Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sundlaugarperrinn reyndi að flýja land Maðurinn sem handtekinn var á sunnudaginn í Sundmiðstöð Keflavíkur var úrskurðaður í 6 vikna farbann nú síðdegis. Undanfarna daga hafa borist sex kærur vegna mannsins sem er útlendingur. Hann reyndi að komast úr landi eldsnemma í morgun. 27.2.2008 16:58
Pissuðu á mat svartra starfsmanna háskóla í S-Afríku Nokkrir hvítir nemendur við háskólann í Free State í Suður Afríku eiga von á ákærum eftir að þeir þvinguðu svarta starfsmenn skólans til að borða mat sem búið var að pissa á. 27.2.2008 16:15
Íslendingar heiðursgestir á Bókamessunni í Frankfurt Stjórn bókakaupstefnunnar í Frankfurt (Frankfurter Buchmesse) hefur ákveðið að bjóða Íslandi að verða heiðursgestur á sýningunni sem haldin verður haustið 2011. Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í byrjun september í fyrra að sækjast eftir því að Ísland hlyti þennan sess. 27.2.2008 16:14
Átján mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í 18 mánaða fangelsi sem skilorðsbundið er til þriggja ára fyrir fíkniefnabrot. 27.2.2008 16:01
Odinga hættir við fjöldamótmæli í Kenía Raila Odinga stjórnarandstöðuleiðtogi í Kenía hefur hætt við fjöldamótmæli í dag og á morgun að ósk Kofi Annan fyrrverandi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Annan hefur stýrt samningaviðræðum Odinga og Mwai Kibaki forseta síðasta mánuðinn. Í gær sleit hann viðræðunum en sagðist ætla að þrýsta á leiðtogana að ná samkomulagi í stað þess að tala "í hringi" eins og AP fréttastofan orðaði það. 27.2.2008 15:50
Loðnuveiðar heimilaðar á ný - má veiða 100 þúsund tonn Einar K. Guðfinsson sjávarútvegsráðherra hefur heimilað loðnuveiðar á ný en þær voru stöðvaðar í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. 27.2.2008 15:44
Hugmyndir um mislæg gatnamót kynntar umhverfisráði Hugmyndir sem kynntar voru fyrir umhverfis- og samgönguráði borgarinnar í gær gera ráð fyrir bæði stokki og hringtorgi á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. 27.2.2008 15:30
Mótmælum á þaki breska þingsins lokið Sex mótmælendur sem komust upp á þak breska þingsins í London í morgun og mótmæltu þar stækkun Heathrow flugvallar hafa verið handteknir af lögreglu. 27.2.2008 15:27
Gaukur áfrýjar til Hæstaréttar Gaukur Úlfarsson, sem í gær var fundinn sekur um meiðyrði í héraðsdómi hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Þetta staðfestir Sigurmar K. Albertsson, lögmaður Gauks við fréttastofu Stöðvar 2. Gauki var gert að greiða Ómari R. Valdimarssyni 800 þúsund krónur í miskabætur og málskostnað vegna ummæla sem hann lét falla um Ómar á bloggsíðu sinni. Þar kallaði Gaukur Ómar meðal annars „Aðal rasista bloggheima." 27.2.2008 15:13
Frelsun fjögurra gísla í Kólumbíu Tvær þyrlur frá Venesúela eru lagðar af stað í sendiför sem miðar að því að frelsa fjóra gísla sem uppreisnarmenn Farc hafa lofað að láta lausa. Þarlendir fjölmiðlar segja að þyrlurnar hafi farið frá Venesúela rétt fyrir hádegi að íslenskum tíma. Fjórmenningarnir eru kólumbískir þingmenn. Þeir eru meðal 40 háttsettra gísla sem haldið hefur verið af Farc. 27.2.2008 14:59
Vill ræða Breiðavíkurskýrslu í borgarráði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur óskað eftir því að Breiðavíkurskýrslan svokallaða verði tekin til umfjöllunar á fundi borgarráðs á morgun. 27.2.2008 14:46
Krabbameinsfélagið fær 42 milljónir frá SPRON sjóðnum SPRON-sjóðurinn ses. hefur veitt Krabbameinsfélagi Íslands 42 milljóna króna styrk til kaupa á úrlestrarstöðvum sem röntgenlæknar nota til að lesa úr stafrænum brjóstamyndum. Jóna Ann Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SPRON-sjóðsins ses., afhenti Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands, styrktarféð við athöfn í dag. 27.2.2008 14:39
Hakakrossinn tók á móti ferðalöngum í Leifsstöð Það voru þreyttir ferðalangar sem komu með flugi Iceland Express frá Kaupmannahöfn um miðnætti í gærkvöldi. Lítilsháttar seinkun hafði verið á fluginu en farþegarnir ráku upp stór augu við lendinguna í Keflavík. Hakakrossinn tók á móti hópnum. 27.2.2008 14:27
Vilja skoða það að endurvekja Þjóðhagsstofnun Tveir þingmenn Samfylkingarinnar vilja skoða það að Þjóðhagsstofnun verði endurvakin sem rannsóknarstofnun í efnahagsmálum. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Þeir eru ósammála tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um að hverfa frá verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. 27.2.2008 14:07
Auglýst eftir vitnum að líkamsárás Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað laugardaginn 4. september 2004 um miðjan dag á Eyjafjarðarbraut eystri skammt frá Akureyri. 27.2.2008 13:52
Kristján Möller gaf sig fram í morgun Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi auglýsti eftir Kristjáni L. Möller samgönguráðherra í Morgunblaðinu í morgun undir fyrirsögninni, Hvar ertu Kristján? Ráðherrann brást skjótt við og mætti í vínarbrauð rétt fyrir níu í morgun. 27.2.2008 13:36
Framleiða álvír í Reyðarfirði Framleiðsla er hafin á álvírum í steypuskála Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði en þá á að nota í hásprennustrengi líka þeim sem flytja raforku frá Kárahnjúkavirkjun að álverinu. 27.2.2008 13:31
Á sjúkrahús með kalsár á fæti Björgunarsveitarmenn úr Mývatnssveit og Reykjadal sóttu í nótt tvo pólska skíðagöngumenn sem höfðust við í skála í Kistufelli norðan Vatnajökuls. 27.2.2008 13:15
Skoðar áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða Flugfélagið Iceland Express hefur fengið bráðarbirgðaaðstöðu á Reykjavíkurflugvelli fyrir innanlandsflug. Félagið skoðar nú áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða. 27.2.2008 13:00
Svifryk fimm sinnum yfir mengunarmörk í janúar á Akureyri Svifryk fór fimm sinnum yfir mengunarmörkin á Akureyri í janúar. Það jafngildir nánast öllum mengunarkvóta ársins 2010. 27.2.2008 12:53
Býst við bylgju netþjónabúa Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er sannfærður um að bylgja netþjónabúa eða gagnavera komi í kjölfarið á því sem var innsiglað í Reykjavík í gær. 27.2.2008 12:46
Kynnti Moon framboð Íslands til Öryggisráðsins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, átti í gærkvöldi fund með Ban Ki Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Jafnfréttismál og framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna voru efst á baugi. 27.2.2008 12:40
Loðnusjómenn telja fiskifræðinga meta mun minna magn af loðnu Væntanlega fæst úr þvi skorið í dag hvort fiskifræðingar og loðnusjómenn meta ólíkt samskonar upplýsingar af fiskileitartækjum. Sjómennirnir telja að fræðingarnir meti mun minna magn en raunveruleikinn er. 27.2.2008 12:32
Tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga barnapíu Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórtán ára stúlku sem gætti tveggja sona hans. 27.2.2008 12:23
Nissan Navara innkallaður Bílaumboðið Ingvar Helgason ehf. hefur nú fyrir hönd Nissan í Evrópu hafið þjónustuinnköllun á pallbílum af gerðinni Nissan Navara. Bílarnir eru kallaðir inn til þess að endurstilla megi ræsibúnaðinn sem stjórnar því hvernig loftpúðar bílsins springa út við árekstur framan á hann. Endurstillingunni er ætlað að tryggja hraðari ræsingu loftpúðanna. 27.2.2008 11:58
Vill endurskoða vopnalög Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að vinna að endurskoðun vopnalaga og þeirra reglugerða og reglna sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Tíu ár eru liðin frá setningu gildandi vopnalaga. 27.2.2008 11:51
Sjö hundruð stúdentar við HÍ bíða eftir íbúð Stúdentaráð Háskóla Íslands bendir á að 700 stúdentar bíði nú eftir íbúð og fagnar því að nýkynntar hugmyndir um skipulag í Vatnsmýrinni taki mið af áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands og aðstöðu stúdenta. 27.2.2008 11:45
Sextíu prósentum ungmenna boðin fíkniefni Um sextíu prósentum ungmenna á aldrinum 18-20 ára, sem tóku þátt í könnun á vegum Ríkislögreglustjóra, hefur verið boðin fíkniefni. Það er álíka hátt hlutfall og árið 2004 þegar sams konar könnun var gerð. 27.2.2008 11:25
Forsætisráðherra Taílands úr útlegð Thaksin Shinawatra fyrrverandi forsætisráðherra Taílands snýr aftur úr 17 mánaða útlegð á morgun. Shinawatra var steypt af stóli í hernaðaraðgerð en hann mun mæta fyrir dóm í Taílandi þar sem hann er sakaður um spillingu. Þessar upplýsingar komu frá utanríkisráðuneyti landsins. 27.2.2008 11:23
Sonur Ariel Sharon í fangelsi Omri Sharon sonur fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, Ariel Sharon, hefur afplánun sjö mánaða fangelsisdóms í dag. Hinn 43 ára Omri hlaut dóminn vegna ólöglegrar fjáröflunar fyrir kosningabaráttu föður sins árið 1999 þegar Ariel sóttist eftir leiðtogstöðu Likud flokksins. 27.2.2008 11:04
Leita til stjórnlagadómstóls vegna afnáms slæðubanns Lýðræðislegi þjóðarflokkurinn, helsti stjórnarandstöðuflokkur Tyrklands, hefur ákveðið að leita til stjórnlagadómstóls landsins með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar heimila konum að bera slæður á höfði í háskólum landins. 27.2.2008 11:04
Nýskráðum ökutækjum fjölgar um nærri 50 prósent á milli ára Nýskráðum ökutækjum á fyrstu 53 dögum þessa árs fjölgaði um 47 prósent miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt samantekt Umferðarstofu. 27.2.2008 11:01
Mótmælendur á þaki breska þingsins Hópur mótmælenda sem er á móti stækkun Heathrow flugvallar í London hefur komist upp á þak breska þingsins í Westminstar og vakið áleitnar spurningar um öryggi. Hópurinn Plane Stupid sem berst gegn hlýnun jarðar hefur komið fyrir borðum með slagorðum á, meðal annars gegn því að þriðja flugbrautin verði byggð. 27.2.2008 10:43
Rússar kjósa arftaka Putin á sunnudag Rússar ganga til kosninga á sunnudag og kjósa arftaka Vladimir Putin forseta. Búist er við að bandamaður hans Dmitry Medvedev vinni kosningarnar. 27.2.2008 10:19
Iceland Express ekki með lóð heldur aðstöðu Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða segir að um villandi fréttaflutning hafi verið að ræða þegar greint var frá því í gær að IcelandExpress hefði fengið úthlutað lóð í Vatnsmýrinni fyrir starfssemi sína. Þeir Gísli Marteinn Baldursson og Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúar voru gestir í þættinum „Í bítið" í morgun. Þar komu þeir af fjöllum og staðhæfðu að þetta hafi aldrei komið inn á þeirra borð. 27.2.2008 10:02
Shinawatra snýr aftur til Taílands Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, hyggst snúa aftur til landsins úr útlegð á morgun í kjölfar þess að bandamenn hans sigruðu í þingkosningum skömmu fyrir síðustu áramót. 27.2.2008 09:56
Fimm Hamas liðar látnir á Gaza Ísraelsk flugvél sprengdi sendibíl með Hamasliðum innanborðs í loft upp í dag. Fimm létust þar á meðal eldflaugasérfræðingur og herforingi yfir eldflaugaarmi Hamas. Ap fréttastofan hefur þetta eftir Hamasliða. 27.2.2008 09:42
Hafa ekki heyrt um lóðaúthlutun til Iceland Express Hvorki Gísli Marteinn Baldursson né Dagur B. Eggertsson hafa heyrt um fyrirhugaða lóðaúthlutun til Iceland Express á Reykjavíkurflugvelli. 27.2.2008 09:23
Bílvelta á Álftanesvegi Bílvelta varð á Álftanesvegi nú fyrir níu. Ökumaðurinn er sagður hafa orðið fyrir einhverjum meiðslum en að sögn lögreglu eru þau ekki talin alvarleg. Óvíst er um tildrög slyssins en bíllinn var dreginn á brott með dráttarbíl. 27.2.2008 09:07
Fiskiskipum fækkar um 50 milli ára Tæplega 1650 fiskiskip voru á skrá hjá Siglingastofnun við lok síðasta árs eða um fimmtíu færri en við lok árs 2006. 27.2.2008 09:07
Grunaðir um að skipuleggja leigumorð í Danmörku Tveir menn hafa verið handteknir í Kaupmannahöfn grunaðir um að leggja á ráðin um fjölda leigumorða í borginni. 27.2.2008 08:45
Hvetur til málsóknar á hendur vefsíðum með nafnlausum níðskrifum Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hvetur til þess að einhver láti reyna á ábyrgð þeirra sem halda úti vefsíðum þar sem vegið er að fólki í skjóli nafnleysis með dónaskap og óhróðri. 27.2.2008 08:32
Slagsmál meðal hælisleitenda í Reykjanesbæ Slagsmál brutust út milli tveggja manna í vistarverum hælisleitenda, á gistiheimili í Reykjanesbæ í gærkvöldi, sem enduðu með því að annar mannanna nef- og kinnbeinsbrotnaði. 27.2.2008 08:02
Lánum fækkar eftir því sem kjör versna Íbúðalánum sem veitt eru hjá bönkum hefur fækkað mikið að undanförnu. Lán hjá Íbúðalánasjoði eru nú margfalt fleiri en hjá bönkunum. Augljóslega doði yfir markaðnum, segir Jón Grétar Jónsson framkvæmdastjóri Húsakaupa. 27.2.2008 08:00
FBI tók feil á þýskum ferðamönum og glæpaforingja Borin hafa verið kennsl á miðaldra hjón sem fest voru á myndband í ferðamannabænum Taormina á síðasta ári. Um var að ræða þýska ferðamenn en ekki stórhættulegan glæpamann og kærustu hans sem eru á Topp tíu lista FBI um eftirlýsta glæpamenn. 27.2.2008 07:29