Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sóley kallar á viðræður við Norðurál Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, leggur til að leitað verði eftir viðræðum við Norðurál um raforkusölusamninga með það að markmiði að auka tekjur Orkuveitu Reykjavíkur. Hún segir að tillögur Orkuveitunnar um gjaldskrárhækkanir hefðu þurft aukna „pólitíska rýningu" af hálfu stjórnar. 27.8.2010 21:20
Situr uppi með ónýta afmælisgjöf Barbara Þóra Kjartansdóttir keypti tölvuleik handa syni sínum í afmælisgjöf. Þegar litli drengurinn ætlaði að spila leikinn virkaði hann ekki og Barbara fór með diskinn aftur í búðina en henni til mikillar undrunar og ama - fær hún ekki að skila leiknum. 27.8.2010 00:01
Útilokar ekki frekari hækkanir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, útilokar ekki að til frekari gjaldskrárhækkana komi að ári. Í samtali við Heimi Má Pétursson í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði hann ekki víst að þessi hækkun dyggði til að rétta kútinn hjá Orkuveitunni, stjórnendum fyrirtækisins hefði verið gefin heimild til að taka frekari ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir tvisvar á ári með hliðsjón af hækkun neysluvísitölu. 27.8.2010 20:01
Ástarsaga í Herjólfi - skipstjórinn gaf þýskt par saman Þýskt par var gefið saman um borð í Herjólfi í vikunni. Það var skipstjórinn sjálfur sem sá um hjónavígsluna en hann segir að athöfnin hafi verið ákaflega rómantísk 27.8.2010 19:35
Blásandi borhola gæti ráðið úrslitum Virkjana- og rannsóknaleyfi á Reykjanesskaga, sem HS Orka sótti um fyrir þremur árum, hafa ekki enn fengist, meðal annars vegna ágreinings vísindamanna um hve mikil orka leynist í iðrum jarðar. Þetta er ein af ástæðum þess að HS Orka telur forsendur orkusamning vegna álvers í Helguvík brostnar. 27.8.2010 19:07
Nýja Lyngdalsheiðin opnuð í september Byrjað er að malbika nýja veginn yfir Lyngdalsheiði, milli Þingvalla og Laugarvatns, en stefnt er að því að hann verði opnaður fyrir umferð eftir rúmar þrjár vikur. 27.8.2010 18:50
Stórhækkun á orkuverði Orkuverð frá Orkuveitu Reykjavíkur mun hækka um 28,5% þann 1. október. Þetta var ákveðið á eigendafundi Orkuveitunnar sem lauk klukkan hálf sjö í dag. Gert er ráð fyrir gjaldskrárhækkunin skili Orkuveitunni fjórum milljörðum króna og að hagræðingaraðferðir skili tveimur milljörðum aukalega í kassann. 27.8.2010 18:47
Fær ekki að flytja með fjölskyldu sína heim Íslenskur maður hefur í tæpt ár reynt að flytjast með konu sína og dóttur til Íslands frá Dóminíska lýðveldinu, en Útlendingastofnun hefur ekki fallist á gögn sem sýna fram á forsjá barnsins. 27.8.2010 18:30
Aðstandendur Hannesar viðstaddir í Héraðsdómi Þáttaskil urðu í rannsókninni á morðinu á Hannesi Helgasyni í dag þegar karlmaður á þrítugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um að hann eigi aðild að andláti Hannesar. Aðstandendur Hannesar voru viðstaddir í Héraðsdómi Reykjaness þegar úrskurðurinn var kveðinn upp. 27.8.2010 18:24
Harður árekstur á Miklubraut Engin slys urðu á fólki þegar fólksbíll keyrði aftan á jeppa á Miklubrautinn um klukkan hálf sex í dag. Fólksbíllinn var mikið skemmdur og var fjarlægður af vettvangi af kranabíl. Lögreglan á staðnum sagði alla ómeidda, þetta væri bara vesen, en þung umferð var um Miklubrautina þegar áreksturinn varð. 27.8.2010 17:55
Gunnar Rúnar neitar sök Gunnar Rúnar Sigurþórsson neitar að hafa átt þátt í andláti Hannesar Þórs Helgason en Gunnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald siðdegis í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. 27.8.2010 16:26
Gunnar Rúnar leiddur fyrir dómara - myndband Gunnar Rúnar Sigurþórsson var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness klukkan þrjú í dag. Þar var hann úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald sem rennur út 24. september næstkomandi. 27.8.2010 16:21
55 kaupsamningar þinglýstir Alls voru 55 kaupsamningar þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Þar af voru 45 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.262 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,9 milljónir króna. 27.8.2010 15:52
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald í fjórar vikur vegna gruns um að hafa átt aðild að andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst síðastliðinn. 27.8.2010 14:59
Lögðu hald á 150 lítra af landa á Akureyri Lögreglan á Akureyri lagði hald á 150 lítra af landa eftir húsleit í íðnaðarhúsnæði í gækvöldi. 27.8.2010 14:47
Morðrannsókn: Farið fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem er grunaður um morðið á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani 15 ágúst. 27.8.2010 13:58
Starfsmenn Íbúðarlánasjóðs lýsa yfir stuðningi við umsókn Ástu Starfsmenn Íbúðalánasjóðs lýsa yfir fullum stuðningi við umsókn Ástu H. Bragadóttur um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og harma þá ákvörðun hennar að draga umsókn sína til baka samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu á fjölmiðla upp úr hádegi. Þá sagði einnig í tilkynningunni að starfsmenn hefðu þær upplýsingar að Ásta hefði notið stuðnings meirihluta stjórnar Íbúðalánasjóðs. 27.8.2010 13:23
Ríkisendurskoðun: Það þarf að efla allt eftirlit með þjónustu við fatlaða Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að samkvæmt fjárlögum munu framlög til þjónustu við fatlaða nema samtals 11,2 ma.kr. á þessu ári. 27.8.2010 13:14
Hanna Birna hafnar ásökunum um töffaragang Borgarstjóri Reykjavíkur segist efast um að geta átt samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn og sakar hann um töffaragang. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir engan töffaragang í flokknum, og menn megi ekki taka ágreiningi persónulega. 27.8.2010 12:59
Engar eðlisbreytingar á umsóknarferlinu Formaður utanríkisnefndar segir engar eðlisbreytingar hafa átt sér stað á umsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ótækt að sambandið ætli að styrkja umsóknina um fjóra milljarða króna. 27.8.2010 12:40
Árni Páll harmar ákvörðun Ástu Félagsmálaráðherra vonar að nýr forstjóri verði ráðinn til Íbúðalánasjóðs innan fárra vikna. Hann harmar að Ásta H. Bragadóttir starfandi forstjóri skuli hafa dregið umsókn sína til baka. Hann segir að ríkissjóður muni styrkja fjárhagslega stöðu sjóðsins. 27.8.2010 12:24
Plastic Ono Band endurreist á Íslandi í haust Yoko Ono ætlar að kalla saman hljómsveitina Plastic Ono Band í Reykjavík til að minnast 70 ára afmælis John Lennon hinn 9. október næst komandi. Alice Walker, höfundur bókarinnar the Color Purple er ein þeirra sem fær Lennon friðarverðlaunin í ár. 27.8.2010 12:16
Forstjóri Magma stoltur af því að geta kallað Össur „félaga“ Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, segir að hann og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi þekkst lengi og samskipti þeirra hafi verið á þeim nótum. Hann segir stjórnvöld aðeins hafa verið að vinna eftir gildandi lögum og ekkert óeðlilegt sé við tölvupóstssamskipti sín við ráðherra og embættismenn vegna fjárfestingar Magma í HS Orku. 27.8.2010 12:14
Böðvar Jónsson: Setjist niður og semjið svo fólkið fái atvinnu Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir Suðurnesin búa við mesta atvinnuleysi á landinu og krefst þess að ráðamenn setjist niður og tryggi að framkvæmdir komist í gang. 27.8.2010 12:09
Segja aðlögunarferli fólgið í ESB-aðildarviðræðum Samtökin Ísafold, Félags Ungs Fólks gegn ESB-aðild, segja aðlögun fólgna í aðildarviðræðum við ESB. 27.8.2010 12:06
Morð í Hafnarfirði: Karlmaður að nýju í haldi lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar á morðinu á Hannesi Helgasyni. 27.8.2010 12:02
ASÍ gagnrýnir landbúnaðarráðherra Hörð gagnrýni kom fram á Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, á miðstjórnarfundi ASÍ í gær. Fundarmönnum hugnaðist ekki sú ákvörðun Jóns að gera breytingar á tolli á innfluttum landbúnaðarafurðum, að því er fram kemur á vef ASÍ. Þar segir að Jón hafi tekið ákvörðunina einhliða og að hún gangi gegn hagsmunum neytenda þar sem hún verð komi til með að hækka gríðarlega á innfluttum landbúnaðarafurðum. 27.8.2010 11:32
Samið um frumhönnun nýs Landspítala Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð útboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011. Samkomulagið var undirritað í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Landspítalans. 27.8.2010 11:15
Ungir sjálfstæðismenn verðlauna Brynjar Níelsson og InDefence Samband ungra sjálfstæðismanna hefur ákveðið að veita Brynjari Níelssyni, hæstaréttarlögmanni og formanni Lögmannafélagsins, og InDefence hópnum svonefnd Frelsisverðlaun sambandins í ár. Verðlaunin fær Brynjar fyrir að vera ötull baráttumaður gegn pólitískum rétttrúnaði, líkt og það er orðað í tilkynningu SUS. Um InDefence segir að samtökin eigi hvað mestan heiður skilið fyrir að hindra að gengið yrði að kröfum Breta og Hollendinga Icesave málinu. 27.8.2010 10:55
Morðrannsókn: Húsleit hjá grunuðum manni Húsleit var framkvæmd í gærkvöldi heima hjá grunuðum manni, sem var handtekinn og yfirheyrður vegna morðmálsins í Hafnarfirði stuttu eftir að morðið var framið. Þetta kemur fram á fréttamiðlinum Pressan.is. 27.8.2010 10:45
Ökumenn til fyrirmyndar á Fornhaga Ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Fornhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fornhaga í suðurátt, við Hagaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. 27.8.2010 10:29
Facebook-síðu lokað eftir sjálfsmorðssprengjuhótun Facebook-síðu með yfirskriftinni „Við myndum fórna lífinu fyrir Ísland", hefur verið lokað en samtökin Sterkara Ísland kærðu sjálfsmorðshótun hópsins til lögreglunnar. 27.8.2010 10:03
Vilja mosku í Reykjavík Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu skorar á skipulagsráð Reykjavíkur að koma til móts við óskir Félags múslíma og útvega þeim lóð undir mosku. Á aðalfundinum sem fór fram í gær var Claudia Overesch kjörinn formaður félagsins. 27.8.2010 09:45
Meirihluti telur hag sinn betri innan ESB Ný könnun Eurobarometer sýnir að meirihluti íbúa Norðurlandaþjóðanna í ESB telja hag sinn betri vegna aðildar að ESB. 27.8.2010 09:43
Myndskeið birt af námuverkamönnunum Birt hefur verið myndskeið af námuverkamönnunum 33 sem hafa verið fastir á 700 metra dýpi í koparnámu í Chile frá því 5. ágúst. Lagður hefur verið lítill stokkur niður í rýmið þar mennirnir eru. Í gegnum hann hafa þeir fengið vistir, bréf frá ættingjum og myndatökuvél. Á umræddu myndbandi segja mennirnir, sem margir hverjir eru berir að ofan og skeggjaðir, frá aðstæðunum í námunni. 27.8.2010 09:04
Jón Gnarr: Sjálfstæðismenn sýna mér hroka Jón Gnarr, borgarstjóri, segist efast um að hann geti unnið með Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn sýni honum hroka og fálæti. Hann segist fá lítið til baka frá þeim nema töffaragang. Jón spyr lesendur dagbókar sinnar á samskiptavefnum Facebook hvort hann eigi að hætta að brosa til þeirra sem beri ekki virðingu fyrir honum. 27.8.2010 08:28
Ætla að ráðast á hjálparstarfsfólk á flóðasvæðunum Talíbanar hafa í hyggju að ráðast á hjálparstarfsmenn á flóðasvæðunum í Pakistan. Þeir segja veru útlendinga í landinu óásættanlega. 27.8.2010 08:20
Carter fékk fangann látinn lausan Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lagði af stað frá Norður-Kóreu í nótt þar sem honum tókast að fá látinn lausan bandarískan ríkisborgara sem setið hefur í fangelsi í landinu frá því í byrjun árs. 27.8.2010 08:02
Urða verslunarhöll á meðan kreppan ríkir Reginn, dótturfélag Landsbankans, sem leysti til sín risavaxna lóð með sökkli að tólf þúsund fermetra verslunarmiðstöð er nú að láta moka yfir allan grunninn. 27.8.2010 08:00
Þýsk poppstjarnan smitaði mann af HIV-veirunni Nadja Benaissa söngkona úr þýsku stúlknasveitinni No Angels hlaut í gær tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að smita fyrrverandi kærasta sinn af HIV-veirunni og einnig fyrir að hafa óvarin kynmök við tvo aðra menn en þeir smituðust ekki. Söngkonan viðurkenndi að hafa ekki upplýst mennina um að hún væri HIV-smituð en neitaði hins vegar alfarið að hafa reynt að smita þá viljandi. 27.8.2010 07:59
Hvattir til að syngja og borða hóflega í námunni Námuverkamennirnir 33 sem eru fastir í koparnámu í Chile eru hvattir til að syngja og spila til að viðhalda andlegri heilsu. Þá hafa þeir verið beðnir um að borða ekki of mikið svo þeir komist nú örugglega inn í göngin sem verið er að búa til að bjarga þeim úr prísundinni. Meira en þrjár vikur eru síðan mennirnir lokuðst inni á 700 metra dýpi í námunni þegar hluti hennar hrundi. Greint hefur verið frá því að það geti tekið allt að fjóra mánuði að ná mönnunum aftur upp á yfirborð. 27.8.2010 07:52
Leyfi til stækkunar bíður deiliskipulags Gert er ráð fyrir að breyting á deiliskipulagi Reyjaness og Grindavíkur verði staðfest um mánaðamótin október nóvember þegar Skipulagsstofnun hefur farið yfir hana, að sögn Magneu Guðmundsdóttur, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. 27.8.2010 07:30
Með skýrt umboð til að breyta borginni Besti flokkurinn er með skýrt umboð til breytinga í Reykjavík og tími kominn til að láta verkin tala, í góðri sátt við íbúa. Þetta má lesa í viðtali blaðsins við nýjan formann skipulagsráðs, Pál Hjaltason. 27.8.2010 06:45
Sumar skoðanir Beatys taldar birtingarhæfar en aðrar ekki Iðnaðarráðuneytið hefur afhent Fréttablaðinu hluta af bréfi sem Ross Beaty, forstjóri Magma, sendi Katrínu Júlíusdóttur iðnaðaráðherra 18. ágúst síðastliðinn. Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, var sent afrit af bréfinu. 27.8.2010 06:45
Segja tuttugu upp störfum Jarðboranir hafa sagt upp tuttugu starfsmönnum og tilgreina tafir á framkvæmdum vegna álvers í Helguvík sem ástæðu uppsagna í fréttatilkynningu sem send var út í gær. 27.8.2010 05:30