Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikil ásókn í sveitastörf Mikil ásókn er í sveitastörf í sumar, ólíkt því sem verið hefur. Bændablaðið kannaði hvernig viðbrögð hafi verið við atvinnuauglýsingum bænda upp á síðkastið og kom þá í ljós að margfalt fleiri svöruðu auglýsingunum en undanfarin ár. 15.5.2009 07:09
Bílvelta í Seljahverfi Bíll valt í Seljahverfi í Reykjavík á sjötta tímanum í morgun. Tveir ölvaðir menn voru í bílnum og sluppu nær ómeiddir en bíllinn stórskemmdist. 15.5.2009 07:07
Innbrotsþjófar gripnir glóðvolgir Tveir þjófar voru gripnir glóðvolgir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru þeir nú á bak við lás og slá. Fyrst stóð lögreglan mann að verki þar sem hann var að stinga upp glugga á einbýlishúsi í Hólahverfi. 15.5.2009 07:04
Aftur boðið í réttinn á enska boltann „Ég vænti þess að nýtt útboð fyrir enska boltann fari í gang fljótlega, og við munum taka þátt í því. Við gerum okkur vonir um að halda sýningarréttinum á þessu vinsæla efni áfram, en á viðráðanlegum kjörum,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365. 15.5.2009 05:45
Biðlistar í afplánun þrefaldast á sex árum Fólki sem bíður eftir að komast í afplánun í fangelsum landsins hefur fjölgað úr 53 árið 2003 í 182 nú. Skýringin er þynging refsidóma, segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Meðalrefsitími hafi til dæmis lengst um þriðjung frá árinu 2006. 15.5.2009 03:45
Allar norðurlandaþjóðirnar keppa til úrslita í Eurovision Alexander Rybak sem keppir fyrir Noreg í Eurovision komst áfram í úrslitin sem fara fram á laugardagskvöldið. Alexander hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu, ekki síst hjá okkur íslendingum. Noregur komst áfram ásamt níu öðrum þjóðum. Þar með er ljóst hvaða tuttugu og fimm þjóðir það verða sem keppa í úrslitunum. Allar norðurlandaþjóðirnar fimm keppa í til úrslita því Danmörk fór einnig áfram í kvöld. Í gær fóru Svíþjóð, Finnland og Ísland áfram. 14.5.2009 20:50
Biður páfa um að fordæma Íran Benjamin Netanyahu nýr forsætisráðherra Ísraels segist hafa beðið Benedikt páfa um að fordæma hótanir Írans um að tortíma landi sínu. Hann segist hafa beðið páfa á fundi þeirra í Nasaret um að tala gegn forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sem hefur kallað eftir eyðileggingu Ísraels. 14.5.2009 23:21
Styrkleiki maríjúana eykst í Bandaríkjunum Meðalstyrkleiki maríjúana í Bandaríkjunum, sem hefur aukist jafnt og þétt síðustu þrjá áratugi, hefur í fyrsta sinn náð 10 prósentum. Stjórnvöld þar í landi tilkynntu þetta í dag að sögn CNN. 14.5.2009 22:00
Fundinn Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti í kvöld eftir Jóhannesi Sturlu Guðjónssyni en ekki hafði til hans spurst síðan kl.15:00 í dag en þá sást hann í Mosfellsbæ. Jóhannes er nú fundinn heill á húfi. 14.5.2009 23:07
Lýst eftir 46 ára gömlum karlmanni Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhannesi Sturlu Guðjónssyni en ekki hefur til hans spurst síðan kl.15:00 í dag en þá sást hann í Mosfellsbæ. Jóhannes er 46 ára gamall, meðal maður á vöxt, ca 180 cm hár, klæddur í gráa úlpu og með bláa hliðartösku. 14.5.2009 21:52
Heimilislaus Slumdog stjarna - rekinn út með priki Heimili einnar barnastjörnunnar úr Óskarsverðlaunamyndinni, Viltu vinna milljarð (Slumdog Millionaire), í Bombay hefur verið rifið niður af yfirvöldum. Fréttir herma að lögreglan hafi slegið strákinn, Azharuddin Mohammed Ismail, með bambuspriki áður en þeir skipuðu honum að yfirgefa heimilið. Yfirvöld hafa haldið því fram að hann og aðrir meðlimir fjölskyldu hans hafi sest að á landi í eigu yfirvalda án leyfis. 14.5.2009 20:07
Smuga á umferðarlögunum Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms Vesturlands yfir karlmanni sem ákærður var fyrir brot á umferðarlögum. Maðurinn var ákærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fyrir dómi sagðist hann hinsvegar hafa verið í bíl kvöldið áður en hann var stöðvaður þar sem hópur fólks reykti kannabisefni. Hann hafi ekki vitað að slíkt myndi leiða til þess að leifar af kannabis gætu mælst í þvagi hans daginn eftir. Sveinn Andri Sveinsson verjandi mannsins segir dóminn sérstakan en hann sé þó staðfesting á niðurstöðu héraðsdóms. Segja má að búið sé að finna smugu á umferðarlögunum. 14.5.2009 19:27
Þurfti að slá lán fyrir tannviðgerð á dóttur sinni Móðir fjögurra ára stúlku þurfti að greiða tæplega eitthundrað þúsund krónur fyrir tannviðgerð á dóttur sinni en fékk þriðjung endurgreiddan frá Tryggingastofnun. Hún þurfti að slá lán fyrir reikningnum og hefur enn ekki getað greitt það niður. 14.5.2009 19:10
Ástarljóð á Laugaveginum Hátt í aldargamalt ástarbréf frá einu af ástsælustu skáldum þjóðarinnar og rímuð ástarljóð eru á meðal þess sem nú má finna í verslunargluggum á Laugaveginum. 14.5.2009 19:04
Sakar stjórnendur Orkuveitunnar um þjófnað Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur eru æfir vegna fyrirhugaðrar 800 milljóna króna arðgreiðslu til hluthafa. Formaður Rafiðnarsambandsins sakar stjórnendur fyrirtækisins um þjófnað og krefst þess að Orkuveitan skili 400 milljónum sem hafðar voru af starfsmönnum með því að lækka laun þeirra. 14.5.2009 18:57
Á ekki von á tilslökunum Fyrrverandi fulltrúi hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir ólíklegt að sambandsþjóðirnar slaki á kröfum fyrir upptöku Evrunnar þótt Ísland gangi í sambandið. Þeir vilji ekki veikja gjaldmiðilinn. Hann telur að Ísland geti með aðild að ESB haft áhrif á mótun nýrrar fiskveiðistefnu sambandsins. 14.5.2009 18:55
Jón Bjarnason og Ragna Árnadóttir líklega fyrst út Líklegt þykir að Jón Bjarnason sitji aðeins skamman tíma á ráðherrastól og að hann hætti þegar nýtt atvinnuvegaráðuneyti verður stofnað, sem færi til Samfylkingar. Vinstri grænir fengju í staðinn ráðherra mannréttinda- og dómsmála og Ragna Árnadóttir hyrfi úr ríkisstjórn. 14.5.2009 18:49
Bjóða í olíuleit á Drekasvæðinu Norska olíufélagið Sagex Petrolium staðfesti síðdegis að það myndi leggja inn tilboð í olíuleit á Drekasvæðinu í samvinnu við íslenskt félag en frestur rennur út síðdegis á morgun. Tilboðin verða hins vegar ekki opnuð fyrr en á mánudag. 14.5.2009 18:26
Össur birtir ESB tillögu Tillögudrög Össurar Skarphéðinssonar sem kynnt voru á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í gær og á fundum utanríkisráðherra með formönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og fulltrúa þinghóps Borgara-hreyfingarinnar í dag hafa verið birt á vef Utanríkisráðuneytisins. Nokkur leynd hefur hvílt yfir tillögunni og voru formenn flokkanna bundnir trúnaði. Össur sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að drögin yrðu hugsanlega opinberuð í dag. Það hefur nú verið gert. 14.5.2009 18:08
Fulltrúi AGS nágranni Hannesar Smárasonar Franek Rozwadowski sendifulltrúi Aljþóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á landi er nágranni Útrásarvíkingsins Hannesar Smárasonar á Fjölnisveginum í Reykjavík. Franek þessi leigir glæsivillu af Ingibjörgu Þórðardóttur formanns félags fasteignasala á Fjölnisvegi 8 en líkt og margir vita á Hannes hús númer 9 og 11 við sömu götu. 14.5.2009 17:53
Ökumaður í reykfylltum kannabisbíl sýknaður Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms yfir karlmanni sem hafði verið ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákæruvaldið taldi manninn hafa sýnt af sér saknæma og refsiverða háttsemi er hann ók bifreið í umrætt skipti eftir að hafa neytt fíkniefna með óbeinum reykingum nóttina fyrir hið meinta brot. Þá sat hann í lokaðri bifreið í allt að hálfa klukkustund á meðan aðrir, sem voru í bifreiðinni, neyttu þar kannabisefnis með reykingum. 14.5.2009 17:20
ESB-ályktun hugsanlega opinberuð í dag Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður hugsanlega opinberuð í dag, en hún verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku. Lítið ber á milli ríkisstjórnarinnar og framsóknarmanna í málinu. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa furðað sig á því af hverju leynd ríki yfir þingsályktuninni. Össur segist ekki hafa viljað láta ályktunardrögin fara frá sér fyrr en að hafa rætt þau við forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna. 14.5.2009 17:12
Stjórnarformaður OR: Arðgreiðslan stendur „Við viljum borga eigendum okkar arð svo þeir geti sett peningin út í samfélagið," segir Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur en trúnaðarmenn hennar hafa mótmælt harkalega 800 milljón króna arðgreiðslu á sama tíma og starfsmenn lækka í launum. 14.5.2009 16:52
Hvar er allt fólkið? Einmana hundur röltir um götur hérðshöfuðborgarinnar Buner í Pakistan. Íbúarnir hafa flúið átökin sem þar geisa milli stjórnarhersins og talibana. 14.5.2009 16:40
Boðað til mótmæla við Alþingishúsið á morgun Facebook hópur undir yfirskriftinni „Veitum flóttamönnum skjóta og sanngjarna málsmeðferð!“ efnir til mótmæla við Alþingi á morgun, á meðan á þingsetningu stendur. Þingsetning hefst klukkan hálftvö. 14.5.2009 16:06
Borgarfulltrúar hjóla í vinnuna Borgarfulltrúarnir í Reykjavík taka fullan þátt í heilsu- og hvatningarátakinu Hjólað í vinnuna. Íþróttasamband Íslands stendur ásamt samstarfsaðilum fyrir Hjólað í vinnuna í sjötta sinn og er markmiðið að vekja athygli á hjólreiðum sem hagkvæmum samgöngumáta sem einnig styrkir heilsu og bætir borgarbrag. 14.5.2009 16:03
Þjórsárvirkjanir: Svandís neitar að staðfesta breytingar á skipulagi Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra Vinstri grænna, neitar að staðfesta breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. 14.5.2009 15:55
Arðgreiðslur ræddar á stjórnarfundi á morgun „Það er best að ég tjái mig ekki um þetta," sagði stjórnarmaður Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, um fyrirhugaðar arðgreiðslur til eiganda Orkuveitunnar upp á 800 milljónir. 14.5.2009 15:51
Kosningar og stjórnarmyndun trufluðu borgarstjórnarstörf Dagur B. Eggertsson segist hafa þurft að víkja störfum í borgarráði og fjölskyldulífi til hliðar vegna kosningabaráttunnar fyrir þingkosningarnar og stjórnarmyndunarviðræður. 14.5.2009 15:35
I love New York Þegar talibanar í Afganistan hefja skothríð þjóta bandarískir hermenn á virkisveggina til þess að skjóta á móti. 14.5.2009 15:32
Öryggi barna verði tryggt þrátt fyrir kreppuna Mikilvægt er að hvergi verði slegið slöku við að tryggja öryggi barna ekki síst þegar íslenskt þjóðfélag á í efnahagslegri kreppu. Í slíku ástandi fjölgar oft á tíðum félagslegum vandamálum sem auka áhættu á að börn verði fyrir ofbeldi. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar samtakanna Blátt áfram sem haldinn var í gær. 14.5.2009 15:07
AAAAAHHHHHHHHH Þegar miklir hitar eru í Afríku elska fílar að kæla sig í vatnsbólum. Í Fíladelfíu í Bandaríkjunum er hinsvegar lítið um opin vatnsból. 14.5.2009 15:06
Ár frá skjálftanum mikla í Kína Ár er nú liðið frá því níutíuþúsund manns fórust í jarðskjálfta í Sichuan héraði í Kína. Fimm milljónir manna misstu heimili sín. 14.5.2009 15:00
Enginn er enn öruggur í Írak Átta manns létu lífið þegar bíl hlöðnum sprengiefni var ekið inn í lögreglurútu í bænum Kirkuk í Írak í gær. Það voru fimm lögreglumenn og þrír óbreyttir borgarar. 14.5.2009 14:48
Krufningsskýrsla lögð fram í morðmáli Matsmaður gaf skýrslu og fór yfir tiltekin matsatriði sem varðar rannsókn réttarmeinafræðings í morðmáli sem kom upp í Grímsnesi í nóvember á síðasta ári. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. 14.5.2009 14:26
Samningur um framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar Í dag undirrituðu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ), Heilsugæslustöðin á Akureyri (HAK) og Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) samning sem felur í sér að framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar á Eyjafjarðarsvæðinu fari fram á FSA. Samningurinn gildir til ársloka 2013. Undirritunin fór fram á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu. 14.5.2009 14:20
Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega. 14.5.2009 13:53
Sigmundur vildi frekar ræða herbergjaskipan en ESB Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vildi heldur ræða herbergjaskipan þingflokka í húsakynnum Alþingis en þingsályktunartillögu um aðildarviðræður á fundi formanna stjórnarflokkanna og forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Hún segir að þetta hafi komið sér verulaga á óvart. 14.5.2009 13:49
Alþingi sett á morgun Þingmenn koma saman á morgun þegar 137. löggjafarþing Alþingis verður sett. Þingsetningin hefst með guðsþjónustu klukkan hálftvö í Dómkirkjunni. Kjörin verður nýr forseti og formenn fastanefnda. 14.5.2009 13:42
Árborg eyðir milljónum í Facebook bann Árborg mun taka lán upp á þrjár milljónir til kaupa á internetsíu sem er meðal annars ætlað að hefta aðgang starfsmanna að Facebook. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær. 14.5.2009 13:24
Ekkert lát á blóðugum átökum á Srí Lanka Ekkert lát er á blóðugum átökum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígranna á norðurhluta Srí Lanka. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hvöttu í gær tígranna til að leggja niður vopn og hætta baráttu við stjórnarhermenn svo bjarga megi tugþúsundum almennra borgara sem enn eru innlyksa á bardagasvæðinu. 14.5.2009 13:13
Vinna á Lyngdalsheiði hafin á ný Verktakafyrirtækið Klæðning hefur á ný hafið vinnu við Lyngdalsheiðarveg milli Þingvalla og Laugarvatns en verkið stöðvaðist í síðasta mánuði þegar Lýsing hirti vinnuvélarnar vegna skulda. Klæðningarmenn segjast hafa fullan hug á að klára veginn og stefna að því að hann verði tilbúinn fyrir umferð í haust og kominn með slitlag næsta vor. Bæði hafi þeir nú flutt eigin tæki á Lyngdalsheiðina og verið sé að semja við undirverktaka og tækjaleigur um fleiri vinnuvélar. 14.5.2009 13:10
Aung San Suu Kyi dregin fyrir dóm í Búrma Stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi verður dreginn fyrir dóm í Búrma vegna óvæntrar heimsóknar Bandaríkjamanns á rammgirt heimili hennar. Suu Kyi hefur mátt dúsa þar í stofufangelsi svo árum skiptir. 14.5.2009 11:56
Ótrúlega lág tilboð berast Vegagerðinni Örvænting virðist hafa gripið um sig meðal verktaka og verkfræðistofa. Vegagerðin fékk í vikunni tilboð í verk allt niður í 43 prósent af kostnaðaráætlun. 14.5.2009 11:45
Rýr tillaga um aðildarviðræður Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, segir að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið sé öllu rýrari en hún hafi átt von á. Hún vill að leynd um tillöguna verði aflétt sem fyrst. Þá telur hún líklegt að erfiðlega muni reynast að ná samstöðu um tillöguna vegna afstöðu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. 14.5.2009 11:28