Fleiri fréttir

Margrét Lind sigraði á Seltjarnarnesi

Margrét Lind Ólafsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi, sigraði í forvali Samfylkingarinnar sem fór fram á Seltjarnarnesi í dag. Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn undir fána í bæjarfélaginu í vor.

Björgunaraðgerðum að ljúka á Langjökli

Aðgerð björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem var á Langjökli í dag, þegar kona og barna féllu í sprungu á jöklinum, er að ljúka. Um 120 björgunarsveitamenn af suðvesturhorni landsins tóku þátt í aðgerðinni. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins.

Krefjast stefnubreytingar í málefnum skuldara

Kröfufundur Hagsmunasamtaka heimilanna og samtakanna Nýs Íslands sem fór fram í dag krefst tafarlausrar og afgerandi stefnubreytingar stjórnvalda í málefnum skuldara.

Túlkur myrti bandaríska hermenn

Afganskur túlkur skot tvo bandaríska hermenn til bana í varðstöð bandaríska hersins í austurhluta Afganistans í gær. Maðurinn er ekki talinn tilheyra samtökum öfgasinnaðra múslima.

Önnur þyrla send á Langjökul

Önnur þyrla frá Landhelgisgæslunni er lögð af stað til að taka þátt í björgunaraðgerðunum á Langjökli þar sem barn og kona féllu í sprungu eftir hádegi. Þyrlan lendir á jöklinum innan skamms. Í henni eru tæki og ljósabúnaður sem mun nýtast í aðgerðunum dragist þær langinn.

Elfur hlaut fjórða sætið

Elfur Logadóttir, lögfræðingur, hafnaði í fjórða sæti í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fer fram í Smáraskóla. Í fyrstu var kosið kosið á milli fimm frambjóðenda um fjóra sætið en þar sem enginn fékk meira en 50% var kosið á milli þeirra tveggja sem fengu flest atkvæði.

Rannsóknarnefndin móðgar þing og þjóð

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, segir ekki hægt að bíða lengur eftir því að rannsóknarnefnd Alþingis gefi út hvaða dag skýrsla nefndarinnar verði birt. Annað sé móðgun við þjóð og þing.

Pétur sigraði Tjörva

Pétur Ólafsson, 30 ára gamall þýðandi og sagnfræðingur, hlaut afgerandi kosningu í þriðja sætið í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fer fram í Smáraskóla. Hann fékk 65% atkvæða, en mótframbjóðandi hans Tjörvi Dýrfjörð fékk 33,5%. Auðir seðlar og ógildir voru 1,5%. Í fyrstu var kosið á milli átta frambjóðenda um þriðja sætið.

Þyrlan lent á Langjökli - verið að hífa einn upp

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Langjökli rétt fyrir klukkan tvö en kona og barna féllu í sprungu á vestanverðum jöklinum fyrr í dag. Skömmu fyrir þrjú var verið að hífa annað þeirra upp. Engar fregnir hafa borist af líðan fólksins.

Guðríður fékk tæplega 90% atkvæða

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, hlaut afgerandi kosningu í 1. sætið, 202 atkvæði eða 87,4% atkvæða í forvali flokksins sem fer nú fram í Smáraskóla. Aðrir fengu 3% atkvæða, auðir seðlar og ógildir voru tæp 10%.

Seðlabankastjóri segir af sér

Seðlabankastjóri Argentínu hefur sagt af sér eftir harðar deilur við forseta landsins. Deilan hófst í byrjun árs þegar Cristina Fernandez de Kirchner, forseti Argentínu, skipaði seðlabankastjóranum að láta af hendi 6,6 miljarða dollara af gjaldeyrisvaraforða bankans. Með því vildi forsetinn tryggja að skulir ríkissjóðs yrðu greiddar.

Tveir féllu í sprungu í Langjökli

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna slyss á Langjökli. Tveir einstaklingar féllu í sprungu en tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan eitt í dag. Ekki fengust upplýsingar um hvort fólkið sé mikið slasað. Björgunarsveitarmenn fara með þyrlu Gæslunnar á jökulinn.

Gagnrýnir leynd yfir viðræðunum við Breta og Hollendinga

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, gagnrýnir leynd yfir ferð fjármálaráðherra og formanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks til fundar með hollenskum og breskum ráðherrum í gær. Forystumenn stjórnmálaflokkanna funduðu í stjórnarráðinu í morgun og segist Birgitta vera bjartsýn eftir þann fund.

Haítíbúar flýja á flekum

Fjölmargir Haítíbúar hafa reynt að flýja frá landinu til eyja í Karíbahafinu. Yfirvöld Turks- og Caicoseyjum hafa síðustu daga bjargað meira en hundrað manns, þar á meðal börnum, á flekum í grennd við eyjarnar sem eru í 145 kílómetra fjarlægð frá Haítí. Haítíbúarnir verða ekki sendir til baka eins og gjarnan er gert þegar um flóttamenn er að ræða.

Fyrsta loðnan veidd í nótt

Fyrsta loðnan á þessari vertíð veiddist í nótt. Skip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA, fékk 150 tonn í einu kasti út af Gerpi á Austfjörðum og segir Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri að þetta sé falleg loðna. Hún er öll fryst um borð til manneldis og segir Kristján að þessi byrjun leggist vel í menn. Nú vonist menn eftir að meira finnist af loðnu og að meiri kvóti verði fljótlega gefinn út.

Ögmundur þakkar forsetanum fyrir skelegga framgöngu

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og fyrrverandi ráðherra, þakkar Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, fyrir skelegga framgöngu í Icesave málinu. Nauðsynlegt sé að Íslendingar sýni fram á ofbeldið sem Ísland hafi verið beitt af hálfu Breta, Hollendinga, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ögmundur segir að þar hafi forsetinn ekki látið sitt eftir liggja samanber viðtal sem CNN fréttastöðin tók við hann í gær.

Stjórn VR torveldi aðgang að bókhaldsgögnum

Þrír stjórnarmenn VR segjast hafa barist fyrir því að fá aðgang að upplýsingum um fjárreiður félagsins og gert fyrirspurnir og krafist útskýringa á því sem þeim hefur þótt óljóst í þeim efnum. Þeir segja að meirihluti stjórnarinnar torveldi aðgang að mikilvægum gögnum.

Yfirheyrslum lauk upp úr miðnætti

Fyrstu yfirheyrslum yfir fjórum fyrrverandi starfsmönnum Straums sem grunaðir eru um umsvifamikil brot á gjaldeyrislögum lauk upp úr miðnætti í gær. Mennirnir voru handteknir í gærdag en þeir eru taldir hafa skipt gjaldeyri að verðmæti 13 milljarða króna á aflandsmarkaði í íslenskar krónur og flutt peninginn síðan heim og þar með farið framhjá gjaldeyrishöftunum. Þetta eru þeir taldir hafa gert í gegnum félag í Svíþjóð. Rannsókn málsins beinist að tímabilinu nóvember 2008 til október 2009.

Langt þangað til upptökurnar líta dagsins ljós

Allt að 80 ár geta liðið þangað til að eitthvað af hljóðupptökum Rannsóknarnefndar Alþingis líta dagsins ljós. Rannsóknarnefndin hefur tekið skýrslu af fjölda manna og voru viðtölin tekin upp.

Vegagerðin varar við hálku

Vegagerðin varar við hálku víða á þjóðvegum víða um land, meðal annars í Þrengslum. Þá eru hálkublettir á Hellisheiði og á Mosfellsheiði en annars er greiðfært á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka á Snæfellsnesi, og hálkublettir á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er hált á Klettshálsi og hálkublettir víða. Á Norðurlandi er hálka á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði, einnig í Öxnadal og víða í Eyjafirði og hálkublettir á Þverárfjalli. Austan Akureyrar er hálka í Ljósavatnsskarði, Mývatnssveit og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði, og hálkublettir á Oddsskarði og með ströndinni frá Djúpavogi og að Höfn.

Skíðasvæði opin í dag

Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið frá kl 10 til fjögur í dag. Þar var logn í morgun og fimm stiga frost, og færið sagt mjög gott, troðinn þurr snjór.

Berjast um fyrsta sætið í Hafnarfirði

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitastjórnarkosningar í vor fer fram í dag. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi, og Valdimars Svavarsson, hagfræðingur, sækjast eftir fyrsta sætinu. Alls gefa 12 kost á sér í prófkjörinu, sex konur og sex karlar. Kosið er í Víðistaðaskóla á milli klukkan 10 og 18.

Samfylkingin velur forystufólk í sex sveitarfélögum

Prófkjör Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor fara fram á sex stöðum í dag. Þar ber hæst prófkjörið í Reykjavík en einnig er valið á framboðslista flokksins í Kópavogi, Hafnarfirði, á Akureyri, í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Alls eru 78 einstaklingar í framboði. Kosning er rafræn í Reykjavík og á Akureyri, en kosið er með hefðbundnum hætti annars staðar. Mögulegt er einnig í Reykjavík að kjósa bréflega.

Ölvaður á ofsahraða

Ökumaður um tvítugt var stöðvaður á Sæbraut á 130 kílómetra hraða í nótt en þar er hámarkshraði 60. Þar af auki var hann ölvaður og því handtekinn. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á staðnum vegna hraðabrotsins og á yfir höfði sér mögulega þyngingu, hið minnsta hærri sekt vegna ölvunarþáttarins.

160 kindur fjarlægðar

Samtals 160 kindur voru teknar af sauðfjárbýlinu Stórhóli í Djúpavogshreppi í fyrrakvöld. Þetta staðfestir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir.

Henda 185 kílóum á mann

Hver Reykvíkingur henti að meðaltali 185 kílóum af óflokkuðu sorpi á síðasta ári. Það er um fimmtungi minna en árið 2006, þegar hver íbúi henti 233 kílóum að meðaltali.

Lamandi fyrir mörg fyrirtæki

„Ég fékk engin haldbær svör þegar ég bað um rökstuðning fyrir þessari ákvörðun bankans," segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins kölluðu til fundar í efnahags- og skattanefnd í gær til að fá skýringar á þeirri aðgerð bankans að hækka vaxtaálag á grunnvöxtum erlendra lána til fyrirtækja úr innan við tveimur í fjögur prósent.

Búast má við fleiri aftökum

„Ef við sýnum veikleika nú þá verður framtíðin verri,“ sagði Ahmed Jannati, einn af harðlínuklerkunum í Íran við föstudagsbænir í gær. „Það er ekkert rúm fyrir íslamska miskunnsemi.“

Dílamjóra landað í Eyjum

Ef tegundagreining áhafnarinnar á Brynjólfi VE reynist rétt þá var lifandi dílamjóri í afla togarans eftir síðustu veiðiferð sem lauk í gær. Það er einnig óvenjulegt að aflanum er ætlað langlífi.

Stefnt að stofnun atvinnuvegaráðuneytis á vorþingi

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist vongóð um að breytingar á stjórnarráðinu verði gerðar á vorþingi og samþykkt að sameina sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneyti í nýtt atvinnuvegaráðuneyti.

Varði ákvörðun sína um að ráðast á Írak

„Ég trúi því í einlægni að heimurinn sé öruggari nú,“ sagði Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, þegar hann bar vitni í gær fyrir breskri rannsóknarnefnd, sem er að fara ofan í saumana á aðdraganda Írakstríðsins.

Vilja ekki sjá fanga frá Guantanamo

Michael Bloomberg, borgarstjóra í New York, hefur snúist hugur og hvetur nú leiðtoga Demókrataflokksins til að sjá til þess að réttarhöld yfir föngum frá Guantanamo-búðunum á Kúbu verði ekki haldin í New York, eins og

Toyota á Íslandi mun innkalla um 5000 bifreiðar

Toyota áætlar að kalla þurfi inn yfir 5.000 bíla á Íslandi vegna mögulegs vandamáls í eldsneytisgjöf. Umboðið mun hafa samband við eigendur viðkomandi bíla fljótlega og þeir beðnir að koma með bílinn til viðurkennds þjónustuaðila Toyota þeim að kostnaðarlausu.

Með 26 í markaðsdeild meðan fréttastofan rær lífróður

Lögbundið hlutverk RÚV er að veita útvarps- og sjónvarpsþjónustu í almannaþágu. Fyrirtækið lét niðurskurð bitna á fréttastofu, en sagði aðeins einum sölumanni upp, en þeir eru tæplega þrjátíu talsins eða næstum jafnmargir og vinna á Skjáeinum í heild sinni.

Heimilaði veiðar á 130 þúsund tonnum af loðnu

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, ákvað í dag að heimila veiðar á 130 þúsund tonnum af loðnu, en þar af koma rúmar 90 þúsund tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga við önnur lönd um nýtingu loðnustofnsins við Ísland.

BYR styrkir námsmenn

Fyrri úthlutun skólastyrkja Byrs sparisjóðs á þessu ári fór fram í gær og fengu tveir háskólanemar 200.000 króna styrki hvor og fjórir framhaldsskólanemar 25.000 króna styrki. Allir námsmenn hjá Byr geta sótt um skólastyrki, sem eru veittir tvisvar á ári, en í þetta sinn bárust hátt í 300 umsóknir.

VR harmar að stjórnarmenn tengist Nýju Íslandi

Meirihluti VR sendi frá sér ályktun í dag þar sem þeir segjast harma að nokkrir stjórnarmenn í félaginu tengist samtökunum Nýtt Ísland. VR segir á heimasíðu sinni að samtökin beini kröftum sínum að því að brjóta félagið niður.

Leikskáld mótmæla niðurskurði á íslensku sjónvarpsefni

Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á framleiðslu og innkaupum á innlendu efni sem boðaður er af útvarpsstjóra Páli Magnússyni. Stjórnin sendi frá sér ályktun þess efnis í dag og má lesa hér orðrétt:

Kynferðisbrotamaður handtekinn af tálbeitu

Þrítugur karlmaður var dæmdur í tólf mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að klæmast við þrettán ára unglingsstúlku og að hafa ætlað að hafa við hana kynferðismök.

Markús Máni Michaelsson á meðal þeirra grunuðu

Mennirnir sem grunaðir eru um stórfellt gjaldeyrisbrask í gegnum félagið Aserta í Svíþjóð eru allir fyrrverandi starfsmenn Straums fjárfestingabanka og hafa allir búið í Bretlandi um skeið. Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir kom fram að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins.

Sjá næstu 50 fréttir