Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bardagasveitir heim 2008 Fulltrúardeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag frumvarp sem felur í sér að kalla skuli alla bardagasveitir Bandaríkjahers heim frá Írak fyrir 1. september 2008. Frumvarpið fól í sér rúmlega 8.000 milljarða króna aukafjárveitingu til stríðsrekstursins en demókratar í fulltrúadeildinni bættu heimkvaðningarskilyrðinu við. 23.3.2007 18:45
Tilraun til sjálfsvígs Að aka á nærri 300 kílómetra hraða á mótorhjóli er tilraun til sjálfsvígs, segir Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu. Nærri þrjú hundruð mótorhjólamenn hafa slasast í umferðarslysum síðastliðinn áratug. Sex hafa beðið bana. 23.3.2007 18:45
Sveitarfélögin skulda meira en ríkið Sveitarfélögin skulda meira en ríkissjóður og segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga brýnt að færa þeim aukna hlutdeild í tekjustofnum ríkisins til að vinna á skuldavandanum. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka framlög til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samanlagt um 1.400 milljónir á þessu ári og næsta. 23.3.2007 18:30
Alger bylting í samgöngumálum Alger bylting verður í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu á næstu þremur til fimm árum með lagningu Sundabrautar, tvöföldun Hvalfjarðarganga og hluta Vesturlandsvegar. Heildarkostnaður við þetta er um þrjátíu milljarðar króna. Forsætisráðherra telur jákvætt að hraða Sundabraut með þátttöku Faxaflóahafna. 23.3.2007 18:30
Munu ekki geta glatt sjómenn Fiskifræðingar segja ekki koma á óvart að mikið sé af vænum þorski á miðunum úti af Grindavík. Þeir geta þó ekki glatt sjómenn með því að von sé á tillögum um auknar veiðiheimildir. 23.3.2007 18:26
Bardagasveitir frá Írak á næsta ári Neðri deild bandaríska þingsins samþykkti í dag að allar bardagasveitir hersins skuli vera komnir heima frá Írak hinn fyrsta september á næsta ári. Þar sem bardagasveitir eru sérstaklega tilteknar er haldið opnum þeim möguleika að stuðningsdeildir eins og verkfræðisveitir verði eitthvað lengur í landinu. 23.3.2007 17:06
Grétar Mar leiðir lista frjálslyndra í Suðurkjördæmi Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og varaþingmaður Frjálslynda flokksins, leiðir lista flokksins í Suðurkjördæmi. Þetta var tilkynnt á fundi í Fræðasetrinu í Sandgerði í dag. Auk Grétars skipa eftirtaldir frambjóðendur efstu tíu sætin á lista frjálslyndra í kjördæminu: 23.3.2007 17:01
Staðfestir gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir ungum manni sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á salerni í kjallara Hótels Sögu aðfaranótt laugardagsins síðasta. Maðurinn var handtekinn á sunnudaginn og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudaginn en maðurinn kærði þann úrskurð. 23.3.2007 16:51
Bílnum stungið í samband Bílaframleiðandinn Ford kynnti nýverið fyrsta ökuhæfa bílinn sem gengur bæði fyrir vetni og rafmagni. Bíllinn er búinn tengil tækni og er af gerðinni Ford Edge. Hann á að geta ekið 40 kílómetra á einni hleðslu en eftir að efnarafallinn tekur við er hægt að keyra ríflega 320 kílómetra til viðbótar. Með tengiltækninni er síðan hægt að hlaða 336 volta liþíum í gegnum venjulegt heimilisrafmagn. 23.3.2007 16:50
Frambjóðendur VG á ferð um Danmörku og Svíþjóð Þrír frambjóðendur Vinstri - grænna fyrir þingkosningarnar í vor ætla um helgina að heimsækja Suður-Svíþjóð og Danmörku til að kynna stefnumál flokksins fyrir Íslendingum þar. Þetta eru þau Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson. 23.3.2007 16:37
Samráð borgarinnar við íbúa vekur athygli Íbúasamráð í framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar vakti athygli á evrópskri ráðstefnu um sjálfbæra þróun á Sevilla á Spáni í gær. Um 1500 aðilar frá 40 löndum taka þátt í ráðstefnunni. Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstjóri Umhverfissviðs flutti erindi á ráðstefnunni. 23.3.2007 16:35
Búist við samkomulagi um auglýsingakostnað á morgun Ekki er búist að samkomulag náist um að takmarka kostnað við auglýsingar í kosningabaráttu stjórnmálaflokkanna í vor fyrr en á morgun. 23.3.2007 16:22
Duglegur elskhugi Bresku hjónin Sara og Charles Bostock eru skilin eftir langt og farsælt hjónaband. Þeim varð sjö barna auðið og af þeim átti Charles tvö. Charles, sem í dag er á eftirlaunum, er 69 ára gamall. Hann býr einn. Sara er tuttugu árum yngri og býr með elskhuganum sem gjörði henni börnin fimm, sem Charles hélt að hann ætti. 23.3.2007 16:13
Bretar heimta sjóliða sína aftur Bretar hafa krafist þess að Íranar láti strax lausa fimmtán breska sjóliða sem þeir handtóku þegar þeir voru við venjubundið eftirlit um borð í flutningaskipi undan ströndum Íraks. Bretarnir veittu enga mótspyrnu þegar írönsk flotasveit dreif að þegar þeir voru á leið frá skipinu á gúmmíbátum sínum. Skipið sem þeir voru að skoða var í Íraskri landhelgi. 23.3.2007 16:09
Flutningur á verkefnum frá ríki til sveitarfélaga þoli enga bið Samband íslenskra sveitarfélaga vill að hrundið verði strax af stað heildstæðum flutningi á verkefnum á sviði velferðar-, félags- og menntamála frá ríki til sveitarfélaga. Fram kemur í ályktun sem samþykkt var á landsþingi sambandsins í dag að undirbúningur flutnings á þjónustu við aldraða, fatlaða og rekstur framhaldsskóla og heilsugæslu þoli enga bið. 23.3.2007 15:49
Húðflúr fær tilgang eftir 32 ár Karlmaður sem tattóveraði nafn kærustu sinnar á handlegginn fyrir 32 árum er loksins að kvænast henni. Andy Cheesman frá Norfolk í Bretlandi og Annette Law hættu saman þegar hún var 17 ára. Andy hafði látið tattóvera nafn hennar á handleggin sem tákn um ást hans. Þau hættu saman áður en Annette sá húðflúrið. 23.3.2007 15:39
Sakfelldur fyrir árás á lögreglumenn Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í fjögurra mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa veist að tveimur lögreglumönnum sem hugðust handtaka hann. Var manninum gefið að sök að hafa sparkað í handlegg annars lögreglumannsins og kýlt hinn í andlitið þannig að hann hlaut mar og yfirborðsáverka í andlit. 23.3.2007 15:38
Enn óvissa um stjórnarskrá Evrópusambandið heldur upp á fimmtíu ára afmæli sitt hinn 25. þessa mánaðar. Þann dag árið 1957 var stofnsáttmáli þess undirritaður í Rómarborg. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og líklega flestir sammála um að mikill árangur hafi náðst. Engu að síður er enn tekist á um grundvallaratriði, eins og til dæmis sameiginlega stjórnarskrá allra aðildarríkjanna. Á skýringarmyndinni hér til hliðar má sjá þróun sambandsins og þau mál sem helst steytir á. 23.3.2007 15:05
Sendiráð Íslands í Mapútó lék á reiðiskjálfi Sendiráð Íslands og skrifstofa Þróunarsamvinnustofnun Íslands léku á reiðiskjálfi í marga klukkutíma vegna sprenginga í Mapútó, höfuðborginni í Mósambik í gær. Fjöldi íbúa hefur flúið heimili sín í dag af ótta við frekari sprengingar. Vopnabúr hersins sprakk í loft upp í einu úthverfa borgarinnar í gær og 80 fórust. Hundruð íbúa liggja slasaðir á sjúkrahúsum. 23.3.2007 15:05
Styrktarreikningur vegna banaslyss Styrktarreikningur hefur verið stofnaður fyrir fjölskyldu Lísu Skaftadóttur sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi í fyrradag. Reikningurinn er á nafni Ragnars Þórs, eiginmanns Lísu. Hann er númer 0152-05-267600, kt. 111161-3649. Lísa lét eftir sig eiginmann og fimm börn. Þau eru fjögurra og átta ára, tvíburar á fermingaraldri og 25 ára. Tvíburarnir fermast 5. apríl næstkomandi. 23.3.2007 14:48
Silfur í fatnaði stórhættulegt Sænskir vísindamenn vara eindregið við silfurögnum sem finnast í margskonar fatnaði, þar sem þær geri penisilín óvirkt. Svíar hafa stöðvað sölu á plásturstegund frá Hansaplast, sem inniheldur silfur og yfirvöld vilja fá lista yfir vörur með silfurinnihaldi. Yfirlæknir og dósent í klínískri veirufræði við háskólann í Uppsölum, segir að málið sé alvarlegt. 23.3.2007 14:46
Dagvistarrýmum fjölgað um 75 Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fjölga davistar-og hvíldarrýmum fyrir aldraða á næstu mánuðum. Alls verður 370 milljónum króna varið til verkefnisins. Því er ætlað að styrkja búsetu aldraðra á eigin heimilum. Dagvistarrýmum verður fjölgað um 75, en fyrir eru þau um 700 á landinu öllu. 23.3.2007 14:43
Braut glas á andliti konu Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að brjóta glerglas á andliti konu. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi líkamsárásina sérlega hættulega. Við höggið brotnaði úr fimm tönnum konunnar. Líkamsárásin átti sér stað á veitingastað í miðborginni í janúar á síðasta ári. Í vitnisburði kemur fram að maðurinn hafi reiðst þegar bjór skvettist á hann. 23.3.2007 14:06
Varað við vatnsskemmdum á vegum í Borgarfirði Vegagerðin varar við vatnsskemdum á hringveginum neðan við Svignaskarð í Borgarfirði og sömuleiðis í uppsveitum Borgarfjarðar. Skemmdirnar má rekja til vatnavaxta í umhleypingum síðustu daga og er viðgerð á vegarköflunum að hefjast og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitsemi. 23.3.2007 14:00
Húnninn Knútur er krúttlegur kútur Ísbjarnarhnoðri er orðinn ástsælasta sjónvarpsstjarna Þýskalands. Litli kúturinn er bara 15 vikna gamall og heitir Knútur. Hann er kominn með eigin sjónvarpsþátt og blaðamannafundur með honum í morgun var í beinni útsendingu. Annie Leibovitz, ljósmyndarinn heimsfrægi sem myndaði Leonardo diCaprio á Íslandi um daginn, er líka búin að taka myndir af Knúti. 23.3.2007 13:47
Heiðmerkurkæru NÍ vísað frá Úrskurðarnefnd um skipulags- og byggingarmál hefur vísað frá kæru Náttúruverndarsamtaka Íslands vegna þeirra ákvörðunar skipulagsráðs Reykjavíkur að veita framkvæmdaleyfi til lagningar vatnsveitu frá Vatnsendakrikum um Heiðmörk innan lögsögu Reykjavíkurborgar. 23.3.2007 13:45
Ground control to Major Tom Frakkar hafa fyrstir þjóða opnað X-skýrslurnar svokölluðu, þar sem er að finna allar rannsóknir og tilkynningar til stjórnvalda um fljúgandi furðuhluti. Allar skýrslurnar hafa verið settar á sérstaka netsíðu. Talsmaður frönsku geimrannsóknarstofnunarinnar segir að þeir vonist til að með þessu verði hægt að tala um fyrirbærið án blindrar trúar eða fordóma. 23.3.2007 13:40
Skátamót með SMS ívafi Um helgina verður útilífshelgi skátaflokka í Heiðmörk. Mótið er sérstakt að því leiti að það er haldið innan borgarmakanna og er skipulagt af fólki á aldrinum 18-20 ára. SMS dagbók verður haldið úti á heimasíðu mótsins sem hluti af þrautum og verkefnum þátttakendanna. 23.3.2007 13:34
Um 340 hafa kosið um stækkun álversins í Straumsvík Rétt um 340 manns hafa greitt atkvæði um deiliskipulagstillögu vegna fyrirhugaðrar stækkunar álvers Alcan í Straumsvík nú þegar rúm vika er þar til gengið verður til kosninga. 23.3.2007 13:27
Vorhátíð og sumarskráning KFUM-og K Vorhátíð KFUM og KFUK verður haldin á morgun í höfuðstöðvum félaganna að Holtavegi. Þá hefst líka skráning fyrir sumarbúðir. Í fyrra tóku rúmlega þrjú þúsund börn þátt í sumarstarfinu, en það er 30 prósent á tveimur árum. Vinsælustu flokkarnir fyllast á fyrstu klukkutímunum, segir í tilkynningu frá KFUM og KFUK. Búist er við að met verði slegið í sumarbúnaðaskráningu. 23.3.2007 13:13
Mengun vegna brennisteinsvetnis ekki yfir heilsuverndarmörkum Brennisteinsvetnismengun sem borist hefur frá Hellisheiðarvirkjun til borgarinnar hefur ekki farið yfir heilsuverndarmörk Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar frá því að virkjunin var formlega gangsett eftir því mælingar umhverfissviðs borgarinnar og Umhverfisstofnunar sýna. 23.3.2007 13:00
Hátt í 15 börn á leið í heiminn vegna réttarbóta Upp undir fimmtán börn eru á leið í heiminn eftir að samkynhneigð pör öðluðust rétt til að fara í tæknifrjóvgun á Íslandi um mitt síðasta ár. 23.3.2007 12:45
Íranar handtaka breska sjóliða úti fyrir ströndum Íraks Íranski sjóherinn hneppti í morgun 15 breska hermenn í varðhald eftir aðgerðir úti fyrir ströndum Íraks. Eftir því sem breska varnarmálaráðuneytið greinir frá í yfirlýsingu voru hermenn í Konunglega breska sjóhernum að ljúka venjubundnu eftirliti í kaupskipi úti fyrir ströndum Íraks þegar íranski herinn umkringdi báta þeirra og knúði þá til að sigla yfir í landhelgi Írans. 23.3.2007 12:34
Enn barist í Mógadisjú Harðir bardagar héldu áfram í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í morgun, þriðja daginn í röð. Átök herskárra múslima við eþíópískar og sómalskar hersveitir hafa harnað síðustu vikur. Íbúar hafa flúið borgina í stórum hópum í gær og í morgun. 23.3.2007 12:30
Bannaður á bar fyrir losun vinds Karlmanni á fertugsaldri hefur verið bannað að sækja bar í Skotlandi. Ástæðan er sú að maðurinn leysir of oft vind með tilheyrandi látum og umhverfisáhrifum. Eigandi Thirsty Kirsty barsins í Fife segir að lyktin sé viðurstyggileg, og maðurinn öskri og veifi örmum svo allir finni lyktina þegar hann losar um vindganginn. 23.3.2007 12:26
Lausamunir og þakefni á fleygiferð Þakefni fauk í heilu lagi af fjórum raðhúsum á Akureyri upp úr miðnætti. Það hafnaði inni í garði við næsta hús og á bílastæði, þar sem að minnsta kosti einn bíll skemmdist. Björgunarsveitarmönnum tókst með snarræði að koma í veg fyrir að samskonar þakklæðning fyki af fjórum raðhúsum til viðbótar. 23.3.2007 12:13
Halli á SÁÁ Tæplega hundrað milljóna króna halli var á rekstri SÁÁ á síðasta ári. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, treystir því að stjórnvöld bregðist við og hefur enga trú á því að ríkið ætli að setja SÁÁ á hausinn. 23.3.2007 12:10
Tekur út þjónustugjöld hér og annars staðar á Norðurlöndum Alþýðusamband Íslands og Samtök fjármálafyrirtækja hafa ákveðið að efna til samstarfs um samanburðarúttekt á þjónustugjöldum banka og sparisjóða annars staðar á Norðurlöndum. Eftir því sem segir á vef ASÍ hafa samtökin fengið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands til þess að sjá um verkefnið. 23.3.2007 12:09
Stofna starfshóp til að fara yfir fjármögnun Sundabrautar Í morgun var ákveðið að setja á fót starfshóp með fulltrúum fjármála- og samgönguráðuneytis og Faxaflóahafna til að fara yfir hugmyndir Faxaflóahafna um fjármögnun Sundabrautar. Forsætisráðherra segir mikilvægt að hægt verði að flýta lagningu brautarinnar og stjórnarformaður Faxaflóahafna telur að Sundabraut geti verið tilbúin innan þriggja til fimm ára. 23.3.2007 12:03
Íbúar fá að snúa til síns heima í Bolungarvík Hættuástandi við Traðarland og Dísarland í Bolungarvík vegna hugsanlegra snjóflóða hefur verið aflétt en húsin voru rýmd í gær vegna þess. Eftir því sem segir í frétt á Bæjarins besta hefur umferðartakmörkunum á norðanverðum Vestfjörðum einnig verið aflétt og umferð við hesthúsin í Hnífsdal og Bolungarvík er heimil án takmarkana. 23.3.2007 11:53
Fangaverðir segja stjórnvöld halda sér föngnum í störfum sínum Fangavarðafélag Íslands sakar stjórnvöld um að halda fangavörðum nauðugum í illa launuðu starf með því að nýta sér ákvæði laga og framlengja uppsagnarfrest fagnavarða um þrjá mánuði. 23.3.2007 11:46
Fagna aukaframlagi ríkisins til sveitarfélaga Samband íslenskra sveitarfélaga fagnar tímabundnu aukaframlagi ríkisstjórnarinnar í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Viljayfirlýsing var undirrituð í gær af aðilunum. Hún kveður á um tvöföldun á framlagi ríkissjóðs í sjóðinn næstu tvö ár. Framlagið var 700 milljónir en verður 1400 milljónir. Markmiðið er að jafna aðstöðumun sveitarfélaganna. 23.3.2007 11:37
Erkibiskup hvetur til mótmæla Erkibiskup rómversk kaþólsku kirkjunnar í Bulawayo í Zimbabwe, Pius Ncube, hefur skorað á almenning að mótmæla þangað til Robert Mugabe, forseti landsins, segir af sér. Ncube sagðist jafnvel tilbúinn að mótmæla þó svo skothríð lögreglumanna myndi dynja á honum. 22.3.2007 23:13
Bemba leitar hælis í sendiráði Suður-Afríku Jean-Pierre Bemba, fyrrum uppreisnarleiðtogi og núverandi stjórnarandstöðuleiðtogi í Kongó, hefur leitað hælis í sendiráði Suður-Afríku eftir að fylgismönnum hans sló í brýnu við stjórnarher landsins í höfuðborginni Kinshasa í dag. Suður-afríska utanríkisráðuneytið skýrði frá þessu í kvöld. Í tilkynningunni frá utanríkisráðuneytinu var einnig tekið fram að aðeins væri um tímabundna ráðstöfun að ræða. 22.3.2007 22:58
Handtóku þrjá í tengslum við hryðjuverk Breska lögreglan handtók í dag þrjá menn sem taldir eru tengjast sjálfsmorðssprengjuárásunum í Lundúnum þann 7. júlí árið 2005. Tveir menn voru handteknir á flugvellinum í Manchester rétt áður en þeir fóru um borð í flugvél á leið til Pakistan. Þriðji maðurinn var handtekinn í heimahúsi í Leeds. 22.3.2007 22:32