Fleiri fréttir Fundu 75 gamlar kvikmyndir á safni á Nýja Sjálandi Safn 75 gamalla bandarískra kvikmynda, þar af margar sem taldar voru glataðar að eilífu hefur fundist á Nýja Sjálandi. 8.6.2010 07:19 Síbrotamaður tekinn úr umferð Lögregla stöðvaði mann í Kópavogi í nótt sem var staðinn að því að aka tvívegis yfir á rauðu ljósi í bænum. Í ljós kom að um nokkurskonar síbrotamann var að ræða því hann hefur verið sviptur ökuréttindum tvisvar sinnum áður. 8.6.2010 06:57 Ríkið frysti öll laun til 2013 Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir enga innistæðu vera fyrir kauphækkunum hjá hinu opinbera til ársloka 2013. Hann telur nauðsynlegt að gerð verði þjóðarsátt um að frysta laun. Það sama á við um verðbætur á lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega og aðrar afkomutengdar greiðslur sem ríkið greiðir, svo sem innan búvörusamninga. 8.6.2010 06:00 Gefur ekki tilefni til biðleikja Umbótanefnd Samfylkingarinnar segir í tilkynningu að starf hennar, sem á að vera lokið í október, gefi „hvorki flokknum né einstaklingum innan hans ástæðu til að bíða með að gaumgæfa eigin ábyrgð og stöðu". 8.6.2010 05:15 Flokkur í skugga styrkja Sjálfstæðisflokkurinn hlaut mun minna fylgi í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum en fyrir fjórum árum. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því flokkurinn bætti sig töluvert frá kosningum til Alþingis í fyrra, en þá galt hann mikið afhroð. 8.6.2010 05:00 Leiðsöguskóli MK er ekki á háskólastigi 8.6.2010 04:45 Sóley kannar réttarstöðu sína Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur, segist ætla að kanna réttarstöðu sína vegna ummæla sem látin voru um hana falla í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. 8.6.2010 04:00 Flestir þola öskuástandið vel 8.6.2010 04:00 Sá grasfræjum til að binda gosöskuna Á næstu dögum verður byrjað að sá grasfræi í 40 ferkílómetra lands í grennd við Eyjafjallajökul. Að sögn Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra er talið að með sáningunni verði unnt að draga úr öskufoki í byggð á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti. 8.6.2010 03:00 Miður sín og furðu lostnir Ættingjar leigubílstjórans Derricks Bird, sem skaut tólf manns á norðvestanverðu Englandi í síðustu viku, segjast ekkert skilja í því hvað varð til þess að morðæðið rann á manninn. 8.6.2010 01:00 Íslendingur formaður alþjóðasamtaka flugumsjónarmanna International Federation of Airline Dispatcher Associtaon (IFALDA) sem er alþjóðasamtök flugumsjónarmanna kaus Karl Friðriksson formann flugumsjónarmann á Íslandi sem vara forseta IFALDA í byrjun maí, segir í tilkynningu. 8.6.2010 00:38 Svartur myglusveppur étur upp heimilið „Ég er með sveppinn í blóðinu," segir Margrét Andrésdóttir, 34 ára einstæð þriggja barna móðir á Egilsstöðum. Hún hefur nú þurft að yfirgefa heimili sitt eftir að svartur myglusveppur gerði vart við sig þar. Margrét segir sig og börnin sín hafa orðið fyrir varanlegu heilsutjóni á því að búa í húsinu. Það var Austurglugginn sem fjallaði fyrst um málið. 8.6.2010 11:35 Akranes: Íbúar geti kallað eftir almennri atkvæðisgreiðslu 7.6.2010 23:25
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu 75 gamlar kvikmyndir á safni á Nýja Sjálandi Safn 75 gamalla bandarískra kvikmynda, þar af margar sem taldar voru glataðar að eilífu hefur fundist á Nýja Sjálandi. 8.6.2010 07:19
Síbrotamaður tekinn úr umferð Lögregla stöðvaði mann í Kópavogi í nótt sem var staðinn að því að aka tvívegis yfir á rauðu ljósi í bænum. Í ljós kom að um nokkurskonar síbrotamann var að ræða því hann hefur verið sviptur ökuréttindum tvisvar sinnum áður. 8.6.2010 06:57
Ríkið frysti öll laun til 2013 Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir enga innistæðu vera fyrir kauphækkunum hjá hinu opinbera til ársloka 2013. Hann telur nauðsynlegt að gerð verði þjóðarsátt um að frysta laun. Það sama á við um verðbætur á lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega og aðrar afkomutengdar greiðslur sem ríkið greiðir, svo sem innan búvörusamninga. 8.6.2010 06:00
Gefur ekki tilefni til biðleikja Umbótanefnd Samfylkingarinnar segir í tilkynningu að starf hennar, sem á að vera lokið í október, gefi „hvorki flokknum né einstaklingum innan hans ástæðu til að bíða með að gaumgæfa eigin ábyrgð og stöðu". 8.6.2010 05:15
Flokkur í skugga styrkja Sjálfstæðisflokkurinn hlaut mun minna fylgi í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum en fyrir fjórum árum. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því flokkurinn bætti sig töluvert frá kosningum til Alþingis í fyrra, en þá galt hann mikið afhroð. 8.6.2010 05:00
Sóley kannar réttarstöðu sína Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur, segist ætla að kanna réttarstöðu sína vegna ummæla sem látin voru um hana falla í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. 8.6.2010 04:00
Sá grasfræjum til að binda gosöskuna Á næstu dögum verður byrjað að sá grasfræi í 40 ferkílómetra lands í grennd við Eyjafjallajökul. Að sögn Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra er talið að með sáningunni verði unnt að draga úr öskufoki í byggð á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti. 8.6.2010 03:00
Miður sín og furðu lostnir Ættingjar leigubílstjórans Derricks Bird, sem skaut tólf manns á norðvestanverðu Englandi í síðustu viku, segjast ekkert skilja í því hvað varð til þess að morðæðið rann á manninn. 8.6.2010 01:00
Íslendingur formaður alþjóðasamtaka flugumsjónarmanna International Federation of Airline Dispatcher Associtaon (IFALDA) sem er alþjóðasamtök flugumsjónarmanna kaus Karl Friðriksson formann flugumsjónarmann á Íslandi sem vara forseta IFALDA í byrjun maí, segir í tilkynningu. 8.6.2010 00:38
Svartur myglusveppur étur upp heimilið „Ég er með sveppinn í blóðinu," segir Margrét Andrésdóttir, 34 ára einstæð þriggja barna móðir á Egilsstöðum. Hún hefur nú þurft að yfirgefa heimili sitt eftir að svartur myglusveppur gerði vart við sig þar. Margrét segir sig og börnin sín hafa orðið fyrir varanlegu heilsutjóni á því að búa í húsinu. Það var Austurglugginn sem fjallaði fyrst um málið. 8.6.2010 11:35
Lúðvík Geirsson áfram bæjarstjóri Samkomulag um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar milli Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs var staðfest á fundum flokkanna í kvöld. 7.6.2010 22:19
Tollgæslan hefur tekið mikið af kókaíní úr umferð Tollgæslan tók meira af kókaíni úr umferð fyrstu fjóra mánuði ársins en allt árið í fyrra alls fjögur og hálft kíló. Þetta kemur fram í frét RÚV. 7.6.2010 22:04
Olíuhreinsunin tekur nokkur ár Yfirmaður bandarísku strandgæslunnar telur að það muni taka nokkur ár að hreinsa upp votlendi og önnur heimkynni vegna olíulekans á Mexíkóflóa. Þetta kemur fram í frétt BBC. 7.6.2010 21:54
Nýr iPhone kynntur Apple kynnti í kvöld nýjan iPhone farsíma, þann fjórða í röðinni. Hann er 24% þynnri en forverinn. 7.6.2010 21:38
Stjórnarandstaðan mætir betur á nefndarfundi Stjórnarliðar mæta sjaldnar á nefndarfundi en stjórnarandstaðan. Stjórnarandstaða mætti á 81% funda en stjórnarliðar á 75%, samkvæmt yfirliti um fundarsetu sem Alþingi senti fjölmiðlum. Minnsta mætingin er í menntamálanefnd. 7.6.2010 20:54
Jóhanna: Már á að taka þau laun sem eru í boði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ekki eðlilegt að Már Guðmundsson seðlabankastjóri komi með tillögur að því hvernig fara megi í kringum lög kjararáðs Seðlabankans og hækka þannig laun sín. 7.6.2010 20:35
Rætt um þinglok Á annað hundrað mála bíða afgreiðslu Alþingis en þingstörfum á að ljúka eftir helgi, segir í frétt RÚV. 7.6.2010 20:10
Margt bendir til að gæsluvarðhaldsúrskurðum yfir unglingum gæti fjölgað á næstu árum. Þetta segir forstjóri Barnaverndarstofu. Hann varar við því að setja á fót sérstakt unglingafangelsi - það gæti leitt til fleiri fangelsisdóma yfir börnum. 7.6.2010 19:24
Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ekki enn hafnar Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, sem mikilvægt þótti að vinna í sumar, hafa enn ekki hafist vegna ágreinings Landsvirkjunar og lægstbjóðanda og gæti svo farið að verkið tefðist um heilt ár. Þá hefur Landsvirkjun enn ekki tekist að fjármagna verkið í heild. 7.6.2010 19:14
Laun seðlabankastjóra rædd á Alþingi Enn var þrengt að forsætisráðherra vegna launamála seðlabankastjóra í óundirbúnum fyrirspurnatíma í Alþingi í dag. Forsætisráðherra svaraði gagnrýnisröddunum fullum hálsi. 7.6.2010 19:05
Fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans líklega lausir allra mála Þrír fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans og fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins eru væntanlega lausir allra mála vegna starfa sinna í aðdraganda bankahrunsins, eftir að settur ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til sakamálarannsóknar á hendur þeim. Þingmaður Hreyfingarinnar telur niðurstöðuna vera fyrsta skrefið af mörgum í hvítþvotti yfirstéttarinnar á sjálfri sér. 7.6.2010 18:57
Þúsund heimili með neikvæða eiginfjárstöðu vegna aðstoðar stjórnvalda Hátt í eitt þúsund íslensk heimili hafa lent í neikvæðri eiginfjárstöðu vegna aðstoðar stjórnvalda við skuldsett heimili. Talsmaður samtaka lánþega segir aðgerðirnar létta greiðslubyrði tímabundið, en hneppi húsnæðiseigendur í fjötra. 7.6.2010 18:46
Bíll og hjólhýsi brunnu á Borgarfjarðabrú Fólksbíll og hjólhýsi brunnu á Borgarfjarðabrú fyrir skömmu. 7.6.2010 18:00
Borgarfjarðarbrú lokuð vegna eldsvoða í bifreið Borgarfjarðarbrú er lokuð en að sögn sjónarvotts sem hringdi í Vísi þá stendur bifreið í ljósum logum á brúnni. Slökkvilið Borgarbyggðar var komið á vettvang. Miklar raðir hafa myndast báðum megin við brúnna að sögn sjónarvotta. 7.6.2010 16:55
Stakk konu vegna kveðskapar Maður á áttræðisaldri var dæmdur í átján mánaða langt fangelsi fyrir að stinga konu í brjóstið með eldhúshníf eftir að þau rifust um kveðskap. Árásin átti sér stað á heimili mannsins í Reykjavík í apríl á síðasta ári. 7.6.2010 16:37
Hreyfingin kallar á siðferðilega forystu vegna Verne Holdings Þingmenn Hreyfingarinnar kölluðu eftir siðferðilegri forystu meirihluta Alþingis við afgreiðslu frumvarps um heimild til iðnaðarráðherra um að ganga til samninga við Novator um gagnaver á Suðurnesjum. Frumvarpið var samþykkt með 36 atkvæðum gegn tólf, sjö þingmenn sátu hjá en tuttugu voru fjarstaddir. 7.6.2010 15:53
Starfsmenn Kópavogsbæjar rændir um hábjartan dag Starfsmönnum Kópavogsbæjar var heldur brugðið á föstudaginn síðastliðinn þegar að tveir menn fóru inn á skrifstofur bæjarins um hábjartan daga og stálu ýmsum verðmætum frá starfsfólki. 7.6.2010 15:49
Atkvæðagreiðslu um að banna nautaat frestað Yfirvöld í Katalóníuhéraði á Spáni hafa frestað atkvæðagreiðslu um hvort banna skuli nautaat í héraðinu. 7.6.2010 15:38
Stúdentar boða til mótmæla fyrir framan menntamálaráðuneytið Stúdentaráð Háskóla Íslands, í samvinnu við SÍF og námsmannahreyfingar Háskólans í Reykjavík, Háskólans við Bifröst, Landbúnaðarháskólanum og Háskólanum á Akureyri, hafa efnt til mótmæla fyrir framan Mennta- og menningarmálaráðuneyti á morgun kl. 12 að hádegi. 7.6.2010 15:36
Ákærð fyrir að kasta glasi í andlit kynsystur sinnar Kona á þrítugsaldri hefur verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hún á að hafa glasi í andlit konu á svipuðum aldri á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í ágúst á síðasta ári. 7.6.2010 15:26
Samningaviðræður á lokastigi í Hafnarfirði „Þetta er bara að detta inn núna í fyrri hluta vikunnar, þá klárast þetta,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, aðspurður um hvernig meirihlutaviðræður í bænum ganga. Eins og hefur komið fram hafa Samfylkingin og Vinstri grænir fundað síðustu daga um myndun meirhluta í bænum. 7.6.2010 15:02
Íranar boða herskipavernd til Gaza Aðstoðarmaður æðsta trúarleiðtoga Írans segir að Byltingarverðir landsins séu reiðubúnir að veita skipum hervernd sem reyna að rjúfa hafnbann Ísraels á Gaza ströndinni. 7.6.2010 14:09
Lögreglan bjargaði andarungum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu björguðu andarungum og móður þeirra í hádeginu í dag. Fjölskyldan hafði villst af leið og hélt til í bakgarði á Frakkastígnum. 7.6.2010 13:59
Ekki ástæða til þess að hefja sakamálarannsókn Settur ríkissaksóknari, Björn L. Bergsson, tilkynnti í dag að það sé ekki ástæða til þess að hefja sakamálarannsókn á hendur þriggja seðlabankastjóra og fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Hann tilkynnti ákvörðun sína fyrir þingnefnd sem fer yfir niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis í dag. 7.6.2010 13:22
Nýr meirihluti á Akranesi kynntur klukkan sjö Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óháðir og Vinstri grænir munu skrifa undir stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta Akraness klukkan 19 í kvöld. Fyrsta verkefni meirihlutans verður að auglýsa verður nýjum bæjarstjóra í samvinnu við ráðningastofu. 7.6.2010 13:06
Voru múslimar á undan? Við segjum frá því í frétt annarsstaðar á síðunni að múslimar í Bretlandi hefðu sótt sér innblástur til Íslands til þess að laga ímynd sína. 7.6.2010 12:45
Skeytin flugu á Alþingi Forsætisráðherra skoraði á þingmann Sjálfstæðisflokks á Alþingi í morgun að greina frá styrkjamálum sínum þegar hann beindi til hennar fyrirspurn um launamál seðlabankastjóra. Þingmaðurinn kallaði svarið auma smjörklípu. 7.6.2010 12:07
Inspired by Iceland slær í gegn Átakið Inspired by Iceland hefur heldur betur slegið í gegn ef marka má tilkynningu sem iðnaðarráðuneytið birtir á heimasíðu sinni. Eins og hefur komið fram voru Íslendingar hvattir til að senda vinum, fjölskyldu og viðskiptafélögum erlendis myndband sem er ætlað að veita fólki innblástur og hvetja ferðalanga til Íslands. 7.6.2010 12:02
Smágos í gangi með nýju öskufalli Sprengingar urðu enn í toppgíg Eyjafjallajökuls í nótt. Dökkur öskubólstur barst til himins og sást aska úr honum falla á jökulinn. Jarðvísindamenn segja að smágos sé í gangi eldfjallinu. 7.6.2010 11:56
Vildu úthýsa ófrískri íslenskri konu Dönsk yfirvöld hugðust vísa ófrískri íslenskri konu úr landi í fyrra vegna þess að hún þáði opinbera aðstoð. Danskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að yfirvöld þar í landi hafa vísað 46 Norðurlandabúum úr landi á síðust sex árum þrátt fyrir samnorrænar reglur um að Norðurlandabúar geti sest að á öðrum Norðurlöndum og þegið félagslega aðstoð í rikinu sem þeir setjast að í. 7.6.2010 11:56
Losaði um framtennurnar á karlaklósettinu Ráðist var á mann inni á karlasalerni á skemmtistaðnum Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags samkvæmt lögreglunni á Selfossi. 7.6.2010 11:34
Þjófs með dádýrshaus leitað Lögregla leitar grunsamlegs manns með hyrndan dádýrshaus og eldgamlan framhlaðning í fórum sínum. Þjófur sem braust inn í sumarbústað í Miðhúsaskógi í Árnessýslu hafði á brott með sér forláta dádýrshaus og ævagamla byssu, sem er safngripur og ónothæf. 7.6.2010 11:15