Erlent

Tíu ára fangelsi fyrir að heilsa að sið þýskra nasista

Austurrískir hermenn.
Austurrískir hermenn. MYND/AFP

Yfirvöld í Austurríki rannsaka nú myndband sem sýnir unga austurríska hermenn heilsa að sið þýskra nasista. Myndbandið var tekið upp á farsíma og sett á Netið. Nasískur áróður er bannaður samkvæmt lögum í Austurríki og gætu hermennirnir átt von á því að vera dæmdir í allt að tíu ára fangelsi.

Í myndbandinu sést ungur hermaður ganga gæsagang og heilsa að sið nasista. Þá sést annar hrópa "Heil Hitler". Myndbandið var rakið til herbúða austurríska hersins í Salzburg og hafa hinir ungu hermenn nú þegar verið yfirheyrðir vegna málsins. Sérstakur saksóknari íhugar nú hvort mennirnir verða ákærðir.

Nobert Darabos, varnarmálaráðherra Austurríkis, hefur þegar lýst því yfir að tekið verði hart á málinu og mennirnir látnir svara til saka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×