Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stærsta sjávarskrímsli heims fannst á Svalbarða Steingerðar leyfar sjávarskrímslis hafa fundist á einni af eyjunum við Svalbarða. Um er að ræða stærstu sjávarrisaeðluna sem fundist hefur í heiminum 27.2.2008 07:12
Jarðskjálfti skók miðhluta Englands í nótt Jarðskjálfti upp á 5,3 á Richter skók miðhluta Englands í nótt. Þetta er stærsti jarðskjálfti á Bretlandseyjum á síðustu 25 árum. 27.2.2008 07:03
Hermenn kærleikans verðlaunaðir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Þau komu í hlut Hjálpræðishersins fyrir meira en hundrað ára kærleiksknúið starf hérlendis í þágu þeirra sem minnst mega sín. 27.2.2008 07:00
Pólskum skíðamönnum bjargað úr Kistufelli Björgunarsveitarmenn úr Mývatnssveit og Reykjadal sóttu í gærkvöldi tvo pólska skíðagöngumenn, sem höfðust við í skála í Kistufelli, norðan Vatnajökuls. 27.2.2008 06:55
Búið að opna veginn um göngin í Súgandafirði Búið að opna veginn um göngin í Súgandafirði en snjóflóð féll við gangamunnan í Súgandafirði á tíunda tímanum í gærkvöldi og lokaði þeim. Vegfarendur létu vita um flóðið um neyðarsíma í göngunum. 27.2.2008 06:50
Líst vel á Ban Ki-moon „Mér líst vel á Ban Ki-moon og hef fulla trú á því að hann láti verkin tala í þeim málum sem hann hefur gert að sínum, loftslagsbreytingum og ofbeldi gegn konum,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að loknum fundi sínum með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í gær. 27.2.2008 06:30
Efnahagsþrengingar auka stuðning við aðild að ESB Stjórnmálamenn og verkalýðsleiðtogar eru sammála um að þrengingar í efnahagslífinu auki á stuðning við aðild að ESB. Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að um 55 prósent eru hlynnt því að Ísland sæki um. 27.2.2008 05:30
Minni olíuflutningar en gert var ráð fyrir Mun minni er flutt af olíu um íslenska lögsögu en spár gengu út frá fyrir nokkrum árum. Um er að ræða flutinga frá Norðvesturhluta Rússslands til Vesturheims, en leið flutningaskipa milli þessara heimshluta liggur óhjákvæmilega um efnahagslögsögu Íslands. Skipin sem flytja olíu við íslenskar strendur eru einnig minni en Norðmenn og Rússar ætluðu. 27.2.2008 05:00
Íslendingar mikilvægir í Afganistan Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir þátttöku Íslands í friðargæslu í Afganistan mikilvæga og telur lofsvert að þar séu um 30 Íslendingar að störfum. 27.2.2008 03:30
Clinton líkir Obama við Bush Hillary Clinton hefur síðustu daga hert árásir sínar á Barack Obama í þeirri von að vinna til sín fylgi í prófkjörunum á þriðjudag í næstu viku. Clinton má ekki lengur við því að tapa fyrir Obama í þeim fáu fjölmennu ríkjum sem enn á eftir að kjósa í, því þá væri nokkuð víst að Obama færi með sigur af hólmi í baráttu Demókrataflokksins um það hvort þeirra verður forsetaefni í kosningunum í haust. 27.2.2008 03:00
Telur hættulegt að hverfa frá verðbólgumarkmiði Aðalhagfræðingur Seðlabankans undrast skilaboð um að hverfa eigi frá verðbólgumarkmiði í ljósi vaxandi verðbólgu. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja áhættu af verðbólgu minni en af fjármálakreppu. 27.2.2008 02:30
Höfuðborgarþingmenn vilja aðstoðarmenn á næsta ári Meirihluti allsherjarnefndar telur að sterk rök hnígi að því að allir þingmenn fái aðstoðarmenn líkt og ætlunin er nú með formenn stjórnarandstöðuflokka og landsbyggðarþingmenn. Vilja þeir fá aðstoðarmenn strax á næsta ári. 26.2.2008 21:54
Þrír slösuðust í hörðum árekstri á Akureyri Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir að strætisvagn og fólksbíll rákust saman á Drottningarbraut við Austurbrú á Akureyri um hálfníu í kvöld. Að sögn lögreglunnar slasaðist einn maður til viðbótar en meiðsl hans eru ekki talin vera eins alvarlega og hinna tveggja. Fólksbíllinn er gerónýtur að sögn lögreglu. 26.2.2008 21:40
Snjóflóð lokar veginum í Súgandafirði Snjóflóð lokar veginum í Súgandafirði, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru á Hellisheiði, á Sandskeiði og í Þrengslum en á Suðurlandi eru víða hálkublettir eða jafnvel hálka. 26.2.2008 22:38
Biðlar til Brown um lausn fanga Arabísk sjónvarpsstöð hefur birt myndskeið sem sýnir einn af fimm Bretum sem voru teknir í gíslingu fyrir átta mánuðum. Myndskeiðið sýnir mann sem biðlar til Gordon Brown forsætisráðherra um að bjarga gíslunum. 26.2.2008 20:33
Á gjörgæsludeild eftir 15 metra fall Maðurinn sem féll 15 metra niður af vinnupalli Þingahverfi í Kópavogi í dag liggur nú á gjörgæsludeild í eftirliti. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er maðurinn talsvert slasaður, með beinbrot og innvortis meiðsl. Læknirinn segir þó að hann verði að teljast hafa sloppið vel miðað við aðdragandann. Sjúkraflutningamenn sögðu við Vísi í dag að svo virtist sem vinnupallurinn hefði hrunið undan manninum með fyrrgreindum afleiðingum. 26.2.2008 19:59
Baka stærstu köku Vesturbæjar Unglingar í æskulýðsstarfi í Neskirkju hyggjast baka stærstu súkkulaðiköku sem bökuð hefur verið í Vesturbæ, föstudaginn 29. febrúar næstkomandi. 26.2.2008 19:32
Ók undir áhrifum lyfja Einn ökumaður var í dag grunaður um akstur undir áhrifum lyfja en hann hafði lent í umferðaróhappi á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg. Þar urðu ekki slys á fólki en einhvert tjón á ökutækjum. 26.2.2008 19:20
Hafa skuldbundið sig til að sinna loftferðaeftirliti á Íslandi Frakkland, Bandaríkin, Spánn og Pólland hafa skuldbundið sig til að sinna loftferðaeftirliti á Íslandi næstu 2-3 árin. Þetta var staðfest á fundi Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, með framkvæmdastjóra Nato í Brussel nú síðdegis, en Geir er fundaherferð í Lúxemborg og Belgíu. 26.2.2008 19:10
Spyr hvort kaupin á Laugavegi 4-6 séu fjármögnuð af ÍTR Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, spyr hvort kaupin á húsunum við Laugaveg 4-6 séu fjármögnuð af stofnkostnaðaráætlun Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar. 26.2.2008 18:32
Norðurlöndin stöðva skattaflótta Fjármálaráðherrar Norðurlandanna ætla að stöðva skattaflótta frá löndum sínum. Í lok október 2007 undirrituðu þeir samning um upplýsingaskipti við eyjuna Mön. 26.2.2008 18:02
400 í einu höggi Svokallaðir morðsniglar hafa verið að gera Dani vitlausa undanfarin ár. Þeir hafa breiðst svo hratt út að þeir eru hrein plága í görðum. 26.2.2008 17:46
Utanríkisráðuneytið leiðréttir sig Eins og Vísir benti á fyrr í dag var ekki farið rétt með í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu þegar sagt var að réttur áratugur væri liðinn frá því utanríkisráðherra Íslands hefði síðast hitt aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna. Hið rétta er að um fimm ár eru síðan þetta gerðist og hefur ráðuneytið nú sent frá sér eftirfarandi: 26.2.2008 17:06
Maður féll fimmtán metra til jarðar Maður féll af vinnupalli í Þingahverfi í Kópavogi rétt fyrir fjögur í dag. Að sögn slökkviliðs virðist sem pallurinn hafi hrunið undan manninum og féll hann um 15 metra og slasaðist töluvert en nánar er ekki vitað um líðan hans. 26.2.2008 16:53
Ríkissjóður hagnaðist verulega á sölu Baldurs Fjármálaráðuneytið segir að það hafi ekki geta selt ferjuna Baldur, sem sigldi á Breiðafirði, til annarra en Sæferða ehf. fyrr en eftir 2010 vegna samnings um rekstur skipsins. Hefði ráðuneytið ekki selt skipið hefði verðmæti þess orðið lítið við lok þess tíma. 26.2.2008 16:49
Gaukur mun líklega áfrýja Sigurmar K Albertsson, lögmaður Gauks Úlfarssonar, segir að meiri líkur en minni séu á því að dómi yfir Gauki Úlfarssyni umbjóðanda sínum verði áfrýjað. Hann segist í samtali við Vísi hafa af því áhyggjur að dómurinn muni gefa fordæmi í málum sem þessum en Gauki var í héraðsdómi í dag gert að greiða Ómari R. Valdimarssyni 800 þúsund krónur í miskabætur og málskostnað vegna skrifa á vefsíðu sína. 26.2.2008 16:42
Máli Smáís gegn Eico vísað frá dómi Smáís, samtök myndréttarhafa á Íslandi, fyrir hönd 365 miðla stefndi fyrirtækinu Eico vegna sölu áskrifta að bresku sjónvarpsstöðinni SKY. Málinu var hinsvegar vísað frá dómi í dag. 26.2.2008 16:38
Vilja heræfingar í umhverfismat Sjö þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að heræfingar á íslenskri grundu og í íslenskri lögsögu verði háðar umhverfismati. 26.2.2008 16:30
Iðnaðarráðherra leggur fram orkumálafrumvarp Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra lagði í dag fram frumvarp sitt um orkumál á Alþingi en nýlega tókst samkomulag á milli stjórnarflokkanna um efni þess. 26.2.2008 16:01
Tuttugu milljarða króna fjárfesting Verne Holdings Verne Holdings hyggur á 20 milljarða króna fjárfestingu hér á landi í tengslum við uppbyggingu alþjóðlegs gagnavers hér á næstu fimm árum og verða óbein efnahagsleg áhrif um 40 milljarðar króna. 26.2.2008 15:34
Samningaviðræðum í Kenía frestað Viðræðum sem miða að því að enda ofbeldisölduna sem riðið hefur yfir Kenía frá úrslitum forsetakosninganna í lok desember hefur verið frestað. Kofi Annan fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og málamiðlari tilkynnti þetta í dag en hann hefur leitt viðræðurnar í einn mánuð. 26.2.2008 15:26
Ný jafnréttislög samþykkt á þingi Þingmenn samþykktu í dag ný lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna sem einnig ganga undir nafninu jafnréttislögin. 26.2.2008 15:09
Ekki ástæða til þess að breyta úthlutun á byggðakvóta Sjávarútvegsráðherra sér ekki ástæðu til þess að breyta úthlutun byggðakvóta eins og formaður Framsóknarflokksins lagði til á Alþingi í dag. 26.2.2008 14:47
Tæki sem les eydd SMS komið á markað Tæki sem gerir fólki mögulegt að njósna um maka sína með því að lesa SMS skilaboð sem hefur verið eytt, er nú komið í verslanir ytra. Tækið sem er auglýst sem „Litli gimsteinninn“ getur lesið Sim kort og upplýsingarnar er hægt að senda á hvaða tölvu sem er í gegnum USB tengi. 26.2.2008 14:43
Hringvegurinn lokaður í Borgarnesi Hringvegurinn verður lokaður næstu þrjá mánuðina þar sem hann liggur í gegnum Borgarnes. Verið er að gera endurbætur á veginum og í staðinn eiga ökumenn að aka um merktar hjáleiðir sem hafa verið opnaðar. 26.2.2008 14:40
Bænastund vegna bílslyssins á Akranesi Bænastund verður haldin í Akraneskirkju klukkan 18:00 í kvöld vegna piltanna tveggja sem lentu í alvarlegu bílslysi í bænum í síðustu viku. 26.2.2008 14:40
Hvatt til morða á Dönum í sjónvarpsþætti fyrir börn Hvatt er til morða á Dönum og viðskiptabanni á Danmörku, í vinsælum sjónvarpsþætti fyrir börn á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna. 26.2.2008 14:27
Írakar fordæma innrás Tyrkja Íraska stjórnin hefur fordæmt innrás Tyrkja á Kúrda í norðurhluta Írak. Í yfirlýsingu stjórnarinnar mótmæla Írakar harkalega og skora á tyrknesk yfirvöld að draga herlið sitt til baka án tafar. 26.2.2008 14:19
Deilt um skattamál á þingi Deilt var um það á Alþingi í dag hvort skattalækkanir til handa fyrirtækjum eða almenningi væri mikilvægari nú um stundir. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn gagnrýndu vinstri - græna um að vilja aldrei lækka skatta en formaður Vinstri - grænna sagði að svigrúm ætti að nýta til þess að draga úr skattbyrði lágtekjufólks. 26.2.2008 14:18
Þvagleggskonan missti prófið Dómur í svokölluðu Þvagleggsmáli féll í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. María Bergsdóttir sem ákærð var fyrir ölvun við akstur var svipt ökuleyfi í eitt ár en auk þess fékk hún 30 daga skilorðsbundið fangelsi. 26.2.2008 13:51
Hvað eru fimm ár á milli vina? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra mun í dag eiga fund með aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna, Ban Ki Moon í New York. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að réttur áratugur sé síðan utanríkisráðherra Íslands átti síðast fund með aðalframkvæmdastjóra SÞ. Þetta mun þó ekki vera alls kostar rétt. 26.2.2008 13:50
Fangi sýknaður af fíkniefnabroti þar sem það var fyrnt Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað fanga á Lilta-Hrauni af fíkniefnabroti vegna þess að mál hans er fyrnt. 26.2.2008 13:27
Tjáningarfrelsi fer minnkandi í Rússlandi Tjáningarfrelsi í Rússlandi hefur farið „verulega minnkandi“ í forsetatíð Vladimir Putin samkvæmt skýrslu Amnesty International. Í henni segir að morð á berorðum fréttamönnum séu óleyst, sjálfstæðum fjölmiðlafyrirtækjum hafi verið lokað og lögregla hafi ráðist á stjórnarandstæðinga í mótmælaaðgerðum. 26.2.2008 13:26
Dómari hafnar nýjum forsetakosningum í Nígeríu Dómari í Nígeríu hefur hafnað kröfu stjórnarandstöðu um að forsetakosningar síðasta árs verði gerðar ógildar og kosið að nýju. Muhammadu Buhari frambjóðandi stjórnarandstöðunnar segir að ekki hafi verið kosið í 29 af 31 ríki landsins. Atiku Abuktar fyrrverandi varaforseti hélt því fram að lýðræðisflokkur Yar'Adua forseta hefði svindlað í kosningunum. 26.2.2008 13:18
Dæmdur fyrir að stela bíl og henda bíllyklunum í Ölfusá Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann til 20 þúsund króna sektar fyrir eignaspjöll og nytjastuld á Selfossi. 26.2.2008 13:15