Fleiri
Danir börðust í sex tíma fyrir lífi sínu 16.5.2007 11:35 Sarkozy kallaði eftir samstöðu Frakka Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, kallaði eftir samstöðu meðal frönsku þjóðarinnar í ávarpi sínu við embættistöku í Elysee-höll í morgun. Sarkozy, sem tekur við af Jacques Chirac, sagði jafnframt að breytinga væri þörf og að Frakkar þyrftu að taka meiri áhættu, en hann hefur lagt áherslu á að blása þurfi lífi í efnahagslíf landsins þar sem atvinnuleysi er átta prósent. 16.5.2007 10:59 Sjá næstu 50 fréttir
Litla hafmeyjan máluð rauð Enn einu sinni hefur Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Þegar menn fóru á stjá í gær sáu þeir að rauðri málningu hafði verið slett á andlit, brjóst og kjöltu þessa frægasta kennileiti borgarinnar. 16.5.2007 19:45
Virginia Tech-skotleikur vekur upp reiði Tölvuleikur sem notar skotárásirnar í Virginia Tech-háskólanum sem sögusvið hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum. Höfundur leiksins segist munu taka hann af netinu gegn greiðslu. 16.5.2007 19:15
Vesturbyggð fagnar hugmyndum um Olíuhreinsistöð Bæjarstjórn Vesturbyggðar fagnar hugmynd um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Bæjarstjórinn bendir á að stefnan um stóriðjulausa og umhverfisvæna Vestfirði hefði verið mótuð þegar menn hafi átt von á aðstoð ríkisvaldsins við fjórðunginn - aðstoð sem aldrei hafi komið. 16.5.2007 19:09
Engir úrslitakostir settir um stóriðjustopp Vinstri grænir hafa komið skilaboðum til sjálfstæðismanna um að þeir séu til í viðræður og Steingrímur J. Sigfússon, formaður þeirra, segir að ekki verði farið með neina úrslitakosti í stóriðjumálum. Steingrímur taldi þó í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag flest benda til að þess ríkisstjórnarflokkarnir endurnýi samstarf sitt. 16.5.2007 18:59
Útstrikanir og ofríki í krafti auðs Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra gagnrýnir Jóhannes í Bónus harðlega fyrir að hvetja til útstrikana á sér. Hann lýsir áhyggjum af því að menn beiti ofríki í krafti auðs til að tryggja sér viðhlæjendur á þingi. Tæplega 20 prósent kjósenda strikuðu yfir Björn og fellur hann niður um eitt sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. 16.5.2007 18:54
Stungið undan Framsókn um helgina? Margir spyrja hvort atburðarásin eftir þingkosningarnar vorið 1995, þegar Davíð Oddsson skipti Alþýðuflokki út fyrir Framsóknarflokk eftir nokkurra daga viðræður, kunni að endurtaka sig nú. Kringumstæður í stjórnmálunum nú eru að mörgu leyti líkar. 16.5.2007 18:52
Jóhannes stóð ekki yfir kjósendum Hreinn Loftsson formaður stjórnar Baugs Group segir afstöðu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra lýsa hroka í garð lýðræðislegra ákvarðana sem teknar eru af einstaklingum þegar þeir nýti sér kosningarétt sinn. Jóhannes Jónsson hafi ekki staðið yfir kjósendum þegar þeir gengu til kosninga síðastliðinn laugardag. 16.5.2007 18:50
Formennirnir halda áfram viðræðum Formenn stjórnarflokkanna hafa hist á tveimur fundum í Stjórnarráðinu í dag til að ræða um endurnýjun samstarfsins. Forysta Framsóknarflokksins kannar samhliða hvort meirihlutastuðningur sé meðal 150 miðstjórnarmanna flokksins við það að hann haldi áfram stjórnarþátttöku með Sjálfstæðisflokki. 16.5.2007 18:49
55 geðsjúkir heimilislausir Þriðjungur þeirra sem voru í Byrginu undir það síðasta eru aftur komnir á götuna í neyslu, segir Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðjálpar. Hann telur húsnæðislausa miklu fleiri en yfirvöld viðurkenna og segir athvarf við Njálsgötu einungis veita gálgafrest. 16.5.2007 18:45
Sarkozy farinn til fundar við Merkel Nicolas Sarkozy sór embættiseið sem forseti Frakklands í dag. Í innsetningarræðu sinni kvaðst hann ætla að efla þjóðareiningu og blása í glæður efnahagslífsins. Búist er við að nýi forsetinn skipi ríkisstjórn sína á morgun 16.5.2007 18:45
Varmársamtökin fordæma skemmdarverk Varmársmtökin harma þá eyðileggingu sem unnin var á sjö vinnuvélum ofanvið Álafosskvos í Mosfellsbæ í nótt. Samtökin telja yfirlýsingar verktaka um að þau hafi hvatt til skemmdarverkanna vera ærumeiðandi. Í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér vegna málsins segir að ofbeldisverk samrýmist ekki markmiðum þeirra. 16.5.2007 18:03
Búist við afsögn Wolfowitz í dag Stjórn Alþjóðabankans leggur nú lokahönd á áætlun sem auðveldar Paul Wolfowitz bankastjóra að komast frá starfi sínu sem fyrst án þess að hljóta mikinn álitshnekki. Búist er við að Wolfowitz segi af sér seinna í dag vegna tilrauna hans til þess að fá stöðu- og launahækkun fyrir ástkonu sína sem vinnur hjá bankanum. Fréttastofa ABC greinir frá þessu. 16.5.2007 17:26
Fjórir í gæsluvarðhald vegna aðildar að vændi í Osló Fjórir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dómhúsinu í Osló í dag vegna gruns um aðild að skipulögðu vændi. Einn þeirra er einnig ákærður fyrir mansal. 16.5.2007 16:55
Sýknaður af ákæru um að hafa hindrað lögregluna í starfi Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um að hindra lögregluna í starfi og sneri þannig dómi héraðsdóms sem hafði dæmt hann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. 16.5.2007 16:50
Bræðravíg Palestínumanna halda áfram Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur verið hvattur til að lýsa yfir neyðarástandi eftir að að minnsta kosti sextán manns féllu í innbyrðis átökum Palestínumanna í dag. Að minnsta kosti fjörutíu manns hafa fallið í bardögum síðan á föstudag. Það eru Fatah samtök Abbas og Hamas samtökin sem berast á banaspjót. 16.5.2007 16:41
Hálfs árs fangelsi fyrir að hafa neytt veitinga án þess að geta borgað Hæstiréttur mildaði í dag dóm héraðsdóms yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa fimmtán sinnum pantað og neytt veitinga á veitingastöðum í borginni án þess að geta greitt fyrir þær. Var hann dæmdur í hálfs árs fangelsi. 16.5.2007 16:38
Formenn stjórnarflokkanna funda Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, áttu stuttan fund í Stjórnarráðinu nú síðdegis. Er þetta í annað skipti sem formennirnir hittast í dag en þeir funduðu einnig fyrir hádegi. 16.5.2007 16:34
Rússar vildu eyða kjarnorkuveri Ísraela Tveir ísraelskir rithöfundar halda því fram í nýrri bók að Sovétríkin hafi hrint sex daga stríðinu af stað, til þess að geta eyðilagt kjarnorkuvopnabúr Ísraels. Vopnin hafi snúist í höndum Rússa þegar Ísraelar gersigruðu heri Arabaríkjanna á ótrúlega skömmum tíma. 16.5.2007 16:09
Þrettán ára undir stýri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þrettán ára stúlku í gærkvöld sem hafði sest undir stýri á bíl og ekið á annan bíl. 16.5.2007 16:07
Harry prins ekki sendur til Íraks Harry Bretaprins verður ekki sendur á vegum breska hersins til Íraks eins og til stóð. Þetta hefur Sky-sjónvarpsstöðin eftir heimildarmönnum sínum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Sky er ástæðan sú að hann er „segull á heilaga stríðsmenn." 16.5.2007 15:44
Magnús Ragnarsson hættir sem sjónvarpsstjóri Skjás eins Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, mun láta af störfum sem sjónvarpsstjóri stöðvarinnar um næstu mánaðamót. Magnús tilkynnti þetta á starfsmannafundi í dag. 16.5.2007 15:42
Sömdu um gagnkvæma aðstoð í bráðatilvikum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Hveragerðis og Heilbrigðisstofnun Suðurlands sömdu í dag um gagnkvæma aðstoð og sameiginleg viðbrögð við slysum, eldsvoðum og öðrum bráðatilvikum þar sem þjónustusvæði þeirra liggja saman. 16.5.2007 15:30
Fingralangur golfari staðinn að verki Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær handtekinn eftir að hann reyndi að stela golfkylfu úr verslun í Smáralindinni. Maðurinn gaf þá skýringu að hann væri að kaupa golfbolta og vildi vera viss um að þeir pössuðu við kylfuna. Alls voru sjö einstaklingar staðnir að búðarhnupli á höfuðborgarsvæðinu í gær og þá var tilkynnt um eitt innbrot í Breiðholti. 16.5.2007 15:24
Hóta árásum á París Herskár íslamskur hópur hefur hótað árásum á París á næstu dögum í kjölfar þess að Nicolas Sarkozy varð forseti Frakklands. Hópurinn nefnist herdeild Abous Hafs Al-Masris og kennir sig við fyrrverandi leiðtoga al-Qaida í Afganistan. 16.5.2007 15:16
Heini fær sjónina aftur og hittir mömmu sína Hinn átta mánaða gamli blindi nashyrningur Heini hefur nú fengið hluta sjónar sinnar aftur. Fyrir tveimur vikum fór hann í augnaðgerð sem gekk vel. Mikil eftirvænting ríkti þegar hann hitti hjörð sína aftur eftir aðgerðina. Ef hún myndi hafna honum væri lífið svo gott sem búið fyrir Heini. 16.5.2007 15:12
Húsvíkingar binda miklar vonir við enduropnun flugvallarins Miklar vonir eru bundnar við enduropnun flugvallarins á Húsavík en flugvöllurinn verður opnaður formlega næstkomandi laugardag. Vonast heimamenn að reglubundið áætlunarflug til Húsavíkur geti hafist að nýju. 16.5.2007 15:11
Gætið ykkar á Aquanetworld Samtök verslunar og þjónustu hafa sent frá sér viðvörun vegna fyrirtækisins Aquanetworld sem er skráð með aðsetur að Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík. Er fólki ráðlagt að eiga ekki viðskipti við þetta fyrirtæki. 16.5.2007 14:57
Útlit fyrir að verkfalli flugmanna Sterling verði aflýst Verkfalli flugmanna danska lágfargjaldaflugfélagsins Sterling sem hefjast átti á morgun verður líklega aflýst eftir því sem forsvarsmenn Sterling segja. 16.5.2007 14:27
Vísar ásökunum Jóhannesar á bug Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir ásakanir Jóhannesar Jónssonar í Bónus, um að hann misnoti embætti sitt úr lausu lofti gripnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Björn sendi frá sér fyrir skemmstu undir fyrirsögninni „Stöldrum við - hugsum alvöru málsins.“ Hann segir ásakanir Jóhannesar varpa ljósi á einkennilegan hugarheim og lýsir yfir áhyggjum af þróun stjórnmálastarfs og réttarríkisins hér á landi. 16.5.2007 14:21
Nauðguðu, pyntuðu og myrtu heila fjölskyldu Íbúar í smábænum Kherlani á Indlandi urðu svo reiðir þegar lágstéttarfjölskylda keypti sér lóð í bænum að þeir réðust á heimili hennar. Þeir nauðguðu, misþyrmdu og myrtu alla sem þeir náðu í. Þetta gerðist í september á síðasta ári, en málið er fyrst nú komið fram í dagsljósið. Í Bhotmange fjölskyldunni voru hjón, 17 ára dóttir og tveir synir 21 og 23 ára. Yfir 100 mann réðust á heimilið. 16.5.2007 14:08
Á allt eins von á sömu ríkisstjórn áfram Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á allt eins von á því að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn endurnýi samstarf sitt í ríkissttjórn. Hann segir menn ætla "að velja átakminnsta, þægilegasta en um leið metnaðarlausasta kostinn, að láta þetta lafa áfram á annarri hjörinni." 16.5.2007 14:03
Kvíabryggja stækkuð Framkvæmdir eru hafnar við stækkun fangelsisins á Kvíabryggju og verður meðal annars sex herbergjum bætt við þau sem fyrir eru. Frá þessu er greint á fréttavefnum Skessuhorn. 16.5.2007 14:03
Serbar hafa tekið sig á Yfirvöld í Serbíu hafa hert leitina að Ratko Mladic, sem grunaður er um stórfellda stríðsglæpi á tímum Balkanstríðanna, og því eru góðar líkur á að undirbúningur að viðræðum um ESB-aðild landsins fari í gang á ný. Þetta sagði Olli Rehn, yfirmaður stækkunarmála Evrópusambandsins, eftir samtöl við serbneska ráðamenn í Belgrað í morgun. 16.5.2007 14:00
Skapadægur Wolfowitz nálgast Búist er við að framtíð Pauls Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, ráðist á fundi stjórnar bankans síðar í dag. Wolfowitz hefur legið undir miklu ámæli fyrir að hygla ástkonu sinni sem vinnur við bankann og hefur þrýstingur á bankastjórnina farið sívaxandi um að segja honum upp störfum. 16.5.2007 13:30
Skemmdarvarga enn leitað Lögreglan leitar enn þeirra sem unnu skemmdir á sjö vinnuvélum fyrir ofan Álafosskvosina í Mosfellsbæ í nótt. Rándýr stýribúnaður í sumum vélanna var gjöreyðilagður. 16.5.2007 13:25
Sarkozy orðinn forseti Nicolas Sarkozy sór embættiseið sinn sem forseti Frakklands í morgun. Í setningarræðu sinni kallaði hann eftir þjóðareiningu og boðaði breytingar á frönsku samfélagi. Búist er við að Sarkozy skipi ríkisstjórn sína í fyrsta lagi á morgun. 16.5.2007 13:09
Björn fellur niður um eitt sæti vegna útstrikana 2514 manns, sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður, strikuðu yfir nafn Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og eru það 18,16 prósent kjósenda flokksins í kjördæminu. Þetta þýðir að Björn færist niður eitt sæti á listanum. 16.5.2007 12:49
Ganga í hús á Ísafirði og selja myndir Þrír útlendingar eru í haldi lögreglunnar á Ísafirði síðan í gærkvöldi grunaðir um að stunda ólöglega farandsölu. 16.5.2007 12:45
Borgarstjóri með fyrsta flugi til Halifax Áætlunarflug Icelandair milli Íslands og borgarinnar Halifax í Kanada hefst að nýju á morgun. Af því tilefni verður efnt til sérstakra hátíðarhalda í Halifax og verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, meðal gesta. 16.5.2007 12:44
Vonast til að næsta ríkisstjórn viðhaldi stöðugleika Seðlabanki Íslands ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 14,25 prósentum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri vonast til að næsta ríkisstjórn, hver sem hún verður, viðhaldi stöðugleika til samræmis við markmið Seðlabankans. 16.5.2007 12:26
Varmársamtök fordæma skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á sjö vinnuvélum fyrir ofan Álafosskvosina í Mosfellsbæ í nótt, rúður voru brotnar og rándýr stýribúnaður í sumum þeirra gjöreyðilagður. Talið er að tjónið skipti milljónum en ekki er vitað hverjir standa að verki. Varmársamtökin fordæma skemmdarverkin og segjast á engan hátt hafa komið nálægt þeim. Þau hafa nú kært framkvæmdirnar á svæðinu til lögreglu. 16.5.2007 12:07
Innkalla barnamat vegna aðskotahlutar í einni krukku Kaupás hefur í samráði við Matvælaeftirlit borgarinnar innkallað barnamat af tegundinni Organic Baby eftir að aðskotahlutur fannst í einni krukkunni. 16.5.2007 12:06
Geir og Jón funda áfram í dag Formenn stjórnarflokkanna, þeir Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson, funduðu í Stjórnarráðinu í morgun um endurnýjun ríkisstjórnarinnar. Viðræður þeirra halda áfram í dag. 16.5.2007 12:00
Sarkozy kallaði eftir samstöðu Frakka Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, kallaði eftir samstöðu meðal frönsku þjóðarinnar í ávarpi sínu við embættistöku í Elysee-höll í morgun. Sarkozy, sem tekur við af Jacques Chirac, sagði jafnframt að breytinga væri þörf og að Frakkar þyrftu að taka meiri áhættu, en hann hefur lagt áherslu á að blása þurfi lífi í efnahagslíf landsins þar sem atvinnuleysi er átta prósent. 16.5.2007 10:59