Ísland stækkar á hverju ári sem nemur hálfri Surtsey 29. nóvember 2009 18:40
Ísland stækkaði um 4,4 ferkílómetra, eða sem nemur þremur Surtseyjum, á sex ára tímabili frá árinu 2000 til 2006. Þetta kemur fram í nýrri kortlagningu Landmælinga á landgerðum, en samkvæmt henni er manngert yfirborð einungis 0,38 prósent af landinu. Það sem einkennir Ísland umfram önnur lönd er ósnortin náttúra, eða það sem kallast náttúrlegar landgerðir í samevrópsku verkefni, sem Landmælingar unnu hérlendis. Mólendi, mosi og kjarr eru 35% Íslands, ógróið hraun og urðir 23%, hálfgróið land 13%, jöklar og fannir 11%, mýrar 6%, og stöðuvötn, ár og sjávarlón eru 2%. Landbúnaðarland er 2,4% en undir flokkinn manngert yfirborð teljast einungis 0,38% af landinu. Gögnin sýna glöggt hversu öflugar íslensku jökulárnar eru í að stækka landið með framburði sínu, eins og menn geta ímyndað sér þegar skoðaðar eru myndir af aurugri Skeiðará í hlaupi, sem varð í tengslum við eldgos í Grímsvötnum fyrir fimm árum. Á sex ára tímabili stækkaði Ísland þannig um 4,4 ferkílómetra, sem Landmælingar segja vegna breytinga á strandlínunni við ósa nokkurra stórra jökuláa. En hafið vinnur á móti og tekið er fram að þessi stækkun sé ekki varanleg og að hún gæti verið horfin þegar næsta mæling verður gerð. Landaukinn vegna jökulfljótanna er engu að síður athyglisverður í samanburði við Surtsey en hún er um 1,6 ferkílómetrar að flatarmáli og byggðist upp í eldgosi á fjórum árum. Á árabilinu frá 2000 til 2006 bættu jökulfljótin við landi sem nemur eins og þremur Surtseyjum. Með öðrum orðum; þau stækkuðu Ísland um sem nemur eins og hálfri Surtsey á hverju ári.
Mest lesið Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Fleiri fréttir Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Sjá meira