Fleiri fréttir

Anna Frank daðraði við stráka og skipti stöðugt um hárgreiðslu

„Hún sagði sögur, daðraði svívirðilega mikið við stráka og var sífellt að skipta um hárgreiðslu.“ Þessi lýsing gæti átti við hvaða unglinsstúlku sem ólst upp í Evrópu. En svona er það sem Eva Schloss man eftir æskuvinkonu sinni Önnu Frank, sem hefði fagnað áttatíu ára afmæli sínu í þessari viku ef hún hefði ekki látið lífið í útrýmingarbúðum nasista.

Fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu flæktur í fíkniefnamál

Háttsettur fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu er meðal nítján annarra sem búist er við að eigi yfir höfði sér ákæru vegna flutnings á fíkniefnum á næstu dögum. Ríkisfjölmiðilinn þar í landi sagði í dag að Diarra Camara hafi verið meðal þeirra sem handteknir hafa verið eftir mikla rannsókn undanfarinna mánaða. Sonur Camara er einn hinna handteknu en þar má einnig finna aðra undirmenn hans í hernum.

Gekk sex sinnum upp á Esjuna í dag - líklega íslandsmet

Svanberg Halldórsson tuttugu og sjö ára gamall Reykvíkingur gekk sex sinnum upp á Esjuna í dag en hann byrjaði klukkan sex í morgun. Göngunni lauk í kvöld á milli 21:00 og 22:00. Gangan er tæpir 43 km en hún er liður í undirbúningi fyrir hinn svokallaða Glerárdalshring. Svanberg gekk til styrktar krabbameinssjúkum börnum.

Segir kosningarnar hafa verið algjörlega frjálsar

Mahmoud Ahmadinejad sem var endurkjörinn forseti Írans í gær segir að kosningarnar hafi veirð algjörlega frjálsar og heilbrigðar. Ahmadinejad var kosinn til næstu fjögurra ára en hann vísar þeirri gagnrýni á bug að einhver brögð hafi verið í tafli. Til átaka kom í höfuðborginni Teheran þegar ljóst úrslit kosninganna lágu fyrir en margir bjuggust við að Ahmadinejad myndi tapa kosningunum.

Laugin í Reykjanesi endurnýjuð

Búið er að steypa nýja sundlaug inn í gömlu laugina í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og er stefnt að því að hún verði opnuð sem ný fyrir næstu helgi.

Fjárlagagatið brúað með skattahækkunum

Fjárlagagatið á þessu ári verður að mestu brúað með skattahækkunum og minna um niðurskurð að sögn forsætisráðherra. Ríkisstjórnin fundaði tvisvar í dag um ríkisfjármálin.

Aldrei fleiri fangar á Íslandi

Aldrei hafa fleiri fangar verið í fangelsum landsins en nú. Lágmarksöryggis er gætt, en ekki má mikið út af bregða, segir forstjóri Fangelsismálastofnunar.

Þriðji maðurinn segist óheppinn gjaldeyrisbraskari

Maðurinn sem lengst hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umsvifamiklu fíkniefnamáli segist eingöngu hafa flækst inn í málið þegar hann reyndi að hagnast á gjaldeyrisbraski.

Hnífsstungumaður í gæsluvarðhald

Maður sem stakk annan í húsi í Kópavogi í nótt var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19.júní í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Maðurinn sem er af erlendum uppruna stakk manninn á nokkrum stöðum en um tíma var fórnarlambið talið vera í lífshættu.

Stendur ekki til að loka Þjóðleikhúsinu

Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri segir ekki standa til að loka Þjóðleikhúsinu enda sé engin þörf á því. Viðgerðum á húsinu sé lokið og leikhúsið skarti sínu fegursta sem leikhús. Hún segir húsið virka fullkomlega þó til standi að byggja við og tæknivæða leikhúsið enn frekar. Tinna segir miklar viðgerðir hafa staðið yfir undanfarin ár en í þær hafi verið ráðist eftir skýrslu sem var unnin um ástand hússins.

Átök í Teheran vegna úrslita forsetakosninganna

Til átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í Teheran, höfuðborg Írans, í dag eftir að tilkynnt var að Mahmoud Ahmadinejad hefði verið endurkjörinn forseti landsins í kosningum í gær.

Býst ekki við niðurstöðu fyrr en seint í næstu viku

Ríkisstjórnin fundaði með aðilum vinnumarkaðarins og fulltrúum sveitarfélaga í Ráðherrabústaðnum klukkan eitt í dag vegna stöðugleikasáttmálans og um væntanlegar aðgerðir til að ná niður halla ríkissjóðs.

Vilhjálmur Þ. ekki í einkaþotu Björgólfs

Í bókinni „Íslenska efnahagsundrið" kemur fram að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri hafi farið í einkaþotu á vegum Björgólfs Guðmundssonar á leik með West Ham í London árið 2006. Höfundur bókarinnar Jón Fjörnir Thoroddsen hefur hinsvegar sent frá sér yfirlýsingu þar sem þetta er harmað. Haukur Leósson fyrrum stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur var heimildarmaðurinn fyrir ferðinni.

Mugison fær styrk til að búa til nýtt hljóðfæri

Tonlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hefur fengið styrk upp á 1,4 milljónir króna frá Menningarráði Vestfjarða til að búa til nýtt hljóðfæri. Styrkurinn var þó ekki einvörðungu fyrir þetta nýja hljóðfæri heldur jafnframt vegna útgáfu á plötu Mugisons þar sem hann syngur frumsamin lög á íslensku og fyrir tónleikaferð um landið þar sem hann hyggst leika á fimmtíu heimilum.

Feeney hreinsaður af ásökunum um aðild að morði

Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, hefur verið hreinsaður af ásökunum um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak.

Feeney grunaður um morð í Írak

Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, er grunaður um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak.

Ríkisstjórnin fundar með aðilum vinnumarkaðarins í dag

Ríkisstjórnin fundar með aðilum vinnumarkaðarins í dag vegna stöðugleikasáttmálans og um væntanlegar niðurskurðaraðgerðir til að ná niður halla ríkissjóðs. Forsætisráðherra vonast eftir breiðri sátt um aðgerðir en segir að enginn verði þó ánægður.

Stöðvaðir með fíkniefni sem ætluð voru til sölu á Akureyri

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði bíl á leið norður Vesturlandsveg um fimm leytið í morgun. Í bílnum voru tveir piltar um tvítugt og var ökumaðurinn grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Í kjölfarið var farið með piltana niður á lögreglustöð þar sem leitað var á þeim en einnig var leitað í bílnum. Á öðrum piltanna fundust fíkniefni og einnig í bílnum.

Iceasave-samningum mótmælt á Austurvelli í dag

Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli í dag klukkan 14:00. Þar verður haldið áfram að mótmæla umdeildum Icesave-samningum sem stjórnvöld hafa gert við Bretland og Holland. Tæplega 29.000 manns eru nú meðlimir á facebook, gegn Icesave samkomulaginu.

Eva Joly lítur á alla bankamenn og útrásarvíkinga sem glæpamenn

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður skrifar grein á Pressuna í dag undir fyrirsögninni, She ain´t a Jol(l)y good fellow, en þar fer hann mikinn í umfjöllun um ráðgjafa sérstaks saksóknara Evu Joly. Sigurður segir hana hafa verið kostaða hingað til lands af Agli Helgasyni og fleirum til að spjalla um bankahrunið. Þjóðin hafi heillast af málflutningi hennar sem og ríkisstjórnin sem hafi ráðið hana til starfa.

Norður-Kórea hótar að smíða kjarnorkusprengjur

Stjórnvöld í Norður-Kóreu hóta því að smíða kjarnorkusprengjur úr plútónbirgðum sínum og hefja aftur auðgun úrans samkvæmt kjarnorkuátælun sinni. Þetta er svar Norður-Kóreumanna við einróma ákvörðun öryggisráðs

Ahmadinejad endurkjörinn forseti Írans

Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti Írans í kosningum í gær þar sem áttatíu prósent kosningabærra Írana greiddu atkvæði. Samkvæmt yfirlýsingu kjörstjórnar er búið að telja um áttatíu prósent atkvæða og Ahmadinejad fengið sextíu og fimm prósent þeirra en helsti andstæðingur hans, Mír Hossein Músaví, leiðtogi umbótasinna og fyrrverandi forsætisráðherra Írans, aðeins þrjátíu og tvö prósent atkvæða.

Ungir framsóknarmenn í Kópavogi vilja að Ómar leiði mál til lyktar

Ungir framsóknarmenn í Kópavogi segjast telja að komið hafi verið til móts við óskir sínar í málefnum Gunnars Birgissonar bæjarstjóra og viðskiptum hans við Frjálsa miðlun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem telur málið vera komið í réttan farveg.

Stunginn í Kópavogi í nótt

Karlmaður var um tíma talinn í lífshættu eftir að hafa verið stunginn með hníf í Kópavogi í nótt. Hann var fluttur á slysadeild með stungusár víða um líkamann en er nú úr lífshættu.

Loka þarf Þjóðleikhúsinu í tvö leikár

Ástand Þjóðleikhússins er svo slæmt að það þyrfti að loka því í tvö ár til að ráðast í nauðsynlegar milljarðaendurbætur. Þá er brýnt að byggja við húsið eigi að koma í veg fyrir áframhaldandi hallarekstur. Þetta kemur fram í skýrslu sem sérfræðingar frá þýska fyrirtækinu Gerling+Arendt Planungsgesellschaft skilaði um málið í ágúst 2006.

Fasteignamat lækkar í raun um tíu prósent

Heildarmat fasteigna lækkar um 0,3 prósent á árinu 2010 samkvæmt nýju mati frá Fasteignaskrá Íslands. Ný reikniaðferð var hins vegar tekin í gildi fyrir árið 2010 og mætti áætla að munurinn sé í raun 10 prósent, að sögn Þorsteins Arnalds, aðstoðarframkvæmdastjóra mats- og hagsviðs Fasteignaskrár Íslands. Í gamla matinu hafi verið kerfisbundin skekkja.

Kaupþingsgögnin voru sótt í vetur

Gögn um niðurfellingu á persónulegum ábyrgðum lykilstarfsmanna Kaupþings töfðust mánuðum saman á leiðinni frá embætti ríkissaksóknara til sérstaks saksóknara.

Flensan smitast milli manna

Fjórða tilfelli svínainflúensunnar svokölluðu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri. Allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn, að því er segir í tilkynningu frá sóttvarnalækni og Almannavörnum. Hjónin greindust bæði með veikina.

Mestir möguleikar til að draga úr notkun gróðurhúsalofttegunda eru í sjávarútvegi

Mestir möguleikar til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda liggja í sjávarútvegi, án tillits til kostnaðar. Talið er að tæknilega sé hægt að draga úr útstreymi vegna fiskimjölsframleiðslu um 100 prósent með rafvæðingu og draga úr útstreymi fiskiflota landsins um 75 prósent með aukinni notkun lífeldsneytis og orkusparnaðar. Þetta kemur fram í aðgerðaskýrslu sérfræðinganefndar á vegum umhverfisráðuneytisins, sem birt var í gær.

Finna ekki skip í staðinn fyrir Herjólf

Erfiðlega gengur að finna ferju sem gæti leyst Herjólf af þegar hann verður settur í slipp í byrjun september næstkomandi. Eistneska ferjan St. Ola sem hlaupið hefur í Herjólfs skarð síðustu ár er ekki til taks að þessu sinni. Ráðgert er að viðgerðin taki tvær vikur en Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjabæ, segir að af fenginni reynslu megi búast við því að Herjólfur verði frá í þrjár til fjórar vikur.

Hálf milljón til tækjakaupa

Lionsklúbburinn Eir hefur fært fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 500 þúsund krónur að gjöf. Peningunum verður varið til kaupa á tækjum og búnaði fyrir deildina og hefur hluta þeirra þegar verið ráðstafað.

Fjárframlög aukin í rannsókn á hruninu

„Við munum efla embættið og væntanlega fjölga saksóknurum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með blaðamönnum í gær.

Viðskiptafélagi Sigurðar átti bátinn

Gúmmíbáturinn sem notaður var til að sækja 109 kíló af fíkniefnum út í Papey í apríl er í eigu viðskiptafélaga Sigurðar Ólasonar, sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um peningaþvætti, tengsl við alþjóðlegan glæpahring og aðild að fíkniefnasmygli.

Undirskriftir gegn sorpi á Suðurlandi

Íbúar í nágrenni sorpurðunarstaðar Sorpstöðvar Suðurlands í landi Kirkjuferju­hjáleigu hafa hafið undirskriftasöfnun gegn framlengingu starfsleyfis stöðvarinnar á umræddu svæði. Undirskriftirnar verða sendar Umhverfisstofnun.

Græða með símaskrám

Við Flugvallarveg í Reykjavík er nýhafin tilraun til uppgræðslu með gömlum símaskrám. Það eru fyrirtækin Já, sem gefur út Símaskrána, Flögur og Sáning sem standa saman að tilrauninni.

Aðstoða fólk án endurgjalds

Tíu manna hópur á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið sig saman og býður þeim sem á þurfa að halda ókeypis aðstoð. Um er að ræða innkaup, gluggaþvott, reiðhjólaviðgerðir, garðahreinsun, matreiðslu og fataviðgerðir.

Engar tillögur, ekkert á pappír

„Það hafa engar konkret tillögur komið fram, ekkert á pappír, ekkert konkret,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann var inntur frétta af samráðsfundum ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í Karphúsinu.

Tók á sprelllifandi en ljúfum hákarli

Áhöfnin á Vestmannaey VE fékk stóran hákarl í botnvörpuna á miðvikudagsmorgun. „Ætli hann sé ekki um átta til tíu metrar á lengd,“ segir Magnús Berg Magnússon háseti. „Hann var sprelllifandi svo ég nýtti tækifærið og tók aðeins á honum, svona til að geta sagt að ég hefði barist við lifandi hákarl,“ segir hásetinn og hlær við. „Annars virðist þetta vera hið ljúfasta grey þótt stór sé.“ Magnús Berg hefur stundað sjóinn á sumrin til margra ára.

Fara eftir settum reglum

„Við höfum hagað okkar málum á sama hátt og við höfum alltaf gert,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi. Í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær kom fram að Fjármálaeftirlitið (FME) ætli að rannsaka álfyrirtækin sérstaklega til að kanna hvort þau hafi á einhvern hátt brotið lög um gjaldeyrisviðskipti. Ólafur neitar því alfarið að Alcan hafi á einhvern hátt farið framhjá þeim gjaldeyrishöftum sem sett voru í vetur.

Lýsa báðir yfir sigri

Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad og keppinautur hans Mirhossein Mousavi hafa báðir lýst yfir sigri í forsetakosningum í landinu.

Japanskir dúnkaupmenn skoða gersemar

Æðarbændur vonast til að góðæri haldist í greininni og þeir fái áfram hátt verð fyrir dúninn, þrátt fyrir kreppu í kaupendahópi ríka fólksins í heiminum, og binda vonir við komu tíu japanskra dúnkaupmanna til Íslands um helgina.

Tekist á um bæjarstjórastólinn í Kópavogi

Valdabarátta hefur blossað upp milli tveggja bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna í Kópavogi um hver taki við bæjarstjórastarfinu af Gunnari Birgissyni, sem boðist hefur til að víkja til að meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks haldi.

Frystingu á eignum Landsbankans í London aflétt á mánudag

Nú hefur verið staðfest að frystingu á eignum Landsbankans í Lundúnum verður aflétt á mánudaginn 15. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu breska fjármálaráðuneytisins. Þar segir að frystingunni sé afleitt vegna Icesave samkomulagsins svokallaða sem íslensk stjórnvöld gerðu á dögunum við bresk og hollensk stjórnvöld.

Sjá næstu 50 fréttir