Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Matsferli hafið vegna álvers á Bakka Hafið er matsferli vegna álvers á Bakka við Húsavík. Til skoðunar er bygging álvers með allt að 250.000 tonna ársframleiðslu. Alcoa er framkvæmdaraðili verksins. 13.6.2008 17:01
Rúmenar og Þjóðverji dæmdir fyrir milljónakortasvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo Rúmena og einn Þjóðverja í fangelsi fyrir kortasvik og tilraunir til kortasviks hér á landi. Svikin nema milljónum króna. 13.6.2008 16:55
Sleppt úr haldi á Akranesi Manni, sem handtekinn var með aðkomu sérsveitar eftir ofsaakstur á Akranesi í gær, var sleppt úr haldi um hádegisbil í dag að sögn lögreglu á Akranesi. 13.6.2008 16:44
Sölumaður stolinna líkamshluta iðrast Tannlæknir í New Jersey, sem er ákærður fyrir að selja stolna líkamshluta, horfðist í dag í augu við ættingja þeirra sem hann seldi hluta af. 13.6.2008 16:35
Mugabe tilbúinn í borgarastyrjöld Robert Mugabe, núverandi forseti Zimbabwe, segir að tapi hann forsetakosningunum í landinu í lok mánaðarins verði fyrrverandi hermenn tilbúnir að sverfa til stáls. 13.6.2008 16:20
Tvö börn lögð inn á geðdeild á Spáni vegna gemsafíknar Tvö börn, 12 og 13 ára voru sett inn á geðdeild af foreldrum sínum á Spáni en þau töldu börn sín vera háð símum sínum og ekki getað lifað eðlilegu lífi án þeirra. Þau voru farin að vanrækja skólann og ljúga að ættingum til þess að geta náð sér í pening til þess að eyða í síma sína. 13.6.2008 16:12
Dæmdur fyrir nauðgun á Hótel Sögu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítugan pólskan karlmann, Robert Dariusz Sobiecki í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað á salerni í kjallara Hótels Sögu í Reykjavík í mars í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða henni eina og hálfa milljón í bætur. 13.6.2008 16:08
Írar fella Lissabon-sáttmálann - Baroso hvetur önnur ríki til að staðfesta Nú er það staðfest að Írar hafa fellt Lissabon-sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu. Búið er að telja öllum kjördæmum og er niðurstaðan á þann veg að 53,4 prósent þeirra sem tóku þátt höfnuðu sáttmálanum en 46,6 prósent sögðu já. 13.6.2008 16:01
Fær leyfi til kolvetnisleitar á Drekasvæði Orkustofnun hefur í dag veitt norska olíuleitarfyrirtækinu Wavefield-InSeis þriggja ára leyfi til leitar að kolvetni á norðanverðu Drekasvæðinu og hefjast hljóðbylgjumælingar með mæliskipi fyrirtækisins væntanlega innan nokkurra daga. 13.6.2008 15:55
Pósthússtræti lokað annan daginn í röð vegna blíðviðris Annan daginn í röð er Pósthússtræti lokað fyrir bílaumferð vegna veðurblíðu. Tilgangur lokunarinnar er að gera Austurvöll þægilegri fyrir gangandi gesti og hjólreiðafólk. Heimilt er að gefa þessum hópum meira rými meðfram Austurvelli á góðviðrisdögum. 13.6.2008 15:37
Kaupsamningum fækkar um nærri 75 prósent milli ára Ríflega 250 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maí síðastliðnum sem er 74 prósentum minna en í sama mánuði í fyrra. Þá reyndust þeir nærri 970. 13.6.2008 15:36
Mikil áta í kringum landið Mikil áta var víðast hvar í kringum landið, einkum úti fyrir Suðurströndinni, þegar rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fór í sinn árlega vorleiðangur. 13.6.2008 15:28
MH og Verzló vinsælustu skólarnir Umsóknafrestur í framhaldskóla landsins rann út á miðnætti 11. júni. Alls bárust 4400 umsóknir frá nemum í 10 bekk en sá árgangur telur 4600 manns. Einnig sóttu um 3400 eldri nemendur, bæði nemendur sem vilja skipta um skóla og hefja nám að nýju. 13.6.2008 15:20
Fullkomlega eðlilegt að spyrja Geir út í efnahagsmálin Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir fullkomlega eðlilegt að spyrja forsætisráðherra út í aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Geir H. Haarde firrtist við þegar Sindri Sindrason spurði hann út í málið í dag og sakaði forsætisráðherra hann um dónaskap. „Mér finnnst hún nú frekar skiljanleg í ljósi frétta undanfarna sólarhringa, nýrrar afkomuspár ríkissjóðs, hagspár ASÍ og fleiri frétta,“ segir Steingrímur, aðspurður hvort spurning Sindra til ráðherra hafi verið eðlileg. 13.6.2008 14:59
Auglýst eftir nýjum forstjóra Landspítala Heilbrigðisráðuneytið hefur formlega auglýst embætti forstjóra Landspítalans laust til umsóknar. Á vef ráðuneytisins er þess krafist í auglýsingu að forstjórinn skuli hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi og jafnframt þurfi hann að búa yfir reynslu af rekstri og stjórnun. 13.6.2008 14:49
Dagdraumar gefa vísbendingar um ástand fólks í dái Vísindamenn hafa fundið leið til þess að meta hvort heilaskaðað fólk í dái muni komast til meðvitundar aftur eður ei. Hluti heilans getur haldist virkur þrátt fyrir að fólk liggi í dái og hafi skaðast á heila. 13.6.2008 14:40
Vill hefja aðildarviðræður um inngöngu í ESB Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri á Ísafirði, segist vilja að Ísland hefji sem fyrst aðildarviðræður um inngöngu í Evrópusambandið. 13.6.2008 14:25
Rafmagnslaust í Washington í morgun Bilun í rafstöð í miðborg Washington olli töluverðum töfum á morgunumferðinni í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, þar sem umferðarljósi duttu út og neðanjarðarlestarsamgöngur fóru úr skorðum. 13.6.2008 14:21
Landsliðið á leið á EM í bridds Íslenska landsliðið Í bridds hefur í morgun þátttöku á Evrópumótinu í bænum Pau í Frakklandi þar sem það keppir í opnum flokki. 13.6.2008 14:01
Íhuguðu mannát eftir flugslys Þeir sem lifðu af flugslys í Chile í vikunni íhuguðu að leggja lík flugmannsins sér til munns þegar hungrið svarf hvað mest. 13.6.2008 13:50
Írskir sjómenn mótmæla innflutningi á fiski frá Íslandi Írskir sjómenn hafa staðið fyrir mótmælum síðustu daga en þeir eru afar óánægðir með innflutning á fiski frá Íslandi. Þeir hyggja á hungurverkfall á næstunni. 120 sjómenn lokuðu hliði að flugvellinum í Cork á mánudagskvöldið og komu þannig í veg fyrir að flutningabílar kæmust frá flugvellinum með fiskinn. 13.6.2008 13:34
Útigangsmaður vildi inn á forsetaskrifstofu Lögregla var kvödd að skrifstofu forseta Íslands um eittleytið vegna útigangsmanns sem hringdi ítrekað bjöllunni og vildi komast inn. Hann var hins vegar horfinn á braut þegar lögregla kom á vettvang en lögregla svipast nú um eftir honum til þess að spyrjast fyrir um hverju þetta hafi gegnt. 13.6.2008 13:33
Fólk dragi úr orkunotkun vegna hás eldsneytisverðs Það væri röng ákvörðun að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti að mati formanns efnhags- og skattanefndar Alþingis. Hann segir að fólk eigi frekar að finna leiðir til að minnka orkunotkun til að bregðast við háu eldsneytisverði. 13.6.2008 13:01
Byko kvartar undan Litaveri til Neytendastofu Vísir hefur undir höndunum bréf til Neytendastofu þar sem kvartað er undan opinberum ásökunum Litavers á hendur Byko vegna viðskiptaskilmála. Telur Byko að ásakanir Péturs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Litvers, á hendur fyrirtækisins um breytt fyrirkomulag á greiðslufresti vegna reikninga bæði rangar og tilhæfulausar. 13.6.2008 12:59
Minni samdráttur á sjúkrahúsum í sumar en í fyrra Minni samdráttur verður á sjúkrahúsum á suðvesturhorni landsins í sumar en í fyrra. 13.6.2008 12:55
Verkefnaskortur endurspeglast í tilboðum í Landeyjarhöfn Verkefnaskortur hjá verktökum virðist endurspeglast í óvenju lágum tilboðum verktaka í hafnar- og vegagerð í Landeyjahöfn. Lægsta tilboðið er upp á rúman helming af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. 13.6.2008 12:49
Síðasta útskrift Kennaraháskóla Íslands á morgun Á morgun kl. 11 munu 496 kandídatar útskrifast úr KHÍ í Laugardagshöll. Mun þetta verða seinasta útskriftin úr Kennaraháskólanum en háskólinn er að fara að sameinast Háskóla Íslands 1. júli næstkomandi. 409 eru að útskrifast úr grunnnámi og 86 úr framhaldsnámi, þar af 12 með meistaragráðu. Um seinustu helgi útskrifuðust fyrstu og seinustu nemendurnir með doktorsgráðu frá skólanum. KHÍ átti 100 ára afmæli á dögunum þannig að mikið er um merkisviðburði í kringum skólann um þessar mundir. 13.6.2008 12:39
Skilorðsbundið fangelsi fyrir heimilisofbeldi Karlmaður fékk í gær í Héraðsdómi Norðurlands eystra fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu sinni á heimili þeirra. 13.6.2008 12:34
Obama og McCain deila um skatta Baráttan um bandaríska forsetastólinn heldur áfram að harðna. Þessa daganna virðast frambjóðendurnir tveir, repúblikaninn John McCain og demókratinn Barack Obama, helst deila um skattamál. 13.6.2008 12:00
Dýrir vindlingar breyta tóbaksneyslu Bandaríkjamanna Bandaríkjamenn svala tóbaksþörf sinni nú í æ ríkari mæli með neftóbaki og smávindlum auk þess sem sístækkandi hópur vefur sína eigin vindlinga. 13.6.2008 11:54
Skilorðsbundinn dómur fyrir árás og hótanir gegn lögreglu Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás og hótanir í garð lögreglumanna. 13.6.2008 11:51
Segja Íra hafa hafnað Lissabon-sáttmálanum Breska blaðið Times fullyrðir að Írar hafi hafnað Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins sem kosið var um í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. 13.6.2008 11:32
Til greina kemur að fylgjast með myndavélaupptökum Sævar Ingi Jónsson deilarstjóri umferðareftirlits Vegagerðarinnar segir eftirlitið hafa hugleitt að skoða upptökur frá bensínstöðum til að koma í veg fyrir að litað bensín sé notað á óleyfilegan hátt. 13.6.2008 11:26
Krefst gagna um matvælafrumvarp Atli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og nefndarmaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, krefst allra gagna sem varða samningaviðræður Íslands við ESB í sambandi við matvælafrumvarpið svokallaða, en í því er opnað fyrir innflutning á hráu kjöti til landsins. Alþingi frestaði afgreiðslu málsins á dögunum en Atli vill fá skýringar á því hvers vegna fallið hafi verið frá undanþágu sem Ísland hafði um innflutning á hráu kjöti. 13.6.2008 11:08
Fangelsin þétt setin - en sleppur þó Fangelsismálastofnun verður ekki í neinum sérstökum húsnæðisvandræðum í fangelsum landsins þrátt fyrir að tíu einstaklingar hafi fengið óskilorðsbundna dóma að öllu eða einhverju leyti í Tryggingastofnunarmálinu sem dómur féll í nýverið. 13.6.2008 11:07
Réttarhöld yfir Simon Mann hefjast á þriðjudag Réttarhöld yfir breska málaliðaforingjanum Simon Mann vegna tilraunar til valdaráns í Miðbaugs-Gíneu hefjast í landinu á þriðjudag. Frá þessu greindi saksóknari í dag. 13.6.2008 10:49
Varðskipið Ægir 40 ára í dag Varðskipið Ægir er 40 ára í dag en þennan dag árið 1968 kom það til landsins. 13.6.2008 10:36
Nokkur samdráttur afla það sem af er ári Heildarafli íslenskra skipa fyrstu fimm mánuði ársins hefur dregist saman um nærri sex prósent það sem af er þessu ári í samanburði við fyrstu fimm mánuði síðasta árs. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. 13.6.2008 09:18
Minni tekjuafgangur á fyrsta ársfjórðungi í ár en í fyrra Tekjuafgangur hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi nam rúmum 16 milljörðum króna samkvæmt nýrri samantekt Hagstofunnar. 13.6.2008 09:07
Maðurinn sem sérsveitin tók er enn í haldi lögreglunnar Maðurinn, sem sérsveitarmenn lögreglunnar handtók á Akranesi eftir ofsaakstur og fíkniefnabort í gær, er enn í haldi lögreglunar. 13.6.2008 08:15
Svíar loka ofni í kjarnorkuveri Einum ofni af fjórum í Ringhals-kjarnorkuverinu í Sviþjóð hefur verið lokað vegna vandamála með kæliklerfi versins. 13.6.2008 08:05
Birnir ollu uppistandi á veitingastað í Rúmeníu Hungraðir birnir ollu miklu uppistandi á veitingahúsi í borginni Sinaia í Rúmeníu er þeir gengu þar inn og hófu að éta af diskum viðstaddra. 13.6.2008 07:50
Stálu tveimur verkum eftir Picasso Vopnaðir ræningjar í Sao Paulo í Brazilíu rændu tveimur verkum eftir Picasso og tveimur verkum eftir þekkta brasilíska listamenn. 13.6.2008 07:40
Þyrla kölluð til eftir torfæruhjólaslys Ungur maður slasaðist þegar hann féll á torfærumótorhjóli á svonefndum línuvegi í Skarðsheiði í gærkvöldi. 13.6.2008 07:39
Margir stöðvaðir við hraðakstur í Öxnadal Lögreglan á Akureyri stöðvaði sextán ökumenn fyrir of hraðann akstur í Öxnadal í gærkvöldi og fram á nótt. 13.6.2008 07:37