Fleiri fréttir

Íslendingum ber að borga Icesave

Innistæðutryggingatilskipun Evrópusambandsins var ekki innleidd hér með réttum hætti. Það er önnur meginástæða þess að Íslendingum beri að greiða fyrir Icesave reikninga Landsbankans.

Umhverfisstofnun rannsakar mengunarslysið á Eskifirði

Umhverfisstofnun mun óska eftir upplýsingum um hvort rétt hafi verið staðið að málum í tengslum við mengunarslysið á Eskifirði þegar löndunarvatn blandaðist neysluvatni bæjarbúa fyrr í mánuðinum.

Ostabúðin í fullum rekstri

Ostabúðin á Bitruhálsi í Reykjavík er í fullum rekstri, enda þótt Osta- og smjörsalan hafi þar ekki starfsemi lengur.

Sjáiði blokkirnar

Rússar eru hreinlega að drepast úr hita. Þar hefur gengið yfir margra vikna hitabylgja og hvert hitametið slegið af öðru.

Davíð Oddsson með milljónir í laun

Ritstjórar Morgunblaðsins eru samtals með um 6 milljónir í mánaðarlaun. Morgunblaðið er sem kunnugt í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur frá Vestmannaeyjum sem er skattadrottning Íslands í ár.

Aftur orðið fært inn í Bása

Vegurinn inn í Bása er orðinn fær öllum jeppum en í gær og morgun flæddi Krossá eftir veginum með þeim afleiðingum að hann varð ófær.Að sögn Skúla Skúlasonar framkvæmdastjóra Útivistar var fengin grafa til beina ánni í rétta átt og nú í dag hafi vegurinn verið opnaður aftur. „Það var orðinn talsverður vatnsflaumur eftir veginum en okkur tókst að koma þessu í lag," segir Skúli.

Runólfur tjáir sig ekki

Runólfur Ágússtsson, umboðsmaður skuldara, vildi ekki tjá sig um skuld sem hann skildi eftir sig í eignarhaldsfélagi í aðdragandi hrunsins, í samtali við fréttastofu. Hann segir von á yfirlýsingu í dag vegna málsins.

Bóksalinn í Kabúl vann gegn Seierstad

Norska blaðakonan og rithöfundurinn Åsne Seierstad hefur verið dæmd til þess að greiða eiginkonu bóksalans í Kabúl 125 þúsund norskar krónur í miskabætur fyrir samnefnda bók sem hún skrifaði árið 2001.

Aldi bróðir látinn - skiptu heiminum á milli sín

Theo Albrecht, sem stofnaði lágvöruverslunarkeðjuna Aldi í Þýskalandi ásamt bróður sínum Karl, er látinn - 88 ára gamall. Bræðurnir voru tveir ríkustu menn Þýskalands frá því hugmynd þeirra að stofna lágvöruverslun gekk upp og sló í gegn.

Eitt prósent þjóðarinnar á auðinn

Um eitt prósent þjóðarinnar, vel innan við fjögur þúsund manns, á yfir þrjú hundruð og fimmtíu milljarða króna eignir, eða sem slagar hátt upp í fjárlög íslenska ríkisins.

Umboðsmaður skuldara í skuldasúpu

Runólfur Ágústsson nýráðinn umboðsmaður skuldara skildi eftir sig hálfan milljarð í eignarhaldsfélagi sem hann átti í aðdraganda hrunsins. Útlit er fyrir að Sparisjóður Keflavíkur og aðrir bankar þurfi að afskrifa skuldina þar sem félagið er eignalaust.

Máttur Samtaka lánþega mikill

Í skriflegu svari FME til umboðsmanns Alþingis vegna fyrirspurnar umboðsmanns um lagalegan grundvöll tilmæla FME og Seðlabankans um uppgjör á gengistryggðum lánum segir að hættuástand hefði getað skapast í kjölfar tveggja yfirlýsinga sem Samtök lánþega sendu út hinn 23. og 26. júní síðastliðinn. Í þessum yfirlýsingum hvöttu samtökin almenning annars vegar til að hætta að greiða af lánum og hins vegar til að taka innstæður sínar úr bönkum.

Vörubílstjórinn sem seldi Ritz hótelið

Atvinnulaus vörubílstjóri í Bretlandi hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að reyna að selja Ritz lúxushótelið í Piccadilly fyrir 250 milljónir sterlingspunda.

Skipting 60 hæstu skattgreiðenda eftir bæjarfélögum

Þegar litið er á tölurnar yfir 60 hæstu skattgreiðendur landsins sést að flestir þeirra eru búsettir í Reykjavík eða 35. Þar á eftir kemur Garðabær en þar eru 6 sem komast inn á listann. Seltjarnarnesið fylgir svo fast á eftir en þar eru 5 á listanum svo eru 4 sem búa í Kópavogi og tveir í Hafnarfirði. Restin er dreifð yfir landsbyggðina.

Harður árekstur á Suðurlandsbraut

Tveir bílar lentu í árekstri á Suðurlandsbraut við Skeifuna á ellefta tímanum í morgun og hefur lögreglan lokað fyrir umferð við Engjaveg og Skeiðarvog. Einn var fluttur á slysadeild eftir áreksturinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er vegurinn lokaður meðan unnið er að hreinsun á slysstað en lögreglan gat ekki gefið upp frekari upplýsingar um málið.

Katalónía bannar nautaat

Þingið í Katalóníuhéraði á Spáni hefur samþykkt að banna nautaat. Bannið tekur gildi árið 2012.

Bíl samgöngumálaráðherra ekki ólöglega lagt

Bílstjóri samgöngumálaráðherra vill koma því á framfæri að það hafi ekki verið hans bifreið sem stöðumælavörður gerði athugasemd við í gær. Hið rétt sé að bíl sjávarútvegsráðherra hafi verið ólöglega lagt.

Búist við 18 þúsund gestum til Vestmannaeyja

Búist er við allt að 18 þúsund manns á þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum um helgina, sem er langt umfram fyrri aðsóknarmet og fjögur þúsund gestum fleira en í fyrra.

Morðingi Lennon sækir um reynslulausn í sjötta sinn

Mark David Chapman morðingi söngvarann John Lennon árið 1980, hefur sótt um reynslulausn úr fangelsi í sjötta sinn. Chapman sem orðinn er 55 ára gamall situr nú í lífstíðarfangelsi fyrir morðið.

Smábær býr sig undir brúðkaup forsetadóttur

Íbúar smábæjarins Rhinebeck í Hudson dalnum fyrir norðan New York eru nú að búa sig undir brúðkaup Chelsea Clinton, dóttur þeirra Bill og Hillary Clinton fyrrum forsetahjóna Bandaríkjanna.

Herkúles vél nauðlenti á Keflavíkurflugvelli

Hætta skapaðist um borð í stórri bandarískri Herkúles herflutningavél, eftir að bilun kom upp í tveimur hreyflum af fjórum, þegar hún var stödd skammt frá Íslandi undir kvöld í gær.

Love Parade: Tuttugasta ungmennið látið

Þrýst er á að borgarstjóri Duisburg, Adolf Sauerland, segi af sér vegna harmleiksins á Love Parade-göngunni um helgina. Tuttugasta ungmennið, 21 árs gömul þýsk kona, lést af meiðslum sínum í nótt. Alls slösuðust ríflega 500 manns.

Fjármálaeftirlitið óttaðist hrun af völdum tilmæla Samtaka lánþega

Hættuástand hefði getað skapast í kjölfar yfirlýsingar Samtaka lánþega þar sem innistæðueigendur voru hvattir til að hætta að greiða af gengistryggðum lánum. Þetta kemur fram í svari Fjármálaeftirlitsins til Umboðsmanns Alþingis vegna tilmæla eftirlitisins um hvernig fjármálafyrirtæki ættu að bregðast við gengislánunum svokölluðu.

Seinfærir foreldrar ekki ofbeldisfyllri en aðrir

Dósent í fötlunarfræðum varar við því að fólk dragi ályktanir um seinfæra foreldra í kjölfar þess að greindarskert móðir var dæmd í þriggja mánaða fangelsi fyrir að lærleggsbrjóta fjögurra vikna son sinn.

BP setur öryggið á oddinn

Nýr forstjóri olíufyrirtækisins BP segir að olíuslysið í Mexíkóflóa sé viðvörun fyrir alla þá sem starfa í olíugeiranum. Hann segir að öryggisatriði verði nú á forgangslista fyrirtækisins.

Tveir dópaðir undir stýri í Eyjum

Lögreglan hefur stóraukið umferðareftirlit í Vestmannaeyjum vegna komu fjölda gesta á Þjóðhátíð sem hefst næstu helgi. Tveir ökumenn voru í dag kærðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Fjárlagagerð gæti riðið ríkisstjórninni að fullu

Þingmenn Samfylkingarinnar eru afar ósáttir við það sem þeir kalla hótanir óánægjuarms vinstri grænna í garð ríkisstjórnarinnar. Örlög ríkisstjórnarinnar gætu ráðist í haust þegar kemur að fjárlagagerðinni.

Actavis okrar á samheitalyfjum

Lausleg könnun á nokkrum algengum samheitalyfjum sem tekin voru af markaði af Actavis og sett aftur á markað undir öðrum heitum sýnir að sjúklingar á Íslandi greiða margfalt hærra verð fyrir sömu vöru undir nýjum merkjum.

Fannst niðurstaða ríkisstjórnarinnar „tussufín"

Elías Jón Guðmundsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segist ekki skilja hvernig tölvupóstur, þar sem hann lýsir því hvernig hægt sé að „spinna" atburðarrás fyrir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar í dag barst úr tölvunni hans.

Upplýsa Magma Energy um rannsókn

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur í dag sent HS Orku hf. og Magma Energy Sweden AB bréf þar sem upplýst er að á vegum stjórnvalda sé að fara af stað sjálfstæð og óháð rannsókn sem lúti að lögmæti kaupa Magma Energy Sweden AB á hlutafé í HS Orku hf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá efnahags og viðskiptaráðuneytinu.

„Ég fagna þessari niðurstöðu“

„Ég fagna þessari niðurstöðu," sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi nú fyrir stundu. Þar var tilkynnt að það sé ásetningur ríkisstjórnarinnar að vinda ofan af einkavæðingu í orkugeiranum og tryggja að orkufyrirtæki séu í eigu opinberra aðila. Þá verður eign einkaaðila að orkugeiranum takmörkuð með lagafrumvarpi.

Greiðslur til bænda lækka - en samt ekki

Sláturfélag Suðurlands ætlar að lækka greiðslur til sauðfjárbænda um 39 krónur á kílóið að jafnaði fyrir dilka. Greiðslur til þeirra eiga þó ekki að lækka, því þeir fá þær eftir öðrum leiðum.

Clarkson móðgar múslima

Jeremy Clarkson hinn óvægni umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Top Gear er rétt einusinni búinn að móðga fólk. Að þessu sinni eru það múslimar.

Sjá næstu 50 fréttir