Fleiri fréttir

Hvalkjötið enn ekki tollafgreitt í Japan

Rúm 60 tonn af hvalkjöti sem Hvalur hf. sendi til Japan í upphafi mánaðarins hefur enn ekki verið tollafgreitt. Og japönsk yfirvöld segja að þeim hafi ekki borist nein beiðni um innflutningsleyfi fyrir kjötið.

Mikil geislavirkni í sorpi frá Ítalíu

Yfirvöld í Hamborg hafa fyrirskipað stöðvun á eyðingu spítalasorps frá Ítalíu eftir að mælingar sýndu óvenjumikla geislavirkni í því. Var geislavirkning 80-falt meiri en eðlilegt getur talist.

Rannsaka samtal milli fimm Guantanamo-fanga

Bandaríkjaher ætlar að láta rannsaka hvernig á því stóð að fimm Guantanamo-fangar fengu að tala saman þegar verið var að birta þeim ákæru á fimmtudag.

Lítilsháttar auking á skjálftavirkninni í Ölfusi

Skjálftavirknin í Ölfusi hefur aukist lítillega síðustu klukkutímanna. Tveir skjálftar upp á 3 á richter hafa fundist. Annnar þeirra rétt fyrir klukkan 22 í gærkvöldi undir Ingólfsfjalli. Hinn varð rúmlega hálf tvö í nótt við enda Kross-sprungunnar.

Mótmæltu álverinu í Helguvík

Fyrsta skóflustungan að nýju álveri í Helguvík var tekin í dag. Þá voru samningar á milli Norðuráls og Íslenskra aðalverktaka um byggingarframkvæmdir undirritaðir. Nokkur mótmælu voru við athöfnina og þurfti lögregla að hafa afskipti af mótmælendum.

Grunaður barnaklámskennari fremur sjálfsmorð

Ástralskur kennari tók sitt eigið líf og annar reyndi sjálfsvíg eftir að þeir voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á barnaklámshringi á netinu. Mennirnir voru yfirheyrðir af lögreglu þegar upp komst um barnaklámshringinn en lögreglan þar í landi hefur ákært 90 manns í tengslum við málið.

Fyrsta skóflustungan í Helguvík

í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju álveri í Helguvík og undirritaðir samningar milli Norðuráls og Íslenskra aðalverktaka um að hefja byggingarframkvæmdir á þessu ári. Ekki liggja fyrir leyfi um raflínur vegna álversins og eigendur þess hafa ekki tryggt fullri starfsemi þess raforku.

Starfsmenn Sólfells segja eigendur ætla að keyra fyrirtækið í þrot

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Sólfells í Borgarnesi saka móðurfyrirtæki þess um að ætla að sölsa undir sig eignir fyrirtæksins og keyra það í þrot. Öllum 35 starfsmönnum Sólfells var sagt upp störfum í síðustu viku og er mikil reiði meðal starfsmanna.

Lofar fögrum Skólavörðustíg fyrir sumarlok

Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri miðborgar Reykjavíkur, lofar borgarbúum að framkvæmdum við Skólavörðustíginn verði lokið fyrir sumarlok. Kaffihús við Skólavörðustíginn hafa neyðst til að loka vegna framkvæmdanna sem staðið hafa yfir í margar vikur.

Kókaínsmokkarnir koma ekki

Hollendingurinn sem situr í gæsluvarðhaldi lögreglunnar á Suðurnesjum hefur enn ekki skilað af sér öllum þeim pakkningum sem hann gleypti til þess að smygli kókaíni hingað til lands.

Gæsluvarðhald yfir Fritzl framlengt

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir hinum austurríska Josef Fritzl þangað til dómari endurmetur stöðuna eftir tvo mánuði. Fritzl er ásakaður fyrir að hafa nauðgað dóttur sinni Elisabeth Fritzl og lokað hana inni í 24 ár. Á þeim tíma gat hann henni 7 börn. Lögreglan í Austurríki segir að Fritzl hafi játnað verknaðinn á sig.

Hætta á grjóthruni er talin hafa aukist eftir jarðskjálftanna

Almannavarnanefndir á jarðskjálftasvæðinu á Suðurlandi hafa látið meta hættu á grjóthruni í kjölfar jarðskjálftanna. Niðurstöður rannsókna eru þær að hætta á grjóthruni er talin hafa aukist á svæðinu kringum Hamarinn við Hveragerði, Reykjafjall og Ingólfsfjall.

Þorsteinn þvertekur fyrir brask og óreiðu

Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs, umsjónarfyrirtækis Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar, mun boða til blaðamannafundar í næstu viku samkvæmt spjalli sem blaðamaður Vísis átti við Þorstein.

Stal verkfærum af vinnuveitanda

Fyrrverandi starfsmaður Íslenskra aðalverktaka(ÍAV) var í Héraðsdómi Austurlands í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað.

Listanemi fær bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrrverandi nema í Listaháskóla Íslands bætur vegan tjóns sem hún varð fyrir við meðhöndlun eiturefna innan skólans.

Klónuð kýr eignast afkvæmi

Átta kálfar hafa fæðst í Bretlandi sem eru afkvæmi klónaðrar kýr. Hún gekk þó ekki sjálf með afkvæmin heldur voru þau flutt sem fósturvísar til Bretlands af bandarískri rannsóknarstofu og gekk ,,leigukýr" með kálfana.

Sendinefndin farin til Íraks að hitta flóttafólk

Íslensk sendinefnd lagði í dag af stað til Íraks til að taka viðtöl við flóttafólk sem boðið verður hæli hér á landi nú í haust. Sendinefndin verður í Írak í viku og sagðist Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða kross Íslands í ljósi þess að reynslan sýni að það hafi reynst börnum úr hópi flóttafólks erfitt að byrja nám sitt eftir að skólaárið er hafið ,,vonast til þess að hópurinn komi til landsins í ágúst."

Stjórnmálamaðurinn Sturla heldur ræðu (myndband)

Vörubílstjórinn Sturla Jónsson ætlar að skella sér í pólitík. Hann sagði á Vísi í dag að hann væri búinn að stofna stjórnmálaflokk, Íslenska lýðræðisflokkinn, sem myndi bjóða fram í næstu alþingiskosningum.

Mugabe sagður nota matvælaaðstoð sem vopn í kosningabaráttunni

Bandaríski sendiherran í Simbabve sakar stjórnvöld í landinu um að notfæra sér matvælaaðstoð til þess að afla atkvæða fyrir núverandi forseta landsins, Robert Mugabe í komandi forsetakosningum. Hann segir að Mugabe og félagar séu orðnir hræddir um að missa völdin og því grípi þeir til þessara örþrifaráða.

Æfðu umgengni og móttöku á þyrlum

Í gærkvöld hélt áhöfn TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, æfingu fyrir viðbragðsaðila í Rangárvallasýslu varðandi umgengni og móttöku á þyrlum. Námskeiðið var haldið í húsi björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli.

Telur að ráðið verði tímabundið í embætti borgarritara

Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vinstri grænna telur að ,,ráðið verði tímabundið í embætti borgarritara fram að áramótum og á meðan verði staðan auglýst." Nái tillagan fram að ganga er það í annað sinn á þremur árum sem embættið er stofnað. Stutt er síðan að Jakob Frímann Magnússon var ráðinn tímabundið sem framkvæmdastjóri miðborgarmála og olli ráðning hans umtalsverðu fjaðrafoki.

Óttast að náttúruleg stífla í Kína bresti

Vatn er tekið að seytla gegnum náttúrulega stíflu sem myndaðist í Jianjiang-fljótinu í Sichuan-héraðinu í Kína þegar jarðskjálftinn varð þar 12. maí. Verkfræðingar hafa nú vökult auga með stíflunni sem er úr grjóti og jarðvegi en óttast er að hún bresti með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Medvedev vill ekki að Úkraína gangi í Nató

Dmitry Medvedev, forseti Rússlands hefur varað Viktor Yushchenko, forseta Úkraínu við því að Úkraína gangi í Nató. Ef fari svo þá muni samskipti á milli Rússlands og Úkraínu stirðna í kjölfarið. Forsetarnir tveir eru um þessar munir á óformlegum leiðtogafundi 12 fyrrum Sovétríkja.

Frosið brauð sagt bakað á staðnum

Stórmarkaðurinn Krónan auglýsir brauð sem sé "bakað á staðnum". Deigið er hins vegar flutt til landsins frosið og forbakað og aðeins hitað upp í stórmörkuðunum. Framkvæmdastjóri Bakarameistarans segir bakstur lögverndaða iðn.

Mannfall á Srí Lanka

Að minnsta kosti 20 féllu og 80 særðust þegar vegsprengja sprakk í úthverfi Kólombo, höfuðborgar Srí Lanka, í morgun. Strætisvagn ók hjá þegar sprengjan sprakk. Þetta var á háannatíma.

Kennaraháskólinn stendur á tímamótum

Haldið verður upp á hundrað ára afmæli setningu fyrstu fræðilaga og stofnun Kennaraskóla Íslands, fyrirrennara Kennaraháskólans, í Borgarleikhúsinu á morgun.

Sjá næstu 50 fréttir