Fleiri fréttir

Aumingja Tiger

Illa þenkjandi náungi hefur fundið leið til þess að græða á Tiger Woods í raunum hans. Það þarf sjálfsagt ekki að rekja í löngu máli af hverju Tiger er í hundahúsinu.

Þráinn: Einvaldurinn á RÚV í stríð við kvikmyndagerðarmenn

Þráinn Bertelsson þingmaður bar upp fyrirspurn til menntamálaráðherra í dag um málefni Ríkisútvarpsins. Hann sagði að allt væri upp í loft hjá stofnuninni, þar færu menn fram úr fjárheimildum trekk í trekk. „Nú síðast hefur sá einvaldur sem ráðinn hefur verið til að stjórna þessari stofnun hafið stríð við íslenska kvikmyndagerðarmenn - með því að gera þá að barefli í stríðinu við stjórnvöld,“ sagði Þráinn.

Bin Laden gerist umhverfisverndarsinni

Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden hefur sent frá sér nýja hljóðupptöku þar sem hann fordæmir Bandaríkin og önnur iðnríki fyrir slælega frammistöðu í umhverfismálum og kennir þeim um hlýnun jarðar. Þarna kveður við nokkuð nýjan tón hjá Osama sem hingað til hefur beint athygli sinni að heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og framferði þeirra í Mið-Austurlöndum.

Sjötugur dæmdur til þess að greiða 54 milljónir

Sjötugur karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald. Maðurinn var daglegur stjórnandi og eini stjórnarmaður einkahlutafélagsins Framlands, áður STG International.

Hlíðarfótur opnar eftir viku

Framkvæmdir við Nauthólsveg frá Hringbraut að Flugvallarvegi eru á lokastigi og er ráðgert að opna hann fyrir almennri umferð eftir viku, föstudaginn 5. febrúar. Mikill kraftur er í vinnu við fjölmarga verkþætti nú á lokasprettinum, en meðal annars unnið að tengingum umferðarljósa, yfirborðmerkingu gatna, hellulögn, landmótun vegfláa, uppsetningu umferðarskilta og gerð gönguleiða.

Landsbankinn ætlar ekki að auglýsa íbúðir

Landsbankinn ætlar ekki að auglýsa íbúðir sem þeir hafa leyst til sín frá einstaklingum á heimasíðu sinni, til að slá á tortryggni í samfélaginu, en segir allar stærri eignir auglýstar á heimasíðu dótturfélags, sem heitir Reginn.

Alþingi hefst á ný

Alþingi kemur saman í dag eftir þriggja vikna jólafrí en Alþingi kom síðast saman 8. janúar þegar samþykkt voru lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave.

Settu slagsmálin á svið sér til gamans

Piltarnir tveir sem slógust í myndbandi sem Vísir sagði frá í gær gáfu sig fram til lögreglunnar í gær í fylgd feðra sinna. Þar útskýrðu þeir myndbandið þannig að þeir hefðu sett það á svið sér til gamans. Barnaverndarnefnd og skólayfirvöld í Keflavík hafa tekið á málinu að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.

Ólafur Ragnar: Ræddi um stöðu Íslands í Davos

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson er nú staddur í Davos í Sviss þar sem hann hefur átt viðræður við fjölda áhrifamanna á alþjóðavettvangi, í fjármálalífi og efnahagsmálum á Alþjóða efnahagsþinginu í Davos. „Þá hefur forseti verið í ítarlegum viðtölum við fjölmiðla: BBC, bæði sjónvarp og útvarp, og sjónvarpsstöðvarnar CNN, CNBC, Bloomberg, Reuters og Al Jazeera, og var um að ræða heimsútsendingar þessara sjónvarpsstöðva. Þá hefur forseti rætt við blaðamenn Wall Street Journal, Times á Írlandi og fleiri prentmiðla,“ segir í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Segja RÚV siðferðislega gjaldþrota

Stjórn Félags íslenskra leikara (FÍL) lýsir áhyggjum sínum yfir þróun mála hjá Ríkisútvarpinu í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. Þar segir að skyldur RÚV við íslenskan almenning séu ríkar en RÚV sé orðið siðferðislega gjaldþrota. Þá vill félagið að ráðherra dragi ofh-væðingu ríkisútvarpsins til baka.

Ræða við Bos og Myners

Undanfarnar vikur hafa verið stöðug samskipti milli íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í Icesavemálinu.

-Við erum á hausnum

Hin nýja ríkisstjórn Suður-Ameríkuríkisins Honduras tók við völdum í gær og lét það verða sitt fyrsta verk að lýsa því yfir að landið væri gjaldþrota.

Tíu ára í Háskólanum

Vísindavefur HÍ varð tíu ára í dag, 29. janúar. Hlutverk Vísindavefsins er að miðla vísindum til almennings og frá því vefurinn var stofnaður hafa birst um 8.200 svör við spurningum frá almenningi. Alls hafa um 800 höfundar svarað spurningunum. Af því tilefni verður í dag haldið málþing um vísindamiðlun frá ólíkum sjónarhornum.

Íslendingarnir skutu okkur í kaf

Norska handboltaliðið er niðurdregið eftir tapið gegn Íslandi. Håvard Tvedten fyrirliði liðsins segir í viðtali við Aftenposten að þeir hafi aldrei átt neinn möguleika.

Skutu tugi hunda til bana

Lögreglan á Nýja Sjálandi hefur gert upptæk vopn tveggja manna sem skutu tugi hunda nágranna síns til bana.

Tíu skip á gulldepluveiðum

Um það bil tíu skip eru á gulldepluveiðum um 70 mílur suðvestur af Reykjanesi, en aflinn er enn fremur tregur, eða eitt til tvö hundruð tonn á dag.

Jepplingur rann undir flutningabíl á ferð

Ökumaður og farþegi jepplings sluppu ótrúlega vel, að mati lögreglu, þegar bíll þeirr rann á hálku inn undir stóran flutningabíl, fyrir framan afturhjól hans, kastaðist síðan aftur frá og valt. Þetta gerðist klukkan rúmlega þrjú í nótt og var jepplingnum ekið í austur, út frá bensínstöð N-1 ofan Ártúnsbrekku í Reykjavík.

Stríðsglæpir Hamas

Hamas samtökin frömdu stríðsglæpi með árásum á Ísraelskan almenning að mati samtakanna Mannréttindavaktin.

Heimildarmaður njóti nafnleyndar fyrir rétti

Lögmaður fréttastjóra og fréttamanns Stöðvar 2 hefur farið fram á það að heimildarmaður fréttastofunnar fái að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í meiðyrðamálum nokkurra útrásarvíkinga gegn starfsmönnum fréttastofunnar. Eftir því sem næst verður komist á krafan sér ekkert fordæmi á Íslandi.

Börðu pilta með felgujárni

Tveir tæplega tvítugir piltar hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Að auki er annar þeirra ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, þjófnað og fleira.

Ætlar að birta gögn yfir aðkeypt efni

Ríkisútvarpið vinnur nú að því að safna saman upplýsingum um aðkeypt sjónvarpsefni frá sjálfstæðum framleiðendum. Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri RÚV, segir þeirra upplýsinga að vænta innan skamms, vonandi fyrir helgi.

Réttmæti gagna verið staðfest

Landlæknisembættið hefur brugðist við gagnrýni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á mati embættisins á stöðu öryggismála varðandi mönnun á Landspítalanum. FÍH sendi frá sér yfirlýsingu þar sem efast er um að matið sé byggt á áreiðanlegum eða réttmætum gögnum. Fréttablaðið fjallaði um málið í gær.

Erlendur her áratug í viðbót

Leiðtogar sjötíu ríkja komu saman í London í gær til að ræða framtíð Afganistans. Þar var samþykkt að alþjóðlegu hersveitirnar í Afganistan muni byrja að afhenda heimamönnum umsjón með öryggismálum í friðsamari héruðum landsins öðru hvoru megin við næstu áramót.

Varað við breytingu á heilbrigðislögum

„Fátt hefur ógnað öryggi sjúklinga jafn mikið í langan tíma og þetta litla frumvarp um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu sem nú liggur fyrir Alþingi,“ sagði Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, á málþingi félagsins um öryggi sjúklinga í gær.

Heitir því að stokka upp fjármálakerfið

„Stjórn okkar hefur beðið nokkra pólitíska ósigra þetta ár, og suma þeirra voru verðskuldaðir,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni, sem hann flutti í fyrrinótt, þeirri fyrstu sem hann flytur á forsetaferli sínum.

Mótmæla staðarvali fyrir Landsmót hestamanna 2012

Hafin hefur verið söfnun undirskrifta meðal hestamanna til að mótmæla ákvörðun um að Landsmót hestamanna 2012 skuli haldið í Reiðhöllinni í Víðidal í Reykjavík. Undanfarin ár hafa landsmót verið haldin til skiptis á Norður- og Suðurlandi, á Vindheimamelum í Skagafirði og á Gaddstaðaflötum við Hellu.

Hreyfing og GSÍ í samstarf

Golfsamband Íslands og Hreyfing heilsulind hafa gert með sér samstarfssamning með það að markmiði að fjölga kylfingum sem stunda reglulega líkamsrækt.

Tveir teknir af lífi í Íran

Tveir mótmælendur voru teknir af lífi í Íran í gær. Þeir voru dæmdir fyrir að reyna að steypa klerkastjórninni í mótmælum í júní fyrra. Þeir kváðu vera fyrstu mótmælendurnir sem teknir hafa verið af lífi frá því að mótmælin voru kveðin niður.

Clinton í Davos: Kallar eftir aukinni hjálp á Haítí

Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna Bill Clinton er nú staddur í Davos í Sviss þar sem áhrifamestu menn heimsins hittast á árlegum fundi. Í ræðu sem Clinton hélt í dag varaði hann menn við að gleyma neyðinni á Haítí og brýndi fyrir fólki að enn væri mikil þörg á aukinni aðstoð í landinu sem nú jafnar sig á afleiðingum jarðskjálftans sem reið yfir fyrir um hálfum mánuði.

Katrín: Get ekki rekið Pál

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segist ekki geta rekið Pál Magnússon útvarpsstjóra. Þetta kom fram í svari við fyrirspurn sem borin var upp á á fundi, sem VG hélt í dag um málefni Ríkisútvarpsins.

Höfundur Bjargvættarins í grasinu er látinn

Bandaríski rithöfundurinn JD Salinger lést í dag, 91 árs að aldri. Salinger er frægastur fyrir bók sína The Catcher In The Rye, sem hét Bjargvætturinn í grasinu í þýðingu Flosa Ólafssonar. Salinger forðaðist sviðsljósið eins og heitan eldinn og lést hann á heimili sínu í New Hampshire af eðlilegum orsökum, að sögn sonar hans.

Birnan var vel á sig komin

Hvítabjörninn sem felldur var í Þistilfirði í gær var mun betur á sig kominn en birnirnir tveir sem felldir voru í Skagafirði vorið 2008. Eftirlitsvél Landhelgisgæslunnar leitaði að öðru dýri á svæðinu í dag, án árangurs.

Gríðarleg ásókn í EM-ferðir - reynt að bæta við annari vél

Mikil eftirspurn er eftir sætum í ferð VITA á úrslitaleikina á EM í handbolta í Austurríki og ljóst er að færri Íslendingar komast að en vilja. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að verið sé að kanna möguleikana á að fá aðra flugvél til að auka enn á stuðninginn við Strákana okkar í Vín.

Mikil leynd hvílir yfir fundinum í Haag

Fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Framsóknarflokksins eiga fund með bankamálaráðherra Bretlands og fjármálaráðherra Hollands í Haag í fyrramálið vegna Icesave deilunnar. Yfirlýsingar er að vænta að loknum fundi þeirra.

Ásbjörn segir sig úr þingmannanefndinni

Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt sig úr þingmannanefndinni sem fjalla á um skýrslu rannsóknarnefndarinnar um bankahrunið. Á dögunum komst í fréttir að Ásbjörn hefði greitt sér ólöglegan arð úr fyrirtæki sínu. Í yfirlýsingu frá Ásbirni segir að hann hafi ákveðið að segja sig frá störfum í nefndinni, til að tryggja fullan frið um störf hennar.

Forystumenn á fund við Breta og Hollendinga

Forystumenn þriggja flokka á Alþingi, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Framsóknarflokki, Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki og Steingrímur J. Sigfússon, VG héldu í dag utan til viðræðna við Breta og Hollendinga vegna Icesave deilunnar. Fundurinn fer líklegast fram í Haag í Hollandi.

Miskabætur vegna barnaníðs lækkaðar

Miskabætur, sem Tryggvi Óli Þorfinnsson, 42 ára gamall Hvergerðingur, var dæmdur til þess að greiða fjórtán ára stúlku fyrir misnotkun, voru lækkaðar um 200 þúsund krónur í Hæstarétti Íslands.

Bjóða upp á ferðir á úrslitin í Vín

Ferðaskrifstofurnar Úrval-Útsýn, VITA og ÍT-ferðir bjóða allar upp á ferðir á undanúrslit og úrslitaleikinn á Evrópumeistaramótinu í handknattleik sem fer fram í Austurríki.

Ólétt með hríðarverki ók próflaus á ofsahraða

Nokkrir tugir ökumanna voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær. Í þeim hópi var kona á þrítugsaldri en hún var stöðvuð af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á Reykjanesbraut eftir að bíll hennar mældist á yfir 120 km hraða.

Sjá næstu 50 fréttir