Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sviptur ökuréttindum fyrir ofsaakstur innanbæjar Lögreglan á Ísafirði stöðvaði í gærkvöldi ökumann sem ók á 126 kílómetra hraða á Skutulsfjarðarbrautinni, þar er hámarkshraðinn 60 kílómetrar á klukkustund. Maðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum og hæpið að hann aki suður að lokinni hátíðinni Aldrei fór ég suður, sem hefst í kvöld. Annars var allt með kyrrum kjörum á Ísafirði í gærkvöldi og í nótt. Að sögn lögreglu er mikið af fólki í bænum en sem fyrr segir skemmtu allir sér fallega í gærkvöldi. 6.4.2007 09:33
Margir teknir fyrir hraðakstur í gær - 14 ára stúlka undir stýri Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði sjö fyrir hraðakstur og að sögn var mikil umferð á norðurleið langt fram á nótt. Þá var einn tekinn grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna og annar með meint fíkniefni í bíl sínum. 6.4.2007 09:29
Tvöfaldur íbúafjöldi í umdæmi Selfosslögreglu Nokkuð rólegt var hjá lögreglunni á Selfossi í gær og í nótt. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur og fjórir fyrir of hraðan akstur. Einn þeirra mældist á 148 kílómetra hraða. Í umdæmi lögreglunnar búa rúmlega 15 þúsund manns en um ferðahelgar sem þessar tvöfaldast íbúafjöldinn þegar sumarbústaðaeigendur flykkjast úr borginni. 6.4.2007 09:00
Kerkorian býður í Chrysler Milljarðafjárfestirinn Kirk Kerkorian lagði í dag fram formlegt tilboð um að kaupa Chrysler Group af DaimlerChrysler samsteypunni þýsku. Tilboðið hljóðar upp á 4,5 milljarða dollara í reiðufé. Þetta er í annað skiptið sem Kerkorian reynir að eignast Chrysler. Hann bauðst til að kaupa bílaframleiðandann 1995 í félagi við fyrrverandi forstjóra, Lee A. Iacocca á 20 milljarða dollara. 5.4.2007 22:52
Fyrrum fangar mega kjósa á ný Yfirvöld í Flórídaríki í Bandaríkjunum hafa breytt lögum um borgaraleg réttindi fólks sem hefur verið dæmt fyrir glæpi. Hingað til máttu þeir sem höfðu verið dæmdir ekki kjósa, ekki vera í kviðdómi og máttu ekki sinna ýmsum störfum. 5.4.2007 20:45
Hallgrímspassía frumflutt annað kvöld Hallgrímspassía, eftir Sigurð Sævarsson verður frumflutt í Hallgrímskirkju annað kvöld, á föstudaginn langa, en verkið er byggt á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. 5.4.2007 20:00
Velgja hafmeyjunni undir uggum Íslenskt listaverk á garðbekk í dönskum almenningsgarði velgja Litlu hafmeyjunni undir uggum. Danskur listaverkasali segir verkið, sem er eftir Steinunni Þórarinsdóttur, hafa hlotið meiri athygli undanfarna mánuði en frægasta kennimerki Danmerkur. 5.4.2007 19:43
Þrír handteknir vegna hryðjuverkaárása Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir aðild sína að hryðjuverkaárásunum í Lundúnum þann sjöunda júlí árið 2005. Fimmtíu og tveir létu lífið í fjórum sjálfsmorðsprengjuárásum, en þrjár þeirra voru gerðar á neðanjarðarlestarkerfi Lundúna. Mennirnir sem hafa verið ákærðir eru á aldrinum tuttugu og þriggja ára til þrítugs. Rannsókn er enn í gangi og telur lögreglan líklegt að fleiri verði handteknir í tengslum við árásirnar. 5.4.2007 19:40
Óeinkennisklæddir lögreglumenn á meðal viðskiptavina Óeinkennisklæddir lögreglumenn verða innan um viðskiptavini Kringlunnar eftir páska. Þá hefst átak gegn búðahnupli sem öryggisgæsla hússins stendur að ásamt lögreglu. Um helmingur íslenskra búðaþjófa í Kringlunni eru krakkar að stela sér nammi. 5.4.2007 19:38
Dorrit komin til Íslands Dorrit Moussaieff forsetafrú kom til Íslands í morgun en hún lærbrotnaði á skíðum í Aspen í Colorado í síðustu viku. Dorrit gekkst undir mikla aðgerð eftir slysið. Forsetafrúin kom ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni með flugi frá Boston í morgun. Örnólfur Thorsson, forsetaritari, segir Dorrit vera á batavegi. Reiknað er með að hún fari í endurhæfingu þar sem meiðsl hennar voru allnokkur. 5.4.2007 19:35
Aðskildu hjörtu síamstvíburasystra Ungar símastvíburasystur reyndust mun uppteknari hvor af annarri en myndavélunum þegar þær birtust í fyrsta inn opinberlega eftir að þær voru skildar að. Hjörtu stúlknanna voru meðal annars föst saman. Að öllum líkindum er aðgerðin sú fyrsta sinnar tegundar. 5.4.2007 19:16
Ótti, ekki skeytingarleysi Leigubílsstjóri, sem varð vitni að því þegar hópur ungmenna gekk í skrokk á pari í Breiðholti í fyrradag, veitti árásarmönnunum eftirför eftir að hafa fengið þau skilaboð frá lögreglu að enginn lögreglubíll var tiltækur. Bílstjórinn segir ástæðu þess að enginn sjónarvotta kom parinu til hjálpar ekki vera skeytingarleysi heldur ótta. 5.4.2007 18:45
Fagnað við komuna til Bretlands Fimmtán breskum sjóliðum, sem verið höfðu í haldi Írana í nærri tvær vikur, var fagnað við komuna til Bretlands í dag. Sjóliðarnir flugu frá Tehran snemma í morgun. Aðeins degi eftir að forseti Írans, tilkynnti að þeim yrði sleppt og sagði ákvörðunina gjöf til Breta. 5.4.2007 18:41
Snjór fluttur til Ísafjarðar Flytja þurfti snjó ofan af fjöllum niður í Ísafjarðarbæ til að unnt yrði að setja skíðaviku með árlegri sprettgöngu um götur bæjarins. 5.4.2007 18:38
110 milljarðar skipta um hendur Allt bendir til að Baugur og FL group verði stærstu eigendur Glitnis eftir helgi. Við þá samninga skipta svo háar fjárhæðir um hendur að það stefnir í Íslandsmet. 5.4.2007 18:30
Alcan horfir til Keilisness Uppbygging nýs álvers á Keilisnesi á Vatnsleysuströnd er meðal þeirra kosta sem Alcan á Íslandi hyggst kanna í kjölfar þess að stækkun álversins í Straumsvík var felld í kosningu um síðustu helgi. Sérfróðir menn telja þessa lausn þá skástu sem fyrirtækið gæti átt völ á til að tryggja framtíð sína hérlendis. 5.4.2007 18:28
Rice ætlar að ræða við Írana Condoleezza Rice, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, ætlar sér að hefja beinar viðræður við Írana um hugsanlegt hlutverk þeirra í Írak þegar hún fer á fund sem verður haldinn í maí. Rice sagði líklegt að fundurinn yrði haldinn af ráðherrum en undirmenn utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Írans áttu fundi í mars síðastliðnum. 5.4.2007 18:19
Páfinn minnist auðmýktar Jesú Benedikt páfi þvoði og þurrkaði fætur 12 manna við hátíðlega Skírdagsathöfn í Vatíkaninu í dag. Athöfnin er haldin til þess að minnast þess hversu auðmjúkur Jesú var kvöldið áður en hann var krossfestur. 5.4.2007 17:40
Ísland og Indland í samstarf um jarðskjálftarannsóknir Sendiherra Íslands á Indlandi, Dr. Gunnar Pálsson, og ráðuneytisstjóri vísindamálaráðuneytis Indlands, Dr. T. Ramasani, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf Íslands og Indlands á sviði jarðskjálftarannsókna. 5.4.2007 17:26
Fjórir breskir hermenn fórust í Írak í dag Níu breskir hermenn hafa látið lífið í Írak síðastliðna tvo daga. Í dag létust fjórir breskir hermenn ásamt einum túlki þegar þeir lentu í umsátri uppreinsarmanna vestur fyrir borginni Basra. Árásin var sú alvarlegasta á breskt herlið í Írak síðan í nóvember á siðasta ári. Tony Blair, forsætisráðherra Breta, lýsti yfir sorg sinni vegna dauðsfallanna í yfirlýsingu eftir heimkomu sjóliðanna 15 í dag. 5.4.2007 17:22
Voru að afla upplýsinga um Íran Yfirmaður sjóliðanna 15 sagði í dag við Sky fréttastöðina að þeir hefðu verið í leiðangri til þess að afla upplýsinga um Íran. Jafnframt segir stöðin að hún hafi ekki birt fréttina fyrr en nú þar sem hún vildi ekki stofna öryggi sjóliðanna í hættu. 5.4.2007 17:13
Þyrla landhelgisgæslunnar sækir vélsleðamann Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út til þess að sækja slasaðan vélsleðamann. Talið er að maðurinn sé nálægt Hágöngum. Sleðasveitir voru upphaflega kallaður út en þar sem talið er að maðurinn sé slasaður á baki var ákveðið að kalla þyrluna út. Slysavarnarfélagið vill minna fólk á að slæmt skyggni og þungt færi sé víða á hálendinu og því sé nauðsynlegt að gæta ýtrustu varúðar séu menn á annað borð á ferðinni. Sem stendur er ekki vitað hversu alvarleg meiðsli mannsins eru. 5.4.2007 16:58
4.000 manns dönsuðu á Victoria lestarstöðinni Fleiri en 4.000 manns hittust í gærkvöldi klukkan hálfsex að íslenskum tíma á Victoria lestarstöðinni í Lundúnum til þess að dansa. Engin var þó tónlistin og ekkert var ballið. Fólkið mætti allt með iPod tónlistarspilara og dansaði því hvert eftir sínu lagi. Uppákoman er kölluð skyndi-múgæsing (Flash mobbing) og hefur rutt sér til rúms undanfarin ár. 5.4.2007 16:06
Talibanar rændu tveimur frönskum ríkisborgurum Talibanar lýstu því yfir í dag að þeir hefðu rænt tveimur Frökkum og þremur Afgönum í suðvesturhluta Afganistan. Tilkynningin frá hópnum, sem kallar sig Uppreisnarher íslamsks ríkis, var birt á Internetinu. Í henni kom fram að í gær hefðu þeir rænt tveimur frönskum ríkisborgurum, karlmanni að nafni Eric og konu að nafni Salma. Einnig var tekið fram að þremur Afgönum hefði verið rænt en nöfn þeirra hafa ekki verið gefin upp. 5.4.2007 15:46
Lýst eftir sendiferðabíl Lýst er eftir ljósgráum sendiferðabíl, merktum bakaríinu Korninu, sem stolið var fyrir utan B&L um fimmleytið í gær. Bíllinn er af gerðinni Renault Traffic og er af árgerðinni 2006. Þeir sem sjá bílinn eru vinsamlegast beðnir um að hringja í síma 864-1564. Vegleg fundarlaun eru í boði fyrir viðkomandi. 5.4.2007 15:35
Skemmtiferðaskip strandar Grískt skemmtiferðaskip, Sea Diamond, strandaði á ferð sinni um grísku eyjarnar í morgun. Gat kom á skrokk þess og verið að að selflytja hundruð farþega í land. Talið er að um 1.200 farþegar og 300 starfsmenn séu um borð í skipinu. Atvikið átti sér stað nærri eyjunni Santorini. 5.4.2007 15:11
Olmert bað Pelosi ekki fyrir friðarbón Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, gaf frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann segir að hann hafi ekki falið Nancy Pelosi að færa Sýrlendingum friðarbón. Samkvæmt yfirlýsingunni sagði Olmert við Pelosi að „Þó svo Ísrael hafi áhuga á friðarsamkomulagi við Sýrland, er landið samt enn á lista yfir Öxulveldi hins illa og ýtir undir hryðjuverkaöfl í Mið-Austurlöndum.“ 5.4.2007 15:00
Antony Hegarty kemur fram á Bjarkartónleikunum Antony Hegarty, sem er betur þekktur sem Antony & the Johnsons, er væntanlegur til landsins. Hann mun koma fram á tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur á mánudaginn kemur. Antony verður með Björk í tveimur lögum á tónleikunum. 5.4.2007 14:54
Bifhjól og jepplingur í hörðum árekstri Árekstur varð á Réttarholtsvegi um klukkan hálfeitt í dag. Bifhjól og jepplingur lentu þar saman. Áreksturinn var mjög harður og þurfti að flytja ökumann hjólsins á slysadeild. Hann kastaðist af hjólinu við áreksturinn en er engu að síður ekki talinn mikið slasaður. Bæði jepplingurinn og bifhjólið voru óökuhæf eftir áreksturinn og þurfti að fjarlægja bæði með kranabíl. 5.4.2007 14:13
Dorrit komin heim til Íslands Dorrit Moussaieff forsetafrú kom til Íslands í morgun en hún lærbrotnaði á skíðum í Aspen í Colorado í síðustu viku. Dorrit þurfti að gangast undir stóra aðgerð eftir slysið. Forsetafrúin kom ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, með flugi frá Boston í morgun. 5.4.2007 14:03
Forma fagnar yfirlýsingu landlæknis Forma, samtök átröskunarsjúklinga á Íslandi fagnar yfirlýsingu Matthíasar Halldórssonar landlæknis um að nú séu engir biðlistar fyrir átröskunarsjúklinga á geðdeildum. En eins og Matthías segir í tilkynningu sinni þá hafa átröskunarsjúklingar núna forgang fram yfir aðra sjúklinga og virðast því fá þjónustu strax. 5.4.2007 13:54
Þrír ákærðir fyrir sprengjuárásir í Lundúnum. Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir þátttöku í sprengjutilræðunum í Lundúnum þann 7. júlí 2005. Þetta eru fyrstu ákærurnar vegna sprenginganna sem urðu alls 52 að bana. 5.4.2007 13:50
Ætla að funda um framtíð Íraks Írak, nágrannar þess og önnur lönd ætla sér að halda ráðherrafund í maí til þess að ræða framtíð landsins og hvernig er hægt að koma á stöðugleika í landinu. Fundurinn verður framhald funda sem haldnir voru í mars. Upphaflega átti að halda fundinn í byrjun apríl en honum var síðan seinkað. 5.4.2007 13:41
Hálkublettir víða á vegum Rétt er að benda á í upphafi þessarar miklu ferðahelgi að hálka er á Siglufjarðarvegi og hálkublettir milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Eins eru hálkublettir á milli Akureyrar og Egilsstaða og víða hálkublettir á Austurlandi. 5.4.2007 13:16
Karlmanni bjargað sem festist í krapa Karlmaður var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hann festist í krapa á Fjarðarheiði um hádegisbil. Samferðarmenn mannsins kölluðu eftir hjálp en náðu að bjarga honum upp úr krapanum áður en björgunarsveitarmenn komu á staðinn sem náðu honum land. 5.4.2007 13:15
Örtröð í vínbúðum Veruleg örtröð var í vínbúðum höfuðborgarsvæðisins í gær. Víða var örtrðin slík að röðin náði langt út fyrir verslanirnar og greip starfsfólk verslananna til þess ráðs að hleypa viðskiptavinunum inn í skömmtum. Þegar inn var komið var yfirleitt þröng á þingi og langar raðir við afgreiðslukassana. Meginþorri vinnandi fólks er enda kominn í fimm daga páskafríi og vill fólk væntanlega gera vel við sig í mat og drykk yfir páskahátíðna. 5.4.2007 13:15
Skemmdu einkabifreið lögreglumanns á Blönduósi Tveir menn hafa viðurkennt að hafa skemmt einkabifreið lögreglumanns á Blönduósi í fyrrinótt, en það er þriðja árásina á lögreglumenn eða eigur þeirra í umdæminu frá áramótum. Eigandi bílsins býr á Skagaströnd og stóð bíllinn við heimili hans. Töluverðar skemmdir voru unnar á bílnum, sem er nýlegur jeppi. 5.4.2007 13:14
Íslandshreyfingin kynnir stefnuyfirlýsingu sína Íslandshreyfingin - lifandi land hefur nú gert stefnuyfirlýsingu sína opinbera. Ábyrg umhverfisstefna og stóirðjustopp er þar efst á blaði. Hreyfingin vill að Ísland verði í fremstu röð frumkvöðla og nýsköpunar. Að komið verði á fót sveigjanlegu velferðarkerfi sem auki samfélagsþátttöku og lífsgæði. Skólastarf á öllum stigum verði eflt og litið verði á landið sem eina heild og eitt atvinnusvæði, svo stiklað sé á stóru. 5.4.2007 13:12
Páskahátíðinni fagnað Þúsundir pílagríma röktu fótspor Jesús Krists víða um Jerúsalem í morgun þegar þeir fögnuðu páskahátíðinni sem nú er hafin. 5.4.2007 12:17
Veðurblíða á skíðasvæðum og hálendinu Hápunktur skíðavertíðarinnar hérlendis hefur í gegnum árin iðulega verið um páskana og nú ber svo við að helstu skíðasvæði landsins eru opin, þar á meðal Bláfjöll. Skíðasvæðið í Skálafelli er hins vegar lokað. Fjöldi fjallamanna og vélsleðafólks er á ferð á hálendinu og þaðan berast fregnir af veðurblíðu 5.4.2007 12:13
Sjóliðarnir komnir heim til Bretlands Bresku sjóliðarnir fimmtán, sem verið hafa í haldi Írana í nærri tvær vikur, komu heim til Bretlands nú fyrir hádegi. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði því að sjóliðarnir væru komnir aftur heim öryggir og ómeiddir. 5.4.2007 12:05
Ógiltu lög um framhjáhald kvenna Stjórnarskrárdómstóll í Úganda hefur ógilt lög um framhjáhald sem þar voru í gildi. Samkvæmt þeim var löglegt fyrir giftan mann að halda framhjá með ógiftri konu en ólöglegt fyrir gifta konu að halda fram hjá með ógiftum manni. Konur sem voru fundnar sekar um ódæðið sáu fram á sekt eða allt að eitt ár í fangelsi. 5.4.2007 12:04
Ríkisstjórnin heldur velli Ríkisstjórnin heldur velli með 32 þingmenn samkvæmt skoðanakönnun Capacent Gallups fyrir Morgunblaðið og RÚV. 5.4.2007 11:53
Fáir í Bláfjöllum Fáir eru á ferli í Bláfjöllum þrátt fyrir mjög gott veður og ágætis færi. Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið til klukkan 18 í dag. Skíðasvæði um land allt eru opin. 5.4.2007 11:35
Mugabe hótar þeim er tóku þátt í verkfalli Forseti Zimbabwe, Robert Mugabe, hótaði í dag aðgerðum gegn þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í tveggja daga verkfalli verkalýðsfélaga í landinu. Fá fyrirtæki tóku þátt í verkfallinu þar sem stjórnvöld höfðu varað við hefndaraðgerðum gegn þeim sem tóku þátt. Hermenn gengu um götur og pössuðu upp á að allt væri opið. 5.4.2007 11:29