Fleiri fréttir

Magma kemst í kringum íslensk lög

Kanadíska jarðhitafélagið Magma Energy kemst í kringum íslensk lög, sem takmarka fjárfestingar útlendinga í íslenskum orkufyrirtækjum, með sænsku skúffufélagi.

Fjórir karlmenn dæmdir fyrir kannabisræktun

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi fyrir helgi þrjá karlmenn í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa staðið að ræktun á kannabisplöntum í bílskúr á Skagaströnd. Fjórði karlmaðurinn var dæmdur til greiðslu 100 þúsund króna sektar en hann var dæmdur fyrir að hjálpa til við ræktunina. Lögreglan fann plönturnar, sem voru 147 talsins, við húsleit í desember síðastliðnum. Mennirnir játuðu allir brot sín.

Fundu sokkið herskip í Faxaflóanum

Landhelgisgæslan hefur fundið bandaríska skipið USCGC Alexander Hamilton á botni hafsins í Faxaflóa en það var olíublettur sem kom gæslumönnunum á sporið. Skipið hefur legið á botninum síðan árið 1942 þegar það varð fyrir árás þýska kafbátsins U-132.

Jarðskjálfti í Krýsuvík

Jarðskjálfti upp á 3,1 á Richter var´um 5 kílómetrum norðaustur af Krýsuvík um klukkan 18 mínútur í tvö í dag. Skjálftans varð vart víða á höfuðborgarsvæðinu.

Með kannabis í svaðilför

Lögreglan hafði afskipti af aðila vegna þess að hann reyndist vera með 27 grömm af kannabis á sér í vikunni. Maðurinn var að koma á slöngubát frá Vestmannaeyjum og lenti í háska við Bakkafjöru.

Goldfingermálið kært til Mannréttindadómstólsins

Mál blaðamannsins Bjarkar Eiðsdóttur hefur, með stuðningi Blaðamannafélags Íslands og Birtings útgáfufélags ehf. verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Í fréttatilkynningu frá Blaðamannafélagi Íslands er kærð niðurstaða Hæstaréttar í máli Ásgeirs Þórs Davíðssonar á veitingahúsinu Goldfinger gegn blaðamanni og ritstjóra Vikunnar.

Get ekki ímyndað mér að gengið verði að bónustillögum Straums

„Þetta er auðvitað mjög vel í lagt og algerlega úr takti við það sem samfélagið horfir uppá í dag," segir Stefán Einar Stefánsson viðskiptafræðingur um þá hugmynd stjórnenda Straums að starfsmenn bankans fái bónusgreiðslur í samræmi við endurheimtur á eignum bankans. Bónusgreiðslur sem gætu numið allt að 10 milljörðum króna á fimm árum eða 222 milljónum á hvern starfsmann bankans.

Breyttur kennslutími í grunnskólum borgarinnar

Töluverðar breytingar verða á skólatíma barna í öðrum til fjórða bekk í grunnskólum Reykjavíkur, sem verða settir eftir helgi. Í sumum tilvikum seinkar skólabyrjun um hátt í klukkustund, en víðast styttist dagurinn í hinn endann. Frístundaheimili eiga að taka við börnum fyrr en áður.

Krafa um bónusgreiðslur eins og blaut tuska framan í þjóðina

Að tala um bónusgreiðslur sem telja í milljörðum er eins og blaut tuska framan í þjóðina, segir formaður LSR um áætlun um milljarða bónusgreiðslur til starfsmanna Straums. Það eigi að semja um laun sem séu samboðin fólkinu í landinu og gera þá kröfu til starfsmannanna eins og annarra vinnandi manna að skila sinni vinnu fyrir þau laun.

Fíkniefnabrotum fækkar umtalsvert á milli ára

Skráðum fíkniefnabrotum á landinu í júlí hefur fækkað um 45 prósent á milli ára en 89 fíkniefnabrot voru skráð hjá lögreglunni í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Ríkislögreglustjóra sem tekur saman afbrotatölfræði og birtir mánaðarlega. Á síðasta ári var 161 fíkniefnabrot skráð hjá lögregluumdæmum landsins og hefur þeim raunar fækkað stöðugt í júlímánuði frá árinu 2005 þegar skráð brot voru 239.

Viðbrögð Breta og Hollendinga rædd í utanríkismálanefnd

Utanríkisráðherra og fjármálaráðherra komu á fund utanríkismálanefndar í morgun til að greina frá samskiptum við bresk og hollensk yfirvöld, hin Norðurlöndin og Evrópusambandið í kjölfar afgreiðslu fjárlaganefndar á Icesave málinu.

Meintur morðingi á Litla Hrauni

„Það er ekkert hægt að gefa upp að svo stöddu,“ segir yfirlögregluþjónninn Friðrik Smári Björgvinsson varðandi rannsóknina á morði sem var framið í Dalshrauni að kvöldi mánudagsins.

Flytja grásleppu til Kína

Fyrirtækið Triton ehf hefur hafið landvinninga í Kína en þangað hafa þeir flutt Grásleppu en útflutningurinn er afleiðing þátttöku fyrirtækisins í vörusýningum í Kína og Kóreu. Triton hefur reynt að hasla sér völl síðan árið 2005 í útflutningnum.

Rafmagnslaust í nágrenni Reykjavíkur

Fyrir stundu varð bilun sem veldur rafmagnsleysi á Lögbergslínu, á Hellisheiði, í Bláfjöllum og á Miðdalslínu. Verið er að leita bilunarinnar og er búist við að rafmagnslaust geti orðið í um tvær klukkustundir.

Ísland segir sig úr NASCO

Ísland ætlar að segja sig úr NASCO, sem eru Samtök um verndun villtra laxa á Norður-Atlantshafi.

Landsmönnum fækkar í fyrsta sinn í 120 ár

Íbúum Íslands fækkaði um 109 á einu ári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þeir voru 319.246 þann 1. júlí síðastliðinn en voru 319.355 fyrir ári síðan. Fækkunin nemur 0,03%. Langt er síðan íbúum Íslands hefur fækkað milli ára. Það átti sér síðast stað árið 1889.

Stefnt að Thriller-heimsmeti í Mexíkó

Aðdáendur Michael Jacksons Í Mexíkó stefna á að setja óvenjulegt heimsmet á afmælisdegi stjörnunar sem lést á dögunum. Þann 29 ágúst næstkomandi ætla rúmlega ellefu þúsund manns að koma saman í Mexíkóborg til þess að dansa Thriller dansinn svokallaða sem Jackson dansaði í myndbandi við samnefnt lag sem festi hann í sessi sem stjórstjörnu á níunda áratugi síðustu aldar.

Hillary róar Suður-Ameríkumenn

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna reynir nú að slá á áhyggjur ráðamanna í nokkrum ríkjum Suður Ameríku vegna áætlana Bandaríkjamanna um að koma upp herstöðvum í Kólombíu.

Geimskot í Suður-Kóreu

Suður Kóreumenn búa sig nú undir að skjóta á loft geimflaug í fyrsta sinn. Flaugin sem á að fara á loft nú í morgunsárið er hönnuð í samvinnu við Rússa og er henni ætlað að koma gerfihnetti á sporbaug um jörðu.

Sóttu erlendan ferðamann í Hrafntinnusker

Erlendur ferðamaður var við það að örmagnast vegna kulda og bleytu við Hrafntinnusker í gær og var óskað eftir aðstoð björgunarsveitarinnar á Hellu. Björgunarmenn sóttu ferðamanninn og fluttu hann fyrst í skála á svæðinu, þar sem komið var hlýju í hann.

Níu létust í árekstri flutningaskipa

Níu manns er saknað eftir að tankskip sem var að flytja 58 þúsund tonn af eldfimu efni rakst á annað flutningaskip í gær í á sundinu á milli Indónesíu og Malasíu. Eldur kom upp í skipinu en eigendur þess segja litlar líkur á því að innihald tanka þess fari í sjóinn. 25 eru í áhöfn skipsins sem skráð er í Líberíu.

Nítján ökumenn teknir um helgina

Nítján ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina, fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fikniefna. Langflestir, eða sautján voru teknir fyrir ölvunarakstur, samkvæmt samantekt lögreglunnar.

Stjórnarformaður OR: Hefur ríkið áhuga á HS Orku?

Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur hefur óskað eftir fundi með fjármálaráðherra vegna sölu á hlutabréfum í HS Orku. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér seint í gær segir að yfirlýst andstaða umhverfisráðherra og annara fulltrúa VG stangist á við afstöðu iðnaðarráðherra sem telji heppilegt að þessi sala fari fram. „Í því ljósi er mikilvægt fyrir Orkuveitu Reykjavíkur að vita hvort ríkið hafi raunverulegan áhuga á að eignast umræddan hlut eða ekki,“ segir Guðlaugur.

Óttast að arður af orku renni úr landi

Orkuveita Reykjavíkur (OR) ætti að grípa inn í einkavæðingarferli HS Orku og nýta forkaupsrétt sinn til að eignast meirihluta í félaginu, segir Þorleifur Gunnarsson, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn OR. Hann óttast að arður af jarðvarma á Suðurnesjum renni að mestu úr landi eftir einkavæðingu HS Orku.

Ójöfnuður í norræna menntakerfinu

Fjárhagsstaða foreldra, búseta og félagslegar aðstæður virðast hafa síaukin áhrif á árangur grunnskólabarna, segir í Northern Lights on PISA 2006, nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar.

Ráðherra rólegur í skugga málshöfðana

Frá því að neyðarlögin voru sett síðasta haust hefur legið fyrir að það myndi reyna á lögmæti ýmissa aðgerða sem farið var í fyrir dómstólum, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.

Hundrað dagar í hallærinu

Hundrað dagar voru í gær liðnir frá því að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna tók við völdum. Ólíklegt er að nokkur stjórn hér á landi hafi þurft að takast á við jafn krefjandi verkefni; endurreisn peningakerfis og uppbyggingu samfélags í efnahagslegu hallæri. Stjórnin setti sjálfri sér strax virkt aðhald með því að birta 100 daga verkefnaskrá. Ekki hefur tekist að ljúka öllum verkefnum á skránni.

Erfið verkefni og miklu ólokið

„Ríkisstjórnin hefur staðið í miklum ólgusjó og ef allrar sanngirni er gætt hefur hún staðið vaktina sæmilega miðað við allar aðstæður,“ segir Úlfar Hauksson, stjórnmálafræðingur við Háskólann í Reykjavík. Hann vísar í lista yfir þau verkefni sem ríkisstjórnin hefur unnið á 100 dögum og segir vel að verki staðið að hafa náð að uppfylla hann að mestu miðað við aðstæður.

STEF-gjöld fyrir bekkjarmót

Aðstandendur bekkjarmóts 1963-árgangs Hólabrekkuskóla þurfa að greiða leyfisgjald til STEF vegna tónlistarflutnings í veislunni. Skólamótið verður haldið 5. september næstkomandi og var aðstandendum sent bréf þar sem þeir voru minntir á leyfisgjald STEF, vegna auglýsingar sem birtist í Fréttablaðinu 12. ágúst.

Bæjarstjóra langar í brauð

Grindavík Bæjarstjórinn í Grindavík, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, hefur sótt um embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi.

Anders Fogh heimsækir Ísland

Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim á fimmtudag. Er þetta fyrsta heimsókn nýs framkvæmdastjóra NATO til aðildarríkis bandalagsins.

Meintur morðingi í gæsluvarðhald til 1. september

Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. september. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið manni að bana í Dalshrauni í Hafnafirði í gærkvöld. Gæsluvarðhaldið er á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Erum að komast á beinu brautina, segir Jóhanna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á hundrað daga starfsafmæli ríkisstjórnarinnar í dag að endurreisn íslensks efnahagslífs yrði komin á beinu brautina í kringum næstu mánaðamót.

Nýr verktaki á Lyngdalsheiði

Vinna við gerð nýja vegarins um Lyngdalsheiði er hafin á ný eftir að Vegagerðin féllst á að nýr verktaki tæki yfir verksamning Klæðningar.

Óvíst hvort viljayfirlýsing um Bakka verði framlengd

Sex vikum áður en viljayfirlýsing milli stjórnvalda og Alcoa um álver við Húsavík rennur út ríkir fullkomin óvissa um hvort hún verði endurnýjuð, þrátt fyrir eindreginn vilja Alcoa. Efasemdir eru í ríkisstjórninni og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur mjög dvínandi líkur á Bakkaálveri.

Sjá næstu 50 fréttir