Fleiri fréttir

Sýking banar níu börnum

Heilbrigðisyfirvöld í Kína hafa fyrirskipað að gerð skuli ítarleg rannsókn í Shandong-héraðinu í austurhluta landsins til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu handa-, fóta- og munnsjúkdóms sem geisað hefur á svæðinu og dregið að minnsta kosti níu börn til dauða á tveimur vikum. Sjúkdómsins hefur ekki áður orðið vart á svæðinu.

Tveir hafa sagt sig úr stjórninni

Veruleg uppstokkun á sér stað á stjórn Íslenskrar ættleiðingar þessa dagana. Formaður félagsins náði ekki endurkjöri á aðalfundi sem haldinn var nýlega. Þá hafa tveir stjórnarmenn sagt sig úr stjórn og öllum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Annar stjórnarmaðurinn segir af sér þar sem hún sér sér ekki fært að starfa innan hinnar nýju stjórnar, samkvæmt fundargerð félagsins, og telur sig ekki njóta trausts félagsmanna, hinn segir af sér af persónulegum ástæðum.

Ráðuneytið of viðamikið

Karen Jespersen, ráðherra velferðarmála í Danmörku, hefur dregið sig í hlé þar sem of margir og mismunandi málaflokkar heyra undir ráðuneytið. Þetta hefur hún tilkynnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, að sögn Berlingske Tidende.

Langholtskirkju gefnar 17 milljónir króna

Langholtssöfnuði verða gefnar eftir 16,7 milljónir af 49,8 milljóna eftirstöðvum skuldar við Reykjavíkurborg. Borgarráð staðfesti samkomulag þess efnis á fimmtudaginn.

Samræmd úrræði í greiðsluerfiðleikum

Hætt hefur verið við að koma fasteignaveðlánum í skjól hjá Íbúðalánasjóði. Í staðinn er búið að samræma úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Unnið er að samræmingu vegna myntkörfulána og verður hún kynnt á næstu dögum.

Gæludýrin fá nýtt heimili

Í Garðheimum geta dýravinir orðið sér úti um gæludýr um helgina en Dýrahjálp Íslands stendur þar fyrir Ættleiðingardögum.

Fáir fengu þúsundir milljarða

Útlán til hundrað stærstu skuldara föllnu viðskiptabankanna var um helmingur heildar­útlána þeirra. Því er ljóst að um 300 aðilar hafa fengið að láni þúsundir milljarða í því ljósi að heildar­eignir bankanna, sem að stórum hluta eru útlán, námu tífaldri landsframleiðslu þegar mest var. Rannsóknarnefnd Alþingis vinnur nú að frekari greiningu á útlánum bankanna og þróun þessara lána með tilliti til trygginga og í hvað verið var að lána.

Málningu skvett á hús Hannesar

Rauðri málningu var í gær skvett á hús Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi. Sjálfur var Hannes ekki heima þegar spjöllin voru unnin en starfslið hans kallaði skjótt til málara til að lagfæra skemmdirnar.

LÍÚ mun bregðast við með aðgerðum

Framkvæmdastjóri LÍÚ trúir ekki að stjórnarflokkarnir láti verða af hugmyndum sínum um afturköllun aflaheimilda. Geri þeir það grípi útvegsmenn til aðgerða. Samfylkingin hefur ekki útfært hugmyndir sínar en vill ná sátt um kerfið.

Táragasi beitt

Lögregla beitti í gær táragasi til að dreifa grjótkösturum í liði mótmælenda, sem safnast hafa til Strassborgar við landamæri Frakklands og Þýskalands í tilefni af leiðtogafundi NATO sem þar fer nú fram.

Lögreglan drap 13 skæruliða

Yfirvöld á Srí Lanka segja að lögreglumenn hafi ráðist gegn hópi Tamíltígra og drepið þrettán þeirra í skotbardaga sem braust út í austurhluta landsins í gær.

700 fleiri konur á kjörskránni

Á kjörskrá vegna alþingiskosninganna í apríl eru 227.896 kjósendur, þar af eru konur 114.295 en karlar 113.601. Konur eru því 694 eða 0,6 prósentum fleiri en karlar, að því er fram kemur í tölum frá Hagstofunni. Í kosningunum 2007 voru 221.330 á kjörskrá. Fjölgunin nemur 3,0 prósentum.

Ekki fallið frá máli Króata

Dómari hjá stríðsglæpadómstólnum í Haag hefur hafnað því að falla frá máli er snýr að þremur króatískum hershöfðingjum sem eru sakaðir um að hafa myrt, ofsótt og hrakið Serba úr Króatíu árið 1995.

Segir forseta Alþingis taka við fyrirmælum frá Jóhönnu

Björn Bjarnason heldur áfram að gagnrýna Guðbjart Hannesson, forseta Alþingis, og segir hann ósjálfstæðan og hafa sýnt að hann eigi ekki síðasta orðið sem forseti heldur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Obama efnir kosningaloforð varðandi Kúbu

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hyggst efna eitt af kosningaloforðum sínum og afnema höft á fjármagnsflutningi og ferðaleyfi fjölskyldna til Kúbu. Hann mun þó ekki afnema 47 ára gamalt viðskiptabann Bandaríkjmanna. Frá þessu er greint í Wall Street Journal.

Brennuvargarnir í Eyjum játuðu

Þrír menn sem hafa verið í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna rútubruna í fyrrinótt hafa allir játað aðild að íkveikjunni. Einn mannanna er í Slökkviliði Vestmannaeyja og annar hefur sótt um inngöngu þar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Nagladekk óleyfileg eftir 15. apríl

Nagladekk eru óleyfileg undir bifreiðum eftir 15. apríl 2009. Nagladekk spæna upp malbik hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og eru áhrifamikill valdur að svifryksmengun í Reykjavík, að fram kemur í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

21 sjálfstæðismaður vill ræða stjórnarskrárfrumvarpið

Frumvarp um breytingar á stjórnarskránni er enn til umræðu á Alþingi en þingfundur hófst klukkan 11 í morgun. Málið var rætt fram yfir miðnætti í gær og lauk þingfundi ekki fyrir enn á þriðja tímanum í nótt. 21 sjálfstæðismaður auk Kristins H. Gunnarssonar eru nú á mælendaskrá og bíða þess að taka til máls.

Ástþór: Rifist um plástra sem passa á meiddið

„Ég verð að segja það í fyrsta lagi þá líður mér hérna eins og ég sé kominn á Borgarspítala og nýbúið sé að draga mig úr einhverjum rústum eftir stóran jarðskjálfta og hjúkkurnar á sjúkrastofunni eru að rífast um það um það hvaða plástrar passi á meiddið,“ sagði Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar.

Árásarmaðurinn sagður dáinn

Byssumaðurinn sem drap að minnsta kosti þrettán í bænum Binghamton í New York ríki í dag er sagður dáinn. Enn eru fregnir af atburðarásinni óljósar. Heimildir herma að maðurinn hafi verið einn af verki en um stund var talið að árásarmennirnir væru fleiri en tveir.

300 aðilar fengur 4000 milljarða að láni

Um 300 hundruð aðilar fengu yfir 4000 milljarða króna að láni hjá stóru bönkunum þremur. Lán til þessara aðila nema gervöllum skatttekjum ríkisins í meira en áratug.

„Öll svona mál eru gríðarlega viðkvæm“

Eineltismál eru í ólestri í Hamraskóla þar sem sex ára drengur var nýlega stunginn og barinn. Þetta segir móðir drengs sem beittur var einelti í skólanum í mörg ár. Meðal annars af starfsmanni skólans sem áminntur var fyrir að beita son hennar ofbeldi.

Rasmussen gefur formlega kost á sér

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, gaf í dag formlega kost á sér í embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hann nýtur stuðnings Evrópuveldanna og Bandaríkjanna. Tyrkir eru alfarið á móti því að hann taki við embættinu og gæti það tafið ákvörðun fram á mitt sumar.

Rannsaka hýðingu á öskrandi konu

Pakistönsk yfirvöld hafa fyrirskipað rannsókn á upptöku sem sýnir mann hýða öskrandi konu fyrir framan áhorfendaskara vegna meintra hjúskaparbrota.

Sjö bændur á framboðslista Frjálslyndra

Búið er að samþykja framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Sem fyrr mun formaður flokksins, Guðjónar Arnar Kristjánsson, leiða framboðið í kjördæminu. Athygli vekur að sjö bændur eiga sæti á framboðslistanum en 18 frambjóðendur skipa listann.

Fullveldissinnar hætta við framboð

L-listi fullveldissinna hefur ákveðið að bjóða ekki fram í komandi alþingiskosningum eins og ætlunin var að gera. Í tilkynningu frá L-listanum kemur fram að ákvörðun þessa efnis hafi verið tekin á fundi í dag. Hreyfingin muni hinsvegar starfa áfram sem frjáls framboðs- og sjálfstæðishreyfing.

Fjórir skotnir -gíslar teknir

Að minnsta kosti fjórir hafa verið skotnir og margir gíslar eru í haldi í bænum Binghamton í New York fylki.

Heilbrigðisráðuneytið og Hrafnista undirrita samkomulag

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, og Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, undirrituðu í dag samning um rekstur 20 rýma fyrir aldraða sem þurfa svokallaða skammtímavistun og um rekstur 30 dagdeildarrýma. Gildistími samningsins er fimm ár.

Forstjóri FME: Löngu hættur að hugsa um Hafskipsmálið

Gunnar Þ. Andersen nýráðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins rak útibú Cosmos dótturfyrirtækis Hafskipa í New York fyrir rúmum tuttugu árum síðan. Hann segir aðspurður um aðkomu sína að Hafskipsmálinu að það sé gamalt mál sem hann sé löngu hættur að hugsa um. Honum líkaði þó ekki starfið hjá Hafskipum og sagði upp. „Það samræmdist ekki upplifinu minni af siðferði," segir Gunnar sem var hjá Landsbankanum þegar Björgólfur Guðmundsson keypti bankann. Þá sagði hann líka upp störfum. Nú er Gunnar hinsvegar orðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins sem hann segir mikinn heiður en um leið mikla áskorun.

Ekki sofa í vinnunni

Hlaðmaður hjá bandaríska flugfélaginu JetBlue vaknaði upp við vondan draum þegar hreyflar vélarinnar sem var að fara frá New York til Boston voru ræstir.

Karen komin í leitirnar

Karen Lind Sigurpálsdóttir, stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær er fundin. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fannst Karen í Hveragerði, heil á húfi.

Bryndís Hlöðversdóttir stjórnarformaður í Landsvirkjun

Á aðalfundi Landsvirkjunar sem fram fór í dag var kjörin ný stjórn fyrirtækisins til eins árs og verður Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst formaður stjórnar. Hún tekur við af Ingimundi Sigurpálssyni sem verður almennur stjórnarmaður.

Ekki með blæju í strætó

Danskur lagaprófessor segir að strætisvagnafyrirtæki séu í fullum rétti til að vísa frá múslimakonum sem hylja andlit sitt með blæju ef þær hafa keypt sér afsláttarkort með mynd.

Ekið á barn á Sundlaugarveginum

Ekið var á barn á þriðja tímanum í dag á Sundlaugarvegi í Reykjavík. Barnið var flutt á slysadeild til aðhlynningar en óvíst er um hvort meiðsl þess eru alvarleg. Nokkrar tafir urðu á umferð á svæðinu vegna slyssins.

Olíufélögin dæmd til þess að greiða Vestmannaeyjabæ 10 milljónir

Ker, Skeljungur og Olíuverzlun Íslands voru í morgun dæmd til þess að greiða Vestmannaeyjabæ 10 milljónir króna í bætur vegna tjóns er hlaust af útboði vegna eldsneytiskaupa í apríl 1997, vegna samráðs olíufélaganna við gerð tilboða. Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestamannaeyjum fagnar niðurstöðu héraðsdóms og segir þá sem stýrðu þessum brotum hafa grafið undan trausti fólks á starfsemi viðskiptalífsins.

Hádegismatnum reddað

Þetta er sjaldséður fugl á Íslandi enda er þessi flotta mynd tekin í Flórída.

Eldspúandi risavélmenni

Japanir eru af einhverjum sökum vitlausir í vélmenni. Sérstaklega vélmenni sem eru lík manneskjum.

Smíði gæsluvélarinnar gengið ævintýralega vel

Ný flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF kemur til landsins þann 9. júlí og er það nokkuð á undan áætlun að því er fram kemur í tikynningu. Smíðin hefur gengið ævintýralega vel.

Tapaði fyrir skattstjóra - áfrýjar til Hæstaréttar

Borgar Þór Einarsson lögfræðingur tapaði í dag máli gegn skattstjóranum í Reykjavík. Borgar stefndi skattstjóra og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að skattsjóranum í Reykjavík væri óheimilt að leggja fram til sýnis álagningaskrá þar sem tilgreindir eru þeir skattar sem lagðir hafa verið á sig samkvæmt lögum um tekjuskatt.

Næsti forsætisráðherra Danmerkur?

Ef Anders Fogh Rasmussen verður framkvæmdastjóri NATO er fastlega gert ráð fyrir að Lars Lökke Rasmussen taki við embætti forsætisráðherra Danmerkur.

Mikil öryggisgæsla á NATO fundi

Mikil öryggisgæsla er í Strassborg í Frakklandi vegna leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem hefst þar í dag. Ástandið í Afganistan, samskiptin við Rússa og val á nýjum framkvæmdastjóra eru helstu málin á þessum sextíu ára afmælisfundi.

Sjá næstu 50 fréttir