Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Thompson tilkynnir framboð Leikarinn og fyrrverandi öldungardeildarþingmaðurinn Fred Thompsons hefur tilkynnt að hann hyggist sækjast eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins árið 2008. 6.9.2007 08:45
Sjö handteknir vegna hrottalegrar árásar í Danmörku Lögregla í Danmörku handtók í nótt sjö manns sem hún grunar að hafi ráðist á þrjátíu og fimm ára gamla konu á Jótlandi í gær. Konan fannst í gær nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Hún var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Málið hefur vakið óhug í Danmörku. Konan var nakin en föt hennar fundust skammt frá staðnum þar sem hún lá. Konan var illa farin og telur lögreglan allt benda til þess að hún hafi orðið fyrir hrottalegu ofbeldi. 6.9.2007 08:44
Fossetts enn leitað Ævintýramannsins og auðkýfingsins Steves Fossetts er enn leitað, en ekkert hefur spurst til hans frá því á mánudaginn þegar hann tók loft í eins hreyfils vél sinni frá flugvelli í Nevada. Ekkert neyðarkall hefur borist frá vélinni, en Fossett var ekki í fjarskiptasambandi á meðan hann var á lofti og ekki með fyrirliggjandi flugáætlun. Steve Fosset varð heimsfrægur þegar hann varð fyrstu manna til að fara hringinn í kringum jörðina í loftbelg árið 2002. Hann er 63 ára gamall og hefur sett 115 heimsmet í ferðalögum á loftbelgjum, flugvélum og seglbátum svo fátt eitt sé nefnt. 6.9.2007 08:41
Craig hættir hugsanlega við afsögn Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Larry Craig segist hugsanlega ætla að hætta við afsögn sína. Craig sagði af sér eftir að hann var hantekinn fyrir að hafa falast eftir kynmökum við óeinkennisklæddan lögreglumann á flugvelli. Þingmaðurinn segist ekkert rangt hafa gert og þvertekur fyrir það að vera samkynhneigður. Hann hefur á ferli sínum barist hatrammlega gegn auknum réttindum samkynhneigðra. 6.9.2007 08:40
Sextán tillögur bárust um uppbyggingu í Kvosinni Sextán hugmyndir að uppbyggingu í kvosinni, bárust eftir að borgin leitaði eftir slíku í kjölfar brunans á horni Lækjargötu og Austurstrætis í vor. Hugmyndirnar verða kynntar í dag , en sex arkítektastofur voru valdar í forvali til verksins. Hverjum sem var var einnig heimilt að leggja inn hugmynd. Á grundvelli þeirar hugmyndar, sem best þykir, verður væntanlega hægt að hefja uppbyggingu á svæðinu.- 6.9.2007 08:40
Pavarotti er látinn Ítalski stórsöngvarinn Luciano Pavarotti lést nú í morgunsárið á heimili sínu í Modena á Ítalíu, umkringdur fjölskyldu og vinum 6.9.2007 08:28
Fannst nakin og illa farin við vegarkant Lögreglan í Danmörku fann í dag um fertuga konu nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Konan var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Allt bendir til þess að hún hafi verið beitt hrottalegu ofbeldi. 5.9.2007 23:37
Sr. Elínborg Gísladóttir valin sóknarprestur í Grindavíkurprestakalli Séra Elínborg Gísladóttir var í dag valin til að gegna embætti sóknarprests í Grindavíkurprestakalli. Fjórir sóttu um embættið sem auglýst var laust til umsóknar í júlímánuði. 5.9.2007 23:10
Tugir manna láta lífið í hitabylgju í Kaliforníu Að minnsta kosti 25 hafa látið lífið í mikilli hitabylgju sem hefur gengið yfir suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum síðustu daga. Hiti fór í fyrsta skipti í dag niður fyrir 40 gráður í Los Angeles og mælist nú 38 gráður. Rafmagnslaust varð á stórum svæðum í kjölfar hitabylgjunnar vegna mikillar rafmagnsnotkunar. 5.9.2007 22:59
Köstuðu grjótum í bifreiðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði laust fyrir klukkan átta í kvöld afskipti af tveimur drengjum sem voru að kasta grjótum í bifreiðar við Hátún í Reykjavík. Drengirnir, sem eru 16 og 18 ára gamlir, reyndust báðir vera ölvaðir. 5.9.2007 22:19
Skutu á gæsahóp út úr bifreið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um klukkan sex í kvöld ferð tveggja manna í Mosfellsdal eftir að tilkynning barst um þeir hefðu verið að skjóta úr haglabyssu út úr bifreið. Lögreglan lagði hald á haglabyssu sem fannst í bílnum en mennirnir neituðu sök. 5.9.2007 22:09
Flytja allt plútóníum á einn stað Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að flytja allar birgðir af geislavirku plútóníum sem nota má í kjarnorkuvopn til Savannah River í Suður-Karólínu fylki. Er þetta gert til að einfalda öryggisgæslu, draga úr kostnaði og koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. Alls verða um þrjú þúsund gámar af plútóníum fluttir á hið nýja öryggissvæðið. 5.9.2007 21:30
Um 200 manns enn saknað í Níkaragva Að minnsta kosti 21 lét lífið þegar fellibylurinn Felix gekk yfir austurströnd Níkaragva í Mið-Ameríku í gær samkvæmt þarlendum yfirvöldum. Um 200 manns er enn saknað en þúsundir heimila eyðilögðust af völdum fellibylsins. 5.9.2007 20:59
Ræningjar með góða þjónustulund Þrír menn sem rændu sportvöruverslun nálægt borginni Montevideo í Úrúgvæ í dag héldu áfram að afgreiða viðskiptavini á meðan á ráninu stóð. Mennirnir lokuðu starfsmenn verslunarinnar inni í bakherbergi og afgreiddu viðskiptavini í tæpan hálftíma áður en þeir hurfu á braut. 5.9.2007 20:27
Vilja stöðva starfsemi fyrirtækja sem hunsa reglur vinnumarkaðarins Stöðva verður umsvifalaust starfsemi þeirra fyrirtækja sem ekki virða leikreglur íslensks vinnumarkaðar. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti í dag. Forseti sambandsins segir þolinmæði gagnvart fyrirtækjum sem brjóta á rétti starfsmanna á þrotum. 5.9.2007 20:00
Flaug með fimm kjarnorkusprengjur fyrir mistök Bandarísk herflugvél flaug fyrir mistök með fimm kjarnorkusprengjur um borð yfir Bandaríkin í síðustu viku. Mistökin uppgötvuðust fyrir tilviljun en yfirmenn flughersins segja að þrátt fyrir þau hafi aldrei verið nein hætta á ferðum. 5.9.2007 19:35
Heilsu Pavarottis hrakar Heilsu stórsöngvarans Lucianos Pavarottis hefur hrakað mjög og ástand hans er nú sagt mjög alvarlegt. Pavarotti þjáist af krabbameini. Læknar sinna honum á heimili hans á Ítalíu. 5.9.2007 19:21
Yfirmaður herja NATO óánægður með Íslendinga Æðsti yfirmaður herja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu gagnrýndi í dag ákvörðun utanríkisráðherra að kalla íslenskan friðargæsluliða heim frá Írak. Hann segist hafa orðið fyrir vonbrigðum. 5.9.2007 19:07
Smánar píslarsögu Siguður Líndal lagaprófessor segir að umdeild Símaauglýsing kunni að brjóta gegn lögum. Hún smáni píslarsögu Krists. 5.9.2007 19:05
Vill kalla friðargæsluliða heim frá Afganistan Formaður Vinstri grænna vill að íslenskir friðargæsluliðar í Afganistan verði kallaðir heim. Vera þeirra þar samræmist ekki lögum. Hann segir heimkvaðningu friðargæsluliða í Írak aldrei hafa komið á borð utanríkismálanefndar Alþingis. 5.9.2007 19:03
Skemmdarvargar ganga lausir á Akureyri Grímuklæddir skemmdarvargar ganga lausir á Akureyri. Þeir rupla og ræna kálgarða og eru kannski að æfa sig fyrir bankarán síðar, segir fórnarlamb skemmdarvarganna. 5.9.2007 18:45
Á enginn skyrnafnið Það á enginn einkaleyfi á því að selja skyr undir nafninu skyr, segir framkvæmdastjóri Mjólku sem hyggst setja skyr á markað fyrir áramót. Hann vill að stjórnvöld beiti sér fyrir því að Íslendingar fái upprunavernd á þessa hvítu mjólkurafurð. 5.9.2007 18:45
Heimili litháískrar fjölskyldu innsiglað Eldvarnareftirlitið hefur innsiglað heimili sjö Litháa í Hafnarfirði. Fólkið fékk neyðarvistun hjá Rauða krossinum. Slökkvilliðið er að fara í átak gegn ólöglegri búsetu í iðnaðarhúsnæði. 5.9.2007 18:45
Fasteignaverð tvöfaldast á Húsavík Fasteignaverð hefur allt að tvöfaldast á Húsavík síðan viljayfirlýsing var gefin út um álver við Bakka. Uppgangurinn er sá mesti í bænum í þrjá áratugi. 5.9.2007 18:39
Systir grunaðs hryðjuverkamanns segir dönsku lögregluna ómanneskjulega Það var ómanneskjulegt hvernig lögreglan réðst inná fjölskyldu mína um miðja nótt, segir systir eins þeirra sem var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald í Kaupmannahöfn, vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi. 5.9.2007 18:30
Umferðarálag við þolmörk í Ártúnsbrekku Umferð um Ártúnsbrekku í Reykjavík um háannatímann á morgnana er alveg við þolmörk þess sem vegurinn ber, að mati sérfræðings hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar. Sundabraut mun taka allt að þriðjung þeirra umferðar þegar hún verður komin í gagnið. 5.9.2007 18:30
Karlar fá margfalt hærri verðlaun en konur Karlar fá margfalt hærra verðlaunafé en konur á Skákþingi Íslands, sem nú stendur yfir. 5.9.2007 18:30
Bílvelta rétt fyrir ofan Flúðir Bílvelta varð á Skeiða- og Hrunavegi rétt fyrir ofan Flúðir um klukkan átta í morgun. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann lítið meiddur. 5.9.2007 18:24
Leigubílstjórar í New York leggja niður vinnu Um 13 þúsund leigubílstjórar í New York borg í Bandaríkjunum héldu sig heima í dag til að mótmæla nýju tölvukerfi sem borgaryfirvöld vilja setja í leigubíla. Ekki urðu miklar truflanir á samgöngum en nú stendur yfir tískuvika þar í borg. Leigubílstjórarnir telja að tölvukerfið muni brjóta á mannréttindum þeirra og auka óþægindi í akstri. 5.9.2007 18:00
Brotist inn í bifreiðar á söluplani Brimborgar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot inn í tvær bifreiðar á söluplani Brimborgar klukkan hálf fjögur í dag. Búið var að brjóta hliðarrúður bifreiðanna og gerð tilraun til að nema geislaspilara á brott. Framkvæmdastjóri Brimborgar segir um minniháttar tjón að ræða. 5.9.2007 17:45
Víetnömsk könguló í heimsókn á Eskifirði Starfsmenn netaverkstæðis á Eskifirði voru í síðustu viku að tæma gám sem í var efni til netagerðar. Gámurinn var kominn til Eskifjarðar alla leið frá Víetnam og reyndist hann innihalda laumufarþega. Starfsmennirnir ráku augun í köngulóarvef og vefsmiðurinn reyndist sprellifandi eftir ferðalagið langa. 5.9.2007 16:48
Benedikt hættur Drangeyjarsundi vegna erfiðra aðstæðna Sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur varð að hætta Drangeyjarsundi sínu nú í eftirmiðdaginn þegar hann var rétt um hálfnaður vegna erfiðra skilyrða. Benedikt sagði í samtali við Vísi að sjórinn hefði reynst kaldari en hann hefði reiknað með. 5.9.2007 16:21
Ísland næstbest í heimi Ísland er númer tvö á eftir Noregi í lífsgæðum íbúanna, samkvæmt rannsókn breska tímaritsins The Economist. Í þessari árlegu könnun tímaritsins er skoðaður efnahagur og lífsgæði íbúanna í 200 löndum. Gríðarlega margir þættir eru lagðir til grundvallar útkominni. Og þeir eru ólíkir. 5.9.2007 16:13
Sala á Land Rover eykst um 43% Alls seldust 2141 bifreið í ágúst síðastliðnum á móti 1498 í sama mánuði árið á undan. Þetta þýðir aukning um 43%. Þrátt fyrir góða sölu í ágústmánuði er samdráttur í heildar bílasölu á árinu um 11,9% frá 1. janúar talið til 31 ágúst, miðað við sama tímabil árið 2006. 5.9.2007 16:11
Glitnir hyggur á landvinninga í jarðvarmaverkefnum í Bandaríkjunum Fjallað er um væntanlegar fjárfestingar Glitnis í jarðvarmaverkefnum í Bandaríkjunum í erlendum miðlum í dag. Fyrirtækið kynnti áætlanir sínar á blaðamannafundi í New York í dag þar sem ný skrifstofa þess var opnuð. 5.9.2007 15:54
Styttist í að friðarsúlan lýsi í Viðey Eftir rétt rúman mánuð verður kveikt á friðarsúlunni svokölluðu í Viðey. Súlan verður vígð á afmælisdegi bítilsins John Lennon þann 9. október næstkomandi en súlan er hugmynd ekkju hans, Yoko Ono. Gert er ráð fyrir að kveikt verði á súlunni á hverju ári á afmælisdegi Lennons. 5.9.2007 15:32
Vilja fljúga með fiskinn beint til útlanda frá Þingeyri Nýstofnað fiskvinnslufyrirtæki á Flateyri, Eyraroddi, hefur hug að fljúga beint með ferskan fisk til útlanda frá Þingeyrarflugvelli. Þetta hefur Bæjarins besta eftir Teiti Birni Einarssyni, nýráðnum framkvæmdastjóra félagsins. 5.9.2007 15:29
Benedikt hálfnaður með Drangeyjarsundið Sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur er nú tæplega hálfnaður í Drangeyjarsundi sínu og fetar þar í kjölfar Grettis Ásmundarsonar fornkappa. Viggó Jónsson, fréttaritari Stöðvar 2 á Sauðárkróki, fylgir Benedikt eftir og í samtali við Vísi sagði hann að sundið gengi vel. 5.9.2007 15:03
Íslendingar í nálægð við raðmorðingja í New York Hrottalegt morð var framið á Carter hótelinu á Times Square í New York síðastliðinn fimmtudag. Margir Íslendingar sem lagt hafa leið sína um New York borg hafa dvalið á hótelinu. 5.9.2007 15:00
Hafnarvörður ákærður fyrir smygl Hafnarvörður á Norðurlandi hefur verið ákærður fyrir að að smygla til landsins 32 lítrum af áfengi. Hann keypti áfengið af skipverja á flutningaskipi sem lá við höfn. Að beiðni þriðja aðila tók maðurinn svo á móti áfenginu á hafnarsvæðinu og flutti í áhaldahús. 5.9.2007 14:53
Íslendingar kalla herlið sitt heim frá Írak Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að Ísland hætti þáttöku í friðargæslu í Írak. Frá og með fyrsta október verða engir íslenskir friðargæsluliðar í landinu. Með þessari frétt fylgir mynd af íslensku friðargæslusveitinni sem væntanlega verður kölluð heim fyrsta október. 5.9.2007 14:46
Tekist á um hver eigi efsta hluta Esjunnar Fyrirtaka var í þjóðlendumáli sem íslenska ríkið hefur höfðað á hendur eigendum jarða í kringum Esjuna. Vill íslenska ríkið meðal annars að efsti hluti Esjunnar, eins og það er orðað, verði úrskurðaður þjóðlenda. Ríkið höfðar mál á hendur alls 72 aðilum en meðal þeirra eru Reykjavíkurborg og fyrirtækið Stjörnuegg auk fjölda manna sem eiga lönd allt í kringum Esjuna, allt frá svæðinu innan Mógilsár og inn í Kjós. 5.9.2007 14:23
Danir halda framhjá í bunkum Fjórir af hverjum tíu Dönum halda framhjá maka sínum einhverntíma ævinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnuðurinn hefur áhyggjur af því að framhjáhald fari að teljast eðlilegt. Konur óttast mest tilfinningaleg tengsl manna sinna við aðrar konur. Karlmenn óttast hinsvegar mest kynferðislegt samneyti kvenna sinna við aðra menn. 5.9.2007 14:19
Lögregla hafði afskipti af tugum utanbæjarbarna á Ljósanótt Á Ljósanótt í Reykjanesbæ síðastliðinn laugardag þurfti lögreglan í Reykjanesbæ að hafa afskipti af 60 börnum sem annað hvort voru ölvuð eða höfðu gerst brotleg við reglur um útivistartíma. Helmingur barnanna var frá sveitarfélögum utan Suðurnesja. 5.9.2007 14:16
Ólafur og Dorrit láta nágrannadeilu ekki stoppa sig Ólafur Ragnar Grímsson forseti setur embættisskyldur sínar framar persónulegum hagsmunum. Þrátt fyrir að hann standi í hatrömmum nágrannadeilum við Þorstein Jónsson, stjórnarformann Glitnis, og reyndar fleiri út af fyrirhuguðum bílskúrs- og skjólveggjabyggingum við Laufásveg þá stoppaði það ekki hann og Dorrit Moussaieff í að vera heiðursgestir Glitnis í boði sem bankinn hélt í Rockefeller Center í New York í gærkvöld. 5.9.2007 14:00