Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alvarlegt umferðarslys við Sandskeið Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Sandskeið skammt frá Bláfjallaafleggjara um níuleytið í morgun þegar tvær bifreiðar lentu saman sem komu úr gagnstæðum áttum. Farþegi í annarri bifreiðinni er slasaður en ökumenn bifreiðanna slösuðust ekki, að sögn lögreglu. Vegna þessa verður Suðurlandsvegur lokaður um óákveðinn tíma. 21.1.2010 09:26
Breskum þingmönnum ráðið frá Íslandsför Þingmönnum sem sitja í Skotlandsmálanefnd breska þingsins hefur verið ráðið frá því að heimsækja Ísland en nefndin rannsakar nú orsakir efnahagskreppunnar. Í dagblaðinu the Scotsman er sagt frá því að það hafi verið breski sendiherrann hér á landi sem hafi komið þeim skilaboðum til nefndarmanna að þeir ættu að fresta för sinni hingað þar til fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla í Icesavemálinu væri afstaðin. 21.1.2010 08:07
Bandarískum hermönnum fjölgar á Haítí Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að senda fjögur þúsund hermenn til viðbótar til Haítí til þess að aðstoða við hjálparstarf í kjölfar skjálftans í síðustu viku sem talinn er hafa dregið allt að 200 þúsund manns til dauða. 21.1.2010 07:30
Eyjamenn á mótmælafundi Helstu hagsmunahópar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum boða til baráttufundar í Eyjum í kvöld, og ætla áhafnir margra skipa að sigla í land til að sækja fundinn. Þar stendur til að mótmæla svonefndri fyrningarleið, útflutningsálagi á ísfisk, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni, eins og það er orðað. 21.1.2010 07:28
Hafísinn á undanhaldi Ísdreifar sáust á ratsjá norður af Horni, þegar Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug síðdegis í gær. Ísinn var ekki lengur samfelldur og ísröndin var næst landi umþaðbil 50 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Hafísinn er því greinilega á undanhaldi og ógnar ekki lengur öryggi sjófarenda. 21.1.2010 07:27
Taka til á toppnum Hópur fjallgöngumanna er á leið á hæsta fjall jarðar Mount Everest í þeim tilgangi að taka til á fjallinu. Um er að ræða heimamenn í Nepal, svokallaða Sherpa, en stöðugur ágangur fjallgöngumanna á þennan eftirsótta tind hefur gífurlegt rusl í för með sér. 21.1.2010 07:25
Tveir handteknir í nótt Tveir fíkniefnaneytendur gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir handtökur í nótt. 21.1.2010 07:23
Samanlagðir dómar brotamanna námu 334 árum Óskilorðsbundnar fangelsisrefsingar sem dæmdar voru hjá dómstólum landsins á síðasta ári og sendar voru Fangelsismálastofnun til fullnustu eru samtals 334 ára fangelsisvist. 21.1.2010 06:00
Bráðadeildir sameinaðar í eina Göngudeild bráðadeildar Landspítala hefur tekið til starfa á annarri hæð Landspítalans í Fossvogi. Fyrsti starfsdagur hennar var í gær, en hún er opin virka daga frá klukkan átta að morgni til ellefu að kvöldi og milli klukkan 12 og 20 um helgar og á hátíðisdögum. 21.1.2010 06:00
Sækir þingið á heimleið frá Indlandi Forseti Íslands flytur í dag lokaávarp ráðstefnu sem haldin er með það fyrir augum að vísa veginn í átt að byltingu í orkubúskap heimsins. 21.1.2010 06:00
Vændiskaupendur til ákæruvaldsins Mál átta meintra kaupenda vændis á vegum Catalinu Mikue Ncogo hafa verið send til ákæruvaldsins. Allt að átta mál til viðbótar verða send þangað á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.1.2010 05:30
Nágranni kærir og eigandi vill bætur Eigendur lóðarinnar Miðskóga 8 krefja bæjaryfirvöld á Álftanesi um 13,2 milljónir króna í „uppsafnaðan kostnað“ vegna „ólöglegrar meðferðar“ á umsókn þeirra um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi allt frá árinu 2005 þar til í haust að leyfið var veitt. 21.1.2010 05:00
Mörg lönd með stórhuga áætlanir Rafmagnsbíllinn virðist loks í þann mund að ná fótfestu, segir í nýrri umfjöllun á vef Umhverfisstofnunar Evrópu. Þar segir að kostir rafbíla séu ótvíræðir með tilliti til umhverfisins, sér í lagi í þéttbýli. 21.1.2010 04:00
Ætla að útskýra málstað Íslendinga Íslenskir þingmenn búa sig nú undir að upplýsa erlenda starfsbræður um stöðu Íslands í framhaldi af ákvörðun forsetans um að synja Icesave-lögunum staðfestingar. 21.1.2010 03:15
Íslenska sveitin kemur heim í kvöld Íslenska rústabjörgunarsveitin hefur lokið störfum á hamfarasvæðinu á Haítí og flaug í gær til Bahama-eyja. Þaðan mun sveitin síðan halda til Íslands og er áætlað að hópurinn komi til landsins í kvöld. 21.1.2010 03:00
Gjörningaveður á Suðurlandi Mikið þrumuveður gerði á sunnanverðu landinu síðdegis í gær og var mörgum brugðið þegar eldingar lýstu reglulega upp himininn allt frá Eyrarbakka áleiðis í Borgarfjörð. 21.1.2010 03:00
Býst við gjaldi fyrir sumarbústaðinn „Ég er þeirrar skoðunar að reglur um þetta, sem hvíla á rúmlega tuttugu ára gamalli hefð, séu barn síns tíma eins og svo margt annað,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri um sumarbústað sem borgin á við Úlfljótsvatn og er lánaður án endurgjalds til borgarfulltrúa og útvalinna embættismanna. 21.1.2010 02:00
Telur ólíklegt að álverið verði 360 þúsund tonna Sjö umhverfissamtök, þar með talið Græna netið sem tilheyrir Samfylkingunni, hafa sent ríkisstjórninni áskorun um að gerð verði rækilega grein fyrir hvaða háhitasvæði og vatnsföll verður nauðsynlegt að virkja til að afla orku fyrir 360 þúsund tonna álver í Helguvík. Samtökin telja að slíkri orkuvinnslu fylgi ráðstöfun fjölmargra dýrmætra hverasvæða og vatnsfalla, sem réttara væri að vernda en nýta. 21.1.2010 01:15
Flotinn á leið á mótmælafund Útgerðarmenn í Vestmannaeyjum hafa stefnt flota Eyjamanna til hafnar svo sjómenn geti tekið þátt í baráttufundi gegn fyrirhuguðum aðgerðum stjórnvalda í málefnum sjávarútvegsins sem haldinn verður í samkomuhúsinu Höllinni í kvöld. 21.1.2010 01:00
Gengst við morðum á söguslóðum Snemma í gærmorgun kom Christopher Speight, 39 ára maður, á morðvettvang í Virginíu og gaf sig fram við lögreglu. Mannsins hafði verið leitað víðs vegar í nágrenninu um nóttina. 21.1.2010 00:30
Úlfurinn reyndist vera fyrirsæta Ljósmynd af úlfi sem Jose Luis Rodriguez tók mynd af sigraði hina virtu ljósmyndakeppni Wildlife Photographer of the Year. En nú er babb komið í bátinn. Myndin, sem fylgir fréttinni, hefur verið dæmd úr leik þar sem grunur leikur á um að úlfurinn sé alls ekki villtur, heldur fyrirsæta. 20.1.2010 23:30
Obama vill ekki þröngva heilbrigðisfrumvarpi í gegn Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hvetur öldungadeildarþingmenn á bandaríska þinginu til þess að troða ekki umdeildu heilbrigðisfrumvarpi í gegnum þingið áður en nýkjörinn þingmaður Massacuttes fylkis, repúblikaninn Scott Brown tekur sæti. 20.1.2010 20:58
Slökkviliðsmenn á námsbekk kallaðir út vegna eldsvoða - myndir Klukkan rétt rúmlega tólf í dag var slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kallað út vegna bruna í húsi á Vallargötu í Keflavík. 20.1.2010 19:53
Íslendingur vann í Víkingalottó Íslendingur vann í Víkingalottói en deilir vinningsfénu með tveimur öðrum lottóspilurum sem keyptu sína miða í Finnlandi og Noregi. Allir fengu þeir ríflega 44 milljónir króna. 20.1.2010 19:10
Öryrkjar mótmæla kjaraskerðingu vegna verðtryggðra lána Öryrkjabandalag Íslands hélt aðalstjórnarfund í kvöld og samþykkt þar ályktun þar sem kjaraskerðingu öryrkja er meðal annars mótmælt. ályktun er eftirfarandi: 20.1.2010 20:01
Alþingi getur stöðvað þjóðaratkvæðagreiðslu Alþingi getur stöðvað þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave í miðjum klíðum ef Bretar og Hollendingar fallast á nýtt samkomulag. Enn liggur þó ekki fyrir hvort þeir séu reiðubúnir til nýrra samningaviðræðna. 20.1.2010 18:37
Móðir vill svipta HIV smitaða dóttur sjálfræði Móðir ungrar HIV smitaðrar konu sem er ánetjuð fíkniefnum óttast um dóttur sína og þá sem hana umgangast. Hún segir nauðsynlegt að meðferðarstarf fyrir langt leidda fíkla verði styrkt og fræðsla um HIV smit efld. 20.1.2010 18:29
Þrumuveður á Suðurnesjum - eldingaveður truflar símkerfi Mikið eldingaveður gekk yfir Suðurnesin nú síðdegis með háværum drunum og miklum ljósagangi samkvæmt fréttavef vf.is. 20.1.2010 17:35
Búist er við stormi á morgun Búist er við stormi Sunnan til á landinu síðdegis á morgun samkvæmt Veðurstofu Íslands. Spáð er Suðaustanátt, víða 8-15 m/s í dag. Hvessir á morgun, austan og suðaustan 18-25 m/s síðdegis, hvassast syðst. Úrkomulítið NA-lands, annars rigning eða skúrir, einkum á SA-landi. Hiti 3 til 8 stig. 20.1.2010 17:28
Grunaður átta manna morðingi gaf sig fram Bandarískur maður sem talinn er hafa myrt átta manns í bænum Appomattox í Virginíu í gær hefur gefið sig fram við lögregluna án átaka. 20.1.2010 16:26
Bandaríkjamenn semji við Ísraela um landamæri Palestínu Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna hefur lagt til að Bandaríkjamenn taki að sér að semja við Ísraela um endanleg landamæri sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 20.1.2010 16:02
Hafið þið séð sjóræningjann Störtberger? Hauskúpunni af frægasta sjóræningja Þjóðverja frá miðöldum hefur verið stolið úr sögusafni Hamborgar. Klaus Störtberger var hálshöggvinn ásam þrjátíu skipverjum sínum í Hamborg árið 1400. 20.1.2010 15:47
Fræða almenning um geðheilbrigði barna Barna- og unglingageðdeild Landspítalans hefur gefið út tvo fræðslubæklinga um geðheilbrigði barna í sastarfi við Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð. Annar bæklingurinn er ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. 20.1.2010 15:22
Pískuð fyrir farsíma í skólanum Þrettán ára gömul telpa í Saudi-Arabíu hefur verið dæmd til að vera pískuð níutíu högg fyrir að hafa farsíma með sér í skólann. 20.1.2010 15:11
Dekkjaumgangur kostar fjórar milljónir Bugatti Veyron er víst nokkuð röskur bíll. Eittþúsund hestafla vélin kemur honum upp í hundrað á tveimur og hálfri sekúndu. 20.1.2010 14:11
Hverjir eru þetta? Þremenningarnir í Reykjavík síðdegis fylgjast öðrum fremur með tíðarandanum. Þeir hafa því komið sér upp eigin Facebook síðu þar sem ýmsum skilaboðum er komið á framfæri. 20.1.2010 13:15
Borgarfulltrúi ekki verið víttur áður Elstu menn muna ekki eftir því að borgarfulltrúi hafi verið víttur áður, segir Ólafur Hjörleifsson, lögfræðingur á skrifstofu borgarstjórnar. Það gerðist þó í gær þegar að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, vítti Ólaf F. Magnússon þegar að hann flutti níðvísu um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. 20.1.2010 12:58
Björgunarsveitamenn skilja hluta af búnaði sínum eftir í Haítí Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin vann í allan gærdag í rústum Montana hótelsins í Port au Prince en á því hóteli gisti starfsfólk Sameinuðu þjóðanna ásamt fjölskyldum sínum. Unnið var til klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma en að því loknu fór sveitin í búðir þar sem hún hvílist nú. 20.1.2010 11:55
Öflugur eftirskjálfti á Haítí Mikil skelfing greip um sig þegar eftirskjálfti reið yfir Haítí á tólfta tímanum í dag. Samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni mældist skjálftinn 6,1 á Richter kvarðanum og voru upptök hans í um 56 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Port au Prince. Skjálftinn sem reið yfir fyrir viku síðan með hörmulegum afleiðingum mældist 7,3 á Richter. Engar fregnir hafa borist af manntjóni af völdum eftirskjálftans en fólk þusti út á götur borgarinnar skelfingu lostið. 20.1.2010 11:39
Óeirðir vegna seinagangs við matvæladreifingu Helsta ástæðan fyrir því að dreifing matvæla gengur of hægt er margir flöskuhálsar. Sá fyrsti er á flugvellinum í Port au Prince sem annar tæpast þeim flugvélum sem um hann fara. 20.1.2010 11:37
GPS tæki efst á óskalista þjófa Undanfarna mánuði hefur verið töluvert um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan ítreka enn og aftur að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. 20.1.2010 11:36
Nóróveirusýking á Hlíð - deildum lokað Nóróveirusýking er komin upp á hjúkrunar og dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Um bráðsmitandi sýkingu í meltingarvegi er að ræða og hefur nokkrum deildum heimilisins verið lokað og eru gestir beðnir um að fresta heimsóknum. Á heimasíðu Landlæknis segir að þær aðgerðir sem grípa þurfi til í tilvikum sem þessum séu óþægilegar og kostnaðarsamar. 20.1.2010 11:19
Ný göngudeild bráðadeildar í Fossvogi Göngudeild bráðadeildar Landspítala hefur tekið til starfa á 2. hæð á Landspítala Fossvogi. Þetta er liður í sameiningu á tveimur stærstu bráðamóttökum spítalans í lok mars 2010 í eina bráðadeild í Fossvogi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum. Sú bráðadeild verður á tveimur hæðum, í núverandi húsnæði slysa- og bráðadeildar og á næstu hæð fyrir ofan. 20.1.2010 10:39
Er sólin að vakna á nýjan leik? Vísindamenn velta nú fyrir sér hvort sólin sé að vakna til lífs á nýjan leik eftir tveggja ára rólegheita tímabil. 20.1.2010 10:06
Kurt Westergaard tilbúinn til að selja mynd sína af Múhameð Kurt Westergaard er reiðubúinn til að selja alræmda mynd sína af spámanninum Múhameð. Erik Guldager, eigandi Draupnis gallerísins, segir að búast megi við því að teikningin verði seld á eina milljón danskra króna, eða um 24 milljónir íslenskar. 20.1.2010 10:04