan hafa aftur látið til skarar skríða gegn olíubílalest á vegum NATO á leið með eldsneyti til Afganistan. 6.10.2010 07:43
Bílvelta á Elliðavatnsvegi - ökumaðurinn týndur Lögregla kom að bíl á hvolfi við Elliðavatnsveg um klukkan hálfþrjú í nótt. Tveir menn stóðu við bílinn en báðir neituðu því að hafa verið undir stýri þegar hann valt. 6.10.2010 07:41
Ungverjar glíma við versta mengunarslys í sögu landsins Ungverjar glíma nú við versta mengunarslys í sögu landsins. Talið er að það taki eitt ár að hreinsa til eftir að eitruð rauð leðja lak frá súrálsverksmiðju í miðhluta landsins. 6.10.2010 07:39
Kaliforníubúar orðnir andvígir lögleiðingu marijúana Ný skoðanankönnun sýnir að meirihluti Kalíforníubúa er orðinn andvígur því að lögleiða almenna neyslu maríjúana. 6.10.2010 07:32
Vorhret drepur hundruðir þúsunda lamba á Nýja Sjálandi Nýborin lömb hafa drepist svo hundruðum þúsunda skiptir á Nýja Sjálandi í versta vorhreti sem skollið hefur á suðurhluta landsins í manna minnum. 6.10.2010 07:29