Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Að minnsta fjórir látnir eftir ferjuslys á Filippseyjum Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að ferja með yfir 700 farþegum sökk í óveðri í kjölfar fellbyljarins Fengshen á Filippseyjum. Þetta er haft eftir aðilum sem eru á staðnum. 22.6.2008 11:27
Hringurinn farinn að þrengjast um hundaníðinginn Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki haft uppi á eiganda hvolpsins sem fannst grafinn lifandi í gærmorgun. Fjölmargir hafa hringt og nokkrar vísbendingar hafa borist vegna málsins. Fólki blöskrar meferðin á hvolpinum sem dýralæknir telur að muni ná sér. 22.6.2008 09:48
Stungið á hjólbarða sjö bifreiða í Reykjanesbæ Lögreglan á Suðurnesjum kærði í nótt tvo ökumenn fyrir ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru tveir aðilar handteknir fyrir óspektir í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. 22.6.2008 09:24
Fengu hrefnu í trollið Áhöfnin á Guðmundi VE 29 frá Vestmannaeyjum, fékk hrefnu í trollið hjá sér þar sem skipið var á síldveiðum við Jan Mayen. Þorbjörn Víglundsson skipverji á Guðmundi greinir frá þessu á bloggsíðu sinni. 22.6.2008 09:18
Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi á landsbyggðinni Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman um tæp sex prósentustig frá því í apríl. 32,8 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 22.6.2008 07:00
Þjóðin vill íbúðalánasjóð áfram Þjóðin vill ekki leggja niður Íbúðalánasjóð og láta banka og lífeyrissjóði sjá um að lána fólki til húsnæðiskaupa. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu Stöðvar 2 sem leiðir í ljós að aðeins tæp tvö prósent landsmanna vill að sjóðurinn verði lagður niður. 21.6.2008 21:00
Útthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ Í gær var í fyrsta sinn úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Þeir 25 afburðastúdentar sem valdir voru úr hópi glæsilegra fulltrúa ungra námsmanna komu úr 14 framhaldsskólum og þeir sækjast eftir inngöngu í 15 ólíkar námsleiðir. 21.6.2008 18:05
Grófu hund lifandi við Kúagerði Í hádeginu í dag barst lögreglunni tilkynning um hund sem hefði fundist í hrauninu skammt frá Kúagerði, þar sem ekið er í áttina að Keili. 21.6.2008 16:56
Þrír handteknir vegna hvarfs tveggja stúlkna í Danmörku Danska lögreglan hefur handtekið þrjá aðila vegna hvarfs sjö ára stúlku sem var tekin úr skóla í Greve í Danmörku fyrir nokkrum dögum. 21.6.2008 17:13
Afhjúpuðu útsýnisskilti Útsýnisskilti var afhjúpað við Höfðabakka neðan við Hólahverfið í Breiðholti klukkan tvö í dag. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður borgarráðs og íbúi í Breiðholtinu afhjúpaði skiltið. 21.6.2008 16:12
Ræddu samgöngu- og öryggismál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Aleqa Hammond, utanríkisráðherra í grænlensku landsstjorninni, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, ræddu meðal annars samgöngu- og öryggismal á fundi sem þau áttu i gær. 21.6.2008 13:48
Banaslys á Hafnarfjarðarvegi Nítján ára piltur er látinn eftir umferðarslysið sem varð á Hafnafjarðarvegi við Kópavogslæk um hálffimmleytið í nótt. Aðrir sem í bifreiðinni voru eru á batavegi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hinn látni sé 19 ára piltur en ekki sé unnt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. 21.6.2008 13:25
Hundsar andfeminiskann áróður Sóley Tómasdóttir, ráðskona í Femínistafélagi Íslands, segir það einkennilegt að fjölmiðlar þurfi ávallt að bera á borð andfeminiskann áróður rétt eftir að feminisk umræða hefur verið í umræðunni. 21.6.2008 12:33
Castro sakar ESB um hræsni Fídel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbu, sakar Evrópusambandið um hræsni í mannréttindamálum. 21.6.2008 10:22
Varar við árás á Íran Mohammed El Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hótar að segja af sér verði gerð árás á Íran. 21.6.2008 10:19
Bandarískum símafyrirtækjum veitt friðhelgi vegna heimildalausra hlerana Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær lagafrumvarp sem veitir bandarískum símafyrirtækjum friðhelgi vegna heimildarlausra símahlerana fyrir yfirvöld. 21.6.2008 10:14
Ólympíukyndillinn í Lasa Hlaupið var með ólympíukyndilinn um götur Lasa, höfuðborgar Tíbets í morgun. Þar kom til blóðugra óeirða í mars síðastliðnum en þær urðu kveikjan að miklum mótmælum víðast hvar þar sem hlaupið hefur verið með kyndilinn. 21.6.2008 10:04
Harður árekstur á Biskupstungnabraut Harður árekstur varð á Biskupstungnabraut um hálftíuleytið í gærkvöldi. Fólksbifreið var ekið inn á Biskupstungnabraut í veg fyrir annan bíl. 21.6.2008 09:52
Þrír mikið slasaðir eftir bílveltu Þrjú ungmenni eru mikið slösuð eftir umferðarslys sem varð á Hafnarfjarðarvegi á móts við Fífuna á fimmta tímanum í nótt. 21.6.2008 09:42
Sinubruni í Fossvogsdal Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í Fossvogsdalinn vegna sinubruna þar um áttaleytið í kvöld. Að sögn slökkviliðsins tók um tuttugu mínútur að slökkva eldinn. Töluvert hefur verið af útköllum vegna sinubruna það sem af er þessu sumri, að sögn slökkviliðsmanna. 20.6.2008 21:44
Þung umferð um Suðurlandsveg Nokkuð þung umferð er á Suðurlandsvegi, að sögn lögreglunnar á Selfossi og lögreglunnar á Hvolsvelli. Allt hefur þó gengið vel fyrir sig. Þær upplýsingar fengust jafnframt hjá lögreglunni að Borgarnesi að þar væri nokkuð þétt umferð. 20.6.2008 19:50
Kjaradeilu háskólamenntaðra vísað til sáttasemjara Samninganefnd ríkisins ákvað í dag að vísa kjaradeilu BHM og þriggja stéttafélaga til ríkissáttasemjara. Samstarfshópur stéttarfélaganna fundaði með Samninganefnd ríkisins og sáttasemjara í dag og eftir fimm klukkustunda fund var ákveðið að málið færi á borð ríkissáttasemjara. 20.6.2008 19:15
33 kaupsamningum þinglýst - rösklega 200 á sama tíma í fyrra Alls var 33 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu dagana 13. júní til og með 19. júní á þessu ári. Til samanburðar má geta að dagana 15 - 21 júní í fyrra var 213 kaupsamningum þinglýst. Þá var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri í liðinni viku og 5 í Árborg. 20.6.2008 17:42
Búið að slökkva eldinn við Gvendargeisla Búið er að ráða niðurlögum eldsins við Gvendargeisla í Grafarholti. Þar kviknaði í gasgrilli með þeim afleiðingum að eldurinn læsti sig í þakklæðningu og rúða brotnaði, að sögn slökkviliðsmanna. 20.6.2008 17:35
Hæna handsömuð í Hafnarfirði Það er víða á landinu sem lögreglumenn þurfa að glíma við það erfiða verkefni að fanga dýr. Skemmst er að minnast viðureigna lögreglunnar á Sauðárkróki við tvo hvítabirni sem á endanum voru báðir felldir. 20.6.2008 16:49
Síbrotamaður áfram í varðhaldi Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir síbrotamanni sem setið hefur á bak við lás og slá frá 23. maí. Skal maðurinn sitja í varðhaldi til 18. júlí. 20.6.2008 16:37
Óviðunandi bið eftir húsnæði fyrir Byrgisfólk Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir óviðunandi að ekki skuli vera búið að opna heimili fyrir fyrrverandi vistmenn í Byrginu. Meðferðarheimilinu var lokað í kjölfarið að Kompásþáttar Stöðvar 2 um Byrgið var sýndur rétt fyrir jólin árið 2006. 20.6.2008 16:24
Hitlerskoðunarferðir geysivinsælar í München Ferðamenn í þýsku borginni München fá ekki nóg af skoðanaferðum byggðum á ævi Adolfs Hitler. Þótt Hitler hafi fæðst í Austurríki þá fluttist hann til Munich 1913 og margir af stóratburðum í Nasistaflokknum gerðust þar í borg. 20.6.2008 16:18
Clinton vinnur með Obama Hillary Clinton mun í næstu viku styðja við baráttu Barack Obama, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, á sérstökum kosningafundi. 20.6.2008 15:54
Veiðarnar þola ekki dagsljósið Sigursteinn Másson fer fyrir hópi kvikmyndaliðs á vegum Alþjóða dýraverndunarsjóðsins - IFAW, sem ætlaði í dag að ná myndum af hrefnuveiðimönnum að störfum. Hrefnuveiðimenn eru hættir veiðum í dag og segja ekki koma til greina að veiða með myndatökulið í eftirdragi. Sigursteinn segir augljóst að veiðimennirnir álíti að veiðarnar þoli ekki dagsljósið. 20.6.2008 15:50
Íhugar að draga framboð sitt til baka Morgan Tsvangirai, forsetaframbjóðandi og leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins MDC í Simbabve, íhugar nú að draga framboð sitt til baka en seinni umferð forsetakosninganna fer fram þann 27. júní. 20.6.2008 15:40
Dópið falið í fölsku lofti Hluti dópsins sem Hollendingur reyndi að smygla til landsins með Norrænu var falið í fölsku lofti í húsbílnum. Þetta kemur fram í Austurglugganum í dag. 20.6.2008 15:39
Ný lög um almannavarnir taka gildi Ný lög um almannavarnir sem samþykkt voru á síðasta starfsdegi Alþingis í vor taka gildi í dag. 20.6.2008 15:17
Reglugerðir um íbúðalán taka gildi á morgun Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra setti í dag þrjár reglugerðir á grundvelli laga um húsnæðismál sem fela í sér hluta þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin kynnti í gær. 20.6.2008 14:54
Vélmær fyrir einmana menn Japanska fyrirtækið Sega hefur framleitt lítið 38 sentimetra vélmenni sem kemur á markað í september og er ætlað einmana karlmönnum. Vélmærin kyssir eftir skipun og gengur á rafhlöðum. Hún kemst í svokallaða ástarlund þegar hún finnur mannshöfuð nálgast en hún notar innrauða skynjara til þess að nema mannfólkið. 20.6.2008 14:51
Viðbúnaður í Björgvin vegna gasleka Lögreglan í Björgvin í Noregi lokaði í dag af svæði í miðborginni sem er um hálfur kílómetri í þvermál vegna tilkynningar um gasleka á athafnasvæði þar. 20.6.2008 14:47
Kvikmyndatökulið truflar hrefnubát við veiðarnar Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna, segir að kvikmyndatökulið hafi komið í veg fyrir hrefnuveiðar í dag. Hvalaskoðunarbáturinn Elding 2 hefur fylgt hrefnuveiðibátnum eftir í allan dag og nú er svo komið að veiðimenn hafa ávkeðið að snúa til hafnar, tómhentir. 20.6.2008 14:37
Hveravallabjörninn var hross Sporin sem pólskir ferðamenn rákust á nærri Hveravöllum í gær og talin voru eftir bjarndýr reyndust vera eftir hross. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi. 20.6.2008 14:35
Ólafur Ragnar ræðir um framtíð orkumála á CNN Ólafur Ragnar Grímsson forseti er í viðtali í þættinum Principal Voices sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni CNN um helgina. Í þættinum er fjallað um framtíð orkumála og er viðtalið við Ólaf Ragnar meðal helstu efnisatriða þáttarins. 20.6.2008 14:17
Ísbjarnarbúrið var sótthreinsað fyrir komuna til landsins Búrið, sem flutt var inn til landsins frá Danmörku þegar fanga átti hvítabjörn sem gekk á landi við Hraun á Skaga í Skagafirði fyrr í vikunni, var sótthreinsað fyrir komuna til landsins. Þetta staðfestir Hjalti J. Guðmundusson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun 20.6.2008 14:07
Jóhanna: Bankarnir fóru offari Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, segir að viðskiptabankarnir hafi farið offari á fasteignamarkaði fyrir fjórum árum. Hún vonar að forystumenn bankanna læri af reynslunni. 20.6.2008 14:06
Tíska á meðal unglingstúlkna í Bandaríkjunum að verða óléttar Yfirvöld í Massachusetts í Bandaríkjunum rannsaka nú af hverju 17 unglingstúlkur í sama skólanum hafa allar orðið óléttar á sama tíma. Engin stúlknanna er eldri en 16 ára en að minnsta kosti helmingur þeirra virðist hafa gert samning sín á milli um að reyna að verða óléttar. 20.6.2008 13:48
Ránið breytti lífi mínu „Þetta var byrjunin á því besta sem komið hefur fyrir mig,“ segir Óskar Örn Gíslason, einn þremenninga sem sviðsettu rán í 11-11 í Garðabæ fyrir rúmu ári. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 20.6.2008 13:46
Grund byggir hjúkrunarheimili í Urriðaholti Grund hyggst reisa hjúkrunarheimili í Urriðaholti fyrir hundrað heimilismenn og er áætlað að framkvæmdir hefjist seint á næsta ári. 20.6.2008 13:31
Neikvætt að Sádar komi kvenmannslausir Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, þykir ekki gott að engin kona skuli vera í 17 manna sendinefnd frá ráðgjafarþingi Sádi-Arabíu sem kemur til landsins um helgina. ,,Það er alveg ljóst að Sádar eiga býsna langt í land í lýðræðis- og jafnréttismálum," segir Sólveig. 20.6.2008 13:20