Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stálu bílum og flatskjá af sofandi pari Bíræfnir innbrotsþjófar fóru inn á heimili ungs pars í Hafnarfirði í fyrrinótt og höfðu meðal annars á brott með sér báða bíla þeirra á meðan fólkið var í fastasvefni. 19.9.2009 08:00
Vill flugvöllinn til Keflavíkur Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Reykjavíkur, telur það lífsspursmál fyrir borgina að flugvöllurinn verði fluttur úr Vatnsmýri. Hann vill tengja flugvöll við borgina með lestarsamgöngum. „Ef við gerum það er ekkert því til fyrirstöðu að hafa flugvöllinn í Keflavík,“ segir Gísli Marteinn. 19.9.2009 07:30
Seðlabankinn eykur eftirlit með höftum Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að styrkja eftirlit sitt með gjaldeyrishöftunum. „Það er verið að herða eftirlitið vegna þess að það hefur komið upp fjöldi vísbendinga um að það sé verið að fara í kringum höftin,“ segir Ingibjörg Guðbjartsdóttir, forstöðumaður gjaldeyriseftirlitsins. 19.9.2009 07:00
VG kom í veg fyrir nýja viljayfirlýsingu Tillaga iðnaðarráðherra um framlengingu viljayfirlýsingar vegna byggingar álvers á Bakka fékkst ekki afgreidd á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Vegna andstöðu ráðherra Vinstri grænna var tillagan ekki samþykkt heldur vísað til meðferðar í sérstakri ráðherranefnd um orkumál. Sú nefnd var sett á laggirnar á þriðjudag til að fjalla um málið og einnig þau verkefni á sviði orkumála sem tengjast Stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila á vinnumarkaði. 19.9.2009 06:30
Lengri ábyrgð ekki ófrávíkjanleg krafa Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hitti sendiherra Breta og Hollendinga í gær og ræddi áframhald Icesave-málsins. Steingrímur segir hugmyndir þjóðanna vera fyrstu viðbrögð við samþykkt Alþingis. Málið sé í eðlilegum farvegi og aldrei hafi verið til umræðu að kalla þing saman núna, enda verði það sett 1. október. Frekari viðræður muni leiða í ljós hvort málið þurfi fyrir Alþingi á nýjan leik. 19.9.2009 06:00
Tæplega 2.000 beiðnir teknar fyrir Fyrirtökum nauðungarsölubeiðna einstaklinga hjá sýslumönnum fjölgaði um tæplega 25 prósent á fyrri hluta árs samanborið við sama tímabil í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu. 19.9.2009 05:30
Íbúar andvígir vínveitingum Fjöldi íbúa í nágrenni við verslunarmiðstöðina Grímsbæ í Fossvogi hefur mótmælt því að nýjum pitsustað þar í húsinu verði heimilt að vera með vínveitingar. 19.9.2009 05:00
Telja bæjarráðsformann án umboðs Bæjarfulltrúar Álftaneslistans vilja að Margrét Jónsdóttir segi af sér sem formaður bæjarráðs. 19.9.2009 04:30
Búrið verði jólagjöfin í ár „Við stefnum ótrauð á að fiskabúrið verði jólagjöfin í ár. Það vantar enn herslumuninn en við vonum að þetta gangi, og ætlum að láta þetta ganga," segir Einar Gunnar Guðmundsson, meðlimur í Mími, vináttufélagi Vesturbæjar. Söfnun fyrir nýju fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar, sem félagið hefur staðið fyrir undanfarið, lauk formlega í vikunni. Alls söfnuðust um 700.000 krónur. 19.9.2009 04:00
AGS taldi álagspróf eftirlitsins strangt Ýmsir aðilar sem fjölluðu um íslenska bankakerfið, meðal annars Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, töldu álagspróf Fjármálaeftirlitsins (FME) strangt. Þetta segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, um það að rannsóknarnefnd Alþingis hafi álagsprófin nú til skoðunar. 19.9.2009 03:30
10 tonna gámi stolið í Hafnarfirði Blár gámur sem stóð við Melabraut 17 (suðurbrautarmegin) í Hafnarfirði var stolið þaðan 1.júli síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá Rúnari Jóhannessyni sem auglýsir eftir gámnum er um 10 tonna gám að ræða og hefur þurft sérstakan gámabíl til að stela honum. 18.9.2009 20:44
Dularfullt hvarf í Svíþjóð: Hafa fundið lík Lögreglan í Svíþjóð hefur að undanförnu leitað að Mats Elm, fyrrum meðleigjanda hinnar týndu Lindu Chen, en þeirri leit er nú lokið. Mats var handtekinn grunaður um aðild að hvarfinu sem hefur vakið óhuga svía undanfarið. 18.9.2009 20:30
Trúverðugleiki og heilindi hafa einkennt störf mín Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ telur sig hafa í störfum sínum staðið vörð um þau grundvallargildi sem bæði hann og sú hreyfing sem hann hefur helgað starfskrafta sína síðustu 20 árin standa fyrir en þú séu trúverðugleiki og heilindi gangvart félagsmönnum samfélaginu í heild. Þetta segir Gylfi í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér seinni partinn í dag í framhaldi fréttar Stöðvar 2. Þar var fjallað um tengls Gylfa við félag í Lúxemborg sem stofnað var í gegnum tvö skúffufélög á Tortola. Í kjölfarið skoraði stjórnarmaður VR á Gylfa að segja af sér vegna meintra tengsla hans við fyrirtækin. 18.9.2009 20:24
Lockerbie ódæðið: Megrahi gagnrýndur harðlega Maðurinn sem sakfelldur var fyrir Lockerbie ódæðið hefur harðlega verið gagnrýndur af einum virtasta lögfræðingi Skotlands fyrir að birta skjöl til þess að reyna að sanna sakleysi sitt. Hundruðir blaðsíðna af skjölum tengdum ódæðinu sem hinn vellauðugi Abedelbaset Ali Mohamed al Megrahi birti í dómssölum hafa verið sett inn á nýja vefsíðu. 18.9.2009 20:09
Nefndur sem næsti ritstjóri Moggans Davíð Oddsson er meðal þeirra sem er orðaður við ritstjórastól Morgunblaðsins, en gengið var frá starfslokum Ólafs Stephensens í dag. 18.9.2009 18:43
Trúnaðarbrestur milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu Forsætisráðherra segir að trúnaðarbrestur sé orðinn milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu vegna viðbragða stjórnarandstöðunnar við óformlegum svörum Breta og Hollendinga í tengslum við Icesave. Ríkisstjórnin þurfi að endurmeta samskipti sín við stjórnarandstöðuna. 18.9.2009 18:30
Enn á ný leyna stjórnvöld gögnum um Icesave Þjóðin hefur rétt á að sjá viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis Ríkisstjórnin tilkynnti í gær, þann 17. september 2009, að viðbrögð hefðu borist frá Bretum og Hollendingum um þá fyrirvara sem Alþingi gerði við ábyrgð á Icesave skuldbindingunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá InDefence hópnum nú í kvöld. 18.9.2009 18:12
Leyndarhjúpur umlykur ríkisstjórnina Þingflokkur framsóknarmanna áréttar að ef fulltrúar Breta og Hollendinga sætta sig ekki að hluta eða í heild við lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna, fellur ábyrgðin úr gildi og þeir fyrirvarar sem við hana eru. Þetta kemur fram í lögunum sjálfum. 18.9.2009 17:05
Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við gagnagrunninn Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við gagnagrunn fyrirtækis Jóns Jósefs Bjarnasonar, tölvunarfræðings, um tengsl manna í viðskiptalífinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu. 18.9.2009 16:21
Býst ekki við að stjórnvöld svari um helgina Ólíklegt er að íslensk stjórnvöld muni gefa Bretum og Hollendingum einhver formleg svör um helgina vegna viðbragða þjóðanna við Icesave fyrirvörunum. Þetta segir Einar Karl Haraldsson, upplýsingafulltrúi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 18.9.2009 16:03
Ríkisstjórnin jafn óvinsæl og stjórn Geirs Svipuð andstaða mælist nú við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og mældist við ríkisstjórn Geirs H. Haarde strax eftir bankahrun í október í fyrra. 56,1% segjast ekki styðja núverandi stjórn en 54,8% sögðust ekki styðja stjórn Geirs í október. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun MMR. 18.9.2009 15:05
Gera athugasemd við Ragnar H. Hall-ákvæðið Framlenging ríkisábyrgðar vegna Icesave lánsins fram til ársins 2030 er ekki eini fyrirvarinn sem Bretar og Hollendingar gerðu athugasemdir við í sameiginlegu áliti sem sent var Íslendingum fyrr í vikunni. 18.9.2009 14:59
Ólafur hættur sem ritstjóri Morgunblaðsins Ólafur Stephensen lætur af starfi ritstjóra Morgunblaðsins í dag. Ólafur tilkynnti starfsfólki blaðsins þetta í tölvupósti í dag. Fram kom í tölvupóstinum að ákvörðunin hafi verið tekin sameiginlega af honum og stjórn útgáfufélags Morgunblaðsins vegna mismunandi áherslna varðandi rekstur blaðsins. 18.9.2009 14:37
Svakaleg fjölgun innbrota Fjölgun innbrota á höfuðborgarsvæðinu er svakaleg, að mati Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Um 300 innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í ágúst. Það jafngildir um 10 innbrotum á dag. 18.9.2009 14:13
Þríeykið stofnar Hreyfinguna Þingmennirnir Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari hafa ákveðið að kljúfa sig úr Borgarahreyfingunni og stofna nýtt stjórnmálaafl, Hreyfinguna. Þetta kom fram á blaðamannafundi á Thorvaldsen í dag. Hinni nýju stjórnmálahreyfingu er ætlað að fylgja upprunalegri stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar og veita grasrótarhreyfingum rödd á Alþingi. 18.9.2009 14:02
Borgin býður út innheimtu viðskiptakrafna Reykjavíkurborg hefur ákveðið að bjóða út innheimtu viðskiptakrafna og tengda þjónustu fjármálafyrirtækja borgina. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í gær. Það er almenn stefna Reykjavíkurborgar að bjóða út þjónustu fremur en að semja beint við einstök fyrirtæki, að fram kemur í tilkynningu. 18.9.2009 13:55
Jóna Kristín afsalar sér biðlaunum Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík, mun afsala sér rétti til biðlauna þegar hún lætur af embætti bæjarstjóra um mánaðarmótin nóvember-desember. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver eftirmaður hennar verður en það skýrist fljótlega. 18.9.2009 13:39
Lögreglan handtók bílþjóf í nótt Bílþjófur var handtekinn í Reykjavík í nótt. Það voru lögreglumenn við eftirlit sem veittu athygli ljóslausum bíl sem var ekið í miðborginni. Við frekari athugun kom í ljós að bíllinn var stolinn. Við stýrið var kona á þrítugsaldri og var hún handtekin og flutt á lögreglustöð. 18.9.2009 12:46
Gylfi þegir um áskorun um afsögn Stjórnarmaður VR skorar í opnu bréfi á Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, að segja af sér vegna stjórnarsetu sinnar í fjárfestingarfélagi í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög á Tortola. Gylfi segist ekki hafa lesið bréfið. 18.9.2009 12:39
Bruninn í Laugarásvideo enn í rannsókn Lögreglan rannsakar enn brunann í Laugarásvideo í lok ágúst. Einn maður var yfirheyrður fyrr í mánuðinum með réttarstöðu grunaðs manns en honum var síðan sleppt. 18.9.2009 12:29
Á reiki hve margar athugasemdir bárust vegna hótelsins Hátt í sextán hundruð manns sendu skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar athugasemdir vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar við Ingólfstorg. Nærri 2300 manns sendu hins vegar athugasemdir í gegnum heimasíðu áhugahóps um torgið. 18.9.2009 12:23
Ekki þörf fyrir eldflaugakerfi við Eystrasalt Rússar segja að þar sem Bandaríkin hafi hætt við að setja upp loftvarnaflaugar í Austur-Evrópu sé engin þörf fyrir þá að setja upp eldflaugakerfi við Eystrasalt. 18.9.2009 12:21
Tilbúnir að hætta stækkun landnemabyggða Ísraelar segjast tilbúnir til að hætta stækkun landnemabyggða á Vesturbakkanum í níu mánuði til þess að koma friðarviðræðum af stað. 18.9.2009 12:17
Sakar stjórnarandstöðuna um upplýsingaleka á Facebook Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, sakar á Facebook-síðu sinni stjórnarandstöðuna um að leka upplýsingum um viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis vegna ríkisábyrgðarinnar vegna Icesave. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ósátt með ásökunina og svarar aðstoðarmanninum fullum hálsi. 18.9.2009 12:05
Tölvugúrú sækir Ísland heim Dr. Frank Soltis, aðalhönnuður IBM POWER örgjörvans sem meðal annars er notaður í PlayStation 3 og Xbox 360 leikjavélunum er væntanlegur hingað til lands á IBM Power ráðstefnu Nýherja og Skyggnis. 18.9.2009 11:51
Tíu innbrot framin á dag á Íslandi Að meðaltali voru framin 10 innbrot á dag á Íslandi fyrstu átta mánuði þessa árs, samkvæmt bráðabirgðatölfræði Ríkislögreglustjóra. 18.9.2009 11:23
Óskar eftir ábendingum um niðurskurð sem bitnar á börnum Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, hefur verulegar áhyggjur af stöðu barna í ljósi þess efnahagsástandsins. Hún óskar eftir ábendingum um niðurskurð sem bitnar með einum eða öðrum hætti á börnum. 18.9.2009 10:55
Hlaut 30 daga skilorð fyrir gáleysisakstur sem olli alvarlegu slysi Karlmaður var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir að hafa ekið bifreið sinni, þann 11. ágúst í fyrra, vestur Suðurlandsveg í Ölfusi, án nægilegrar aðgæslu og varúðar. 18.9.2009 10:53
Boða til greiðsluverkfalls um mánaðarmótin Á opnum fundi Hagsmunasamtaka heimilanna sem haldinn var í Iðnó í gær var samþykkt ályktun þar sem gerð er krafa um almennar leiðréttingar lána vegna forsendubrests af völdum kreppunnar. 18.9.2009 10:42
Segir Breta og Hollendinga ekki krefjast lengri ríkisábyrgðar Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segist ekki skilja viðbrögð Breta og Hollendinga við Icesave fyrirvörum Alþingis að þjóðirnar vilji að ríkisábyrgðin verði lengd til ársins 2030 eins og fram hefur komið fram í fjölmiðlum. Utanríkismálanefnd ræddi málið á fundi með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í morgun. 18.9.2009 10:09
Ferð á hagræðingarfund kostaði 1,2 milljónir Kostnaður borgarinnar vegna ferðar borgarstjóra, formanns borgarráðs og aðstoðarmanns borgarstjóra á ráðstefnu í Bandaríkjunum um lausnir borga vegna kreppunnar var rúmlega 1,2 milljónir króna. 18.9.2009 10:04
Þríeykið boðar til blaðamannafundar „Það kemur í ljós á blaðamannafundinum," sagði Þór Saari, aðspurður hvort að þingmenn Borgarahreyfingarinnar ætli að segja skilið við hreyfinguna eða starfa áfram sem þingmenn hennar. Þríeykið hefur boðað til blaðamannafundar eftir hádegi í dag. 18.9.2009 09:25
Utanríkismálanefnd fundar um viðbrögð Breta og Hollendinga Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan átta í morgun og er eina dagskrárefnið viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave samkomulaginu. Eins og komið hefur fram, meðal annars í Fréttablaðinu í morgun, krefjast þjóðrinar þess að ríkisábyrgðin gildi til ársins 2030 í stað ársins 2024 eins og áður var gert ráð fyrir og jafnvel að hægt verði að framlengja hana til ársins 2040. Efnahags- og skattanefnd Alþingis mun funda um málið klukkan tíu. 18.9.2009 09:05
Hafís bráðnaði minna en í meðalári Hafís norðurskautsins bráðnaði minna í sumar en gerst hefur í tvö ár, að sögn rannsakenda hjá bandarísku ísrannsóknarstöðinni. 18.9.2009 08:33
Keppendum í fegurðarsamkeppni fækkað í kreppunni Heimskreppan lætur fáa ósnortna og þar eru aðstandendur fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Venesúela engin undantekning. 18.9.2009 08:21