Innlent

Tug­milljóna gjald­þrot meðhöndlarans

Árni Sæberg skrifar
Jóhannes við störf sem meðhöndlari.
Jóhannes við störf sem meðhöndlari.

Ekkert fékkst upp í tæplega 43 milljóna króna kröfur í þrotabú Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar, sem afplánar nú langan dóm fyrir fjölda kynferðisbrota.

Þetta kemur fram í auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í gær. Þar segir að skiptum hafi verið lokið þann 24. apríl án þess að nokkrar eignir hefðu fundist í búinu. Lýstar kröfur hafi numið 42,8 milljónum króna.

Mál Jóhannesar Tryggva vakti mikla athygli á sínum tíma enda hafði hann getið sér gott orð fyrir að vera nuddari fræga fólksins og leysa úr ýmsum vanda sem var að hrjá það. Opinberar ásakanir á hendur honum komu fyrst fram árið 2018 og í framhaldinu stigu margar konur fram og lýstu reynslu sinni. Úr varð að hann var dæmdur fyrir brot á sex konum.

Þegar síðast fréttist af afplánun Jóhannesar í maí í fyrra var hann á Kvíabryggju þar sem hann var farinn að meðhöndla fólk með stoðkerfisvanda. Þá hefur hann sagst ætla með mál sín fyrir Mannréttindadómstól Evrópu auk þess sem heimildarmynd um hann sé í vinnslu.


Tengdar fréttir

Gjaldþrota meðhöndlari

Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson meðhöndlari, sem var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex konum, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp úrskurð þess efnis þann 4. febrúar síðastliðinn. 

Dómur Jóhannesar Tryggva fyrir nauðgun þyngdur

Lands­réttur þyngdi í dag dóm yfir Jóhannesi Tryggva Svein­björns­syni vegna nauðgunar­brots gegn konu á nudd­stofu hans árið 2012. Jóhannes var dæmdur í á­tján mánaða fangelsi og til þess að greiða tvær milljónir króna.

Með­höndlarinn sem braut á fjölda kvenna ætlar með málið til Evrópu

Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hlaut uppsafnað sjö ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn fimm konum, fær mál sitt ekki tekið upp hjá Endurupptökudómi. Hann hefur hrundið af stað fjáröflun í eigin þágu og hyggst fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Þá segir hann heimildamynd um sögu sína vera í bígerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×