Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Byrjað að slátra kalkúnum á býlinu í Suffolk-héraði Yfirvöld í Bretlandi hafa þegar hafist handa við að slátra þeim 160 þúsund kalkúnum sem aldir hafa verið á kalkúnabúinu í Suffolk-héraði þar sem fuglaflensa af H5N1-stofni greindist í gær. Eins og kunnugt er getur veiran borist í menn og dregið þá til dauða en sérfræðingar segja litlar líkur á því að það gerist nú. 4.2.2007 11:12
Rúmlega helmingur Breta vill Blair burt strax Ríflega helmingur Breta telur að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætti að hætta strax samkvæmt könnun sem birt er í dagblaðinu Sunday Express í dag. 56 prósent aðspurðra segja tímabært að forsætisráðherrann taki pokann sinn en aðeins 37 prósent vilja að hann starfi áfram. 4.2.2007 10:53
Reyndu að ræna sígarettum og morgunkorni Tveir svangir og sígarettulausir ungir menn brutust inn í verslun á Akureyri í nótt og höfðu á brott með sér þær nauðsynjar sem þeir þurftu til að mæta sínum þörfum. Ekki komust þeir langt því lögregla greip þá þar sem þeir voru á hlaupum frá innbrotsstað. 4.2.2007 10:45
Merkel á ferð um Miðausturlönd Angela Merkel, kanslari Þýskalands, kom í dag til Kaíró á fyrsta degi sínum í ferðalagi um Miðausturlönd þar sem hún mun ræða stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs. 3.2.2007 20:45
Aðgerðasinnar leggja aftur undir sig hús í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók undir kvöld um 80 aðgerðasinna sem lagt höfðu undir sig hús í norðvesturhluta borginnar. Hópurinn, sem berst fyrir nýjum samkomustað í borginni í kjölfar þess að Æskulýðshúsinu svokallaða var lokað, lagði húsið undir sig skömmu eftir hádegi í dag en það eru í eigu Kaupmannahafnarborgar. 3.2.2007 20:34
Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur jeppa í Grímsnesi Tvennt var flutt á sjúkrahús í Reykjavík eftir að tveir jeppar sem komu úr gangstæðri átt rákust saman á Biskupstungnabraut sunnan við Borg í Grímsnesi um hálfsexleytið í dag. Að sögn lögreglu voru fimm í öðrum jeppanum og þrír í hinum og mun hluti hópsins leitað sjálfur til læknis til skoðunar. 3.2.2007 19:47
Segist munu binda enda á stríðið í Írak sem forseti Hillary Clinton, sem hefur boðið sig fram sem forsetaefni demókrata í kosningunum 2008, segist munu binda enda á stríðið í Írak ef hún verði fyrir valinu sem forsetaefni flokksins. Þessu lýsti hún yfir á fundi með átta öðrum sem vonast eftir því að verða forsetaefni demókrata í kosningunum. 3.2.2007 19:28
Stjórnarskrárvarinn réttur til að blóta Dómstóll í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur komist að því að lögreglumaður hafi brotið gegn tjáningarfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar með því að handtaka mann fyrir að blóta á almennum borgarafundi. 3.2.2007 19:15
Hlýnun bætir nýtingu virkjana Hlýnun loftslags bætir nýtingu virkjana og gerir þær hagstæðari í rekstri. Þetta segir Tómas Jóhannesson, jöklafræðingur. Endurskoðuð umhverfisstefna til ársins 2050 verður lögð fram á næstu dögum, segir Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra. 3.2.2007 19:00
Kraftlyftingamaður handtekinn vegna sterasmygls Frammámaður innan Kraftlyftingasambandsins var handtekinn í gær vegna innflutnings á þrjátíu þúsund skömmtum af sterum. Á aðalfundi sambandsins í gærkvöld hætti hann í félaginu. Fíkniefnalögreglan hefur aldrei áður lagt hald á jafn mikið magn af sterum en innflutningur þeirra varðar ekki við fíkniefnalöggjöf heldur lyfjalög. 3.2.2007 18:47
Alþjóðleg umhverfislögregla Jacques Chirac, Frakklandsforseti, skorar á þjóðir heims að setja umhverfismál í forgang á alþjóðavettvangi. Fjörutíu og sex ríki styðja tillögu Chiracs um nýja umhverfisstofnun sem gæti jafnvel knúið ríki til að framfylgja alþjóðasáttmálum um loftslagsmál. 3.2.2007 18:45
Framkvæmdasjóður aldraðra borgaði framtíðarsýn heilbrigðisráðherra Heilbrigðisráðherra fékk eina og hálfa milljón úr framkvæmdasjóði aldraðra til að prenta og dreifa bæklingi um sýn ráðherrans í öldrunarmálum. Ráðherrar heilbrigðismála hafa sótt fé til óskilgreindra þróunarverkefna úr framkvæmdasjóði aldraðra á liðnum árum. 3.2.2007 18:43
Segja skólabræður sína hafa rænt sér Hópur unglingsstúlkna segir skólabræður sína hafa rænt sér á aðfaranótt föstudags. Öll ungmennin stunda nám í framhaldsskólanum á Laugum. Lögreglan segir málið litið alvarlegum augum enda virðast stúlkurnar hafa verið beittar valdi. Þá má búast við kæru vegna kynferðisbrots. 3.2.2007 18:31
Tuttugu látnir eftir óveðrið í Flórída Tuttugu hafa nú fundist látnir eftir að óveður gekk yfir miðhluta Flórída í gær. Ríkisstjórinn í Flórída, Charlie Crist, fór um hamfarasvæðið í dag og sá hundruð húsa, fyrirtækja og kirkna í rúst. 3.2.2007 18:16
Ákærðir fyrir að njósna um Egypta í þágu Ísraels Ríkissaksóknari í Egyptalandi hefur ákært Egypta með kanadískt ríkisfang og þrjá Ísraela fyrir njósnir í þágu Ísraels. Fram kom í máli saksóknarans í dag að Egyptinn, Mohammed Essam el-Attar, hefði verið handtekinn en að hinir þrír væru í Tyrklandi og Kanada og að handtökuskipun hefði verið gefin út á hendur þeim. 3.2.2007 17:03
Varað við hálku í uppsveitum Árnessýslu Lögreglan á Selfossi varar ökumenn á leið um umdæmi hennar við mikilli hálku á vegum. Tilkynnt hefur verið um fjóra bíla í dag sem ekið hafa út af en engin slys hafa orðið á fólki. 3.2.2007 16:41
Ein mannskæðasta árás sem gerð hefur verið í Írak Nú er ljóst að 105 eru látnir og 225 særðir eftir að vöruflutningabíll hlaðinn sprengiefni sprakk í loft upp í hverfi sjía í miðborg Bagdad í dag. 3.2.2007 16:28
Veiktust af völdum eiturefnaleka í Kína Einn lést og yfir 120 hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir að andað sér gufum frá eitruðum úrgangi sem lak úr flutningabíl í Hubei-hérðaði í Mið-Kína. Frá þessu greindi kínverska ríkissjónvarpið í dag. 3.2.2007 16:16
Hundruðum bjargað eftir að ís brotnaði og rak á haf út Hátt fimm hundruð manns sem voru við veiðar við strendur Okhotsk í Síberíu var bjargað eftir að ís sem fólkið stóð á brotnaði og rak á haf út. 3.2.2007 15:57
Ekki fyllilega sáttur við áttunda sætið Alfreð Gíslason, þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, segist ekki alfarið ósáttur við að ná 8. sætinu á HM í handbolta eftir 36-40 tap í leiknum um sjöunda sætið við Spánverja og segir leikinn við Dani hafa ráðið gríðarlega miklu um niðurstöðuna. Hann segir skort á breidd hafa verið helstu hindrunina fyrir íslenska liðið á mótinu. 3.2.2007 15:29
Engar sérstakar ráðstafanir hér á landi vegna fuglaflensu í Suffolk Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir að ekki verði gripið til neinna sérstakra ráðstafana hér á landi vegna frétta af því að fuglaflensa af H5N1-stofni hafi greinst á bóndabýli í Suffolk í Englandi. 3.2.2007 15:21
Mikið mannfall í bílsprengjuárás í Bagdad 45 eru látnir og 95 særðir eftir að vörubíll fullur af sprengiefni sprakk við fjölfarinn markað í miðborg Bagdad í dag. Sprengingin varð í Sadriya-hverfinu þar sem sjíar eru fjölmennir en sprengjuárásir hafa áður verið gerðar þar. 3.2.2007 15:04
Ráðast gegn talibönum í Musa Qala Afganskar hersveitir munu með stuðningi hersveita NATO ráðast til atlögu við talibana í bænum Musa Qala í suðurhluta Afganistans að því er fráfarandi yfirmaður NATO-liðsins greindi frá í dag. 3.2.2007 14:56
Hótar að fresta knattspyrnuleikjum ótímabundið vegna óláta Ítalska knattspyrnusambandið hefur hótað því að fresta öllum knattspyrnuleikjum í ótilgreindan tíma eftir að lögreglumaður lét lífið í gær í tengslum við átök milli hópa áhangenda sikileysku liðanna Catania og Palermo. 3.2.2007 14:41
Íslendingar töpuðu fyrir Spánverjum - enduðu í áttunda sæti Íslendingar enduðu í áttunda sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem fram fer í Þýskalandi en liðið tapaði fyrir Spánverjum í dag, 40-36. Staðan í leikhléi var 19-13 fyrir Spánverja og tókst íslenska liðinu aldrei að vinna upp forystu sem Spánverjar náðu um miðbik fyrri hálfleiks. 3.2.2007 14:20
Átök þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé Til átaka hefur komið milli stuðningsmanna Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-liða á Gasaströndinni í dag þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé. Tólf særðust snemma í morgun átökum og þá sökuðu Fatah-liðar Hamas um að hafa rænt 40 öryggisvörðum á eftirlitsstöðvum á Gasa. 3.2.2007 13:56
Íslendingar sex mörkum undir í hálfleik Íslenska landsliðið er sex mörkum undir, 19-13, þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureigninni við Spánverja um sjöunda sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Þýskalandi. 3.2.2007 13:38
Mannfall í röð bílsprengjuárása í Kirkuk Fimm eru sagðir látnir og um 40 særðir eftir röð bílsprengjuárása í Kirkuk í Norður-Írak í dag. Sjö sprengjur munu hafa sprungið á nokkrum stöðum í borginni á tveimur klukkustundum og beindust þær meðal annnar að skrifstofum tveggja kúrdískra stjórnmálaflokka sem lokaðar voru í dag. 3.2.2007 13:33
Fundu 30 þúsund steratöflur í gær Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í gærdag hald á um 30 þúsund steratöflur á nokkrum stöðum í borginni. Maður á fimmtugsaldri var handtekinn í tengslum við málið en hluti taflnanna fannst á heimili hans. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar, er þetta líklega mesta magn sterataflna sem hald hefur lagt á hér á landi. 3.2.2007 13:17
Athugar hvort minnka þurfi sandburð vegna svifryks Formaður framkvæmdaráðs á Akureyri segir til skoðunar að minnka sandburð í hálku en vill ekki skipta sandinum út fyrir salt. Bærinn þarf að finna leiðir til að minnka svifryksmengun. 3.2.2007 13:00
Kjarnorkuveri lokað í Svíþjóð í nótt vegna gúmmíþéttingar Forsmark-kjarnorkuverinu í Svíþjóð var lokað í nótt eftir að í ljós kom við prófanir að slit var í gúmmíþéttingu. Stjórnendur versins tóku enga áhættu og voru sérfræðingar kallaðir til til að rannsaka kjarnorkuverið frekar. 3.2.2007 12:45
Næstmannskæðasti stormur sem gengið hefur yfir Flórída Björgunarsveitir leita nú fólks í rústum húsa í bæjum í miðhluta Flórídaríkis þar sem óveður gekk yfir í gær. Nítján hafa fundist látnir eftir illviðrið og eru hundruð heimila í rúst. 3.2.2007 12:30
Dúettinn Já féll úr leik í X-factor í gærkvöld Dúettinn Já, sem skipaður er systkinunum Ásdísi og Hans Júlíusi, féll úr leik í Hæfileikakeppninni X-Factor í gærkvöldi. Í síðustu viku féll Tinna úr leik og því er Einar Bárðarson sá eini af dómurunum þremur sem ekki hefur misst keppanda úr sínum hópi. 3.2.2007 12:15
Forseti skuldar ekki Alþingi skýringar Forsetinn skuldar Alþingi engar skýringar vegna setu sinnar í Þróunarráði Indlands að mati Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðsins. Segir hann að þau indversku stórfyrirtæki sem annist rekstur Þróunarráðs Indlands fylgi öll metnaðarfullri stefnu í umhverfismálum og standast þau fyllilega samanburð við stefnu Alcoa í Reyðarfirði 3.2.2007 12:10
Mikill munur á afstöðu karla og kvenna í skoðanakönnunum Miklu munar á afstöðu karla og kvenna í þeim skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar á fylgi flokkanna fyrir alþingiskosningarnar í vor. Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur hefur reiknað út að munur á afstöðu kynjanna til flokka ráðist af því hvort konur séu í forsvari flokkanna og sé hlutfallslega mestur hér í samanburði við önnur Norðurlönd. 3.2.2007 11:59
Fuglaflensa staðfest á bóndabýli í Suffolk á Englandi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur staðfest að 2500 kalkúnar sem drápust á bóndabæ í Sullfolk á Englandi á fimmtudag hafi verið smitaðir af hinum banvæna H5N1-stofni fuglaflensunnar. 3.2.2007 11:35
Hundrað þúsund manns flýja heimili sín vegna flóða í Djakarta Fimm hafa fundist látnir og hundrað þúsund hafa yfirgefið heimili sín vegna flóða í Djakarta, höfuðborg Indónesíu. Þar hefur ringt án afláts í tvo daga og eru stórir hlutar borgarinnar á floti og hefur björgunarlið þurft að notast við báta til að koma nauðstöddum til aðstoðar. 3.2.2007 11:30
Viðurkennir íkveikju í húsí í Þorlákshöfn Karlmaður á þrítugsaldri, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í nærri tvær vikur vegna íkveikju í Þorlákshöfn þann 20. janúar, hefur játað að hafa brotist inn í húsið, stolið þaðan ýmsum munum og síðan borið eld að því. 3.2.2007 11:15
Hálka og éljagangur víða um land Vegagerðin varar við hálkublettum á Reykjanesbraut og hálku og éljagangi á á Sandskeiði, Þrengslum og Hellisheiði. Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir og þá er hálka á öllum vegum á Vesturlandi og auk þess éljagangur á Holtavörðuheiði. 3.2.2007 11:00
Vesturlandsvegur verði tvöfaldaður frá Kjalarnesi til Borgarness Gert er ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar frá Kjalarnhesi til Borgarness í drögum að vegaáætlun sem nú er til umræðu í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Þetta hefur Skessuhorn eftir heimildarmönnum sínum. 3.2.2007 10:52
Breyting á aðalskipulagi auglýst vegna álvers í Helguvík Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar verður auglýst en breytingin er gerð vegna fyrirhugaðs álvers Norðuráls við Helguvík. Samþykkt var að auglýsa skipulagsbreytinguna á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar í gær. 3.2.2007 10:45
Rottweilerinn sér um lömbin Þó svo að rottweiler hundar hafi á sér slæmt orðspor er einn þeirra að sýna fram á að þeir séu ekki svo slæmir. Hann hefur nefnilega tekið að sér að ala upp tvö lömb. 2.2.2007 23:30
Sérsveitir indíána elta uppi eiturlyfjasala Sérsveit bandarískra indíána hefur verið valin til þess að vakta landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Índíánarnir nota til þess tækni sem forfeður þeirra fullkomnuðu og foreldrar þeirra kenndu þeim síðan. Þeir eiga að rekja spor í eyðimerkurlandslaginu við landamæri ríkjanna tveggja til þess að hafa uppi á eiturlyfjasölum og smyglurum. 2.2.2007 23:07
Hamas fordæma friðarumleitarnir fjórveldanna Palestínska heimastjórnin, sem lýtur forystu Hamas samtakanna, fordæmdi í kvöld aðilana fjóra, eða fjórveldin, sem eru að reyna að miðla málum á svæðinu um þessar mundir. Það eru Bandaríkin, Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar og Rússland. Palestínumenn sögðu að Bandaríkin stjórnuðu þar öllu og að stefnan væri að refsa Palestínu. 2.2.2007 22:34
K-Fed boðið að vinna á Taco Bell Hjónaband hans endaði með skilnaði, enginn keypti plötuna hans og nú leikur hann sjálfan sig í sjónvarpsauglýsingum að vinna á hamborgarastað. Til þess að taka af allan vafa um hvort frægðarsól Kevin Federline sé að hníga til viðar bauð skyndibitakeðjan Taco Bell honum að vinna í klukkutíma á einum veitingastað þeirra. 2.2.2007 22:15