Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öguð hagstjórn forsenda fastgengis „Að taka upp fastgengi er ekki eitthvað sem við getum ákveðið að gera á morgun,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að í tengslum við stöðugleikasáttmálann hafi verið rætt um möguleikann á því að taka upp fastgengisstefnu, enda sé núverandi peningamálastefna komin í þrot. 2.6.2009 06:00
Fólk hugi að réttindamissi Fólk á ekki að vera hrætt við að skrifa undir skuldbreytingar hjá nýju bönkunum, segir Guðjón Rúnarson, formaður Samtaka fjármálafyrirtækja. Nær útilokað sé að bankarnir fari að nýta sér þær undirskriftir gegn hugsanlegum málshöfðunum í framtíðinni. 2.6.2009 06:00
Sársaukafullar aðgerðir fram undan Á næsta hálfa ári á að draga úr fjárlagahallanum um tuttugu milljarða króna. Það er aðeins byrjunin, því rætt er um að alls þurfi að stoppa í 170 milljarða króna gat. Umræða síðustu mánaða hefur gert flesta ónæma fyrir háum upphæðum og er því ekki úr vegi að setja tuttugu milljarða í samhengi við útgjöld ríkisins. Heildarfjárlög ársins 2009 nema 556 milljörðum króna. 2.6.2009 06:00
Motzfeldt of drukkinn í flug Jonathan Motzfeldt, fyrrverandi formaður grænlensku landstjórnarinnar, fékk ekki að fara um borð í þyrlu, sem var á leið frá Qaqortoq til Narsarsuaq um miðjan maí, þar sem hann þótti of drukkinn. 2.6.2009 05:00
Enn óljóst með endurgreiðslur Ekki liggur fyrir hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefur endurgreitt 30 milljóna króna styrk frá Fl-Group og 25 milljóna styrk frá Landsbankanum sem flokkurinn fékk árið 2006. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði fyrir kosningar að þessir styrkir yrðu endurgreiddir fyrir 1. júní. 2.6.2009 05:00
Sonur minn er hetja „Sumir hefðu líklega lyppast niður og ekki getað gert neitt, en Viktor sýndi að hann kann að bregðast rétt við í hættuástandi. Ég er mjög stolt af honum og finnst hann vera hetja,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, sem býr ásamt manni sínum, Leifi Birni Björnssyni, og börnum við Lækjarhvamm í Hafnarfirði. 2.6.2009 04:15
Bankarnir sagðir koma í veg fyrir fasteignaviðskipti Fasteignasalar óska eftir því að bankar skýri þau sjónarmið sem ráði ákvörðunum þeirra varðandi fasteignalán, veðflutninga og yfirtökur. 2.6.2009 04:00
Hitti Dalai Lama fyrir nær hálfri öld Sigurður A. Magnússon rithöfundur vonast til þess að endurfundir verði með honum og Dalai Lama en þeir hittust árið 1960 í Efra Dharamsala á Indlandi. Þá var Dalai Lama 25 ára og hafði verið eitt ár í útlegðinni sem hófst þegar Kínverjar brutu á bak aftur uppreisn Tíbeta. Sú uppreisn hafði staðið yfir í níu ár, eða frá því að Kínverjar hernámu landið árið 1950. 2.6.2009 04:00
Gerði mistök en leiðrétti þau Talið hefur verið víst að Gordon Brown láti Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, fara eftir Evrópuþingskosningarnar í þessari viku. Annað var hins vegar uppi á teningnum í gær. 2.6.2009 04:00
Fyrningarleiðin sögð glapræði Bæjarstjórn Vesturbyggðar segist hafa þungar áhyggjur af óvissu sem komin sé upp í sjávarútvegsmálum með hugmyndum um fyrningarleið og um að fella niður byggðakvóta. 2.6.2009 04:00
Feðgum smyglað frá Rússlandi Deila er komin upp milli finnskra og rússneskra stjórnvalda eftir að sendiráðsstarfsmaður Finna í Sankti Pétursborg í Rússlandi smyglaði nýlega föður og ungum syni hans frá Rússlandi yfir landamærin til Finnlands í skottinu á bíl sínum. 2.6.2009 04:00
Segir ráðuneyti hafa lokaorðið Kristján Sveinbjörnsson, sem sagði af sér sem forseti bæjarstjórnar Álftaness í desember og dró sig í hlé sem bæjarfulltrúi, segir málinu um endurkomu sína í bæjarstjórn ekki lokið þótt bæjarstjórnin líti þannig á að hann geti ekki tekið sæti sitt aftur á þessu kjörtímabili. 2.6.2009 03:45
Mínuslausn segir ASÍ Viðræður fulltrúa Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um kjaramál halda áfram í dag eftir hlé um hvítasunnuhelgina. Mikið bar í milli um lausn málsins fyrir helgi. 2.6.2009 03:30
Dómur hafnar kröfu fríríkisins Eystri landsréttur í Danmörku hefur nú úrskurðað að fríríkið Kristjanía hafi ekki landnýtingarréttinn á svæðinu þar sem fríríkið stendur. 2.6.2009 03:00
Hvetja fólk til að velja íslenskt „Okkur líður bara mjög vel með þetta. Það má segja í dag, eftir allt sem er búið að ganga, að þau eru ekki mörg fyrirtækin sem ná fimmtíu ára aldri,“ sagði Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar, ánægður með fimmtíu ára afmælið. 2.6.2009 03:00
Grefur undan friði í heiminum Norður-kóresk stjórnvöld undirbúa nú að skjóta annarri eldflaug á loft, þrátt fyrir alþjóðlega gagnrýni. Talið er að henni verði skotið á loft í kringum 16. júní og hún sé af sömu gerð og sú sem var skotið upp 5. apríl síðastliðinn. 2.6.2009 02:00
Botsvana með mesta lýðræðið Fleiri Afríkubúar vilja nú lýðræði en áður. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í nítján löndum álfunnar hefur stuðningsmönnum lýðræðis fjölgað um fimm prósent síðan 2005, þegar fjörutíu prósent afrískra borgara vildu lýðræði. 2.6.2009 02:00
Barnslík fannst í bakpoka Maður og kona fundust látin á Englandi í gærkvöldi en talið er að þau hafi framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af háum kletti í Eastbourne, East Sussex. Bifreið sem talin er hafa verið í eigu þeirra fannst á klettabrúninni. Lögreglumaður sem kom að fólkinu sá að tveir bakpokar lágu í seilingarfjarlægð frá líkunum. Hann opnaði annan bakpokann og sá þá eitthvað sem hann hélt að væri höfuð af dúkku. Þegar hann gáði betur kom í ljós að þetta var höfuð af litlum dreng sem var inni í bakpokanum. 1.6.2009 22:30
Hestur steig á höfuð á barni Lögreglan í Borgarnesi fékk tilkynningu klukkan þrjú í dag um að hross hefði stigið á höfuð á litlu barni. Slysið átti sér stað í Lerá- og Melasveit en barnið var flutt með sjúkrabíl í hvelli til Reykjavíkur. 1.6.2009 17:56
Eðlilegt að skattahækkanir skili sér strax í bensínverð Forstjóri N1 segir eðlilegar skýringar á því að skattahækkanir á bensíni skili sér svo fljótt inn í bensínverðið. Neytendatofa sendi olíufélögunum fyrirspurn vegna málsins í gær. 1.6.2009 18:45
Ámælisvert að viðskiptanefnd hafi ekki verið gerð grein fyrir hótunarbréfinu Formaður viðskiptanefndar segir það ámælisvert að nefndinni hafi ekki verið gerð grein fyrir hótunarbréfi þýskra stjórnvalda áður en hún samþykkti lagabreytingu sem heimilar að þýskum Edge innistæðueigendum verði greitt fyrr en ella. Í bréfinu var ýjað að því að ef þjóðverjar fengu ekki greitt hið snarasta myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum íslendinga við evrópusambandið og alþjóða gjaldeyrissjóðinn. 1.6.2009 18:30
Dalai Lama fær að hitta utanríkismálanefnd Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíbeta og friðarverðlaunahafi Nóbels, heimsækir Alþingi á morgun. Þar mun forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, taka á móti honum og eiga með honum fund ásamt þingmönnum í utanríkismálanefnd. 1.6.2009 15:52
Þrír danir um borð í vélinni Christian Kønigsfeldt sendiherra Danmerkur í Brasilíu segir að þrír danir hafi verið um borð í farþegaflugvél Air France sem óttast er að hafi hrapað rétt fyrir utan Brasilíu í nótt. Vélin var á leið frá Rio de Janero til Parísar. Óttast var að fleiri danir væru um borð fyrr í dag. 1.6.2009 15:30
ESB-ríki geta sett lög um hverjir eiga og reka lyfjabúðir Evrópudómstóllinn hefur úrskurðað að ríkjum sambandsins sé heimilt að setja lög sem skilyrða hverjir megi eiga og reka lyfjabúðir. Dómurinn var kveðinn upp eftir að Þjóðverjar settu í lög að lyfjaverslanir mættu eingöngu vera í eigu lyfjafræðinga.Þessi niðurstaða veldur eigendum verslanakeðja með lyf miklum vonbrigðum, þar sem þeir höfu vonast til að geta fært út kvíarnar til ríkja sem hafa haft takmarkanir sem þessar í lögum. 1.6.2009 14:47
Bílvelta á Hrunavegi við Flúðir Bílvelta varð á Hrunavegi rétt við Flúðir um hálf eitt leytið í dag. Ein kona var í bílnum en hún var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki vitað um meiðsli konunnar né hvernig bílveltan bar að. 1.6.2009 14:27
Forsetinn hittir forseta Kýpur Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú taka í kvöld, mánudaginn 1. júní, þátt í setningarathöfn Smáþjóðaleikanna sem haldnir eru á Kýpur. Ríflega 170 Íslendingar taka þátt í leikunum: íþróttamenn, þjálfarar, dómarar, fararstjórar og forystufólk Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. 1.6.2009 14:18
Eldur í bíl í Rockville - myndband Eldur kom upp í bíl á Rockvillesvæðinu svokallaða í grennd við Sandgerði í gærkvöldi. Nokkur ungmenni léku sé að því að spóla þar á planinu að sögn fréttamiðilsins www.245.is. Leikur ungmennanna endaði með því að eitt dekkið sprakk og eigandi bílsins fór að huga að dekkinu, þá heyrðist smellur í vélinni og um leið kom upp eldur. 1.6.2009 13:13
Líklegt að vélin hafi orðið fyrir eldingu Talið er að farþegaflugvél með 228 manns innanborðs sem var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar hafi orðið fyrir eldingu en allt fjarskiptasamband slitnaði við vélina í nótt. Leit er nú hafin að vélinni við litla eyju við stendur Brasilíu. 1.6.2009 12:59
Fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama trúarleiðtoga Tíbeta sem kom til landsins í gærkvöldi. Hún gagnrýnir einnig forgangsröðun forseta Íslands, sem hafi boðið Mörthu Stewart um landið en sé ekki viðstaddur þegar trúarleiðtogi útlægrar þjóðar Tíbeta heimsækir Ísland. 1.6.2009 12:17
Mun óska frekari upplýsinga um viðskipti Gunnars Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hyggst vafalítið óska eftir frekari upplýsingum um viðskipti verktakafyrirtækisins Klæðningar við Kópavogsbæ, á meðan það var í eigu þáverandi bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna, Gunnars Birgissonar bæjarstjóra. 1.6.2009 12:06
Líklegt að Darling verði látinn fjúka Gordon Brown segir að hann muni ekki láta af embætti forsætisráðherra Bretlands þótt stjórn hans sé rúin trausti. Hins vegar er líklegt að Alastair Darling fjármálaráðherra verði látinn fjúka. 1.6.2009 12:01
Sjálfsvígum ekki fjölgað hér á landi Undanfarin ár hafa sjálfsvíg verið um 30 talsins. Árið 2005 voru þau 24 talsins, 32 árið 2006, 37 árið 2007 og 28 árið 2008. Á síðustu 4 mánuðum eru aðeins skráð 5 tilvik, sem er talsvert minna en á sama tímabili á undanförnum árum. Samkvæmt óstaðfestum tölum frá slysadeild Landspítala ber ekki heldur á fjölgun sjáfsvígstilrauna síðustu mánuðina. 1.6.2009 10:57
Farþegavél með 228 farþega hvarf yfir Atlantshafi Farþegaflugvél með 228 farþega innaborðs frá franska flugfélaginu Air France er saknað eftir að hún hvarf yfir Atlantshafinu. Vélin var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var á leið til París. Samkvæmt flugmálayfirvöldum á Charles de Gaulle flugvellinum í París misstu þeir samband við vélina um sex leytið í morgun. Það er BBC sem greinir frá. 1.6.2009 10:13
Húsráðandi kom að innbrotsþjófi Rétt fyrir klukkan fimm í gærdag kom húsráðandi að óboðnum gesti í húsi sínu, sá hafði týnt saman hluti sem hann hugðist stela og sett í hrúgu, kom til smá ryskinga milli þeirra og tókst húsráðanda að komast yfir til nágranna og hringja þar á lögreglu. 1.6.2009 10:00
Rukkaði ríkið fyrir skattaskýrslugerð Líkur á því að Alastair Darling fjármálaráðherra Bretlands sé á útleið hafa enn aukist eftir að dagblaðið Daily Telegraph upplýsti að hann sendi ríkisstjóði reikning fyrir að láta endurskoðanda gera skattskýrslu sína. 1.6.2009 10:00
Elísabet Fritzl komin með kærasta Austurrískir fjölmiðlar skýra frá því að Elísabet Fritzel hafi fundið ástina í fyrsta skipti. Sá útvaldi er einn af lífvörðum hennar. Faðir Elísabetar hélt henni í fangelsi í tuttugu og fjögur ár og eignaðist með henni sjö börn. Hún er nú fjörutíu og fjögurra ára gömul en kærastinn er sagður allnokkuð yngri. Þau eru sögð hafa hafið sambúð. 1.6.2009 09:56
Hollvinir Grensásdeildar gefa hitaborð Hollvinir Grensásdeildar hafa fært henni að gjöf hitaborð til að nota við framreiðslu á heitum mat fyrir sjúklinga á legudeildum á Landspítala Grensási. Gunnar Finnsson, formaður samtakanna, afhenti gjöfina fyrir nokkru. Hitaborðin eru frá fyrirtækinu Fastus sem jafnframt lagði sitt af mörkum með því að veita verulegan afslátt af þeim. 1.6.2009 09:50
Var að senda SMS, ók á ljósastaur og velti bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hóp drengja að skemma bifreiðar við Gullengi í nótt, höfðu þeir gert sér að leik að henda grjóti í bifreiðar, með þeim afleiðingum að framrúða var brotin, ljóskastarar og ökuljós tveggja bifreiða. Þá voru þær rispaðar og dældaðar. Þeir tóku á rás er lögregla kom en hún náði að hlaupa einn þeirra uppi. Hann reyndist vera einungis 14 ára gamall en samkvæmt lögum er ekki heimilt að vera úti einsamall á þessum tíma. Hann var færður á lögreglustöð og foreldrum gert að sækja drenginn. 1.6.2009 09:26
Dalai Lama kominn til landsins - myndir Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, sem verið hefur í útlegð í hálfa öld kom til Íslands rétt fyrir klukkan 21:00 í gærkvöldi frá Kaupmannahöfn. Lama var hinn hressasti við komuna í Keflavík og heilsaði viðstöddum með virktum að því er segir frá á fréttavef Víkurfrétta. 1.6.2009 09:17
Sóttu veika konu í portúgalskt farþegaskip í nótt Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var kölluð út kl. 02:35 í nótt þegar portúgalska farþegaskipið FUNCHAL hafði samband við StjórnstöðLandhelgisgæslunnar og óskaði eftir að 67 ára gömul veik kona yrði sótt um borð í skipið. Að mati þyrlulæknis var talið nauðsynlegt að sækja konuna. 1.6.2009 09:08
Síðasti eftirlifandi Titanic farþeginn látinn Síðasti eftirlifandi farþeginn af Titanic lést í gær 97 ára að aldri. Elisabeth Gladys Dean, sem oft var kölluð Millvina, lést á hjúkrunarheimili nærri Southampton, en þar hafði hún dvalið í boði Leonardo Di Caprio og Kate Winslet, sem léku aðalhlutverkin í Titanic myndinni. 1.6.2009 09:00
Sex menn fórust í átökum Hamas og Fatah Sex menn fórust þegar sérsveitir Fatah hreyfingarinnar börðust við Hamasliða í borginni Qalqilya á Vesturbakkanum í gær. Vefsíða breska blaðsins Telegraph segir að um sé að ræða verstu bardagar milli Palestínumanna, sem eiga sér stað utan Gaza, í mörg ár. 1.6.2009 08:00