Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fangelsaður fyrir að drekka te Fimmtugur bandaríkjamaður lenti í fangelsi í tvo mánuði eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Honum var sleppt í dag þegar það var sannað að kókaín sem fannst í þvagi hans var tilkomið út af bólivísku tei sem móðir hans hafði gefið honum. 27.6.2008 21:38
800 misst vinnuna í hópuppsögnum Samtals hafa 800 manns misst vinnuna í hópuppsögnum á árinu. Ellefur tilkynningar um hópuppsagnir hafa borist vinnumálastofnun frá áramótum þar af fimm frá því í byrjun síðasta mánaðar. 27.6.2008 19:07
Ekki ríkisstjórninni að þakka Ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, segir tvöföldun þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu miðað við síðustu viku ekki aðgerða ríkisstjórnarinnar að þakka. 27.6.2008 18:36
Íbúðalánasjóður samræmist ekki reglum EES Eftirlitsstofnun ESA segir að starfsemi Íbúðalánasjóðs gangi gegn ríkisstyrkjareglum EES samningsins. Skoðun eftirlitsstofnunarinnar heldur áfram. 27.6.2008 17:39
Tsvangirai: Kosningar eru æfing í fjöldakúgun Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, leitaði í dag aftur á náðir sendráðs Hollands í höfuðborginni Harare eftir að hafa haldið stuttan blaðamannafund vegna forsetakosninganna sem fram fara í Simbabve. 27.6.2008 16:56
Farið yfir notkun frístundakorta í sumar Marktækur munur greinist á nýtingu frístundakorta eftir tekjum fjölskyldna. Stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs samþykkti tillögu minnihlutans á fundi fyrr í dag að farið verði yfir málið í sumar í því skyni að ÍTR hafi mótaðar tillögur um úrbætur áður en vetrarstarfið hefst í haust. 27.6.2008 16:46
Harðduglegur kortaþjófur í gæsluvarðhald Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrr í vikunni yfir síbrotamanni í Reykjavík. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa stolið greiðslukorti og greitt fyrir fartölvu sem hann síðan endurseldi fyrir 10 grömm af amfetamíni. Lögreglan er með alls þrettán önnur mál sem maðurinn er sterklega orðaður við. 27.6.2008 16:39
Auðveldara að leita réttar síns sem neytandi en skattgreiðandi Auðveldara virðist vera að leita réttar síns sem neytandi en sem skattgreiðandi sé litið á úrræðamöguleika sem maður hefur. Ef skatturinn eða tollurinn bregst að koma með skýringar eru það helst formlegt bréf, yfirskattanefnd eða umboðsmaður alþingis sem leita þarf til. 27.6.2008 16:10
Tvöfalt fleiri kaupsamningum þinglýst Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu tvöfaldaðist á milli vikna. Í vikunni 20.-26. júní voru samningarnir 62 en í seinustu viku nam fjöldi þeirra 33. 27.6.2008 16:05
Fimm milljarða lánsheimild vegna leiguíbúða Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að veita fimm milljarða króna lánsheimild til Íbúðalánasjóðs vegna leiguíbúða. 27.6.2008 15:44
Framtíð Alþjóðahvalveiðiráðsins sett í nefnd Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins ákvað að stofna vinnuhóp sem ætlað er að vinna að lausn ágreiningsmála sem hamlað hafa starfi ráðsins undanfarin ár. 27.6.2008 15:43
Fréttamenn staðfesta aðgangshindranir yfirvalda á Skaga Deilur Þórunnar Sveinbjarnardóttur og Blaðamannafélags Íslands vegna ísbjarnarmálsins á Hrauni á Skaga halda áfram. 27.6.2008 15:32
Bakkafjöruvegur hefur áhrif á fuglalíf Skipulagsstofnun telur að framkvæmdir vegna ferjuhafnar í Bakkafjöru, vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju, séu ásættanlegar en setur þó skilyrði fyrir framkvæmdinni. Þetta kemur fram í áliti stofnunarinnar sem lagt var fram í dag. 27.6.2008 15:19
Hægt að bjóða út rekstur á ráðherrabílum Guðmundur Hannesson hjá Innkaupastofnun segir að hægt sé að bjóða út kaup og rekstur á ráðherrabifreiðum. ,,Það er hugsanlegt. Það er hægt að bjóða allt út," segir Guðmundur. 27.6.2008 15:00
Varað við hálku og snjókomu eystra í nótt Veðurstofa Íslands varar við hálku og snjókomu á Fjarðarheiði, Hellisheiði eystri og Vatnsskarði eystra aðfaranótt laugardags. 27.6.2008 14:44
Bjóða ungum jafnaðarmönnum í Vg Ung Vinstri - græn hvetja ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, Unga jafnaðarmenn, til þess að endurskoða val sitt á flokki í ljósi nýjustu frétta. 27.6.2008 14:35
Tók upp samfarir á símann sinn Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir brot gegn blygðunarsemi 17 ára stúlku. Maðurinn var staddur í sumarbústað og tók upp myndskeið á símann sinn, þar sem vinur hans hafði samfarir við stúlkuna í heitum potti. Eitt myndskeiðanna sendi hann í síma tengdamóður sinnar. 27.6.2008 14:23
Sýknaður af hnífstungu við Hellisheiðarvirkjun Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag pólskan karlmann af ákæru um líkamsárás. Honum var gefið að sök að hafa lagt til samlanda síns með eggvopni þanning að hann fékk skurð á kálfa. Atvikið átti sér stað í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í nóvember í fyrra. 27.6.2008 14:21
Halldór vissi af aðgerðum ríkisstjórnar klukkan þrjú Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans og formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja, vissi klukkan þrjú um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði og kynntar voru einum og hálfum tíma síðar síðastliðinn fimmtudag. Þetta er staðfest í yfirlýsingu sem Landsbankinn sendi frá sér í dag. 27.6.2008 14:13
Aukin aðsókn í störf á sambýlum og frístundaheimilum Það hefur varla farið framhjá mörgum að atvinnumarkaðurinn hefur breyst umtalsvert í ár. Síðustu ár hefur reynst erfitt að manna störf á vegum ríkis og sveitafélaga, til að mynda í þjónustu við fatlaða, leikskólum og frístundaheimilum. Vegna samdráttar stóru fyrirtækjanna upp á síðkastið hefur þó reynst breyting þar á. Bæði Guðný Anna Arnórsdóttir starfsmannastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík sem og Steingerður Kristjánsdóttir sem sér um starfsmannamál fyrir frístundaheimili í Reykjavík sjá aukningu í aðsókn í störf hjá þeim. 27.6.2008 14:10
Fjölbýlum á hjúkrunarheimilum eytt á næstu misserum Gert er ráð fyrir að heildarábyrgð á þjónustu við aldraða verði færð til sveitarfélaga eigi síðar en á árinu 2012 og að fjölbýlum á hjúkrunarheimilum verði eytt á næstu misserum. 27.6.2008 13:51
ESB vill að fjárfestar fái aðgang að orkulindum Rússa Leiðtogar Evrópusambandsins leggja hart að Rússum að veita fjárfestum aðgang að orkulindum þeirra. Rússar hafa undanfarin ár fært eignarhald á olíulindum sínum aftur til ríkisins. Forseti Rússlands og leiðtogar ESB ræða um orkulindir og öryggismál í Síberíu í dag. 27.6.2008 13:30
Topp-Starf er gott starf Í sumar hafa ungmenni með þroskahömlun á aldrinum 16 til 20 ára starfað í verkefninu Topp-Starf í Hinu Húsinu. ,,Það er rosalega gaman í vinnunni. Mér finnst skemmtilegast að vinna í barnagæslunni í World Class út af því litlu börnin eru svo skemmtileg við mig. Mér finnst gott að prófa öðruvísi vinnur. Ég hef líka unnið í Bónus við að safna kerrum saman, í Valsheimilinu og Póstinum en mér finnst skemmtilegast í barnagæslunni,” segir Ásdís Ásgeirsdóttir, starfsmaður Topp-Starfs. 27.6.2008 13:26
Ræðst á næstu dögum hver fær Laxá í Leirársveit á leigu Byrjun laxveiðitímabilsins lofar góðu og er byrjunin í Laxá í Leirársveit betri en í fyrra. Á næstu dögum skýrist hver fær ána á leigu næstu þrjú árin, en Stangveiðifélag Reykjavíkur átti hæsta tilboðið. 27.6.2008 13:23
Franskar herþotur farnar af landi brott Frönsku herþoturnar sem gætt hafa loftrýmisins yfir Íslandi hafa lokið verkefnum sínum og héldu af landi brott í morgun. 27.6.2008 13:14
Lítil kjörsókn í Simbabve Dræm kosningaþátttaka hefur verið í Simbabve í morgun. Mugabe forseti ákvað að halda kosningar þrátt fyrir að flestir helstu leiðtogar heims hafi fordæmt þær. 27.6.2008 13:09
Fréttir frá landi á niðurleið Eitt af risavöxnum vandamálum Suður-Afríku er hin skelfilega glæpatíðni. Hér eru framin fleiri morð, nauðganir og aðrir ofbeldisglæpir en í nokkru öðru landi i heiminum. Ástandið er slíkt að stjórnvöld eru hætt að gefa tölfræðilegar upplýsingar um glæpatíðni. 27.6.2008 13:08
Margir sækja um í HR Mikil eftirspurn er eftir að komast í nám í Háskólanum í Reykjavík. Alls sóttu rúmlega 2200 manns um skólavist við skólann fyrir næsta skólaár. Aldrei fyrr hafa jafnmargir sóst eftir því að stunda nám við skólann. Í fyrra voru umsækjendur í fyrsta sinn í sögu skólans yfir 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR. 27.6.2008 13:08
Sterkur jarðskjálfti á Andaman-eyjum nálægt Indlandi Jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter varð í dag á Andaman-og Nicobareyjum sem eru undan austurströnd Indlands. Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna jarðskjálftans. Engar fregnri hafa borist af mann- eða eignatjóni en skelfdir íbúar eyjanna munu hafa hlaupið út úr húsum sínum þegar skjálftinn reið yfir. 27.6.2008 13:05
Skuggahverfi dæmt til að greiða Þorvaldi og frú um fjórar milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 101 Skuggahverfi til þess að greiða Þorvaldi Gylfasyni háskólaprófessor og konu hans, Önnu Karítas Bjarnadóttur, 4,1 milljón króna í bætur vegna galla á íbúð sem þau keyptu í Skuggahverfinu árið 2005. 27.6.2008 13:03
Samfylkingin þurfti að gefa eftir í umhverfismálum Einn helsti hugmyndafræðingurinn á bak við umhverfisstefnu Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi þurft að gefa eftir veigamikil atriði í umhverfismálum í ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Hann vill þó ekki meina að Fagra Ísland séu orðin tóm. 27.6.2008 12:28
Slæmt að fámenn stétt geti valdið svo mörgum óvissu og tjóni Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda telur slæmt að svo fámenn og vellaunuð stétt sem flugumferðastjórar eru geti valdið svo mikilli óvissu og tjóni á meðal fjölda fólks með því að beita verkfallsrétti sínum. 27.6.2008 12:13
Flug komið í eðlilegt horf Flug er svo gott sem komið í eðlilegt horf eftir aðgerðir flugumferðarstjóra. Aðgerðir flugumferðarstjóra stóðu í rúmar tvær klukkustundir. 27.6.2008 12:04
Meira þarf til en að skipta um oddvita ,,Það virðist sem mun meira þurfi að koma til hjá Sjálfstæðisflokknum en að skipta um oddvita," segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ. 27.6.2008 12:03
Ungir jafnaðarmenn húðskamma Samfylkingarráðherra Ungir jafnaðarmenn átelja ráðherra Samfylkingarinnar harðlega fyrir að stuðla að tveimur nýjum álverum á Íslandi og ganga þar með gegn stefnu flokksins í umhverfismálum. 27.6.2008 11:57
Tölvunarfræðiprófessor braust inn í samgöngukortakerfi Lundúna Hollenskur tölvunarfræðiprófessor ferðaðist ókeypis um London með almenningssamgöngukerfi borgarinnar alla síðustu viku. 27.6.2008 11:45
Gat á bensíntanki batt enda á flótta Gat á eldsneytistanki batt enda á flóttatilraun ökumanns sem grunaður er um ölvunarakstur á Akranesi í síðustu viku. 27.6.2008 11:41
Lögmaður höfuðpaursins: „Maður hefur ekki séð þetta áður“ „Ég er ekki sammála dómnum enda voru engin bein sönnunargögn sem tengdu hann þessu máli. Þetta voru meira og minna spádómar um eitthvað sem menn hefðu getað verið að tala um,“ segir Grímur Sigurðarson, lögmaður Antons Kristins Þórarinssonar, sem í gær var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir smygl á um 700 grömmum af kókaíni. 27.6.2008 11:34
Sundlaugarhús á Akranesi skemmdist mikið vegna gufu Miklar skemmdir urðu á sundlugarhúsi Bjarnalaugar á Akranesi í síðustu viku eftir að óprúttnir aðilar brutust þar inn. 27.6.2008 11:29
Matsmenn kallaðir til í Mýrarhúsaskólamáli Matsmenn verða kallaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna skaðabótamáls kennara á hendur móður stúlku sem skellti hurð á kennarann. Dómur hefur þegar fallið í málinu í héraðsdómi en matsgerð sérstakra matsmanna á að leggja fyrir Hæstarétt þegar hann tekur málið fyrir. 27.6.2008 11:12
Staða fatlaðra verst á Suðvesturhorninu Gerður A. Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar, segir að staðan í málefnum fatlaðra sé verst í Reykjavík, höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. ,,Það er pólitísk ákvörðun tekin af Alþingi sem ákvað að setja ekki aukið fjármagn í málaflokkinn á svæðinu. Á seinsta ári kölluðum við eftir auknu fjármagni í uppbyggingu en töluðum fyrir daufum eyrum," segir Gerður. 27.6.2008 10:28
Ræða refsiaðgerðir gegn Simbabve í öryggisráði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjamenn muni taka þá hugmynd upp innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að beita frekari refsiaðgerðum gegn stjórnvöldum í Simbabve vegna stjórnmálaástandsins þar. 27.6.2008 10:26
Slegist með golfkylfum, öxi og borðfótum á Akureyri Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast við að stilla til friðar í gærkvöldi þegar sló í brýnu á milli stríðandi fylkinga úr undirheimum bæjarins. Að sögn lögreglu snérist málið um fartölvu sem hóparnir ásökuðu hvorn annan um að hafa stolið. Töluverð slagsmál brutust út og var gripið til vopna. 27.6.2008 09:48
„Þetta horfði þunglega í alla nótt“ „Þetta horfði þunglega í alla nótt alveg fram undir morgun,“ sagði Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, sem í morgun náði samkomulagi í kjaradeilu sinni við samninganefnd Samtaka atvinnulífsins sem semur fyrir hönd Flugstoða ohf. 27.6.2008 09:42
Rafmagnslaust á hluta Sauðárkróks Rafmagnslaust er nú á hluta Sauðárkróks eftir að háspennurofi í rafstöð í bænum brann yfir. 27.6.2008 09:30