Fleiri fréttir

Benedikt búinn að synda 14 kílómetra

Sundmaðurinn Benedikt Hjartarson var búinn að synda 14 kílómetra yfir Ermasundið um klukkan hálf ellefu í morgun. Benedikt lagði af stað um klukkan hálf sex frá Dover í Englandi en áætlað er að hann komi til Calais í Frakklandi í nótt ef vel gengur.

11 látast í sprengjuárás í Afganistan

Sjálfsmorðssprengjumaður gerði í dag árás á hersveitir NATO í suðurhluta Afganistan og varð 11 almennum borgurum að bana. Þó nokkur börn voru á meðal þeirra látnu. Talið er að allt að 30 manns hafi særst í árásinni. Talsmaður NATO í Kabúl sagði að sjö hermenn hefðu særst í henni.

TM og Knattspyrnufélag Siglufjarðar undirrita samstarfssamning

Tryggingamiðstöðin og og Knattspyrnufélag Siglufjarðar hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning, og samkvæmt honum mun Tryggingamiðstöðin verða aðalstyrktaraðili Pæjumóts Siglufjarðar. Mótið mun nú heita Pæjumót TM Siglufirði.

Bretar bregðast ókvæða við neitun á framsali

Rússar neituðu því formlega í morgun að framselja Andrei Lugovoy, fyrrum njósnara, og manninn sem er grunaður um að hafa myrt Alexander Litvinenko. Bretar brugðust ókvæða viða og segja svar Rússa við framsalsbeiðninni „óásættanlegt.“ Bretar hafa ávallt haldið því fram að litið sé á morðið á Litvinenko sem mikilvægt mál.

Enn varað við skemmdum á Þingvallavegi

Enn eru miklar skemmdir á klæðningu á 1,5 kílómetra kafla á Þingvallavegi við Grafningsvegamót. Vegagerðin biður ökumenn að fara varlega og sérstaklega bifhjólamenn. Hefur ökuhraði verið takmarkaður við fimmtíu kílómetra.

Afli dróst saman um 346 þúsund tonn á síðasta ári

Afli íslenskra skipa dróst saman um 346 þúsund tonn á síðasta ári miðað við fyrra ár samkvæmt nýútkomnu riti Hagstofunnar um aflaverðmæti og ráðstöfun afla. Á sama tíma jókst aflaverðmæti um 12,1 prósent milli ára. Mest var landað á Austurlandi.

Þrír umsækjendur eru um Sauðárkróksprestakall

Þrír umsækjendur eru um Sauðárkróksprestakall sem auglýst var laust til umsóknar nýlega. Umsóknarfrestur rann út 5. júlí og embættið verður veitt frá 1. ágúst. Kirkjumálaráðherra veitir það að fenginni umsögn valnefndar. Í valnefnd sitja níu fulltrúar prestakallsins auk prófasts og vígslubiskupsins á Hólum.

Lögregluhundur finnur fíkniefni

Tveir karlar og kona voru færð á lögreglustöð á sunnudagsmorgun en í fórum þeirra fundust lyf sem þau gátu ekki gert grein fyrir. Það var sérþjálfaður lögregluhundur frá lögreglunni sem fann fíkniefnin. Fólkið, sem er um tvítugt og var í annarlegu ástandi, var stöðvað við hefðbundið eftirlit en fíkniefnin voru vel falin í bíl þeirra.

Snjór í fyrsta sinn í 90 ár í Buenos Aires

Það eru nærri nítíu ár síðan síðast snjóaði í Bueons Aires, höfuðborg Argentínu, en í gær var komin hvít dula yfir borgina og svæðið í kring. Óvenjukalt er þar miðað við árstíma. Veðurstofa Argentínu sagði þetta í fyrsta sinn síðan 22. júní árið 1918 sem snjó festi. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir þaðan.

Eldur í Smárabíó

Slökkviliðið var kallað að Smárabíó í Kópavogi á tólfta tímanum í kvöld vegna elds í einum sýningarsalnum. Húsið var rýmt. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og búið er að opna húsið að nýju. Samkvæmt lögreglu kviknaði í út frá spennubreyti.

Stjórnarslit í Póllandi

Miklar líkur eru á að kosningar verði í Póllandi innan skamms. Sjálfsvarnarflokkurinn hefur ákveðið að slíta stjórnarsamstarfi og án stjórnarþátttöku hans hefur Kaczynski forsætisráðherra ekki meirihluta á þinginu. Hann getur ekki hugsað sér að starfa í minnihlutastjórn.

Segja ummæli Morgunblaðsins særandi

Stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda hvetur Morgunblaðið til að láta af stanslausum árásum á sjómenn og útgerðarmenn. Í ályktun frá þeim segir að þau ummæli Morgunblaðsins að sjómenn séu að ræna íslenska þjóð séu bæði særandi og meiðandi.

Vill meira umferðareftirlit úr þyrlu

Lögregluflug í þyrlu á að vera fastur liður í íslenskri löggæslu að mati Júlíusar Einarssonar, fyrrverandi lögreglumanns og áhugamanns um löggæslu. Jóhann starfaði um borð í löggæsluþyrlunni TF-GRÓ á árunum 1993-1994 og segir það hafa borið mikinn árangur.

Fjórar til átta líkamsárásir tilkynntar á nóttu

Á aðfararnótt sunnudags var tilkynnt um sex árásir til lögreglu í miðborg Reykjavíkur. Ein árásin var með þeim hætti að ráðist var á mann á Vegamótastíg rétt fyrir klukkan fimm og hann kýldur þrisvar í andlit. Fórnarlambið tengdist árásarmanninum ekkert og gat ekki gefið neina lýsingu á honum.

Stórslysi forðað

Rafmagn komst aftur á í álveri Alcoa Fjarðaráls í Reyðarfirði um klukkan sjö í kvöld og er framleiðsla að færast í átt að eðlilegu horfi. Rafmagnslaust hafði verið í tvær klukkustundir.

Reiðhjólaferð slökkviliðsmanna gengur vel

Reiðhjólamenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins komu í Herðubreiðarlindir upp úr fimm, en þeir lögðu af stað frá Grímsstöðum um ellefuleytið í morgun. Alls hafa þeir því lagt 67 kílómetra að baki í dag.

Rafmagslaust í Reyðarfirði

Rafmagn fór af álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði rétt um klukkan fimm nú síðdegis. Hætta er á stórtjóni ef álið storknar í bræðslukerjum.

Erfiðlega getur gengið að veiða þorskinn

Sjómenn segja að erfitt geti reynst að sækja ýsuna næsta fiskveiðiárið sökum minni þorskkvóta. Þeir telja að þorskur sé allt upp í fimmtíu prósent meðafla.

Afgreiðslustúlkum ógnað í vopnuðu ráni

Tvær stúlkur, sextán og sautján ára, voru einar við við störf í verslun 10/11 í miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir miðnætti í gær þegar tveir karlmenn frömdu þar vopnað rán og hótuðu þeim með skammbyssu.

Engum hleypt inn í íbúðir nema fyllsta öryggis sé gætt

Það verður engum hleypt inn í íbúðir á gamla varnarsvæðinu nema allt rafmagn verði yfirfarið og lagað samkvæmt íslenskum öryggisstuðlum segir framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Rafiðnaðarfræðingur á svæðinu segir enga hættu stafa af rafkerfinu.

Dreamliner þotan kynnt

Boeing flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum kynntu í gær fyrstu nýju þotuna sína í 12 ár - 787 Dreamliner kallast hún. Vélin er að mestu gerð úr klefnistrefjum og sögð umhverfisvænni en aðrar þotur. Icelandair hefur pantað 4 slíkar.

Rannsaka þarf tilurð og upphaf Baugsmálsins

Dómsmálayfirvöld þurfa að rannsaka tilurð og upphaf Baugsmálsins segir Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi ráðherra og varaformanns Framsóknarflokksins. Allir eigi að vera jafnir fyrir lögum og hún hafi upplifað hvernig Sjálfstæðismenn hafi talað um Baugsmenn.

„Breiðavíkursamtökin björguðu lífi mínu“

Breiðavíkursamtökin björgðu lífi míni segir einn þeirra manna sem dvöldu í Breiðavík í æsku. Hann lýsir dvölinni sem helvíti á jörð. Heimasíða Breiðavíkursamtakanna var opnuð í dag en með henni vilja samtökin upplýsa fólk um það sem gerðist á Breiðavík, deila reynslu sinni og hjálpa þeim sem þar dvöldu.

Fordæma matreiðslumenn

Dýravinir hafa fordæmt matreiðslumeistara í Taívan sem hafa tekið upp á því að djúpsteikja vatnakarfa og bera fram lifandi. Gestir gæða sér á honum um leið og hausinn á fisknum kippist til. Herramanns matur segja sumir, villimennska telja aðrir.

Stórfellt framboð atvinnuhúsnæðis í vændum

Tugir þúsunda fermetra atvinnuhúsnæðis koma inná leigumarkaðinn á næstu mánuðum. Byggingaaðilar hafa ekki áhyggjur af verðhruni. Verktakar hafa ekki áhyggjur af verðfalli þrátt fyrir stórfellda aukningu á framboði.

Búið að opna Miklubraut

Búið er að opna Miklabraut að nýju, en henni var lokað í austurátt frá Grensás vegna umferðarslyss sem varð á sjöunda tímanum í kvöld.

Fólskuleg árás á unglinga úr Borgarnesi

Unglingar úr vinnuskóla Borgarness urðu fyrir fólskulegri árás unglingagengis við tívolíið í Kópavogi í dag. Lögregla skarst í leikinn á fjölda lögreglubíla og handtók fjóra ólögráða unglingspilta fyrir brot á lögum og lögreglusamþykktum.

Álver fylgi ódýrri orku

Forstjóri álfyrirtækisins Alcoa segir nauðsynlegt að byggja áttatíu ný álver víða um heim næstu árin til að svara aukinni eftirspurn eftir áli. Hann spáir því að álverum víða í Evrópu og Norður-Ameríu verði lokað og önnur byggð á Íslandi og annars staðar þar sem ódýra orku sé að fá.

Vill að Valgerður útskýri ummæli sín betur

Gestur Jónsson lögmaður, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, vill að Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra skýri betur þau ummæli sem hún lét falla í viðtali sem birtist í Viðskiptablaðinu síðastliðinn föstudag.

Tekinn á 173 kílómetra hraða

Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði 74 ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni sem leið. Sá sem hraðast ók var á 173 km hraða og var sviptur ökuleyfi á staðnum. Hann á von á að minnsta kosti 160 þúsund króna sekt. Einnig er möguleiki á að bifreiðin verði tekin af manninum.

Veittust að krökkum við Smáralind

Fjögur ungmenni veittust að krökkum úr vinnuskóla Borgarness sem voru að skemmta sér í Tívolíinu við Smáralind í dag. Ungmennin, sem eru á aldrinum 14-16 ára, voru færð á lögreglustöð og sótt þaðan af foreldrum sínum. Að sögn lögreglu verða þau líklega kærð fyrir líkamsárás.

Vilja flýta uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs

Bæjarráð Hornafjarðar vill flýta uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs til að draga úr áhrifum af skerðingu aflaheimilda. Þetta kemur fram í bókun ráðsins frá því í morgun. Að mati bæjarráðsins mun skerðing aflaheimilda hafa víðtækar afleiðingar á atvinnulíf sveitarfélagsins til hins verra. Þá leggur ráðið til að stjórnvöld flytji náttúruverndar- og matvælasvið Umhverfisstofnunar til héraðsins.

Íbúi á Hlíð styrkir Öldrunarheimili Akureyrar um þrjár milljónir

Öldrunarheimilum Akureyrar hefur verið færð höfðingjalega peningagjöf. Margeir Steingrímsson, íbúi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri hefur gefið öldrunarheimilinum þrjár milljónir króna. Gjöfin rennur í gjafasjóð Öldrunarheimila Akureyrar og á að nýta til að bæta og endurnýja húsbúnað og tæki heimilanna.

Rannsóknarleiðangri til Seres og Vesta frestað

Geimferðastofnun Bandaríkjanna, Nasa, hefur slegið ferð könnunarfarsins Dawn á frest. Dawn átti í þessum mánuði að leggja af stað í rannsóknarleiðangur til smástirnisins Vesta og dvergplánetunnar Seres og kanna byggingu og efnasamsetningu þeirra.

Engin lausn í sjónmáli í deilu flugmanna og Icelandair

Engin sátt liggur fyrir í deilu flugmanna og Icelandair í tengslum við uppsagnir og meint brot á starfsréttindum flugmanna. Forráðamenn fyrirtækisins funduðu með fulltrúum flugmanna í dag en þeim fundi lauk fyrir skemmstu án niðurstöðu. Engir aðrir fundir hafa verið boðaðir en flugmenn hafa boðað til félagsfundar í kvöld.

Eitraðar brennisteinsgufur taldar hafa banað sex skólabörnum

Talið er að eitraðar brennisteinsgufur frá indónesísku eldfjalli hafi orðið sex skólabörnum að bana. Börnin voru í hópi 20 skólabarna frá höfuðborg Indónesíu, Djakarta, sem höfðu klifrað á brún eldgígsins en það er yfirleitt ekki hægt samkvæmt yfirvöldum.

Hreinn Loftsson vonar að fleiri opni sig um Baugsmál

Hreinn Loftsson, fyrrum stjórnarfomaður Baugs Group, segist sammála Valgerði Sverrisdóttur fyrrum viðskiptaráðherra um þörfina á sérstakri rannsókn á tilurð Baugsmálsins. Hreinn sagði í samtali við Vísi í dag, að sérstaklega þyrfti að skoða allt í kringum það sem kallað er Bolludagsmálið. "Þar keyrði um þverbak," segir Hreinn. "Það mál var hreinlega rugl."

Dæmdur fyrir að skjóta í átt að ketti

Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur í sekt fyrir vopnalagabrot og brot gegn lögreglusamþykkt. Maðurinn skaut úr riffli út um glugga á heimili sínu á Egilsstöðum í átt að ketti sem var í garðinum. Riffill mannsins var gerður upptækur.

Samtals 29 ára fangelsi fyrir frelsissviptingu og misþyrmingar

Þrennt var dæmt í samtals 29 ára fangelsi fyrir að svipta annan mann frelsinu í fjóra mánuði áður en hann lést. Englendingurinn Kevin Davies, 29 ára, var ítrekað laminn, brenndur og niðurlægður af David Lehane, Amanda Baggus og Scott Andrews.

Slæmt skyggni og lélegur vegur möguleg orsök banaslyss

Frumrannsóknir benda til þess að slæmt skyggni og lélegt ásigkomulag vegar hafi verið þess valdandi að ungur ökumaður lét lífið rétt við mynni Norðurárdals í gærmorgun. Sævarr Helgi Lárusson, sérfræðingur hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa, segir vegmerkingar í góðu lagi við slysstað.

Dómsmálayfirvöld þurfa að rannsaka tilurð og upphaf Baugsmálsins

Dómsmálayfirvöld þurfa að rannsaka tilurð og upphaf Baugsmálsins að mati Valgerðar Sverrisdóttur, varaformanns Framsóknarflokksins og fyrrverandi viðskiptaráðherra. Þetta kom fram í viðtali við Valgerði sem birtist í Viðskiptablaðinu síðastliðinn föstudag. Valgerður segir hátt hafa verið reitt til höggs í Baugsmálinu og segir málið allt með endemum.

Fyrsta einbýlishúsið tekið í notkun að Sólheimum

Fyrsta einbýlishúsið sem byggt er gagngert fyrir fólk með þroskahömlun var tekið í notkun að Sólheimum síðastliðinn fimmtudag. Styrktarsjóður Sólheima á húsið, en sjóðurinn hefur staðið fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis að Sólheimum síðastliðin 20 ár. Húsið er 117 fermetrar að stærð.

Þriðja nautahlaupið fór vel fram

Þriðja nautahlaupið fór fram í bænum Pamplona á Spáni í morgun. Enginn meiddist alvarlega en um sex manns hafa þurft að leita læknis eftir að hafa komist í návígi við nautin. Smellið á „Spila“ hnappinn hér að neðan til þess að sjá myndir frá hlaupinu.

Sjá næstu 50 fréttir