Fleiri fréttir

225 milljónum varið í vetnisverkefni

Verja á 225 milljónum króna á þremur árum til vetnisverkefna á Íslandi. Iðnaðarráðuneytið og Vistorka hafa gert samning þessa efnis en hann tryggir samfellu í vetnisverkefnum á Íslandi. Tuttugu og fimm milljónir af fjárlögum þessa árs verða til ráðstöfunar.

Fjórfætt eldvarpa

Dýralæknir hefur verið sektaður um 16000 krónur fyrir að valda eldsvoða sem brenndi fjós til kaldra kola á bóndabæ í Lichten Vourde, í Hollandi. Dýralæknirinn hafði verið að reyna að fá bóndann til að breyta samsetningu fóðursins sem hann gaf kúm sínum. Hann sagði að fóðrið ylli óeðlilegri gasmyndun í kúnum. Til þess að sanna mál sitt kveikti hann á eldspýru fyrir aftan eina kúna þegar hún fretaði.

Hátt í þrjú hundruð ökumenn óku of hratt

Hátt í þrjú hundruð ökumenn óku of hratt yfir gatnamót Bústaðarvegar og Flugvallarvegar fyrir síðustu helgi. Mynduð voru brot 289 ökumanna en meðalhraði þeirra var tæpir 77 km/klst en hámarkshraði á þessum stað er 60 km/klst.

Sex skotnir á veitingastað

Sex fundust látnir á kínverskum veitingastað í smábænum Sittensen, suður af Hamborg í Þýskalandi í morgun. Fólkið hafði verið skotið til bana í nokkrum herbergjum veitingastaðarins. Lögregla veit ekki enn hvað gerðist, hefur ekki borið kennsl á líkin en segir fólkið allt af asísku bergi brotið.

18 fórust í sprengingum

Tvær bílsprengjur bönuðu 18 og særðu um 60 í Bagdad í Írak nú áðan. Í stærri sprengingunni í suðurhluta borgarinnar fórust 10 og í hinni, sem sprakk á bílaverkstæði í miðborginni, fórust 8.

Nemendur Suðvesturkjördæmis bestir í stærðfræði

Niðurstöður úr samræmdum prófum nemenda í 4. og 7. bekk liggja nú fyrir í vefriti Menntamálaráðuneytisins. Þar kemur fram að nemendur í Suðvesturkjördæmi eru sterkastir yfir landið í stærðfræði, bæði í 4. og 7. bekk. Í Íslensku eru nemendur 4. bekkjar í Reykjavík og Norðausturkjördæmi bestir, en í 7. bekk eru bestu Íslenskunemendurnir í Norðausturkjördæmi.

Friðurinn heldur á Gaza

Enn er hljótt á götum Gaza eftir vopnahléið sem samið var um á föstudag. Byssumenn Hamas og Fatah hafa yfirgefið varðstöðvar sínar og í þeirra stað eru nú komnir lögreglumenn. Fatah og Hamas hafa einnig skipst á gíslum sem teknir hafa verið í átökum undanfarinna vikna.

Vel heppnað Fjölskylduþing í Reykjanesbæ

Fjölskyldu-og félagsþjónusta Reykjanesbæjar stóð fyrir fjölskylduþingi um síðustu helgi og var markmið þess að endurskoða fjölskyldustefnu bæjarins. Í fréttatilkynningu segir að þingið hafi verið afar vel heppnað en þar voru fjölskyldutengd verkefni úr framtíðaarsýn bæjarins til ársins 2010 kynnt. Hera Ósk Einarsdóttir verkefnastjóri kynnti forvarnarverkefni Reykjanesbæjar, en Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri kynnti fjölskyldustefnuna.

Viðræður um kjarnorkumál Norður-Kóreu hefjast á ný

Á fimmtudag hefjast á ný viðræður sex ríkja um kjarnorkumál Norður-Kóreu. Ríkin sem eiga fulltrúa í viðræðunum eru Norður-Kórea, Suður-Kórea, Kína, Japan, Rússland og Bandaríkin. Norður-Kóreumenn sprengdu sína fyrstu kjarnorkusprengju í október á síðasta ári.

Varaforseti Íraks vill fleiri hermenn strax

Varaforseti Íraks, súnníinn Tariq Hashimi vill að Bandaríkjamenn flýti sér að senda fleiri hersveitir til landsins til að stöðva blóðbað undanfarinna vikna. Hann segir að nýhafin herferð gegn ofbeldi í landinu, þar sem uppreisnarmenn verða hundeltir, verði að takast vel ef koma á böndum á ástandið í landinu.

Engin slys á fólki í árekstri þriggja jeppa

Engin alvarleg slys urðu á fólki þegar þrír jeppar rákust saman á Vesturlandsvegi skammt norðan við Hvalfjarðargöng um fimmleytið í dag. Flughált var á veginum og lentu bílarnir allir utan vegar. Tveir þeirra reyndust óökuhæfir eftir áreksturinn.

Boða mestu herferð gegn andófsmönnum sem farin hefur verið

Herferð írakskra og bandarískra hersveita gegn andófsmönnum í Bagdad, sem staðið hafa fyrir fjömörgum blóðugum árásum undanfarna mánuði, hefst innan skamms og verður stærrri en nokkur aðgerð sem lagt hefur verið í frá því að ráðist var inn í Írak fyrir nærri fjórum árum.

Edwards vill hækka skatta til þess að bæta heilbrigðisþjónustu

John Edwards, sem býður sig fram sem forsetaefni demókrata fyrir kosningarnar 2008, segir að hann vilji hækka skatta, aðallega á þá ríku, til þess að greiða fyrir bætta heilbrigðisþjónustu í landinu en hann kynnir áætlun þar að lútandi á morgun.

Kreistir chillivökva yfir augum sér

Mexíkóskur maður, sem hyggst setja heimsmet í chilipiparáti, er svo ónæmur fyrir styrk belgjanna að hann úðar þeim í sig eins og hverju öðru sælgæti. Hann gengur jafnvel svo langt að kreista safann úr þeim yfir augunum á sér.

Stjórnvöld kærulaus um stera

Jóhanna Eiríksdóttir, nýkjörinn formaður Kraftlyftingasambandsins harmar að stóra steramálið hafi tengst sambandinu og segir það á móti steranotkun. Birgir Guðjónsson læknir og meðlimur í lyfjanefnd alþjóða frjálsíþróttasambandsins segir að stjórnvöld hafi sýnt algjört kæruleysi í þessum málaflokki.

Vilja til Bretlands til að rannsaka lát Litvinenkos

Rússneskir rannsóknarlögreglumenn sem rannsaka dauða fyrrverandi njósnarans Alexanders Litvinenkos hafa óskað eftir því við innanríkisráðuneyti Bretlands að fá að koma til landsins vegna rannsóknarinnar.

Segja stóriðjustefnuna í forgangi

Formaður vinstri grænna átelur ríkisstjórnina fyrir ábyrgðarleysi í umhverfismálum og segir stóriðjustefnuna forgangsatriði í málflutningi hennar. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir enga raunverulega stefnu í loftslagsmálum til hérlendis

Yfir þúsund hafa fallið í vikunni

Yfir þúsund manns liggja í valnum í Írak eftir átök og árásir undanfarinna sjö daga. Stjórnvöld í landinu segja fylgismenn Saddams Hussein hafa staðið á bak við hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf.

Enginn Íslendingur í liði heimsmeistaramótsins

Enginn Íslendingur er í liði heimsmeistaramótsins í handknattleik sem tilkynnt var rétt í þessu en tveir Pólverjar, tveir Þjóðverjar og Rússi, Frakki og Dani. Lið mótsins er þannig skipað:

Vill að þingið rannsaki okurlánastarfsemi

Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að skipuð verði þingnefnd til að rannsaka okur á Íslandi. Hún segir slíka rannsókn nauðsynlega í ljósi ofsagróða bankanna, okurvaxta á útlánum og hárra þjónustugjalda. Jóhanna lét þessi orð falla í þættinum Silfri Egils í umræðu um góða afkomu bankanna.

Ráherrar farið frjálslega með framkvæmdasjóðinn

Stjórn Landssambands eldri borgara ætlar á morgun að ræða, á fundi sínum, fréttir um að Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hafi notað fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra til að prenta og dreifa bæklingi um framtíðarsýn sína í öldrunarmálum.

Tók skýrslu af stúlkum sem numdar voru á brott

Lögreglan á Húsavík tók í dag skýrslur af stúlkunum þremur í Laugaskóla, sem teknar voru nauðugar úr rúmum sínum aðfararnótt föstudags á heimavist skólans. Farið var með stúlkurnar í hús í nágrenninu og, samkvæmt því sem fram kemur á bloggsíðum nemenda, var einni þeirra stungið ofan í klósett.

Guðjón Valur markahæstur á HM

Guðjón Valur Sigurðsson varð markakóngur heimsmeistaramótsins í handknattleik í Þýskalandi með 66 mörk. Þetta var ljóst eftir að keppninni lauk í dag. Fimm Íslendingar eru í hópi tólf markahæstu manna á heimsmeistaramótinu.

Ætla að senda þúsundir sjálfsmorðsárásar-manna af stað

Talibanar segjast munu senda þúsundir sjálfsmorðsárásarmanna gegn herliði NATO sem statt er í Afganistan og reynir að ráða niðurlögum þeirra. Frá þessu greindi einn leiðtoga þeirra í samtali við Reutersf-fréttastofuna í dag

Þjóðverjar heimsmeistarar í handknattleik

Þjóðverjar tryggðu sér í dag heimsmeistaratitilinn í handknattleik á heimavelli þegar þeir lögðu nágranna sína Pólverja í úrslitaleik frammi fyrir fullu húsi í Köln. Lokatölur í leiknum urðu 29-24.

Áframhaldandi skærur á Gasaströndinni í dag

Vopnahlé sem fylkingar Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna sömdu um á föstudag hefur ekki haldið í dag því komið hefur til átaka milli fylkinganna á Gasaströndinni.

Þriggja bíla árekstur í hálku norðan Hvalfjarðarganga

Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi skammt norðan við Hvalfjarðargöng nú fyrir stundu. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvort einhver sé alvarlega slasaður en lögregla í Borgarnesi segir flughált frá Hvalfjarðargöngum og upp í Borgarnes.

Vindhviður sagðar hafa farið upp í 73 metra á sekúndu

Íbúar í miðhluta Flórída sem urðu fyrir barðinu á kröftugum stormi sem gekk yfir svæðið á föstudag héldu í dag áfram að leita að heillegum munum í rústum húsa sinna. Fram kemur á fréttavef CNN að vindhviður hafi farið upp í 73 metra á sekúndu og rifið allt sem á vegi þeirra varð.

Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu nærri Grundartanga

Betur fór en á horfðist þegar bíll fór út af Vesturlandsvegi um einn kílómetra norðan við afleggjarann að Grundartanga um tvöleytið í dag. Tvennt var í bílnum og þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út úr honum.

Viðurkenndi að hafa myrt Palme í bréfi til kærustu sinnar

Christer Pettersson, sem grunaður var um að hafa myrt Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, viðurkenndi fyrir leynilegri kærustu sinni að hann hefði drepið forsætisráðherrann. Frá þessu greinir sænska blaðið Aftonbladet og vitnar í bréf sem Petterson skrifaði til kærustunnar.

Leita sér aðstoðar vegna vændiskvennafíknar

Ráðgjafarskrifstofa í tengslum við vændi í Danmörku hefur haft í nógu að snúast frá því að henni var komið á fót fyrir hálfu ári. Eftir því sem segir á vef Jótlandspóstsins hefur skrifstofan haft í nógu að snúast við að hjálpa karlmönnum sem sagðir eru háðir því að kaupa þjónustu vændiskvenna.

Karíus og Baktus mæta í Borgarleikhúsið

Sýningar á hinu sívinsæla verki um Karíus og Baktus, sem Leikfélag Akureyrar hefur sett upp, hefjast í Borgarleikhúsinu í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Leikfélagi Akureyrar er gríðarlegur áhugi fyrir sýningunni og er þegar uppselt á allar sýningar í febrúar og mars.

Á fjórða tug dó í námuslysi

32 kólumbískir verkamenn biðu bana í sprengingu í kolanámu norðausturhluta landsins í gærkvöld. Talið er að neisti hafi komist í gas á um fjögur hundruð metra dýpi í námugöngunum og þau hrunið.

Of lítill stuðningur í baráttunni við stera

Birgir Guðjónsson, læknir og meðlimur í lyfjanefnd Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, segir að stjórnvöld hafi of lítið stutt við baráttu gegn misnoktun stera hér á landi.

Nýtt pólitískt afl á hægri vængnum í burðarliðnum

Nýtt afl er að koma fram á sjónarsviðið í íslenskum stjórnmálum eftir því sem segir á bloggsíðu Margrétar Sverrisdóttur. Þar segir Margrét að fundað hafi verið í gær og að á næstunni verði sett fram skýr markmið framboðs sem sé hægra megin við miðju í pólitísku litrófi stjórnmálanna.

Skýrslutökur halda áfram vegna brottnáms stúlkna

Skýrslutökur halda áfram hjá lögreglunni á Húsavík í dag vegna máls sem kom upp í Laugaskóla aðfararnótt föstudags. Þá fóru nokkrir eldri nemar í hópi drengja við skólann inn á herbergi þriggja ungra stúlkna þar sem þær sváfu fáklæddar á heimavist, tóku þær nauðugar af vistinni og tróðu þeim í skottið á bíl.

Þúsund fallnir á sjö dögum

Forsætisráðherra Íraks kennir stuðningsmönnum Saddams Hussein um hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. Um eitt þúsund manns hafa látið lífið undanfarna viku í ofbeldisverkum í landinu.

Álögur auknar á fjármagnstekjufólk

Ríkisstjórnin undirbýr frumvarp sem kveður á um að þeir sem hafa einungis fjármagnstekjur skuli greiða í framkvæmdasjóð aldraðra. Þá hefur frumvarpið sjálfkrafa í för með sér að nýr nefskattur Ríkisútvarpsins verður lagður á fjármagnstekjufólkið.

Ók inn í þvögu í brúðkaupi í Stokkhólmi

Lögregla í Stokkhólmi leitar nú manns sem ók á bíl inn í hóp fólks sem stóð fyrir utan veitingastað í borginni þar sem verið var að halda brúðkaupsveislu. Eftir því sem sænska ríkisútvarpið greinir frá slösuðust sjö þegar maðurinn keyrði inn í þvöguna, þar af einn alvarlega.

Sjá næstu 50 fréttir