Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hermönnum sigað á vasaþjófa Ítalska ríkisstjórnin hefur ákveðið að senda hermenn út á götur stórborga landsins til þess að stemma stigu við glæpum. Málið hefur varkið deilur á Ítalíu en stjórnarandstæðingar líkja hugmyndinni við aðgerðir herforingjastjórna. 15.6.2008 19:21
Hvað á hverinn að heita? Um tvöhundruð tillögur hafa borist um nafn á stóra leirhverinn á Reykjum í Ölfusi sem myndaðist í Suðurlandsskjálftanum. Nöfnin eru það mörg að dómnefnd íhugar að nota sum þeirra á aðra nýja hveri sem einnig hafa orðið til á svæðinu. 15.6.2008 19:06
Ein flugbraut dugar Tæknifræðingur, sem rannsakað hefur veðurfar á Reykjavíkurflugvelli í áratugi, telur að ein flugbraut dugi til að sinna þörfum innanlandsflugs. Hagkvæmasti kosturinn sé að lengja aðra flugbrautina út í Skerjafjörð. 15.6.2008 18:39
Ekki hætt við hátíðarhöld um verslunarmannahelgi þrátt fyrir ólæti Aldurstakmörk á tjaldstæðunum á Akureyri auðvelduðu lögreglu að fást við ólætin í miðbænum sem þó voru mun meiri en undanfarin ár. Bæjarstjórinn á Akureyri segir að atburðir helgarinnar hafi engin áhrif á hátíðarhöld um verslunarmannahelgina. 15.6.2008 18:32
Mikil umferð í átt til borgarinnar Mjög mikil umferð er nú á norður- og vesturlandi á leiðinni suður enda margir sem fóru til Akureyrar um helgina, meðal annars á Bíladaga. Að sögn lögreglu á Blönduósi gengur umferðin vel þrátt fyrir það þó eitthvað hafi verið um hraðakstur. Allt hefur þó gengið slysalaust fyrir sig fram að þessu. 15.6.2008 16:51
Bush í konunglegu teboði George Bush Bandaríkjaforseti er að ljúka ferðalagi sínu um Evrópu en nú er hann staddur á Englandi. Hann og Laura konan hans settust niður með Elísabetu Englandsdrottningu í Windsor kastala og drukku te. Bush verður í tvo daga á Englandi og meðal annars mun hann hitta Gordon Brown forsætisráðherra að máli á morgun. 15.6.2008 16:42
Vísar ásökunum um bull á bug Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjóstangveiðifyrirtækisins Hvíldarkletts, segir það víst rétt fyrirtæki hans hafi aðeins keypt 1300 kíló á leigukvótamarkaði eftir að verðið fór í 260 krónur, eins og haft er eftir honum í Fréttablaðinu í dag. Hallgrímur Guðmundsson, formaður Framtíðar, samtaka sjálfstæðra í sjávarútvegi, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að Elías færi með rangt mál. 15.6.2008 15:54
Sjóstangveiðifyrirtækin hafa klárlega skrúfað upp verðið á leigukvóta Hallgrímur Guðmundsson, formaður í Framtíð, samtökum sjálfstæðra í sjávarútvegi, segir það bull að fyrirtækið Hvíldarklettur hafi aðeins keypt um 1300 kíló á því verði sem nú er í gangi á kvótaleigumarkaði. Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Elías Guðmundsson, sem rekur sjóstangaveiðifyrirtækið Hvíldarklett. Trillusjómenn hafa haldið því fram að sjóstangaveiðifyrirtækin hafi sprengt upp verðið á kvótaleigumarkaðinum en Elías segir það staðlausa stafi enda hafi hafnn aðeins keypt rúmt tonn. „Þetta er bara bull,“ segir Hallgrímur hins vegar og vísar í upplýsingar á heimasíðu Fiskistofu. 15.6.2008 15:22
Bjarni kannast ekki við loforð Geirs Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki kannast við að vera með loforð upp á vasann frá Geir H. Haarde að hann taki við ráðuneyti á næstunni. Heimasíðan "Orðið á götunni" segir í dag að þar til fyrir nokkrum dögum hafi flest bent til þess að Bjarni væri á útleið úr pólitík. Það hafi hins vegar breyst eftir einkafund sem hann átti að hafa átt með Geir Haarde forsætisráðherra nýlega þar sem Geir lofaði Bjarna því að fljótlega verði gerðar breytingar á ríkisstjórninni og þá verði hann ráðherra. 15.6.2008 14:04
Karzai hótar að senda hersveitir inn í Pakistan Hamid Karzai, forseti Afganistans, hótaði í dag að senda hersveitir inn í nágrannríkið Pakistan til þess að hafa hendur í hári uppreisnarmanna talibana. 15.6.2008 13:52
Dregur úr hjartaáföllum í kjölfar reykingabanns Hjartaáföllum hefur fækkað á helmingi allra spítala á Englandi í kjölfar þess að reykingabann var sett á skemmtistöðum þar í landi. Hjartaáföllum hefur fækkað um 1348 á þeim níu mánuðum sem liðnir eru frá því banninu var komið á, borið saman við sama tímabil í fyrra. Það þýðir að hjartaáföllum hefur fækkað um þrjú prósent frá því banninu var komið á. 15.6.2008 13:34
Tugir látnir í flóðum í Kína Að minnsta kosti 55 hafa látið lífið og ein og hálf milljón manna þurft að yfirgefa hemili sín vegna mikilla flóða í Suður-Kína. Flóðin hafa leikið Sisjúan hérað illa en þar er fólk enn að jafna sig eftir skjálftann í síðasta mánuði. 15.6.2008 13:05
Stjórnarþingmaður óánægður með ráðherra Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi lýsir óánægju sinni með stefnuna í orku- og virkjunarmálum í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að eftir að Bitruvirkjun hafi verið slegin af þá hafi Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagt að það þyrfti að hafa áhyggur af orkuskorti og að slegið gæti í bakseglin hjá stórfyrirtækjum sem hygðu á starfsemi á Íslandi. 15.6.2008 11:06
Kvartað undan RARIK Dreifbýlis- og hálendisnefnd Fljótsdalshéraðs gerir þá kröfu að Rafmagnsveitur ríkisins og Landsvirkjun standi við gildandi samninga um stjórn vatnshæðar í Lagarfljóti. Þetta var samþykkt á fundi nefndarinnar í vikunni. 15.6.2008 11:01
Hraðakstur víða um land Lögregla stöðvaði fimm bifreiðar á Reykjanesbraut vegna hraðaksturs í gærkvöldi og í nótt. Einn var svo stöðvaður á 111 km þar sem hámarkshraði er 50 km/klst og annar á 159 km þar sem hámarkhraði er 70 km/klst. Ökumennirnir voru báðir sviptir ökuréttindum til bráðabirgða. 15.6.2008 10:36
Kveikt í bílum á Selfossi Grunur leikur á að kveikt hafi verið í þremur bílum á Selfossi í nótt. Lögregla fékk tilkynningu laust eftir sjö í morgun um að bílar stæðu í ljósum logum fyrir utan réttingaverkstæði við Gagnheiði. Slökkvilið var kallað út og réði niðurlögum eldsins. Tveir bílanna eru gjörónýtir og sá þriðji er mikið skemmdur. Þeir sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir á þessum slóðum eru beðnir um að gefa sig fram við lögreglu. 15.6.2008 10:19
Skutu flugeldum að lögreglu á Akureyri Mikil ölvun og ólæti voru í miðbæ Akureyrar í nótt og eru fangageymslur lögreglunnar fullar. Mikið fjölmenni er í bænum í tengslum við Bíladaga. Lögregla furðar sig á grófri og ruddalegri framkomu fólks í sinn garð og var dósum og flöskum meðal annars kastað í átt að lögreglu. Þá var flugeldum skotið á lögreglu á Ráðhústorginu. 15.6.2008 09:58
Barinn í höfuðið með golfkylfu Mjög annasamt var hjá lögreglunni í miðborg Reykjavíkur í nótt. Fjórir ungir menn réðust á annan og börðu hann í höfuðið með golfkylfu af þvílíku afli að hún brotnaði. Lögregla segir ótrúlegt að maðurinn skuli ekki hafa slasast meira en raunin varð en hann fékk að fara heim að lokinni skoðun á slysavarðstofunni. Lögregla handsamaði mennina en þrír þeirra eru 17 ára og einn 18. Að öðru leyti var mjög mikið að gera hjá lögreglunni, mikið um útköll vegna ölvununar og fólk var víða ósjálfbjarga vegna hennar, að sögn lögreglu. 15.6.2008 09:55
Tuðran sprakk á leiðinni til Reykjavíkurhafnar „Þetta gekk bara ágætlega fyrir utan smá óhapp sem við lentum í við Viðey þegar önnur tuðran sprakk, eða eitt hólfið í henni,“ segir Alma Eðvaldsdóttir, talsmaður framtaksins Kraftur í kringum Ísland. Þar er um að ræða níu manna hóp sem ætlar að sigla hringinn í kringum landið á tveimur tuðrum, eða slöngubátum. 14.6.2008 20:24
Enn finnast leyniskjöl á glámbekk á Bretlandi Enn finnast á Bretlandi leyniskjöl á glámbekk. Greint var frá því fyrr í vikunni að BBC hefði fengið afhent skjöl sem fundust í lest og fjölluðu um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í baráttunni við hryðjuverkamenn. Dagblaðið Independent on Sunday hefur nú skýrt frá því að þeim hafi einnig verið afhentur skjalabunki sem merktur er sem ríkisleyndarmál. 14.6.2008 21:19
Grýttur og brendur lifandi Innflytjandi frá Mósambík var myrtur í Suður Afríku í dag nærri höfuðborginni Pretoríu. Maðurinn, sem var þrjátíu ára gamall, er síðasta fórnarlambið í ofsóknum Suður Afríkumanna gegn innflytjendum frá öðrum Afríkuríkjum. Maðurinn var sakaður af æstum múg um íkveikju og var hann grýttur og loks brenndur lifandi. 14.6.2008 20:47
Breskir íhaldsmenn vilja fá að kjósa um Lissabon - sáttmálann Breskir íhaldsmenn skora á ríkistjórn Bretlands að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon-sáttmálann. Áskorunin kemur í kjölfar þess að breska ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að sáttmálinn verði samþykktur á þinginu þrátt fyrir að Írar hafi fellt hann í þjóðaratkvæði í gær. 14.6.2008 19:36
Olíuhækkanir hafa áhrif á störf lögreglu Hækkanir á bensíni og olíu eru farnar að hafa áhrif á störf lögregluembættanna í landinu þar sem fjárveitingar hafa ekki hækkað í takt við hækkanirnar. Embættin hafa brugðist við hækkunum með því að draga úr akstri og sinna í auknum mæli staðbundnu eftirliti. 14.6.2008 18:45
Gríðarleg úrkoma í Iowa Að minnsta kosti tveir hafa látið lífið og þúsundir þurft að flýja heimili sín vegna mikilla flóða í Iowa fylki í Bandaríkjunum. Gríðarlega mikil úrkoma hefur verið í fylkinu undanfarna daga með þeim afleiðingum að ár hafa flætt yfir bakka sínar og yfir nærliggjandi vegi og þorp. 14.6.2008 18:40
Aldrei fleiri útskrifaðir Aldrei hafa jafnmargir kanditatar útskrifast úr háskólum hér á landi og í dag. Samtals voru þeir tæplega tvöþúsund og fjögur hundruð. Ekkert lát virðist vera á þekkingarleit landsmanna, því metaðsögn er að háskólunum fyrir haustið. 14.6.2008 18:30
Íran ætlar ekki að hætta að auðga úran Stjórnvöld í Teheran segjast ætla að hafna öllum samningaumleitunum sem ganga út á að Íranar hætti auðgun úrans. Javier Solana, sem fer með utanríkismál fyrir hönd ESB lagði í dag fram tilboð fyrir hönd stórveldana sem felur í sér að Íranir hætti að auðga úran en fái í staðin aðstoð við að byggja upp "friðsamlega" kjarnorkuáætlun. Solana fundar nú með íranska utanríkisráðherranum og segjast íranar tilbúnir til að ræða tilboðið, en að ekki sé inni í myndinni að lofa að hætta að auðga úran. 14.6.2008 17:27
Sex látnir í Japansskjálfta Nú er komið í ljós að minnsta kosti sex létu lífið í jarðskjálftanum sem skók Japan í morgun. 140 eru slasaðir en skjálftinn var 7,2 á richter skalanum. Sjö grófust undir aurskriðu sem féll á hverasvæði sem vinsælt er hjá ferðamönnum. Björgunarsveitir eru nú að störfum við að reyna að bjarga fólkinu úr skriðunni. 14.6.2008 16:29
Slökkvilið fær veglega gjöf Nú á dögunum var slökkviliði Hveragerðis fært veglegt hjartastuðtæki að gjöf. í tilkynningu frá slökkviliðinu kemur fram að aðili sem ekki vildi láta nafns síns getið hafi gefið liðinu tækið. En slökkviliðsmenn vilja koma á framfæri miklum þökkum til viðkomandi aðila. 14.6.2008 15:48
Sjö milljónum veitt úr Háskólasjóði KEA Kristján Möller, samgönguráðherra og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA afhentu í dag sjö milljónir króna úr Háskólasjóði KEA. 14.6.2008 15:41
Discovery lent heilu og höldnu Geimferjan Discovery var að lenda á Canaveral höfða í Flórída. Skutlan hefur verið í tveggja vikna ferð á sporbaug um jörðu þar sem verið var að koma japanskri rannsóknarstofu á braut. Ferðin hefur vergengið í alla staði vel og áhyggjur manna um að eitthvað væri að skutlunni reindust ekki á rökum reistar, því hún lenti heilu og höldnu nú rétt eftir klukkan þrjú. 14.6.2008 15:13
Háskólinn stefnir hátt Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði við útskrift tæplega 1100 kandídata í dag, að á næstu fimm árum stefndi Háskólinn að því að byggja upp fjögur til sex afburðasvið eða stofnanir, sem tryggt yrði sérstakt fjármagn og grundvöllur til að skara framúr á alþjóðavísu. 14.6.2008 15:08
Stúlkan komin í leitirnar Stúlkan sem leitað var að í Setbergslandi í Hafnarfirði í hádeginu er fundin, heil á húfi. Íbúi í hverfinu tilkynnti til lögreglu að hann hefði séð til hennar og þegar lögregla kom á staðinn fannst hún í nágrenninu. 14.6.2008 13:25
Leitað að stúlku í Hafnarfirði Nú stendur yfir leit að ellefu ára gamalli stúlku í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Lögregla og björgunarsveitir taka þátt í leitinni og þyrla landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið. Stúlkan, sem er fötluð, hvarf frá heimili sínu rétt fyrir hádegið en sökum fötlunar hennar var ákveðið að bregðast skjótt við og kalla út lið til leitar. 14.6.2008 12:58
Hanna Birna: Ekki unað við stöðu flokksins í borginni Ekki verður unað við stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni segir Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna. Hún segir andstæðinga meirihlutans hafa vegið ómaklega að borgarstjóra. 14.6.2008 12:48
Hringferð um landið á tuðrum Snemma í morgun lögðu tvær tuðrur, eða slöngubátar, upp frá Vestmannaeyjum í hringferð í kringum landið. Hér er á ferðinni átaksverkefni sem standa mun í þrjár vikur. Fyrsti áfangastaður er Reykjavík og er búist við þeim á milli klukkan tvö og þrjú í dag. 14.6.2008 11:43
Tsvangirai í haldi lögreglu Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, Morgan Tsvangirai, hefur verið handtekinn ásamt ellefu stuðningsmönnum sínum. Þetta segir fréttastofa Reuters og hefur eftir talsmanni flokks Tsvangirai, MDC. Mennirnir eru í haldi á lögreglustöð í Harare, höfuðborg landsins. 14.6.2008 11:07
Ölvaður ók á kyrrstæðan bíl Harður árekstur varð á Sæbraut rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ekið var aftan á bíl sem var kyrrstæður á rauðu ljósi. Ökumaður og farþegi í kyrrstæða bílnum voru fluttir á slysadeild í sjúkrabíl. Sá sem var valdur að slysinu er grunaður um ölvun við akstur. 14.6.2008 10:36
Öflugur skjálfti í Japan Óttast er að minnsta kosti þrír hafi látið lífið og meira en eitt hundrað slasast þegar öflugur jarðskjálfti gekk yfir norðurhluta japans í nótt. Skjálftinn mældist 7,2 á Richter og fylgdu honum fjölmargir eftirskjálftar. Tíu manns er enn saknað eftir skjálftann og þá hafa samgöngur víða legi niðri með þeim afleiðingum að þúsundir manna komast ekki leiðar sinnar. 14.6.2008 09:45
Landaverksmiðja í hesthúsi Lögreglan á Selfossi fann í gærkvöldi landabruggverksmiðju í hesthúsi í sveitarfélaginu Árborg. Karlmaður var handtekinn grunaður um að hafa staðið að brugginu en um er að ræða um það bil 250 til 300 lítra af gambra og 70 til 80 lítra af fullunnum landa. Manninum var sleppt að loknum yfirheyrslum en lögregla lagði hald á bruggið og tækin. 14.6.2008 09:39
Mikil ölvun á Bíladögum á Akureyri Mikil ölvun var í miðbæ Akureyrar í nótt en þar standa yfir Bíladagar. Sjö gistu fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta. Fjórar líkamsárásir komu til kasta lögreglu en þær voru allar minniháttar. 14.6.2008 09:36
Velti fjórhjóli Ökumaður fjórhjóls velti hjólinu skammt fyrir ofan Heiðarbraut í Garði í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum fann hann til eymsla í mjöðm og höfði og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Hann mun hafa verið vel búinn til fjórhjólaaksturs sem sennilega hefur komið í veg fyrir frekari meiðsli. 14.6.2008 09:20
800 grömm af hassi í Breiðholti Lögreglan lagði í gærkvöldi hald á að um 800 gr af hassi og um 200 þúsund í peningum við húsleit í Breiðholti. Að sögn lögreglu var húsleitin gerð á grundvelli úrskurðar frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Tveir voru handteknir vegna málsins. 14.6.2008 09:14
Fjórir fluttir á slysadeild í árekstri á Sæbraut Fjórir voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir umferðarslys á Sæbraut um klukkan háfltólf í kvöld. 14.6.2008 00:29
Malbikað á Miklubraut Á morgun verða malbikunarframkvæmdir á Miklubraut, Skútuvogi og Sægörðum með tilheyrandi töfum á umferð. 13.6.2008 23:00
Bílslys í Hrútafirði Einn var fluttur á brott með sjúkrabíl eftir að bifreið fór út af veginum rétt norðan við Staðarskála í Hrútafirði í kvöld. Fleiri voru í bílnum en hlutu ekki alvarleg meiðsli. 13.6.2008 22:47