Fleiri fréttir Herlög í gildi í Sómalíu Herlög verða í gildi í Sómalíu næstu þrjá mánuðina samkvæmt ákvörðun sómalska þingsins í morgun. Þar með er neyðarástandi lýst yfir í landinu. Ráðamenn segja þetta gert til að hægt verði að tryggja öryggi sómalskra borgara á ný eftir margra vikna blóðug átök við íslamska uppreisnarmenn. Þingforseti Sómalíu segir að hægt verði að framlengja gildistíma herlaga óski forseti þess formlega og þing samþykki. 13.1.2007 13:15 Konu bjargað úr eldsvoða á Vopnafirði í nótt Slökkvilið Vopnafjarðar var kallað út vegna bruna rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Efri hæð 2 hæða einbýlishúss stóð í ljósum logum og var kona sem tilkynnti sjálf um eldinn innikróuð í húsinu. 13.1.2007 13:15 Fundust heilir á húfi Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannránn. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 13:00 Landspítalinn lifir ekki af biðina eftir nýju húsi Læknar efast um að Landspítalinn lifi af biðina eftir nýju sjúkrahúsi nema fundið verði bráðabirgðahúsnæði. Þeir vilja að ríkið kaupi eða leigi gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Aðstaðan núna, sé sjúklingum ekki boðleg. 13.1.2007 12:00 Mengunarslys í Noregi Óttast er að um þrjú hundruð tonn af hráolíu hafi lekið í sjóinn úr flutningaskipinu Server, sem strandaði við Fedje skammt norður af Björgvin í Noregi í gærkvöldi. Tuttugu og fimm skipverjum var öllum bjargað í land en skipið brotnaði í tvennt nokkru síðar. Tæp sex hundruð tonna hráolíu voru í skipinu þegar það strandaði og rétt rúm sjötíu tonn af díselolíu. 13.1.2007 11:37 Merkel ver evruna Angela Merkel, kanslari Þýskalands segist hafa áhyggjur af umræðu um evruna, í Frakklandi, en þar er gjaldmiðlinum kennt um meintar verðhækkanir þegar hún var tekin upp. Merkel vill að evrunni verði haldið utan við pólitíska umræðu. 13.1.2007 11:32 Banaslys á 20 mínútna fresti 13.1.2007 11:17
Sjá næstu 50 fréttir
Herlög í gildi í Sómalíu Herlög verða í gildi í Sómalíu næstu þrjá mánuðina samkvæmt ákvörðun sómalska þingsins í morgun. Þar með er neyðarástandi lýst yfir í landinu. Ráðamenn segja þetta gert til að hægt verði að tryggja öryggi sómalskra borgara á ný eftir margra vikna blóðug átök við íslamska uppreisnarmenn. Þingforseti Sómalíu segir að hægt verði að framlengja gildistíma herlaga óski forseti þess formlega og þing samþykki. 13.1.2007 13:15
Konu bjargað úr eldsvoða á Vopnafirði í nótt Slökkvilið Vopnafjarðar var kallað út vegna bruna rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Efri hæð 2 hæða einbýlishúss stóð í ljósum logum og var kona sem tilkynnti sjálf um eldinn innikróuð í húsinu. 13.1.2007 13:15
Fundust heilir á húfi Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannránn. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 13:00
Landspítalinn lifir ekki af biðina eftir nýju húsi Læknar efast um að Landspítalinn lifi af biðina eftir nýju sjúkrahúsi nema fundið verði bráðabirgðahúsnæði. Þeir vilja að ríkið kaupi eða leigi gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Aðstaðan núna, sé sjúklingum ekki boðleg. 13.1.2007 12:00
Mengunarslys í Noregi Óttast er að um þrjú hundruð tonn af hráolíu hafi lekið í sjóinn úr flutningaskipinu Server, sem strandaði við Fedje skammt norður af Björgvin í Noregi í gærkvöldi. Tuttugu og fimm skipverjum var öllum bjargað í land en skipið brotnaði í tvennt nokkru síðar. Tæp sex hundruð tonna hráolíu voru í skipinu þegar það strandaði og rétt rúm sjötíu tonn af díselolíu. 13.1.2007 11:37
Merkel ver evruna Angela Merkel, kanslari Þýskalands segist hafa áhyggjur af umræðu um evruna, í Frakklandi, en þar er gjaldmiðlinum kennt um meintar verðhækkanir þegar hún var tekin upp. Merkel vill að evrunni verði haldið utan við pólitíska umræðu. 13.1.2007 11:32
Háskólinn stefnir hátt Háskóli Íslands er á þröskuldi þess að komast á lista yfir 500 bestu háskóla í heimi og verður kominn þangað innan fárra ára. Miklu lengra er þar til skólinn mun eiga möguleika á að komast í hóp þeirra hundrað bestu, eins og rektor hefur gert að markmiði sínu. 12.1.2007 23:36
Beckham kom til þess að spila fótbolta Eigendur fótboltaliðsins LA Galaxy hafa í dag varið þá ákvörðun sína að semja við David Beckham en margir vilja meina að sú ákvörðun sé ekki tekin vegna hæfileika hans í knattspyrnu. Samningurinn sem var gerður við Beckham er 18 milljarða virði. 12.1.2007 23:15
Bjór gegn glæpum Tveir hjálpsamir menn í Flórída í Bandaríkjunum náðu að handsama ræningja sem lögregla var að leita að. Og hvernig? Jú, með því að gefa honum bjór. 12.1.2007 22:45
Blair ver utanríkisstefnu sína Tony Blair sagði í ræðu í dag að utanríkisstefna hans, sem felst í fyrirbyggjandi árásum, væri kannski umdeild en að hún væri rétt og að nauðsynlegt væri að halda henni áfram. Hann viðurkenndi þó að breski herinn væri of upptekinn um þessar mundir en íhaldsmenn í Bretlandi hafa sagt það vera hans einu arfleifð. 12.1.2007 22:30
Leiðtogi norsku launþegasamtakanna sökuð um einelti Gerd Liv Valla, leiðtogi norsku launþegasamtakanna LO, hefur verið sökuð um að leggja einstaka undirmenn sína í samtökunum í einelti. Í gær sagði Ingunn Yssen, alþjóðlegur ritari samtakanna, upp störfum eftir að hafa verið lögð í einelti af formanninum í þrjú og hálft ár. Hún hafði verið í veikindafríi í hálft ár áður en hún sagði upp starfinu. 12.1.2007 22:15
Peron framseld til Argentínu Isabel Peron var í dag framseld yfirvöldum í Argentínu vegna gruns um að hún hafi fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum sem forseti Argentínu. Hún tók við embætti á forseta áttunda áratug síðustu aldar eftir að eiginmaður hennar, Juan Peron, þáverandi forseti Argentínu, lést. 12.1.2007 22:04
Kínverjar og Rússar beita neitunarvaldi Kínverjar og Rússar beittu í dag neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðana gegn ályktun Bandaríkjamanna sem átti að setja þrýsting á stjórnvöld í Myanmar en réttindi minnihluta og stjórnarandstöðu eru virt að vettugi þar í landi. 12.1.2007 21:45
HA sakar menntamálaráðherra um mismunun Formaður félags háskólakennara á Akureyri sakar menntamálaráðherra um mismunun. Á Akureyri búi skólinn við hundruð milljarða króna halla meðan smjör drjúpi af hverju strái hjá Háskóla Íslands. 12.1.2007 21:30
Handteknir fyrir að fita hundinn Tveir breskir bræðir hafa verið dæmdir fyrir brot á dýraverndunarlögum en þeir gáfu hundinum sínum Rusty meira að éta en honum var gott. Vesalings Labradorhundurinn þyngdist um næstum fjórtán kíló á tveimur árum og eins og sjá má líkist hann meira rostungi en venjulegum hvutta. 12.1.2007 21:15
Ekkert ferðaveður Færð er nú slæm um allt land og á Öxnadalsheiði er snjóþekja og stórhríð og ekkert ferðaveður. Á Reykjanesbraut og öllum Suðurnesjunum er hálka og skafrenningur, sem og á Hellisheiði og Þrengslum en þar er líka éljagangur. 12.1.2007 20:57
Ætla ekki að ráðast á Íran Bandaríkin neituðu því í dag að þeir væru að undirbúa árásir gegn Íran og Sýrlandi þrátt fyrir að George W. Bush hafi varað löndin sterklega við á miðvikudaginn var. Þá sakaði hann stjórnvöld í löndunum tveim um að leyfa hryðjuverkamönnum að nota lönd sín sem grunnbúðir við árásir í Írak. 12.1.2007 20:50
Samráð á tortilla markaðnum Forseti Mexíkó, Felipe Calderon, hefur lofað því að reyna að koma í veg fyrir hækkandi verð á tortilla-kökum en þær uppistaða í fæðu margra fátækra íbúa Mexíkó. Verðið á kökunum hefur alls hækkað um 10% á síðastliðnu ári. 12.1.2007 20:29
Dómsdagsklukkan færist nær miðnætti Varðmenn Dómsdagsklukkunnar svokölluðu hafa ákveðið að færa hendur hennar fram á miðvikudaginn kemur vegna aukinnar kjarnorkuógnar og gróðurhúsaáhrifanna. Klukkunni, sem er viðhaldið af Fréttablaði kjarnorkusérfræðinga, er sem stendur sjö mínútur í miðnætti en miðnætti á að marka hamfarir á heimsvísu. 12.1.2007 20:17
Forseti Írans heimsækir Venesúela Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, fór í dag í sína aðra ferð til Suður Ameríku á síðastliðnum fjórum mánuðum. Þar mun hann heimsækja Venesúela, Níkaragúa og Ekvador en forsetar þeirra landa eru eins og Ahmadinejad sjálfur, ósáttir við Bandaríkin og forseta þeirra George W. Bush. 12.1.2007 19:52
Blindbylur á Holtavörðuheiði Blindbylur er á Holtavörðuheiði og tveir bílar hafa farið útaf veginum. Björgunarsveitir frá Hvammstanga og Borðeyri eru á leið uppá heiði að aðstoða ökumenn. 12.1.2007 18:52
Rúv frumvarp úr nefnd Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf, var afgreitt úr menntamálanefnd Alþingis, eftir lítilsháttar breytingar í dag og verður væntanlega á dagskrá þingsins á mánudag. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi sendu forseta þingsins bréf í gær og báðu um að fundi menntamálanefndar yrði frestað, þar sem ný gögn frá ESA hefðu verið lögð fram, en því var hafnað 12.1.2007 18:50
Tilkynnt um viðbrögð á næstu dögum Félagsmálaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til þeirra aðgerða sem heyrnarlausir telja þörf á, í kjölfar könnunar á kynferðislegu ofbeldi innan samfélags heyrnarlausra. 12.1.2007 18:42
Steingeld byggð á Slippsvæðinu Fyrirhuguð byggð á Slippsvæðinu er steingeld með háum, stórum og ljótum húsum, segir formaður Íbúasamtaka Vesturbæjar sem vill kollvarpa hugmyndum um uppbyggingu við Mýrargötuna. Formaður skipulagsráðs segir þetta gott skipulag sem muni styrkja Vesturbæinn. 12.1.2007 18:39
Harður árekstur við Munaðarnes Harður árekstur varð norðan við Munaðarnes við bæinn Grafarkot rétt fyrir klukkan fjögur í dag þegar jeppi og flutningabifreið skullu saman. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanni jeppans, sem var einn á ferð, út úr bifreiðinni. 12.1.2007 18:30
Grundarfjörður fullur af síld Grundarfjörður er fullur af síld og náði Krossey frá Hornafirði að fylla skipið í tveimur köstum þar í dag en síld hefur ekki verið veidd í firðinum í tugi ára. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar rannsaka hvort það var þetta mikla magn síldar sem varð til þess að tuttugu tonn af eldisþorski drapst í firðinum. 12.1.2007 18:30
Tröllasögur um hátt leiguverð skaða markaðinn Tröllasögur um hátt leiguverð skaða leigumarkaðinn segir formaður Húseigendafélagsins. 12.1.2007 18:30
Flutningaskip strandar við Noregsstrendur Stórt flutningaskip strandaði rétt í þessu fyrir utan Bergen og hefur norska strandgæslan hafið björgunaraðgerðir til þess að koma skipverjum í land. Skipið var ekki með farm en það var á leið til Murmansk að ná í farm. Einhver hætta er talin á því að olía geti lekið úr vélarrúminu. Leki er þegar kominn að vélarrúmi skipsins en veður er slæmt á strandstað. 12.1.2007 18:27
Dæmdur fyrir skattsvik Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag mann fyrir skattsvik og þarf hann að greiða rúmar átta milljónir í sekt til ríkissjóðs. Hann var einnig dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundins fangelsis. Maðurinn var sakfelldur fyrir að skila virðisaukaskattskýrslum og staðgreiðsluskilagreinum of seint og einnig fyrir vanskil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda. 12.1.2007 17:58
Laug til um nauðgun og fer í fangelsi Tuttugu og eins árs kona var í dag dæmd í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í dag, þar af sjö mánuði skilorðsbundið, fyrir að hafa kært mann fyrir nauðgun sem aldrei átti sér stað. 12.1.2007 17:35
Gæsluvarðhald yfir síbrotamanni fellt úr gildi Hæstiréttur Íslands felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni. Maðurinn var um miðjan desember dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir nytjastuld, skjalafals, þjófnaði og fleira. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var felldur úr gildi vegna tæknilegra atriða. 12.1.2007 17:18
Ferguson tjáir sig um vistaskipti Beckhams Sir Alex Ferguson segist hafa séð það fyrir að fyrrum leikmaður hans David Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að hann féll úr náðinni hjá Real Madrid. Félagar hans á Spáni segjast muni sakna hans þegar hann heldur vestur um haf. Adriano Galliani, yfirmaður AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hefði klárlega gert David Beckham tilboð ef hann hefði ekki ákveðið að fara til Bandaríkjanna. 12.1.2007 17:10
Stóru símafélögin hafa samið við RHnet vegna truflunar á netsambandi RHnet hefur samið við Símann um netsamband um Farice sæstrenginn á meðan á viðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum stendur. Um er að ræða 100 mb/s. Fyrr í dag var sagt frá því að RHnet hefði samið við Vodafone um netsamband um sæstrenginn á meðan á viðgerð á strengnum stendur. 12.1.2007 17:03
Lega álvers í Helguvík ákveðin Sveitarfélögin Reykjanesbær og Garður hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau segja frá því að sátt hafi náðst um legu lóðar fyrirhugaðs álvers í Helguvík. 12.1.2007 17:00
Maður grunaður um líkamsárás á Kárahnjúkasvæðinu úrskurðaður í farbann Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag farbann yfir kínverskum ríkisborgara sem grunaður er um að hafa stungið mann í vinnubúðum á Kárahnjúkasvæðinu á nýársdag. 12.1.2007 16:36
90 handteknir í Guantanamo-mótmælum 90 mótmælendur voru handteknir í Washington í dag, þar sem þeir mótmæltu fangabúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo. Fólkið var að reyna að ryðjast inn í byggingu alríkisdómstólsins þegar það var handtekið. 12.1.2007 16:29
Fyrsta barn ársins á Ísafirði fæddist í dag Fyrsta barn ársins á Ísafirði fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði á ellefta tímanum í dag. Fréttavefur Bæjarins besta segir það hafa verið stóra og myndarlega stúlku en hún var sautján og hálf mörk og fimmtíu og einn sentimetri. 12.1.2007 16:25
Varað við ferðalögum til Bangladesh Breska utanríkisráðuneytið hefur varað Breta við ferðalögum til Bangladesh. Í tilkynningunni frá ráðuneytinu segir að talsvert sé um hryðjuverkaárásir í landinu og að Vesturlandabúar gætu átt á hættu að vera rænt af öfgamönnum og mótmælendum. 12.1.2007 16:20
Starfsmaður S.þ. myrtur í Súdan Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna var myrtur í fyrirsát í suðurhluta Súdans í dag. Maðurinn vann fyrir Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna. Hann var farþegi í bíl sem setið var fyrir þrátt fyrir að bílnum fylgdu hermenn frá suður-súdanska hernum. 12.1.2007 16:08
Þrír árekstrar á Hellisheiði í dag Lögreglan á Selfossi hefur í dag aðstoðað fasta ökumenn á Hellisheiði rétt ofan við Hveradalina. Leiðinlegt skyggni er á heiðinni og hafa ökumenn verið að festa sig. Þrír árekstra hafa orðið á Hellisheiði í dag og má rekja þá alla til slæmrar færðar. 12.1.2007 15:51
Rússar fordæma árás á íranska ræðisskrifstofu Rússar fordæmdu í dag árás Bandaríkjamanna á ræðisskrifstofu Írana í gærmorgun. Yfirlýsingin sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér var harðorð, þar sem árás Bandaríkjamanna í gær var meðal annars kölluð "algjörlega óásættanleg" og "brot á alþjóðalögum". 12.1.2007 15:45
Hilary heldur til Íraks Hillary Clinton, öldungardeildarþingmaður Demókrata, er á leiðinni til Íraks um helgina. Hilary fer ásamt tveimur öðrum þingmönnum til að kynna sér ástandið í landinu eftir mjög umdeilda ákvörðun George Bush að auka herstyrk Bandaríkjamanna í landinu um 21.500 manns. 12.1.2007 15:44
Stefnt að því að opna í Bláfjöllum á sunnudaginn Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum á sunnudaginn, enn vantar þó aðeins upp á snjó og ekki verður ljóst fyrr en á morgun hvort það takist að opna. Í dag hefur verið vestan skafrenningur og ofankoma á svæðinu. 12.1.2007 15:40
Krossey hefur veitt um fjögur hundruð tonn af síld Síldveiðiskipið Krossey hefur nú veitt um fjögur hundruð tonn af síld en skipið er á veiðum við Grundafjörð. Ógrynni síldar hefur verið á Grundarfirði að undanförnu og segir Sigurður Bjarnason, skipstjóri á Krosseynni, það óvenjulegt enda hafi hann aldrei komið þangað áður á síld. 12.1.2007 15:29