Sarkozy kallaði eftir samstöðu Frakka 16. maí 2007 10:59 Jacques Chirac kveður eftir embættistökuna í París í dag. MYND/AP
Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, kallaði eftir samstöðu meðal frönsku þjóðarinnar í ávarpi sínu við embættistöku í Elysee-höll í morgun. Sarkozy, sem tekur við af Jacques Chirac, sagði jafnframt að breytinga væri þörf og að Frakkar þyrftu að taka meiri áhættu, en hann hefur lagt áherslu á að blása þurfi lífi í efnahagslíf landsins þar sem atvinnuleysi er átta prósent. Sarkozy gagnrýndi kynþáttahatur í landinu og sagði taka þyfti fast á ólátum í landinu, en soðið hefur upp úr nokkrum sinnum á síðustu misserum í landinu vegna óánægju innflytjenda með stöðu sína. Þá hét hann því að verja sjálfstæði Frakklands og frönsk gildi. Eitt af síðustu verkum Chiracs í embætti var að afhenda Sarkozy talnalyklana að kjarnorkuvopnabúri Frakka. Viðstödd embættistökuna voru kona Sarkozys, Cecilia, og börn þeirra en grunnt hefur verið á því góða með þeim hjónum. Sarkozy mun í dag fara að Sigurboganum þar sem hann minnist þeirra Frakka sem féllu í síðari heimsstyrjöldinni. Í kjölfarið heldur hann til Þýskalands til fundar við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Sarkozy greinir að líkindum frá því á morgun hvernig ríkisstjórn hans verður skipuð, en búist er við að einn helsti ráðgjafi hans og fyrrverandi ráðherra, Francois Fillon, verði forsætisráðherra.
Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent „Ekkert nema gott að segja fyrir gróðurinn og sálarlíf landsmanna“ Veður Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Sjá meira