Fleiri fréttir

Indefence.is í breskar sögubækur

Landsbókasafn Bretlands - British Library - hefur ákveðið að varðveita vef indefence.is sem heimild um fjármálakreppuna fyrir fræðimenn framtíðar.

Óskar: Grunnlaun ekki lækkuð heldur dregið úr yfirvinnu

Grunnlaun starfsmanna Reykjavíkurborgarar lækka ekki heldur verður dregið úr yfirvinnu, að sögn Óskars Bergssonar formanns borgarráðs. „Við höfðum náttúrulega samráð við okkar sviðsstjóra en það er hugsanlega misjafnt hvernig menn hafa unnið úr því hver fyrir sig. Við erum ekki að lækka grunnlaun heldur að draga úr yfirvinnu."

Geir: Stjórnarmyndun langt komin áður en Ingibjörg kom heim

Fullt er út úr dyrum á fundi sjálfstæðismanna á Grand hotel sem hófst klukkan eitt. Á fundinum fer Geir H. Haarde, formaður flokksins og fráfarandi forsætisráðherra yfir stöðuna og það „uppbyggingarstarf sem framundan er í íslensku þjóðfélagi,“ eins og sagði í tilkynningu frá flokknum. Í máli Geirs kom meðal annars fram að hann telji myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa verið langt komna áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sneri heim frá Svíþjóð.

Samfylking óskar skýringa á launabreytingum

Samfylkingin hefur sent borgarstjóra og mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar bréf og óskað skýringa á framgöngu við uppsagnir fastlaunasamninga og launalækkun hjá starfsfólki borgarinnar sem áformaðar eru.

Bifreið stolið í Borgartúni

Í gærmorgun rétt fyrir klukkan tíu var bifreiðinni PA 301, sem er 2ja dyra hvítur Nissan Sunny árgerð 1994 stolið úr porti við Borgartún 7.

Fagnað sem þjóðhetju eftir að hafa strunsað út af fundi

Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í gær eftir snörp orðaskipti við Peres Ísraelsforseta. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands í gærkvöldi.

Ríkisstjóri Illinois rekinn

Ríkisþingið í Illinois í Bandaríkjunum rak í gærkvöldi ríkisstjórann Rod Blagojevich fyrir brot í starfi. Allir fulltrúar á þinginu greiddu atkvæði með því að reka hann. Blagojevich er einnig bannað héðan í frá að gegna opinberu embætti í Illinois-ríki.

Loftrýmiseftirlit í höndum utanríkisráðherra

Formaður Vinstri grænna segir loftrýmiseftirlit Atlantshafsbandalagsríkja yfir Íslandi drauga frá fyrri ríkisstjórnar og að flokkurinn vilji ekki sóa peningum í slíkt brölt. Það verði hins vegar í höndum utanríkisráðherra nýrrar ríkisstjórnar að annast framkvæmd slíkra mála.

Ný ríkisstjórn kynnt við styttu Jón Sigurðssonar

Stefnt er að því að ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna verði kynnt við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli klukkan sex í kvöld þar sem búsáhaldabyltingin svokallaða hófst. Gert er ráð fyrir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, gangi á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, eftir hádegið og að forseti feli Jóhönnu Sigurðardóttur umboð til að mynda stjórn. Að öllum líkindum verður kosið laugardaginn 25. apríl.

Hjúkrunarfræðingar vara við sparnaðaraðgerðum

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við afleiðingum þeirra sparnaðaraðgerða sem boðaðar hafa verið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í ályktun stjórnarinnar segir að öflugt starf hafi verið byggst upp á þremur heilsuverndarsviðum en það eru miðstöð heilsuverndar barna, miðstöð mæðraverndar og miðstöð tannverndar.

Mánudagsútgáfu DV hætt

Biríngur, útgáfufélag DV, hefur ákvaðið að fækka útgáfudögum og héðan í frá kemur DV ekki út á mánudögum. Blaðið mun koma út frá þriðjudegi til föstudags. Þetta er gert til að mæta samdrætti á auglýsingamarkaði og mikilli hækkun á kostnaði. Aðgerðunum fylgja engar uppsagnir á ritstjórn DV.

Undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár verði hraðað

Lagt er til í áliti stýrihóps um upplýsingatækni að undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár fyrir landið allt verði hraðað. Stýrihópur um upplýsingatækni hefur skilað áfangaskýrslu sinni til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, og hvetur eindregið til átaks í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustu.

Frjálslyndir funda um stjórnarmynd

Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur verið boðuð til fundar á morgun laugardag í húsnæði flokksins við Skúlatún. Þar mun Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, greina frá viðræðum um stjórnarmyndun og aðkomu flokksins að þeim, eins og segir í tilkynningu frá flokknum.

25 vilja stýra þjónustumiðstöð fyrir blinda

Tuttugu og fimm umsóknir bárust um starf forstjóra nýrrar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Lög um stofnunina voru samþykkt á Alþingi 18. desember síðastliðinn.

Stjórnarmyndunarviðræðum haldið áfram

Viðræðunefndir Samfylkingar og Vinstri grænna komu saman til fundar í herbergi forsætisnefndar Alþingis í Alþingishúsinu klukkan hálf tíu og sögðu samningamenn við fréttamann rétt fyrir fundinn að þau ætluðu ekki að standa upp af þessum fundi fyrr en að því verki loknu.

Vísar ásökunum Gunnars Páls á bug

Kristinn Örn Jóhannesson, frambjóðandi í formannskjöri VR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Gunnars Páls Pálssonar í fréttum Stöðvar 2 þann 28. janúar. Þar vísar hann ásökunum Páls Gunnars um að skjölum úr Kaupþingi sé lekið í fjölmiðla til þess að hafa áhrif á formannskosninguna á bug, fyrir sitt leyti.

Fjallað um lopavörusöfnunina á BBC

Lopavörusöfnun fyrir aldraða Breta sem Bítíð á Bylgjunni hratt af stað á dögunum hefur vakið töluverða athygli í Bretlandi og breskir miðlar fjallað ítarlega um hana. Í morgun var Heimir Karlsson, umsjónarmaður þáttarins, í beinni útsendingu í sjónvarsþættinum vinsæla Daily Politics á BBC 2.

Geir ræðir við sjálfstæðismenn

Vegna sviptinganna í íslenskum stjórnmálum að undanförnu boðar Sjálfstæðisflokkurinn félaga sína til stjórnmálafundar á Grand Hótel í dag til að fara yfir stöðuna og verkefnin framundan.

Rehn segir aðild Íslands hvalreka fyrir ESB

Ísland gæti verið komið í Evrópusambandið fyrr en varði, jafnvel árið 2011, ef marka má ummæli embættismanna í Brussel og íslenskra stjórnmálamanna í breska blaðinu Guardian í dag.

Skókastarinn í Írak heiðraður með bronsskó

Gríðarmikill skór úr bronsi hefur verið settur upp í bænum Tikrit í Írak til heiðurs blaðamanninum Muntader al-Zaidi sem varð þjóðhetja arabaheimsins í einu vetfangi þegar hann grýtti skóm sínum í George Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, í desember og kallaði hann hund.

Samdráttur í Valentínusargjöfum milli ára

Er það virkilega hugurinn sem gildir? Bandarískar turtildúfur komast að því í eitt skipti fyrir öll eftir hálfan mánuð en þá rennur hinn rómaði dagur elskenda upp sem kenndur er við heilagan Valentínus.

Mættu með fallbyssukúlu í skólann

Fótur og fit varð uppi í barnaskóla í borginni Naha á japönsku eyjunni Okinawa þegar tveir tólf ára drengir mættu sallarólegir með ósprungna 90 millimetra fallbyssukúlu í skólann í fyrradag.

Ráðgjafar Browns höfnuðu sögusafni hans

Áætlanir Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, um breskt sögusafn, voru blásnar af og það af hans eigin ráðgjöfum. Í stað sögusafns vilja ráðgjafarnir að rafrænum sýndarveruleikasöfnum verði komið fyrir á þeim söfnum sem þegar eru til, þar sem ýmis rafræn söguleg gögn verði höfð til sýnis, svo sem gömul gagnasöfn og vefsíður. Með því sparast stórfé, að mati ráðgjafanna.

Þriggja manna leitað eftir rán

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn þriggja grímuklæddra manna, sem ógnuðu starfsfólki Pítunnar við Skipholt með hnífi um tíuleytið í gærkvöldi og hurfu á brott eftir að hafa tæmt peningakassann, eða sjóðsvélina.

Erill hjá lögreglu í nótt

Óvenjumikill erill var hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar og pústra meðal veitingahúsagesta í miðborginni. Að minnsta kosti tvisvar þurfti lögregla að stilla til friðar vegna slagsmála, en enginn þurfti þó að leita læknis og enginn var handtekinn.

Á annað hundrað á stofnfundi kvennaframboðs

Á annað hundrað konur mættu á stofnfund nýs kvennaframboðs að Hallveigarstöðum í Reykjavík í gærkvöldi og voru fundargestir sammála um nauðsyn þess að efna til kvennaframboðs fyrir næstu þingkosningar.

Gylfi Magnússon verður viðskiptaráðherra

Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, verður viðskiptaráðherra í nýrri ríkisstjórn, sem væntanlega verður kynnt í dag. Þá þykja sterkar líkur á að Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla íslands, verði dómsmálaráðherra.

Bílslys á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns

Bílslys varð á gatnamótum Kringlymýrarbrautar og Borgartúns rétt fyrir klukkan 19:00 í kvöld. Að sögn lögreglu voru tveir bílar fluttir af vettvangi óökuhæfir en ekki liggja fyrir upplýsingar um slys á fólki.

Tímamóta ríkisstjórn hvað jafnréttismál varðar

Búist er við því að ný ríkisstjórn verði mynduð formlega á laugardaginn. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur verðandi forsætisráðherra í fréttum Stöðvar 2 nú í kvöld. Steingrímur J. Sigfússon sagði að um tímamóta ríkisstjórn væri að ræða hvað varðar jafnréttismál, en búist er við jöfnu hlutfalli karla og kvenna.

Söfnuðu 2 milljónum punda á 10 mánuðum

Sjóður sem settur var á laggirnar til þess að hafa uppi á Madeleine McCann safnaði 2 milljónum punda á fyrstu 10 mánuðunum eftir að hún hvarf. Stjörnur á borð við JK Rowling og Sir Richard Branson ásamt þúsundum annarra lögðu sjóðnum lið eftir að stúlkan hvarf þegar fjölskyldan var í fríi í Algarve í maí árið 2007.

Stálu 20 kartonum af Winston sígarettum

Brotist var inn í Aðalsjoppuna við Tjarnargötu í Vogunum um kl. 01:00 aðfararnótt mánudags. Þaðan var stolið um 20 kartonum af Winston sígarettum. Í öryggismyndavél Aðalsjoppunar sást til tveggja ungra manna við verknaðinn.

Fjórar F-16 orrustuþotur annast loftrýmisvarnir

Fjórar F-16 orustuþotur munu annast loftrýmisvarnir Íslands þegar Danir taka að sér verkið í mars. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segist vona að eftirlitið haldi áfram en það sé nýrrar ríkisstjórnar Íslands að ákveða hvort svo verð.

Lögregla lokaði spilavíti í miðborginni

Lögregla fór um helgina inn í spilavíti í miðborg Reykjavíkur og stöðvaði fjárhættuspil sem þar var í gangi. Í spilavítinu er jafnan spilað upp á hundruðir þúsunda króna.

Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir grófa handrukkun

Hæstiréttur dæmdi í dag þá Arnar Óla Bjarnason í tveggja og hálfs árs fangelsi og Róbert Wayne Love í tveggja ára fangelsi fyrir húsbrot rán og frelsissviptingu fyrir að hafa í heimildarleysi ruðst inn á heimili pilts, svipt hann frelsi sínu og beitt hann ofbeldi og hótunum um ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum.

Gyðingar slíta sambandi við Páfagarð

Miðstjórn samtaka gyðinga í Þýskalandi hefur slitið öllu sambandi við kaþólsku kirkjuna eftir að Benedikt páfi leysti undan bannfæringu biskup sem hefur lýst efasemdum um helförina.

Gaukur mátti kalla Ómar rasista

Gaukur Úlfarsson var í dag sýknaður í Hæstarétti af meiðyrðakæru Ómars R. Valdimarssonar. Hæstiréttur snýr því við dómi héraðsdóms sem fann Gauk sekann fyrir ummæli sem hann lét falla á netinu.

Jóhanna vildi stjórnlagaþing

Jóhanna Sigurðardóttir, væntanlegur forsætisráðherra, lagði til árið 1996 að efnt yrði til sérstaks stjórnlagaþings, skipað þjóðkjörnum fulltrúum, til að vinna að breytingum á stjórnarskrá lýðveldisins.

George Bush vel tekið

Það hefur ekki farið mikið fyrir George Bush síðan hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna. Það er enda hefð fyrir því að fyrrverandi forsetar hafi hægt um sig.

Þakka Ágústi Ólafi vel unnin störf

Ungir jafnaðarmenn þakka Ágústi Ólafi Ágústssyni, varaformanni Samfylkingarinnar og félaga í UJ, fyrir vel unnin störf á Alþingi og innan flokksins. Ágúst Ólafur tilkynnti í fyrradag að hann hyggst ekki gefa kost sér til endurkjörs í næstu þingkosningum né til varaformennsku á næsta landsfundi flokksins.

Leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing

Framsóknarflokkurinn hyggst leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing næst þegar þing kemur saman. Þingið hefði það hlutverk að semja nýja stjórnarskrá.

Sjá næstu 50 fréttir