Fleiri fréttir

Vann 16 milljónir í lottó

Einn lottóspilari var með allar tölurnar réttar í útdrættinum í kvöld og hlaut hann tæpar 16 milljón krónur í vinning. Hann keypti miðann í Fjarðarkaupum við Hólshraun í Hafnarfirði. Fjórir spilarar voru með fjórar réttar tölur og bónustölu og hlýtur hver um sig rúmlega 70 þúsund krónur.

Opna miðstöð vegna efnahagsástandsins

Miðstöð, þar sem aðstoð verður veitt í samræmi við neyðarvarnaskipulag Rauða krossins, verður sett á laggirnar á næstu vikum til að bregðast við þörf sem hefur skapast í samfélaginu í kjölfar efnahagsástandsins. Boðið verður upp á sálrænan stuðning, ráðgjöf og námskeið til að takast á við breyttar aðstæður fólks í landinu. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Rauða krossins í gærkvöldi.

Nýjast úr þinghúsinu: Framsókn fundar aftur eftir hlé

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins funda nú með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar í félagsmálaráðuneytinu, eftir að Framsóknarmenn sátu á tveggja og hálfs tíma þingflokksfundir þar sem farið var yfir stöðu mála eftir atburði dagsins.

Segist ekki hafa beitt klækjastjórnmálum

Skúli Helgason framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar hafnar því að hafa beitt klækjastjórnmálum í gær líkt og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins gaf í skyn fyrr í dag. Þá sagði Sigmundur að aðra en Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon hafa farið fram úr sér þegar kynna átti opinberlega tillögur væntanlegrar ríkisstjórnar.

Segir klækjastjórnmálum hafa verið beitt í gær

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddi við fréttamenn eftir að hlé var gert á þingflokksfundi Framsóknarmanna í þinghúsinu fyrir stundu. Þar sagði hann lítið standa útaf borðinu en hann var á leið á fund með Steingrími J. Sigfússyni. Sá fundur stóð þó stutt yfir en þeir tveir fóru síðan yfir í félagsmálaráðuneytið að hitta Jóhönnu Sigurðardóttur. Þeir bjuggust við að sá fundur stæði einnig stutt yfir þar sem aðeins þyrfti að ræða nokkrar útfærslur á efnahagsmálunum. Sigmundur sagði að klækjastjórnmálum hefði verið beitt í gær.

Fleiri í framboð hjá framsókn

Hallur Magnússon framkvæmdarstjóri Spesíu, ráðgjafafyrirtækis, hefur ákveðið að bjóða sig fram í eitt af efstu sætum Framsóknarflokksins í öðru hvoru kjördæminu. Hann segir fjölmarga hafa komið til sín undanfarið og hvatt sig til þess að fara fram.

Framsóknarmenn gera hlé á fundi sínum

Þingflokkur Framsóknarflokksins gerði hlé á fundi sínum fyrir stundu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins fer nú á fund Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.

Ego verður N1

Þessa dagana er verið að breyta útliti á 7 mannlausum eldsneytisstöðvum sem hingað til hafa verið reknar undir nafni Egó. Allar þessar stöðvar munu bera merki N1 og verða hluti af þjónustuframboði N1 til bíleigenda.

Þúsundir mótmæla Pútín

Þúsundir mótmælenda hafa komið saman á fjöldafundi í austurhluta Rússlands þar sem þess er krafist að ríkisstjórn landsins segi af sér vegna efnahagsvandans sem þar ríkir. Mótmælendur í Vladivostok skella skuldinni á Vladimir Pútín forsætisráðherra og vilja meina að hann hafi haldið illa á spöðunum hvað varðar efnahagsmál. Þeir vilja einnig meina að hann hafi leynt þjóðina pólitískum ágreiningi sem þar ríkir.

Tæp þrjátíu ár frá síðustu minnihlutastjórn

Tæp 30 ár eru síðan minnihlutastjórn hélt síðast um stjórnartauma íslenska ríkisins. Afar sjaldgæft er að menn komi sér saman um minnihlutastjórn á Íslandi, eins og þá sem nú er í burðarliðnum.

Framsókn hagar sér eins og þriðji ríkisstjórnarflokkurinn

Framsóknarflokkurinn lætur eins og hann sé þriðji ríkisstjórnarflokkurinn, þótt hlutverk hans sé aðeins að verja verðandi ríkisstjórn falli, segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Hann telur þó að Samfylking og Vinstri grænir hafi farið framúr sér í gær þegar skipulögð var kynning á nýrri ríkisstjórn á Austurvelli án nægilegs samráðs við Framsóknarflokkinn.

Guðmundur Steingrímsson fær mótframboð

Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna í Skagafirði, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem hann sækist eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Því er ljóst að Guðmundur Steingrímsson sem sækist eftir fyrsta sætinu í þessu sama kjördæmi hefur fengið mótframboð. Þetta kemur fram á fréttavefnum Feyki.

Ný ríkisstjórn líklega mynduð á morgun

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon ræddu við fréttamenn í þinghúsinu fyrir stundu eftir fundi með sínum þingflokkum. Þau sögðu vel hafa verið tekið í verkáætluna væntanlegrar ríkisstjórnar, en stefnt er að því að koma á starfhæfari ríkisstjórn fyrir mánudag. Ráðherralistar liggja ekki fyrir.

Dýrmætum tíma sóað í tilraunastarfsemi

Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ekkert útilokað í því að flokkur hans komi að borðinu ef minnihlutastjórn Samfylkingar og VG með stuðningi Framsóknar gengur ekki upp. Hann segir ferlið sem fór í gang eftir að ríkisstjórnin sprakk hafa verið ólánlegt og síðasta vika hafi verið sóun á tíma. Bjarni er meðal gesta í þættinum Vikulokin á Rás 1.

Magnús gefur ekki kost á sér áfram

Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs í komandi alþingiskosningum. Magnús var fyrst kosinn á þing fyrir fjórtán árum og hefur meðal annars gegnt ráðherraembætti. Guðmundur Steingrímsson sem nýlega gekk í flokkinn hefur lýst því yfir að hann stefni á fyrsta sætið í kjördæmi Magnúsar.

Mótmælt í Mývatnssveit

Mótmælafundur verðuk haldinn á Hallarflöt í Dimmuborgum í Mývatnssveit klukkan 15:00 í dag.

Þingflokkar Samfylkingar og VG funda

Fundi Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar í þinghúsinu lauk rétt fyrir klukkan 10:00 í morgun. Þá hófust þingflokksfundir hjá Samfylkingu og Vinstri grænum. Reiknað er með að fréttamenn fái að heyra í leiðtogum hinnar nýju riíkisstjórnar að loknum þeim fundum.

Davíð vildi ekki hætta

Geir H. Haarde fráfarandi forsætisráðherra bað Davíð Oddsson fyrir áramót að láta af störfum sem seðlabankastjóri. Davíð hafnaði því, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2.

Boða til sigurhátíðar á Austurvelli í dag

Raddir fólksins halda sinn sautjánda mótmælafund klukkan 15:00 á Austurvelli í dag. Í tilkynningu frá samtökunum er boðað til sigurhátíðar að þessu sinni þó enn eigi eftir að skipta út stjórn Seðlabanka Íslands.

Þrjú útköll hjá slökkviliðinu í nótt

Það var óvenju rólegt hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt og voru fáir á ferli í miðborg Reykjavíkur. Tveir gista fangageymslur vegna ölvunar og mun það, að sögn lögreglu, ekki sæta tíðindum.

Kallaður óvænt á fund í þinghúsinu

Hópur fjögurra hagfræðinga sat fram á nótt við að útfæra tillögur Framsóknarmanna fyrir verðandi ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, en enn er töluverð vinna eftir í þeirri útfærslu, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins.

Steingrímur og Jóhanna funda

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherraefni væntanlegrar ríkisstjórnar og Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna komu saman til fundar upp úr klukkan níu í morgun, til að ræða stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna.

Skíðasvæðin fyrir norðan opin

Skíðasvæðin í Hliðarfjalli og Tindastóli verða opin til klukkan 16:00 í dag. Klukkan 8:00 í morgun var snjónkoma og norðan 6 m/s og mínust 3 gráður í Hlíðarfjalli.

Flokkstjórnarfundi Samfylkingar frestað

Flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem átti að hefjast klukkan 11:00 í morgun hefur verið frestað þar til annað kemur í ljós. Flokksfélagar eru beðnir að fylgjast með.

Minnihlutinn segist geta stýrt

Enginn starfandi meirihluti er í bæjarstjórn Blönduóss eftir að leiðir Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur og hinna þriggja bæjarfulltrúa E-listans skildi á fimmtudag. Ágúst Þór Bragason, annar tveggja bæjarfulltrúa

Afleitt að loka stöðinni í Breiðholti

„Mér finnst afleitt að flytja hverfalögregluna úr Breiðholti,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn. „Þar og í Árbæ þjónar hún 40 þúsund íbúum og hefur náð afburðaárangri. Þarna er horfið mörg ár aftur í tímann.“

Eldur í ruslatunnu á Hverfisgötu

Eldur kom upp í ruslatunnu við Hverfisgötu 49 í Reykjavík um níuleytið í kvöld. Að sögn slökkviliðsins voru lögreglumenn í nágrenninu þegar að eldurinn kom upp og drógu þeir tunnuna hæfilega langt frá húsinu þannig að engin hætta væri á að eldurinn myndi breiðast í það. Eldurinn í tunnunni var svo slökktur.

Með vel á annað hundrað vopna

Danska lögreglan hefur á síðustu dögum fundið um 150 skotvopn á mismunandi stöðum á Djursland, eftir því sem Danska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Austur-Jótlandi.

Banna Darvocet verkjalyf

Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum leggur til að Darvon, verkjalyf sem hefur verið á markaði í 50 ár, verði bannað. Kosið var um þetta hjá Lyfjaeftirlitinu í dag og greiddu 14 banninu atkvæði sitt en 12 greiddu á móti því. Lyfið var fyrst samþykkt árið 1957 þegar engin önnur verkjalyf voru í boði fyrir utan aspirin og sterk verkjalyf.

Viða hálka eða hálkublettir á landinu

Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi, þó er þæfingur í Grafningnum og nokkrum öðrum útvegum. Þungfært er á Krísuvíkurvegi, Ísólfsskálavegi og Bláfjallavegi sunnan Bláfjalla.

Sigmundur: Ætlum ekki að afhenda óútfylltan tékka

Það vantaði upp á raunhæfar leiðir til að hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem þegar eru komnar fram, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Það er samstaða um markmiðin þetta snýst um leiðirnar," segir Sigmundur.

Engin ríkisstjórn fyrr en eftir helgi

Þingflokksfundi Framsóknarflokksins sem haldinn var í Alþingishúsinu í dag er lokið. Þingmenn sem komið hafa út af fundinum hafa ekkert viljað tjá sig við fréttamenn og vísa þeir allir á formann sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Hann hefur haldið til fundar við þau Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttir.

Árni sammála AGS um seinagang í endurreisn bankakerfisins

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að endurreisn íslenska bankakerfisins hafi gengið of hægt, segir Árni M. Mathiesen starfandi fjármálaráðherra. Hann tekur undir gagnrýni sjóðsins og segir að endurreisn bankanna verði að ganga hraðar. Aftur á móti hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýst ánægju sinni með fjárlögin og hvernig gangi að endurreisa krónuna. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi flokksins á Grand hótel í dag.

Mótmæla kjaralækkandi aðgerðum Reykjavíkurborgar

„Starfsmenn Reykjavíkur hafa sætt lakari kjörum en aðrir, undir því yfirskyni að þeir byggju í staðinn við atvinnuöryggi. Það hlýtur því að sæta furðu að þegar á þetta atvinnuöryggi reynir skuli þeir þurfa að greiða það enn hærra verði,“ segir í ályktun sameiginlegs félagsfundar Fræðagarðs, Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélags lögfræðinga, sem haldinn var í dag.

Mótmælt í Dimmuborgum

Mótmæla- og samstöðufundur verður haldinn í Dimmuborgum í Mývatnssveit á morgun laugardag. „Okkur, sem stöndum að mótmælum hér í Mývatnssveit finnst rétt að safnast saman enn á ný og láta af okkur vita. Þótt áfangasigrar hafi unnist, er ekki öllum kröfum mótmælenda fullnægt. Þar sem unnið er að stofnun nýrrar ríkisstjórnar og fleiri málum finnst okkur þó rétt að staldra við og sjá hverju fram vindur,“ segir í tilkynningu. Sem fyrr verður mótmælt á Hallarflöt í Dimmuborgum klukkan 15.

Yfirvinna endurskoðuð - engar uppsagnir

Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, segir að við endurskoðun á yfirvinnu hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar hafi rauði þráðurinn í aðgerðunum verið að tryggja störf starfsmanna. Þeir sem hæst launin hafa taka á sig hlutfallslega mesta lækkun fastra heildarlauna og við endurskoðun fastlaunasamninga sé sú regla höfð i heiðri að lækka ekki föst heildarlaun sem eru undir 300 þúsund krónum.

Reginhneyksli verði hætt við hvalveiðarnar

Einar K. Guðfinnsson, starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, telur að það væri reginhneyksli ef minnistjórn Samfylkingar og Vinstri grænna ákveði að breyta ákvörðun hans em heimilar hvalveiðar. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi þeirra á Grand hótel í dag.

Lúðvík vísar ummælum Gunnars Páls einnig á bug

Lúðvík Lúðvíksson, sem er í framboði til formanns hjá VR segir ummæli Gunnar Páls Pálsonar formanns VR varla svara verð og dæma sig sjálf. Vísar hann þeim alfarið á bug. Lúðvík er að vitna til viðtals sem birtist við Gunnar Pál í fréttum Stöðvar 2 þar sem hann velti því upp hvort upplýsingum úr Kaupþingi hefði verið lekið úr bankanum til þess að hafa áhrif á formannskjörið.

Íslenskur friðargæsluliði til starfa í Palestínu

Ólöf Magnúsdóttir, fulltrúi Íslensku friðargæslunnar, heldur um helgina til starfa í Palestínu í tveggja mánaða verkefni hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Ólöf mun aðstoða staðarskrifstofu Barnahjálparinnar við að miðla upplýsingum um aðstæður barna á átakasvæðum Palestínu og neyðaraðstoð þeim til handa.

Ný ríkisstjórn kynnt á morgun

Búið er að fresta þingflokksfundum Vinstri grænna og Samfylkingarinnar þangað til klukkan 10 í fyrramálið. Fyrirhugað var að ný ríkisstjórn yrði kynnt á Austurvelli síðar í dag en búist er við að ekki verði af fyrr enn í hádeginu á morgun. Flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem halda átti í dag hefur einnig verið frestað og hefst hann klukkan 11 í fyrramálið.

Nýskráningar ökutækja dragast saman um 90 prósent

Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á fyrstu 23 dögum ársins borið saman við sama tímabil árið á undan. Í ljós kemur mjög mikil fækkun nýskráninga.

Fleiri en þúsund í sjósund í janúar

Sjósund virðist vera að slá í gegn. Starfsfólk Ylstrandarinnar í Nauthólsvík segir fjölgun gesta þar í janúar ævintýri líkasta, en 1036 gestir hafa skráð sig í gestabók strandarinnar í mánuðinum.

Sjá næstu 50 fréttir