Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lonely Planet velur tíu helgustu staði heims Ferðabókaútgefandinn Lonely Planet hefur gefið út lista yfir tíu helgustu staði heimsins. 30.11.2009 08:40
Mokað um land allt Vetrarfærð er nánast um allt land og víða verið að ryðja eða hreinsa vegi. Það er hálka á Sandskeiði og á Hellisheiði þar sem gengur á með éljum. Annars eru hálkublettir víðast hvar á Suðurlandi að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 30.11.2009 07:45
Ökumenn undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn sem grunaðir eru um að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar var á Breiðholstbraut en hinn í Kjalarvogi. Þá var einn var tekinn á Ártúnshöfða vegna gruns um ölvun við akstur. 30.11.2009 07:42
Kveikt í gámum í gærkvöldi Eldur kom upp í gámi í Sorpu í Jafnaseli um klukkan ellefu í gærkvöldi. Töluverður eldur var í gámnum þegar slökkvilið mætti á staðinn og þurfti að fjarlægja nærliggjandi gáma til þess að koma í veg fyrir að eldurinn bærist yfir í þá. Slökkvistarfið gekk þó vel að sögn vaktstjóra en líkur eru taldar á að kveikt hafi verið í gámnum. Fyrr um kvöldið var slökkviliðið einnig kallað út vegna elds í gámi sem stóð við Ingunnarskóla í Grafarholti og þar gekk slökkvistarf sömuleiðis vel. 30.11.2009 07:41
Sleppa 980 Palestínumönnum fyrir einn Ísraela Ríkissaksóknarinn í Ísrael hefur lýst því yfir að semja megi um að Ísraelar láti 980 Palestínumenn, sem þeir hafa í haldi, lausa í skiptum fyrir einn ísraelskan hermann sem hin palestínsku Hamas-samtök hafa haft í haldi í þrjú ár. 30.11.2009 07:11
Breytingarnar gætu komið verr niður á einstæðum mæðrum Breytingar á fæðingarorlofi sem ríkisstjórnin hefur samþykkt geta komið verr niður á einstæðum mæðrum en sú skerðing sem áður hafði verið fallist á. Félagsmálaráðherra vonast til að vankantar verði sniðnir af í meðförum Alþingis. Áður var áformað að skerða hámarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóði úr 350 þúsundum króna á mánuði í 300 þúsund krónur. Í frumvarpi félagsmálaráðherra á að halda hámarkinu í 350 þúsundum, en fresta töku eins mánaðar af orlofinu í þrjú ár. 30.11.2009 06:30
Fagnaði sprengjuregni nasista „Þeir eru að koma. Nú verður allt betra,“ segir Heinrich Boere að móðir sín hafi sagt þegar þýski herinn gerði innrás í Holland árið 1940. 30.11.2009 06:00
Fólk missir bótarétt hafni það vinnu Atvinnulaust fólk getur misst bótarétt hafni það störfum sem bjóðast í tvígang verði nýtt frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar að lögum. Frumvarpið hefur verið samþykkt í ríkisstjórn og verður lagt fram á Alþingi í dag. 30.11.2009 05:00
Fé úr ofanflóðasjóði til sjóvarna við Vík Ef áætlanir stjórnvalda ganga eftir verður nýr sjóvarnargarður við Vík í Mýrdal fjármagnaður úr Ofanflóðasjóði. 30.11.2009 05:00
Laxaseiðum sleppt án sérstaks eftirlits Upplýsingum um seiðasleppingar í íslenskar ár hefur ekki verið haldið markvisst saman síðan 1997. Veiðimálastofnun hefur ekki fengið nákvæmar upplýsingar um sleppingarnar þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað. Fiskistofa segir upplýsingaöflun um sleppingarnar í eðlilegum farvegi. 30.11.2009 04:15
Afbrotum fækkar milli ára Fækkun varð í flestum brotaflokkum í október síðastliðnum miðað við október í fyrra. 30.11.2009 04:00
Hluti af gagnsæi á markaði Hertar reglur taka gildi um upplýsingagjöf útgefenda skuldabréfa í Kauphöllinni um mánaðamótin. Þær kveða á um að fyrirtæki sem gefa út skuldabréf þurfa að birta á markaðnum endurskoðaðan ársreikning sem og hálfsársuppgjör. Hið opinbera og sveitarfélög þurfa aðeins að birta ársuppgjör. 30.11.2009 04:00
Vilja Nató fyrir þjóðaratkvæði Samtök hernaðarandstæðinga vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslendinga að Atlantshafsbandalaginu. Samtökin ályktuðu þess efnis á landsráðstefnu um helgina. 30.11.2009 03:45
Kannabisræktandi fyrir dóm Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært karlmann um fimmtugt fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir kannabisræktun. 30.11.2009 03:30
Bjó til ókeypis tré fyrir gítara Valdís Steinarsdóttir hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna Snilldarlausn - Marel sem haldin var samhliða Alþjóðlegu athafnavikunni í þarsíðustu viku. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í menntamálaráðuneytinu á fimmtudag. 30.11.2009 03:00
Ætlar ekki að segja frá slysinu Kylfingurinn Tiger Woods segir bílslysið sem hann lenti í á föstudag hafa verið honum sjálfum að kenna. Hann frestaði því í þriðja sinn í gær að ræða um atvikið við lögreglu. 30.11.2009 03:00
Bleikjustofnar sýktir í tveim stöðuvötnum Nær allur bleikjustofn Elliðavatns sem og Vífilsstaðavatns er smitaður af nýrnaveiki; svokallaðri PKD-sýki. Hátt hlutfall bleikjunnar sýnir einkenni sýkinnar og líklegt er talið að verulega fækkun bleikju í vötnunum tveimur megi að stórum hluta rekja til hennar. 30.11.2009 02:00
Tveir af þremur áfram í haldi Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir tveimur af þremur sakborningum í umfangsmiklu þjófnaðarmáli. Átta eru ákærðir í málinu, allt ungt fólk af pólskum uppruna. 30.11.2009 02:00
Ísland á kort fuglaskoðunar Meðlimir nýstofnaðra Samtaka um fuglatengda ferðaþjónustu telja mikla möguleika á þessu sviði hérlendis. „Með samtökunum er ætlunin að koma Íslandi almennilega á kortið hjá erlendum fuglaskoðurum sem áfangastað til fuglaskoðunar,“ segir Hrafn Svavarsson, formaður nýju samtakanna, í Útherja, blaði Útflutningsráðs Íslands. Þar kemur einnig fram að sex íslensk félög og fyrirtæki hafi nýlega sótt árlega ráðstefnu fuglaskoðunarmanna í Englandi til að vekja athygli á einstæðum möguleikum á Íslandi. Þá segir að um tuttugu milljónir Bandaríkjamanna fari árlega í fuglaskoðunarferðir.- gar 30.11.2009 02:00
Ísland stækkar á hverju ári sem nemur hálfri Surtsey Ísland stækkaði um 4,4 ferkílómetra, eða sem nemur þremur Surtseyjum, á sex ára tímabili frá árinu 2000 til 2006. Þetta kemur fram í nýrri kortlagningu Landmælinga á landgerðum, en samkvæmt henni er manngert yfirborð einungis 0,38 prósent af landinu. 29.11.2009 18:40
Styttri fæðingarorlof eða lægri greiðslur Verðandi foreldrar munu standa frammi því vali að stytta fæðingarorlof sitt um mánuð eða þiggja sautján prósenta lægri greiðslu frá fæðingarorlofssjóði. 29.11.2009 19:04
Mosfellingar vilja ekki vera afskiptir Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ mótmæla því harðlega að endurbætur á Vesturlandsvegi séu saltaðar en önnur verkefni sett í forgang enda sé kaflinn í gegnum bæinn einn hættulegasti og umferðarþyngsti þjóðvegur landsins. 29.11.2009 18:45
Icesave á dagskrá á morgun Önnur umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna heldur áfram á morgun. Þegar umræðunni var frestað tíunda tímanum í gærkvöldi voru ellefu þingmenn á mælendaskrá. 29.11.2009 17:50
Alþingi kýs nýjan fulltrúa í landsdóm Alþingi kýs á morgun nýjan varamann í landsdóm í stað Unnar Brár Konráðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Unnur var kjörin varamaður fyrir fjórum árum en tók sæti Alþingi eftir kosningarnar í apríl. 29.11.2009 17:31
Ljósin tendruð á Oslóartrénu Nokkur þúsund manns voru á Austurvelli þegar ljósin á Oslóartrénu voru tendruð klukkan fjögur. Veðrið var gott og jólalegt um að litast. Borgarstjóri tók við jólatrénu sem er gjöf Oslóarbúa til Reykvíkinga og nokkrir jólasveinar skemmtu börnunum. 29.11.2009 16:50
Tæplega 13 þúsund skora á forsetann í Icesave málinu Rúmlega 12.900 manns hafa nú skrifað undir áskorun til forseta Íslands á vefsíðu InDefence hópsins. Undirskriftasöfnunin hófst síðastliðinn miðvikudag. 29.11.2009 16:19
Pakistanar verða að uppræta Al Kaída Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að Pakistanar verði að setja aukinn kraft í að uppræta Al Kaída hryðjuverkasamtökin og handsama leiðtoga þeirra, Osama Bin Laden, og næstráðanda hans, Ayman Zawahiri. 29.11.2009 15:45
Árni Þór: Væla yfir því að fá ekki að borða Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, segir að framferði stjórnarandstöðunnar í umræðum um Icesave að undanförnu sé ekkert annað en skrípaleikur. Stjórnandstaðan væli yfir því að fá ekki að borða. Þingmaðurinn er kjaftfor, að mati Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. 29.11.2009 15:00
Mannskæð flóð í Saudi Arabíu Yfirvöld í Saudi Arabíu segja að minnsta kosti 100 manns hafi farist í miklum flóðum í landinu en frá því á miðvikudag hefur mikið rignt. Fjölda fólks er saknað og því talið líklegt að fleiri finnist látnir. Flestir eru taldir hafa drukknað í bílum sínum eða kramist þegar brýr hrundu vegna mikilla vatnavaxta. 29.11.2009 14:45
Osama Bin Laden slapp Bandaríkjamönnum mistókst að hafa hendur í hári Osama Bin Laden, leiðtoga Al Kaída hryðjuverkasamtakanna, þegar hann slapp naumlega í desember 2001. Þetta kemur fram sérstakri skýrslu bandarísku öldungadeildarinnar og BBC greinir frá. 29.11.2009 14:31
Ætla að greiða fjölskyldunum bætur Kínversk mjólkurfyrirtæki hafa gefið það út að þau séu reiðubúin að greiða fjölskyldum barnanna sem veiktust eftir að hafa drukkið eitraða mjólk á síðasta ári bætur. Þá létust að minnsta kosti sex börn og 300 þúsund veiktust eftir hafa drukkið eitraða mjólk. 29.11.2009 14:00
Þurfum ekki varanlegar undanþágur Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, telur að Íslendingar þurfi ekki varanlegar undanþágur hjá Evrópusambandinu þegar kemur að fiskimiðunum. Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, fullyrði að með inngöngu í sambandið afsali Íslendingar yfirráðum sínum yfir helstum auðlindunum. Jón og Styrmir voru gestir Egils Helgasonar í þætti hans í Ríkissjónvarpsinu fyrr í dag. 29.11.2009 13:42
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um NATO aðild Samtök hernaðarandstæðinga vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Samtökin minna á að íslenska þjóðin hefur aldrei verið spurð með beinum hætti um afstöðu sína til aðildarinnar að NATO. Þetta kemur fram í ályktun landsráðstefna samtakanna sem haldin var 27. til 28. nóvember. 29.11.2009 13:15
Niðurstaðan í prófkjöri framsóknarmanna ljós Á kjörfundi Framsóknarflokksins í Reykjavík í gær var kosið í sex efstu sæti listans með meirihlutakosningu og í sæti 7 til 12 með prófkjörsleið. Niðurstaða prófkjörsins liggur fyrir. 29.11.2009 13:04
Foreldrar geymi síðasta mánuðinn í þrjú ár Ríkisstjórnin hefur fallið frá því að skerða greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Í staðinn verður fæðingarorlof stytt um einn mánuð. 29.11.2009 12:09
Óvíst hvort Héðinsfjarðargöng dragi úr fólksfækkun Óvíst er að Héðinsfjarðargöng muni verða til þess að draga úr fólksfækkun á Ólafsfirði og Siglufirði eins og vonast er til. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, prófessor í Háskólanum á Akureyri sem stýrt hefur umfangsmikill rannsókn sem snýr að mögulegum áhrifum gangnanna. 29.11.2009 12:08
Ræningjarnir voru í annarlegu ástandi Mennirnir sem handteknir voru skammt frá verslun 10-11 í Engihjalla í gærkvöldi voru í annarlegu ástandi. Þeir hafa ekki verið yfirheyrðir en líklegt þykir að mennirnir hafi ætlað að nota féð úr ráninu til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu. 29.11.2009 12:00
Flokkar hafa ekki gott af því að vera lengi við völd Ekki er þörf á að stofna nýjan hægriflokk hér á landi, að mati Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Hún telur engan flokk hafa gott að því að sitja samfellt við völd í mörg ár. 29.11.2009 11:28
Frjálslyndir harma stuðningsyfirlýsingu við Ólaf Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins harmar yfirlýsingu kjördæmisfélaganna í Reykjavík við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa F-listans. Stjórnin dregur í efa að fundurinn hafi verið löglegur og bendir jafnframt á að Ólafur sé ekki félagi í Frjálslynda flokknum. 29.11.2009 10:46
Lyfjastofnun borist 16 tilkynningar um aukaverkanir Lyfjastofnun hafa borist 16 tilkynningar um aukaverkanir sem hugsanlega geta verið af völdum Pandemrix, bóluefnisins sem notað er gegn svínaflensu eðaa inflúensu af stofni A(H1N1). Það er 2,1 tilkynning á hverja 10.000 bólusetta en nú hafa 75.000 Íslendingar verið bólusettir við flensunni. 29.11.2009 10:27
Eiginkonan sögð bera ábyrgð á áverkunum Lögreglan á Flórída hefur enn ekki náð tali af kylfingnum Tiger Woods og eiginkonu hans varðandi bílslysið sem hann lenti í aðfararnótt föstudags. Þau ein eru til frásagnar um hvað gerðist í raun og veru en margt bendir til að áverkar í andliti kylfingsins séu ekki af völdum þess að Tiger keyrði á brunahana og tré. 29.11.2009 10:03
Svisslendingar kjósa um bænaturna múslima Svisslendingar kjósa í dag um hvort banna eigi frekari smíðar á bænaturnum múslima þar í landi. Frumvarpið er sagt njóta talsverðs stuðnings. 29.11.2009 09:57
Hálka á Hellisheiði Það snjóar nokkuð víða á Reykjanesi og þar er snjóþekja. Hálka og snjókoma er á Hellisheiði og í Þrengslum og allvíða á Suðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 29.11.2009 09:49
Ógnaði starfsfólki með eggvopni Lögreglan fékk tilkynningu um vopnað rán í verslun 10-11, Engihjalla, í Kópavogi um átta leytið í gærkvöldi. Þar hafði aðili ógnað starfsmönnum með eggvopni. Lögreglan handtók síðan tvo aðila í tengslum við málið á stolnu ökutæki skammt frá þeim vettvangi sem ránið átti sér stað. Enginn meiddist í ráninu að sögn lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið við rannsókn málsins 29.11.2009 09:46
Birgir: Ólöglegur þingfundur Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var frestað á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti að fundurinn væri ólöglegur. 29.11.2009 09:32