Fleiri
Doktor Geir 4.4.2007 16:40 Mótmælir því að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga Landlæknir mótmælir þeim fullyrðingum sem fram hafi komið í fréttum, ekki síst vegna kynningar á tónleikum sem Forma-samtökin, um að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga á Íslandi. 4.4.2007 16:32 Dorrit væntanleg heim á næstu dögum Dorrit Moussaieff forsetafrú er væntanleg hingað til lands á næstu dögum en eins og kunnugt lærbrotnaði hún á skíðum í Aspen í Colorado í síðustu viku. Þær upplýsingar fengust hjá forsetaritara að Dorrit væri á góðum batavegi og að hún hefði verið í góðu sambandi við lækna sína. 4.4.2007 16:25 Með ástarkveðju frá Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi ráku kínverska konu sem tilheyrði Falun Gong samtökunum úr landi í síðasta mánuði. Hún var send til Kína, ásamt átta ára gamalli dóttur sinni. Ma Hui hafði búið í Sankti Pétursborg í nokkur ár og oft beðið um hæli sem pólitískur flóttamaður. Hinn 28. mars var hún handtekin og send úr landi samdægurs. 4.4.2007 16:09 Komugjöld til annarra en lækna á göngudeild tekin til greina Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur breytt reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðyneytinu felur breytingin í sér að framvegis verða komugjöld á göngudeildunum vegna þjónustu annarra en lækna tekin til greina þegar sótt er um afsláttarkort frá Tryggingastofnun ríkisins. 4.4.2007 16:00 Fór fram á sex vikna gæsluvarðhald yfir hnífamanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í dag fram á það að maðurinn sem stakk annan mann með eldhúshnífi í húsi við Hátún í gærkvöld yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald í sex vikur. Að sögn lögreglu hefur maðurinn játað að hafa stungið fórnarlamb sitt en lítið er um skýringar á því háttarlagi. 4.4.2007 15:54 Sjóliðar fluttir heim í dag Bresk stjórnvöld fögnuðu í dag þeirri ákvörðun íranskra yfirvalda að sleppa fimmtán breskum sjóliðum sem verið hafa í haldi í Íran frá 23. mars. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tilkynnti um það á fréttamannafundi í dag að sjóliðunum yrði sleppt og að farið yrði með þá á flugvöllin í Teheran í dag og þeim flogið heim. 4.4.2007 15:27 Ríkið selur hlut sinn í Baðfélagi Mývatnssveitar Iðnaðarráðherra hefur falið einkavæðingarnefnd að annast sölu á 16 prósenta hlut ríkisins í Baðfélagi Mývatnssveitar hf. sem á og rekur jarðböðin við Mývatn. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu er nafnvirði hlutarins er 20 milljónir króna. 4.4.2007 15:06 Norræna leggst að bryggju á Seyðisfirði Norræna er nú að leggjast að Strandarbakka á Seyðisfirði eftir að skipið slitnaði frá bryggjunni í óveðri í nótt. Fram kemur í tilkynningu að fragt og faþegar verði nú teknir um borð en áætlað er að ferjan fari frá Seyðisfirði undir kvöld. 4.4.2007 14:55 Icelandair fellst á tilmæli talsmanns neytenda Icelandair hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að nefna ekki hluta heildarverðs „gjöld" nema um sé að ræða annaðhvort valkvæða aukaþjónustu fyrir flugfarþega eða gjöld sem skylt er að greiða í hlutfalli við fjölda farþega. 4.4.2007 14:47 Forsetinn heimsótti Harvard og MIT Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var í gær gestur við Harvard-háskóla þar sem hann flutti fyrirlestur í boði hins virta prófessors Michaels Porter sem þekktur er fyrir rannsóknir sínar á samkeppnishæfni þjóða. Í dag heimsótti hann svo MIT, tækniháskólann í Boston í Massachusetts. 4.4.2007 14:22 Þú þarna í rauðu peysunni Nýjasta hugmynd yfirvalda í Bretlandi er að setja upp myndavélar sem arga á fólk ef það gerir eitthvað sem það má ekki. Í Bretlandi er ein eftirlitsmyndavél á hverja fjórtán íbúa. Nú á að bæta á þær hátölurum til þess að bæjarstarfsmenn geti strax skammað þá sem sýna af sér svokallaða andfélagslega hegðun. 4.4.2007 14:21 Páskakvíga í Húsdýragarðinum Sannkallaður páskaglaðningur leit dagsins ljós í Húsdýragarðinum í nótt þegar kýrin Branda bar myndarlegri kvígu. Eftir því sem segir í tilkynningu frá Húsdýragarðinum er faðirinn tuddinn Týr sem einnig býr í garðinum en hann er afkvæmi hins landsþekkta Guttorms sem lengi gladdi gesti Húsdýragarðsins. 4.4.2007 14:09 15 ára fangelsi fyrir að skrifa Fogh Rasmussen Saksóknari í Tyrklandi hefur krafist allt að 15 ára fangelsis yfir 53 borgarstjórum sem skrifuðu Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur bréf árið 2005. Í bréfinu báðu þeir Rasmussen um að hlífa kúrdisku sjónvarpsstöðinni Roj-TV sem sendir út á kúrdisku, frá Kaupmannahöfn. Stöðin nær meðal annars til Þýskalands, þar sem býr mikill fjöldi Kúrda. 4.4.2007 14:00 Hótaði afgreiðslukonu með hamri Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, fyrri brot gegn valdstjórninni, rán og þjófnað. 4.4.2007 13:53 Sex fíkniefnamál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt að því er kemur fram í frétt frá lögreglunni. Um miðnætti hafði lögregla afskipti af þremur mönnum á þrítugsaldri í þremur aðskildum málum en í fórum þeirra fundust fíkniefni sem talið er að sé marijúana. 4.4.2007 13:36 Þyrla flaug á útvarpsmastur Átta manns létu lífið þegar herþyrla flaug á útvarpsmastur í fjalllendi eyjunnar Taívan í gærkvöld. Slysið varð á sunnanverðri eyjunni, nærri borginni Kaohsiung. Mikil rigning og þoka var á þessum slóðum í gær og því er talið að flugmaður þyrlunnar hafi ekki séð mastrið. 4.4.2007 13:30 Íranar ætla að sleppa breskum sjóliðum Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tilkynnti í ávarpi í dag að Íranar myndu sleppa bresku sjóliðunum fimmtán sem þeir hafa haft í haldi og það væri gjöf til Bretlands. 4.4.2007 13:16 Sjá næstu 50 fréttir
Reyndi að komast undan lögreglu Lögreglan náði ölvuðum ökumanni sem reyndi að komast undan þegar hann var stöðvaður á Suðurlandsvegi við Klettháls í nótt. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en tíu gista fangageymslur eftir nóttina. 5.4.2007 09:53
Jarðskjálftar í Öxarfirði Tveir jarðskálftar um þrír á Richter urðu á austanverðu Norðurlandi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Sá fyrri varð í Kelduhverfi laust fyrir klukkan hálfsjö og átti upptök um níu kílómetra vestsuðvestur af Ásbyrgi. Síðari skjálftinn varð um hálftíma síðar, um klukkan sjö, en hann átti upptök sín undir hafsbotni norður af Öxarfirði um fimmtán kílómetra austur af Grímsey. 5.4.2007 09:51
Sjóliðarnir komnir til Bretlands Bresku sjóliðarnir fimmtán, sem voru í haldi Írana í nærri tvær vikur, lentu í morgun á Heathrow flugvelli rétt fyrir utan Lundúnir. Sjóliðarnir flugu frá Tehran með British Airways um klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Fóru þeir beint um borð í herþyrlur sem fluttu þá í herstöð í Devon þar sem þeir munu hitta ættingja sína. 5.4.2007 09:48
Skíðasvæði opin um land allt Skíðasvæði um allt land eru opin í dag. Í Bláfjöllum er opið í Kóngsgili og á heimatorfunni við Bláfjallaskála í dag frá kl. 10 til 18. Léttskýjað er og sex gráðu frost. Í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opið frá níu til fimm í dag. Þar er hægur vindur og sjö gráðu frost. 5.4.2007 09:46
Solana ræddi við Larijani Utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, Javier Solana, ræddi í gær við Ali Larijani, aðalsamningamann Írana í kjarnorkumálum, um möguleikann á að hefja viðræður um kjarnorkuáætlun Írana á næstunni. Samtal þeirra átti sér stað áður en sjóliðunum bresku var sleppt og vitað er að Solana talaði um mál þeirra við Larijani. 5.4.2007 09:25
Vinstri græn báðu Alcan um peninga Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, óskaði eftir að Alcan í Straumsvík styrkti flokkinn um þrjú hundruð þúsund krónur fyrir komandi alþingiskosningar. 5.4.2007 09:00
Allir fara vestur á Aldrei fór ég suður Ferðamannastraumurinn um páskana liggur til Ísafjarðar, þar sem rokkhátíðin Aldrei fór ég suður fer fram. Páskaævintýri á Akureyri trekkir einnig að. Landsbjörg minnir meðal annars á aksturshraða og beltanotkun í tilefni páskanna. 5.4.2007 09:00
Kaupþingsmót Hellis og TR í skák hafið Kaupþingsmót Hellis og TR hófst í kvöld í skákhöllinni í Faxafeni. Ingólfur Helgason forstjóri Kaupþings opnaði mótið með því að leika fyrsta leikinn í skák Hjörvars Steins Grétarssonar og skoska stórmeistarans Colin McNabs. Leikurinn endaði með jafntefli. Önnur umferð mótsins hefst í fyrramálið klukkan 10. Teflt er í tveimur flokkum, stórmeistaraflokki og meistaraflokki. 4.4.2007 23:48
Miklar annir hjá starfsmönnum Hafró Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar keppast nú við að afla sýna úr vertíðarafla til að fá marktækt úrtak úr lönduðum afla. Sýnatakan er grundvöllur stofnstærðarútreikninga og ráðlegginga fiskifræðinga í vor. Undanfarið hefur verið góð veiði á miðum eftir heldur risjótt tíðarfar. 4.4.2007 23:39
Skemmdir unnar á bifreið lögreglumanns Töluverðar skemmdir voru unnar á nýlegri jeppabifreið lögreglumanns á Blönduósi í nótt. Maðurinn býr á Skagaströnd. Bifreiðinni var lagt við heimili hans þar þegar ódæðið var unnið. Sami lögreglumaður lenti í því fyrir skömmu að heimatilbúin sprengja var sprengd við heimli hans í febrúar á þessu ári. Tveir karlmenn um tvítugt voru handteknir í dag og yfirheyrðir. 4.4.2007 23:25
Obama sækir fast á Hillary í fjáröflun Barack Obama mögulegur forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunum hefur safnað að minnsta kosti 25 milljónum bandaríkjadala í kosningasjóð sinn. Hillary Clinton sem einnig sækist eftir útnefningu flokksins hefur safnað 26 milljónum. Sú upphæð er met. Kosningalið Obama segir að meira en 100 þúsund aðilar hafi lagt fé í sjóðinn. 4.4.2007 22:54
Svisslendingar sendi ekki djöfullegt lag í Eurovision Kristnir Svisslendingar fara nú fram á að framlag landsins til Eurovision keppninnar í ár verði bannað þar sem það sé djöfullegt. Lýðræðisflokkur í landinu hefur safnað 49 þúsund undirskriftum og afhent ríkisstjórnarinni. Farið er farið er fram á að gripið verði í taumana. Lag DJ Bobos nefnist Vampires Are Alive. 4.4.2007 22:00
Sjóliðunum sleppt á morgun Ráðgjafi Mahmoud Ahadinejad forseta Írans sagði í dag að bresku sjóliðunum 15 verði sleppt úr haldi á morgun. Reuters fréttastofan hefur eftir Mojtaba Samareh-Hashemi að gíslarnir verði látnir lausir í breska sendiráðinu í Teheran á morgun og fari beint til London. Hann sagði að Bretarnir væru nú undir umsjón utanríkisráðuneytisins. 4.4.2007 21:30
Volkswagen bifreið Páfa til sölu Volkswagen Golf bifreið sem einu sinni var í eigu Benedikts Páfa er nú til sölu. Hægt er að bjóða í bílinn á uppboðsvefnum eBay. Hagnaður af sölunni mun renna til góðgerðarmála. Nú hafa tilboð náð rúmum tíu milljónum, en uppboðið rennur út næstkomandi þriðjudag. Á fréttavef Ananova kemur fram að upphaflega hafi bíllinn kostað tæpar 900 þúsund krónur. 4.4.2007 21:15
Kamelljónasmyglari roðnaði í tollinum Króatískur maður var gripinn glóðvolgur á alþjóðaflugvellinum í Zagreb með 175 kamelljón sem hann reyndi að smygla inn frá Tælandi. Tollverðirnir tóku eftir hreyfingu á poka Dragos Radovic þegar hann gekk í gegnum tollhliðið. Þegar þeir opnuðu pokann sáu þeir skriðdýrin sem eru í útrýmingarhættu. 4.4.2007 20:45
Staða Jústsjenkós versnar Viktor Janukovits, forsætisráðherra Úkraínu, hótaði í dag að sniðganga kosningarnar sem Viktor Jústsjenkó, forseti landsins, boðaði til í fyrrakvöld. Þúsundir stuðningsmanna þessara fornu fjenda fylktu liði í höfuðborginni Kænugarði í dag. 4.4.2007 20:00
Kaffibandalagið er ekki liðið undir lok Kaffibandalagið er ekki liðið undir lok að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún á þó ekki von á að hún verði ráðherra í ríkisstjórn Steingríms J. Sigfússonar. Í dag var haldinn opinn fundur hjá forystu Samfylkingarinnar þar sem farið var yfir stjórnmálaástandið á kosningavori. 4.4.2007 19:59
Umferðarslys við Flugstöð Leifs Eiríkssonar Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir árekstur vinnuvélar og sendibifreiðar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áreksturinn átti sér stað brottfararmeginn í flugstöðinni. Maðurinn slasaðist á baki þar sem hann vann við að afferma vörur úr sendibifreiðinni þegar vinnuvélin keyrði á kyrrstæða sendibílinn. 4.4.2007 19:53
Endurspeglar pólitíska gjá Sú ákvörðun Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, að sækja sýrlenska ráðamenn heim mælist ekki vel fyrir hjá George Bush Bandaríkjaforseta. Deilan sýnir í hnotskurn gjánna sem skilur að repúblikana og demókrata í Bandaríkjunum. 4.4.2007 19:30
Framsókn tapar þremur mönnum í Norðausturkjördæmi Framsóknarflokkurinn tapar tveimur þriðju af fylgi í Norðausturkjördæmi, en Sjálfstæðisflokkur bætir við sig um níu prósenta fylgi. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2 í Norðausturkjördæmi. Vinstri grænir auka fylgi sitt um átta prósent og Samfylkingin bætir við sig tveimur prósentum. Nýtt framboð og Íslandshreyfingin mælast með tæplega sex prósenta fylgi. 4.4.2007 19:00
Sextíu prósent hlynntir álveri við Húsavík Sex af hverjum tíu kjósendum í Norðausturkjördæmi eru hlynntir álveri við Húsavík, en fjórir af hverjum tíu eru því andvígir. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2. Úrtakið í kjördæminu var 800 manns á aldrinum 18-75 ára. Spurt var hvort viðkomandi væri hlynntur eða andvígur því að álver yrði reist við Húsavík. 4.4.2007 18:35
Kæra ekki álverskosningu Samtökin Hagur Hafnarfjarðar ákváðu í dag að kæra ekki álverskosninguna í Hafnarfirði heldur að láta kyrrt liggja. Þau telja að ekki hafi verið um skipulagða fólksflutninga að ræða í þeim mæli að ráðið hefði úrslitum. Þau benda engu að síður á að íbúaflutningar til bæjarins hafi verið óvenju miklir í marsmánuði en vísa því á bæjaryfirvöld að meta hvort ástæða sé til að skoða málið frekar. 4.4.2007 18:30
Alcan í Straumsvík heldur öllu opnu um orkukaup frá Landsvirkjun Alcan á Íslandi hefur komið þeim boðum til Landsvirkjunar að áður gert samkomulag um orkukaup vegna stækkunar í Straumsvík haldi gildi sínu til 30. júní, en á meðan ræðir Landsvirkjun ekki við aðra um nýtingu orkunnar. Undirbúningur virkjana í neðri hluta Þjórsár heldur áfram á fullu af hálfu bæði Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. 4.4.2007 18:28
Hnífstungumaður í fimm vikna gæsluvarðhald Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður í fimm vikna gæsluvarðhald í dag fyrir að veita öðrum karlmanni lífshættulega áverka með hnífi í Reykjavík í gærkvöldi. Hann hefur játað verknaðinn. Maðurinn sem var stunginn fór í aðgerð í nótt og er haldið sofandi í öndunarvél. 4.4.2007 18:04
Sjóliðunum sleppt Írönsk stjórnvöld slepptu í dag bresku sjóliðunum fimmtán sem þau hafa haft í haldi sínu í hartnær hálfan mánuð. Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti kallaði ákvörðunina gjöf til Bretlands en harmaði um leið að breska stjórnin hefði ekki viðurkennt að hafa ráðist inn í íranska lögsögu. 4.4.2007 18:00
Örtröð í Ríkinu Örtröð myndaðist í Vínbúðum víða á höfuðborgarsvæðinu undir lok dags í dag þegar vínþyrstir íslendingar vildu birgja sig upp fyrir páskana. í Holtagörðum stóð fólk í löngum biðröðum fyrir utan búðina og var hleypt inn í hollum. Vínbúðirnar eru lokaðar næstu tvo daga, en opið verður á laugardag. 4.4.2007 17:53
Fjórir ferðamenn fundust við leit Fjórir Bretar fundust við ánna Blöndu í dag en þeir höfðu ekki samband við Landsbjörgu í gær eins og þeir ætluðu að gera. Eftirgrennslan var því hafin eftir leiðaráætlun sem mennirnir höfðu skilið eftir og gekk auðveldlega að finna þá. Mennirnir hugðust ganga á skíðum frá Ingólfsskála að Hveravöllum. Við Blöndu lentu þeir í miklu vatni og krapa og komust ekki af sjálfsdáðum yfir ánna. 4.4.2007 17:45
Mótmælir því að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga Landlæknir mótmælir þeim fullyrðingum sem fram hafi komið í fréttum, ekki síst vegna kynningar á tónleikum sem Forma-samtökin, um að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga á Íslandi. 4.4.2007 16:32
Dorrit væntanleg heim á næstu dögum Dorrit Moussaieff forsetafrú er væntanleg hingað til lands á næstu dögum en eins og kunnugt lærbrotnaði hún á skíðum í Aspen í Colorado í síðustu viku. Þær upplýsingar fengust hjá forsetaritara að Dorrit væri á góðum batavegi og að hún hefði verið í góðu sambandi við lækna sína. 4.4.2007 16:25
Með ástarkveðju frá Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi ráku kínverska konu sem tilheyrði Falun Gong samtökunum úr landi í síðasta mánuði. Hún var send til Kína, ásamt átta ára gamalli dóttur sinni. Ma Hui hafði búið í Sankti Pétursborg í nokkur ár og oft beðið um hæli sem pólitískur flóttamaður. Hinn 28. mars var hún handtekin og send úr landi samdægurs. 4.4.2007 16:09
Komugjöld til annarra en lækna á göngudeild tekin til greina Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur breytt reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðyneytinu felur breytingin í sér að framvegis verða komugjöld á göngudeildunum vegna þjónustu annarra en lækna tekin til greina þegar sótt er um afsláttarkort frá Tryggingastofnun ríkisins. 4.4.2007 16:00
Fór fram á sex vikna gæsluvarðhald yfir hnífamanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í dag fram á það að maðurinn sem stakk annan mann með eldhúshnífi í húsi við Hátún í gærkvöld yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald í sex vikur. Að sögn lögreglu hefur maðurinn játað að hafa stungið fórnarlamb sitt en lítið er um skýringar á því háttarlagi. 4.4.2007 15:54
Sjóliðar fluttir heim í dag Bresk stjórnvöld fögnuðu í dag þeirri ákvörðun íranskra yfirvalda að sleppa fimmtán breskum sjóliðum sem verið hafa í haldi í Íran frá 23. mars. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tilkynnti um það á fréttamannafundi í dag að sjóliðunum yrði sleppt og að farið yrði með þá á flugvöllin í Teheran í dag og þeim flogið heim. 4.4.2007 15:27
Ríkið selur hlut sinn í Baðfélagi Mývatnssveitar Iðnaðarráðherra hefur falið einkavæðingarnefnd að annast sölu á 16 prósenta hlut ríkisins í Baðfélagi Mývatnssveitar hf. sem á og rekur jarðböðin við Mývatn. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu er nafnvirði hlutarins er 20 milljónir króna. 4.4.2007 15:06
Norræna leggst að bryggju á Seyðisfirði Norræna er nú að leggjast að Strandarbakka á Seyðisfirði eftir að skipið slitnaði frá bryggjunni í óveðri í nótt. Fram kemur í tilkynningu að fragt og faþegar verði nú teknir um borð en áætlað er að ferjan fari frá Seyðisfirði undir kvöld. 4.4.2007 14:55
Icelandair fellst á tilmæli talsmanns neytenda Icelandair hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að nefna ekki hluta heildarverðs „gjöld" nema um sé að ræða annaðhvort valkvæða aukaþjónustu fyrir flugfarþega eða gjöld sem skylt er að greiða í hlutfalli við fjölda farþega. 4.4.2007 14:47
Forsetinn heimsótti Harvard og MIT Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var í gær gestur við Harvard-háskóla þar sem hann flutti fyrirlestur í boði hins virta prófessors Michaels Porter sem þekktur er fyrir rannsóknir sínar á samkeppnishæfni þjóða. Í dag heimsótti hann svo MIT, tækniháskólann í Boston í Massachusetts. 4.4.2007 14:22
Þú þarna í rauðu peysunni Nýjasta hugmynd yfirvalda í Bretlandi er að setja upp myndavélar sem arga á fólk ef það gerir eitthvað sem það má ekki. Í Bretlandi er ein eftirlitsmyndavél á hverja fjórtán íbúa. Nú á að bæta á þær hátölurum til þess að bæjarstarfsmenn geti strax skammað þá sem sýna af sér svokallaða andfélagslega hegðun. 4.4.2007 14:21
Páskakvíga í Húsdýragarðinum Sannkallaður páskaglaðningur leit dagsins ljós í Húsdýragarðinum í nótt þegar kýrin Branda bar myndarlegri kvígu. Eftir því sem segir í tilkynningu frá Húsdýragarðinum er faðirinn tuddinn Týr sem einnig býr í garðinum en hann er afkvæmi hins landsþekkta Guttorms sem lengi gladdi gesti Húsdýragarðsins. 4.4.2007 14:09
15 ára fangelsi fyrir að skrifa Fogh Rasmussen Saksóknari í Tyrklandi hefur krafist allt að 15 ára fangelsis yfir 53 borgarstjórum sem skrifuðu Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur bréf árið 2005. Í bréfinu báðu þeir Rasmussen um að hlífa kúrdisku sjónvarpsstöðinni Roj-TV sem sendir út á kúrdisku, frá Kaupmannahöfn. Stöðin nær meðal annars til Þýskalands, þar sem býr mikill fjöldi Kúrda. 4.4.2007 14:00
Hótaði afgreiðslukonu með hamri Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, fyrri brot gegn valdstjórninni, rán og þjófnað. 4.4.2007 13:53
Sex fíkniefnamál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt að því er kemur fram í frétt frá lögreglunni. Um miðnætti hafði lögregla afskipti af þremur mönnum á þrítugsaldri í þremur aðskildum málum en í fórum þeirra fundust fíkniefni sem talið er að sé marijúana. 4.4.2007 13:36
Þyrla flaug á útvarpsmastur Átta manns létu lífið þegar herþyrla flaug á útvarpsmastur í fjalllendi eyjunnar Taívan í gærkvöld. Slysið varð á sunnanverðri eyjunni, nærri borginni Kaohsiung. Mikil rigning og þoka var á þessum slóðum í gær og því er talið að flugmaður þyrlunnar hafi ekki séð mastrið. 4.4.2007 13:30
Íranar ætla að sleppa breskum sjóliðum Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tilkynnti í ávarpi í dag að Íranar myndu sleppa bresku sjóliðunum fimmtán sem þeir hafa haft í haldi og það væri gjöf til Bretlands. 4.4.2007 13:16