Fleiri fréttir

Spenna vegna dómsúrskurðar

Lögregla og her höfðu mikinn viðbúnað í gær í bænum Ayodhya á norðanverðu Indlandi og víðar í landinu, eftir að dómstóll kvað upp þann úrskurð að múslimar og hindúar eigi að skipta á milli sín helgum stað, sem deilur hafa staðið um áratugum og jafnvel öldum saman.

Geir á forsíðu Wikipedia-alfræðiritsins

Ákvörðun Alþingis um að ákæra Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur vakið heimsathygli. Meðal annars má finna mynd af Geir og greinarstúf á alfræðisíðunni Wikipedia.org í dag.

Tvær konur handteknar fyrir mannrán í Kópavogi

Tvær konur á þrítugsaldrinum voru handteknar í dag grunaðar um að hafa svipt rúmlega tvítugri konu frelsi sínu. Þá eru þær einnig grunaðar um að hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi.

Jarðhitinn sparaði 67 milljarða króna í fyrra

Nýting jarðvarma til húshitunar sparar íslenska þjóðarbúinu 50 til 80 milljarða króna á ári, sem annars færu til olíukaupa. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Orkustofnunar.

Konur lemja karla líka

Þó nokkur fjöldi karla á Íslandi býr við líkamlegt ofbeldi að hálfu eiginkvenna sinna. Heimilsofbeldi gegn körlum er hins vegar falið vandamál sem verður að rannsaka betur. Þetta segir dósent í félagsfræði.

Skiptar skoðanir um endurkomu Björgvins

Skiptar skoðanir eru innan þingflokks Samfylkingarinnar um endurkomu Björgvin G. Sigurðsson á þing. Þrír þingmenn flokksins greiddu atkvæði með ákæru á hendur þessum flokksbróður sínum.

Myndir sýna nýja öskurák við gíginn

Myndir af toppgíg Eyjafjallajökuls, sem virðast sýna að ný aska hafi komið úr gígnum og fallið á jökulinn, hafa vakið forvitni jarðvísindamanna. Þeir vilja þó ekki skýra fyrirbærið með því að eldvirkni sé enn í gangi.

AGS telur að það verði ekkert mál fyrir Ísland að borga 600 milljarða

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði á það ríka áherslu að frystingu nauðungaruppboða yrði aflétt í lok októbermánaðar. Þetta staðfestir yfirmaður sendinefndar sjóðsins. Þá hefur hann engar áhyggjur af því að íslenska ríkið muni eiga í erfiðleikum með að greiða niður 600 milljarða króna lán á næstu árum.

Lyfjaverð frumlyfja á Íslandi undir meðaltali Norðurlandanna

Samkvæmt nýjustu verðkönnun Lyfjagreiðslunefndar sem birt var í dag 30. september, kemur fram að meðalverð 40 veltuhæstu lyfjanna (miðað við sömu lyf og voru veltuhæst í síðustu lyfjakönnun) er lægra á Íslandi en meðaltal á Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku.

Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn ungum skátum

Ungur karlmaður var dæmdur í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í skátunum. Sjálfur var maðurinn, sem var sautján ára þegar hann framdi brotin, leiðeinandi á námskeiði í skátunum.

Eik banki fallinn

Danski tryggingasjóðurinn Finansiel Stabilitet hefur tekið yfir starfssemi færeyska bankans Eik. Dönsk yfirvöld neituðu bankanum um lengri frest til þess að afla hlutafjár og því ljóst að bankinn er fallinn.

Nýr formaður SUF leggur áherslu á atvinnumál

Það þarf hugarfarsbreytingu í þá átt að fengist verði við atvinnuvanda ungs fólks með sértækum lausnum, segir Sigurjón Norberg Kjærnested, sem var kjörinn formaður Sambands ungra framsóknarmanna, um helgina. Sigurjón segir að til að fást við vandann þurfi að setja meira fjármagn í nýsköpun.

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 250 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.

Sjálfsmorð eftir upptöku á ástarfundi

Átján ára gamall bandarískur háskólanemi framdi sjálfsmorð eftir að tvö skólasystkini hans tóku myndir af ástarfundi hans með öðrum karlkyns nemanda.

Jóhanna bauð Obama til Íslands

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur með formlegum hætti boðið forseta Bandaríkjanna, Barack Obama að sækja Ísland heim til að efla enn frekar góð samskipti landanna.

Stjörnulögmaður og ritstjóri rífast á Facebook

Reynir Traustason, ritstjóri DV, sagði Svein Andra Sveinsson hæstaréttarlögmann vera endaþarm íslenskrar lögmennsku á facebook síðu hans í dag. Snörp orðaskipti urðu á milli þeirra tveggja eftir að Sveinn Andri Sveinsson gagnrýndi leiðara sem birtist í DV í gær eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur.

Hættið að skila glæpononum okkar

Fjórir Mexíkóskir bæjarstjórar hafa beðið Bandaríkjamenn um að hætta að skila mexíkóskum glæpamönnum yfir landamærastöðvar.

Ætla að sniðganga guðsþjónustu við þingsetningu

Þingmenn Hreyfingarinnar ætla ekki að vera viðstödd guðsþjónustu þegar að Alþingi verður sett á morgun. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segist í samtali við Vísi, gera ráð fyrir að hún, Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir muni verða fyrir utan Alþingishúsið á meðan að guðsþjónustan fer fram. Hún vonast til að fleiri þingmenn sláist í hóp þeirra.

Stjórnsýsluskóli stjórnarráðsins settur

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra setti Stjórnsýsluskóla stjórnarráðsins í morgun í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Á fyrsta námskeiðið voru mættir um 50 nýliðar úr 10 ráðuneytum. Þegar forsætisráðherra hafði ávarpað nýja starfsmenn í stjórnarráðinu var haldið upp á Bifröst þar sem við tók fræðsla um ýmsa þætti í starfi ráðuneytanna.

Ný Baader-Meinhof réttarhöld

Fyrrverandi liðskona Baader-Meinhof samtakanna í Þýskalandi er á leið fyrir rétt vegna morðs á saksóknara og tveim lífvörðum hans árið 1977. Verena Becker er nú 58 ára gömul.

Saksóknari í máli Geirs ekki fundinn

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur enn ekki fengið fréttir af því hvern Atlanefndin svokallaða hyggst tilnefna sem saksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.

Segja aðstæður kvenna í fangelsum mun verri en karla

Aðstæður kvenfanga hér á landi eru mun lakari en karlfanga, að því er Kvenréttindafélag Íslands og Vernd - fangahjálp telja. Í sameiginlegri ályktun frá þeim segja þau að fyrir það fyrsta sé einungis eitt fangelsi í boði fyrir kvenfanga, Kvennafangelsið í Kópavogi, þar sem þrengsli séu mikil.

Samstarfi Íslands við AGS lýkur í ágúst

Stefnt er að því að samstarfi Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ljúki á réttum tíma í ágúst á næsta ári þrátt fyrir tafir á endurskoðun efnahagsáætlana.

Svört skýrsla um aðbúnað togarasjómanna í Afríku

Bresk umhverfisverndarsamtök segja að aðbúnaður sjómanna á togurum við Vestur Afríku, sé hræðilegur, og kjörum þeirra megi líkja við þrælahald. Fjögur íslensk fyrirtæki gera út togara á þessum slóðum. Öll skipin sem um ræðir hafa leyfi til að selja fisk sinn á Evrópumarkað að því er fram kemur í Breska blaðinu Guardian, sem fjallar um skýrslu samtakanna Environmental Justice Foundation í dag.

Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun

Ellert Sævarsson hefur enn ekki ákveðið hvort að hann muni áfrýja sextán ára fangelsisdómi sem hann hlaut á dögunum. Ellert var fundinn sekur um að hafa orðið manni að bana í Reykjanesbæ í vor. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála hefur hann um það bil fjórar vikur til að áfrýja dómnum.

Vinsamlegast haldið ykkur fast í flugtakinu

Flugmálayfirvöld í Rússlandi rannsaka nú hvernig á því stóð að sex farþegum var hleypt um borð í flugvél í Tyrklandi án þess að til væru sæti fyrir þá.

Fjárlagafrumvarpi dreift eftir þingsetningu á morgun

Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö á morgun. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Tony Curtis er látinn

Bandaríski leikarinn Tony Curtis er látinn, 85 ára að aldri. Hann lék í rúmlega 100 bíómyndum á ferlinum og í fjölda sjónvarpsþátta. Hann var meðal annars tilnefndur til óskarsverðlauna árið 1958 fyrir hlutverk í The Defiant Ones þar sem hann lék fanga á flótta með Sidney Poiter. Þekktasta rulla Curtis er þó án efa í Some Like it Hot þar sem hann var í aðalhlutverki ásamt Jack Lemon og Marylin Monroe.

Úthafsrækjustofninn enn lítill

Úthafsrækjustofninn mælist enn lítill og er veiðistofnsvísitalan svipuð og hún hefur verið síðustu fjögur ár, að sögn Hafrannsóknarstofnunnar sem nýlega lauk árlegri stofnmælingu sinni á rækjunni.

Önnur jörð komin í leitirnar

Vísindamenn hafa uppgötvað plánetu sem þykir, af öllum þeim plánetum sem við þekkjum í dag , einna líkust þeirri sem við byggjum. Plánetan Gliese 581g er sögð í hæfilegri fjarlægð frá sól sinni þannig að töluverðar líkur séu á því að þar sé vatn í fljótandi formi.

Kim Jong-Un loksins festur á filmu

Ríkisfjölmiðlar Norður-Kóreu hafa í fyrsta sinn birt mynd af yngsta syni leiðtogans Kim Jong-Il en talið er að hann eigi að taka við kyndlinum þegar faðir hans er allur. Á myndinni sjást 200 æðstu yfirmenn kommúnistaríkisins saman komnir á landsfundi Verkamannaflokksins en fundurinn var haldinn um síðustu helgi. Þar var sonurinn, Kim Jong-Un gerður að varaformanni herráðs flokksins auk þess sem hann var kjörinn í miðstjórn. Að auki var Jong-Un hækkaður í tign innan hersins og gerður að fjögurra stjörnu hershöfðingja. Hann er 27 ára gamall.

Vél Iceland Express lenti í Portúgal með veikan farþega

Flugvél Iceland Express, sem var á leið til Tenerife varð að lenda í Lissabon í Portúgal skömmu eftir miðnætti í nótt með veikan farþega. Hann veiktist á leiðinni og ákvað flugstjórinn að taka enga áhættu og koma manninum sem fyrst undir læknis hendur. Vegna tafa af þessu verður einvher röskun á flugi félagsins fram eftir degi.

Exeter málið tekið fyrir i dag

Til stendur að fyrirtaka í Exeter málinu svokallaða fari fram í Héraðsdómi Reykjavikur á tíunda tímanum í dag, samkvæmt dagskrá á vef dómsins. Málið er það eina sem sérstakur saksóknari hefur ákært í enn sem komið er.

Þingið gefur sér tvö ár til lagaúrbóta

Alþingi hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla endurskoðun á lögum sem gilda um málaflokka er snertu hrunið. Ekki er til áætlun um hvernig standa á að verkinu. Þó eining sé um áformin má telja ólíklegt að sátt verði um leiðir.

TR krefur erfingjana um ofgreiddan lífeyri

„Þetta er einfaldlega svívirðilegt,“ segir Guðrún Lilja Benjamínsdóttir um greiðsluáskorun sem henni barst frá Tryggingastofnun ríkisins í síðustu viku.

Höfuðpaurinn talinn hafa hirt féð sem svikið var út

Steingrímur Þór Ólafsson, sem handtekinn var í Venesúela á mánudag, er grunaður um að hafa fengið í hendur þær 270 milljónir króna, sem sviknar voru út í virðisaukaskattsmálinu, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars að því hvort hann hafi skipulagt fjársvikin.

Gagnrýni og hótun-um ESB vísað á bug

sjávarútvegur Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands í makrílviðræðunum, vísar gagnrýni og hótunum Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, vegna makrílveiða Íslendinga alfarið á bug. Tómas segir Ísland reiðubúið til þess að leggja sitt af mörkum til þess að samkomulag takist um makrílveiðar en jafnframt sé ljóst að hótanir um aðgerðir á borð við uppsögn óskyldra samninga á milli Íslands og ESB séu ekki til þess fallnar að stuðla að lausn málsins.

Urðu frá að hverfa í gær

„Það er erfitt að gera nokkrar áætlanir þar sem hernámsveldi stjórnar ferðum fólks og jafnvel duttlungar byssufólksins ráða," segir Sveinn Rúnar Hauksson læknir, sem varð að hverfa frá landamærum Gasa-svæðisins í gær ásamt hópi Íslendinga, sem hugðust færa fötluðum íbúum þar gervifætur.

Sjá næstu 50 fréttir