Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Helmingur kvótans fluttur Helmingurinn af öllum kvóta Akureyringa flyst til Reykjavíkur þegar Akureyrartogarar Brims verða skráðir í höfuðborginni. Reykjavík verður þá mesti útgerðarbær landsins, miðað við kvóta. Forstjóri Brims segist flýja andúð forystumanna sjómanna í Eyjafirði en þeir segja hann í leit að blóraböggli. 10.1.2007 18:54
Spila fjárhættuspil í grunnskólum Dæmi eru um að allt niður í fjórtán ára drengir spili fjárhættuspil innan veggja grunnskólanna. Ráðgjafi í spilafíkn kallar á að forvarnir verði teknar inn í skólana eins og gert er með áfengi og tóbak 10.1.2007 18:45
Boða iðnbyltingu Evrópusambandið boðar iðnbyltingu í nýrri áætlun um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Framkvæmdastjórn sambandsins vill að aðildarríkin minnki útblástur gróðurhúsalofttegunda um tuttugu prósent fyrir 2020. Evrópa verði að taka forystuna í að þróa efnahag sem byggi síður á kolefnum. 10.1.2007 18:45
Ásókn í byggingarland bitnar á græna treflinum Skógræktarmenn hafa áhyggjur af ásókn Reykjavíkurborgar og nágrannasveitarfélaga í að taka skógræktarlönd höfuðborgarsvæðisins undir byggingarland. Þeir óttast að græni trefilinn svokallaði verði götóttur og hafa tekið upp viðræður við sveitarfélögin um að hann njóti friðhelgi. 10.1.2007 18:44
Störf á vegum Þýðingarmiðstöðvar flutt norður Tilkynnt verður á morgun um að 4-6 störf innan utanríkisþjónustunnar verði flutt til Akureyrar. Þetta eru störf á vegum Þýðingarmiðstöðvar og sem hefur þann starfa að þýða ýmis opinber skjöl. 10.1.2007 18:30
Peningamálastefnan bítur áfram, segir Seðlabankinn Gengi krónunnar féll um tæp tvö prósent í dag vegna sterks orðróms um að Kaupþing hyggist færa uppgjör sitt yfir í evru. Kaupþingsmenn neita að tjá sig. Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir að peningamálastefnan muni hafa bit áfram, jafnvel þótt einhverjir viðskiptabankanna kjósi að gera reikninga sína upp í erlendum gjaldmiðlum. 10.1.2007 18:30
Fjórtán þúsund metnir með örorku Draga má þá ályktun að fleiri í hópi öryrkja hafi tiltölulega vægari heilsufarsvandamál en áður, segir fyrrverandi tryggingayfirlæknir, enda ekkert sem bendir til þess að heilsufari þjóðarinnar hafi farið hrakandi þótt enn fjölgi öryrkjum. 10.1.2007 18:22
Vopnhlé komið á í Súdan Ríkisstjórn Súdans og uppreisnarmenn í Darfur héraði landsins hafa samþykkt 60 daga vopnahlé og fundi til þess að ræða hugsanlegt friðarsamkomulag. Á bak við þetta standa Afríkusambandið og Sameinuðu þjóðirnar. 10.1.2007 18:15
Indverjar vilja halda kjarnorkutilraunum áfram Indverjar gætu dregið sig úr kjarnorkusamstarfi við Bandaríkin ef þeir fá ekki að framkvæma kjarnorkutilraunir og auðga úraníumúrgang þeirra kjarnorkuvera sem Bandaríkjamenn ætla að selja þeim. 10.1.2007 17:57
Bush þarf 497 milljarða í viðbót George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, þarf 6,8 milljarða dollara, eða um 497 milljarða íslenskra króna í aukafjárveitingu til þess að geta sent 20 þúsund viðbótarhermenn til Íraks. Inni í þessari upphæð er einnig kostnaður við uppbygginu og störf sem af henni hljótast en háttsettir embættismenn innan ríkisstjórnar Bush sögðu frá þessu í dag. 10.1.2007 17:30
Íbúðalánasjóður lánaði nærri 50 milljarða í fyrra Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í fyrra námu alls 49,5 milljörðum króna sem samkvæmt mánaðarskýrslu sjóðsins fyrir desember var rétt yfir efri mörkum útlánaáætlunar fyrir 2006. Þá nam útgáfa íbúðabréfa 39 milljörðum króna að nafnverði sem er nálægt efri mörkum útgáfuáætlunar ársins 2006. 10.1.2007 17:20
Krefjast lokunar fangabúða í Guantánamo Íslandsdeild Amnesty International stendur á morgun fyrir útifundi á Lækjartorgi klukkan 17 þar sem þess verður krafist að að fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantánamo-flóa verði lokað. 10.1.2007 17:08
Vildi ekki hulið höfuð Egypskur ráðherra rak aðstoðarkonu sína út af fundi, þegar hún neitaði að fjarlægja höfuðbúnað sinn, sem huldi allt nema augu hennar. Það var trúarmálaráðherra Egyptalands sem þetta gerði. 10.1.2007 17:00
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir nýr landsbókavörður Menntamálaráðherra hefur skipað Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur í embætti landsbókavarðar til fimm ára frá 1. apríl 2007 næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að Ingibjörg sé bæði með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og bókasafns- og upplýsingafræði og hafi að undanförnu starfað sem sviðsstjóri á varðveislusviði Landsbókasafnsins. 10.1.2007 16:59
Hafnar kröfu ríkisins um útburð af lóð á Akureyrarflugvelli Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að maður yrði borinn út af lóð á Akureyrarflugvelli með beinni aðfargerð en á lóðinni stendur flugskýli sem hann á. Þar með staðfesti dómurinn úrskurð Héraðsdóms. 10.1.2007 16:46
Hagnaður Alcoa um 160 milljarðar á síðasta ári Hagnaður Alcoa, eins stærsta álframleiðanda heims, nam um 160 milljörðum króna í fyrra eftir því sem segir í Vegvísi Landsbankans og er það methagnaður í 118 ára sögu fyrirtækisins. Framleiðsla Alcoa í fyrra var rúmlega 15 milljón tonn og jókst um rúm 3,6 prósent á milli ára. 10.1.2007 16:32
Dani og Svíi dæmdir fyrir skipulagningu hryðjuverka Svíi og Dani fengu í dag þunga fangelsisdóma í Bosníu fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk. Svínn fékk fimmtán ára og fjögurra mánaða dóm en Daninn 13 ár og fjóra mánuði. Þá voru tveir Bosníumenn einnig dæmdir í fangelsi fyrir aðild að málinu. 10.1.2007 16:18
Framsóknarmenn velja frambjóðendur í NA-kjördæmi Framsóknarmenn velja sér fulltrúa á framboðslista sinn til þings í Norðausturkjördæmi á tvöföldu kjördæmisþingi sem haldið verður í Mývatnssveit á laugardaginn kemur. Alls hafa 410 fulltrúar rétt til setu í á þinginu og munu þeir velja tíu efstu menn á lista flokksins í kjördæminu. 10.1.2007 15:48
Hamas segist geta viðurkennt Ísraelsríki Æðsti leiðtogi Hamas samtakanna sagði í viðtali í dag að Hamas viðurkenndi að tilvera Ísraelsríkis sé staðreynd. Khaled Meshaal, útlægur leiðtogi samtakanna virðist þarna taka mildari stefnu gagnvart Ísrael en áður. Í viðtalinu segir Meshaal að Ísrael sé raunverulegt og að það verði áfram til ríki sem heitir Ísrael. Það sé staðreynd. 10.1.2007 15:40
Kúbverjar sem neitað var um hótelgistingu komnir til Noregs Kúbversk sendinefndinefnd sem neitað var um gistingu á hótelinu Edderkoppen í Osló í síðustu viku lenti á Gardemoen í dag. Berit Ås, fyrrverandi leiðtogi Sósíalíska vinstriflokksins, var meðal þeirra sem tók á móti hópnum með því að syngja kúbverska þjóðsönginn og þannig styðja málstað þeirra. 10.1.2007 15:23
Íþaka fundin ? Breskir fræðimenn telja sig vera búnir að finna hina foru eyju Íþöku þar sem hetja Hómers Ódysseifur bjó. Ef Íþaka er fundin er það varla minni atburður en þegar Trója fannst í Tyrklandi árið 1870. Vísindamennirnir hafa verið að bora djúpar holur á eynni Paliki til þess að leita vísbendinga um hvernig landslagið hafi breyst á síðustu árþúsundum. 10.1.2007 14:49
ESB boðar iðnbyltingu Evrópusambandið boðar iðnbyltingu í nýrri áætlun um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Sambandið vill að aðildarríkin minnki útblástur gróðurhúsalofttegunda um 20% fyrir 2020. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir þurfa samræmd viðbrögð við loftslagsbreytingum. 10.1.2007 14:43
Beckham á leið frá Real Madrid Predrag Mijatovic, íþróttastjóri spænska stórliðsins Real Madrid, greindi frá því í dag í ítölsku sjónvarpi að samningurinn við enska knattspyrnumanninn David Beckham yrði ekki endurnýjaður en hann rennur út í vor. 10.1.2007 14:39
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um tæp þrettán prósent Erlendum ferðamönnum sem komu hingað til lands í fyrra fjölgaði um tæplega 13 prósent á milli ára samkvæmt upplýsingum Ferðamálastofu. Rúmlega 422 þúsund erlendir gestir komu til landsins í fyrra og fjölgaði þeim um 48 þúsund á milli ára. 10.1.2007 14:30
Tengivagn valt á Kísilveginum í Reykjahverfi Tengivagn flutningabíls sem var á leið frá Húsavík til Vopnafjarðar með steypustyrktarjárn valt á svokölluðum Kísilvegi í Reykjahverfi til móts við bæinn Einarsstaði laust eftir klukkan tíu í morgun. 10.1.2007 14:13
Sunneva Sigurðardóttir Vestfirðingur ársins 2006 Sunneva Sigurðardóttir er Vestfirðingur ársins 2006 samkvæmt vali lesenda fréttavefjarins Bæjarins besta. Fram kemur á á vefnum að Sunneva, sem er 25 ára Ísfirðingur, hafi opinberað fyrir alþjóð kynferðislega misnotkun sem hún varð fyrir í æsku. 10.1.2007 13:58
Sprengjutilræði í suðurhluta Filippseyja Tvær sprengjur hafa sprungið í dag á eyjunni Mindanao sem tilheyrir Filippseyjum. Sex létust og 23 særðust þegar sprengja sprakk á markaði í borginni General Santos og nokkrum stundum síðar sprakk önnur sprengja í höfuðborg eyjunnar, Kidapawan. Engar fregnir hafa borist af manntjóni þar. 10.1.2007 13:48
Flugvélar leitað á hafsbotni Hafrannsóknarskip bandaríska flotans sem aðstoðar við leit að indónesisku farþegaþotunni sem fórst fyrir níu dögum, ætti að geta varpað ljósi á hvort málmhlutir sem fundist hafa á hafsbotni, séu flak vélarinnar. 10.1.2007 13:43
Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu Þrír menn voru í gær úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fjölda innbrota og þjófnaða, bæði í fyrirtæki og heimili á höfuðborgarsvæðinu og þá voru tveir menn handteknir í morgun á Vesturlandsvegi með þýfi í bíl sínum. Segir lögregla að innbrotahrina hafi verið á svæðinu. 10.1.2007 13:21
Rússar og Hvítrússar semja um olíu Hvíta Rússland segir að samkomulag hafi náðst um að hefja aftur útflutning á Rússneskri olíu til vestur Evrópu, en hann hefur legið niðri í þrjá daga vegna deilu Rússlands og Hvíta Rússlands um verð á olíu frá fyrrnefnda landinu til þess síðarnefnda. 10.1.2007 13:15
Kaþólska kirkjan þolir ekki grínþátt Leiðtogi kaþólsku kirkjunnar í Litháen segir að kirkjan muni höfða mál á hendur sjónvarpsstöðinni MTV-Litháen vegna teiknimyndaflokksins "Páfabær" sem hann segir að hæðist að páfanum og öllum kaþólskum Litháum. 10.1.2007 13:12
Fékk 250 tonn af loðnu í einu togi Fjölveiðiskipið Guðmundur Ólafur ÓF veiddi í nótt fyrstu loðnuna sem veiðst hefur hér við land eftir níu mánaða hlé og mikla óvissu um vertíðina í ár. 10.1.2007 12:45
Olíuverð heldur áfram að lækka Olíuverð hélt áfram að lækka á heimsmarkaði í gær og eru nú ótvírætt að skapast skilyrði til bensínlækkunar hér á landi. Ótti olíufélaganna við neikvæða umræðu í desember viðrist hafa valdið verðstöðvun í meira en mánuð. 10.1.2007 12:30
Gerðu vel við sig um jólin Metsala var í matar- og drykkjarföngum fyrir síðustu jól samkvæmt rannsókn Rannsóknarseturs verslunarinnar. Miðað við breytilegt verðlag jókst salan um þrettán og hálft prósent á milli ára. 10.1.2007 12:15
Kaupþing að yfirgefa krónuna Kaupþing er að yfirgefa krónuna sem uppgjörsmynt og er búist við að bankinn tilkynni þann 30. janúar að hann hafi ákveðið að skrá bókhald sitt og eigið fé í evrum. Það yrði verulegt áfall fyrir peningastefnu Seðlabankans. 10.1.2007 11:59
Flytur skráningu togara frá Akureyri til Reykjavíkur Forstjóri útgerðarfélagsins Brims, áður ÚA, er búinn að fá nóg af fjandskap Sjómannafélags Eyjafjarðar og hefur flutt skráningu togara félagsins frá Akureyri til Reykjavíkur. Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segir hann í leit að blóraböggli og vísar ásökunum á bug. 10.1.2007 11:45
Búið að ná bílnum upp úr Tjörninni Lögreglumenn og kafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins náðu bíl, sem lenti ofan í Tjörninni í Reykjavík um tíu leytið í morgun, upp úr fyrir hádegi. Ökumaður sem var einn í bílnum var fluttur á slysadeild en honum varð ekki meint af. 10.1.2007 11:39
Reiknað með 222 milljóna króna afgangi á Seltjarnarnesi Reiknað er með að bæjarsjóður Seltjarnarness skili um 222 milljóna króna afgangi á árinu 2007. Fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt við seinni umræðu á fundi bæjarstjórnar Seltjarnarness í morgun. 10.1.2007 11:19
Obasanjo sýnir mátt sinn Leynilögreglan í Nígeríu, SSS, handtók í dag ritstjóra og framkvæmdastjóra dagblaðs í Abuja, höfuðborg Nígeríu. Alls komu 15 lögreglumenn inn á skrifstofu blaðsins til þess að grafast fyrir um heimildarmenn greinar sem að deildi á einn af stuðningsmönnum forseta Nígeríu. Þegar ritstjórinn vildi ekkert gefa upp voru hann og framkvæmdastjóri blaðsins handteknir. 9.1.2007 23:45
Bretar styðja framboð Japans til öryggisráðs Bretar og Japanir samþykktu í dag að vinna saman að því að draga úr spennu í Asíu vegna kjarnorkuógnar Norður-Kóreu og Íran. Tony Blair og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, áttu fund í dag og sagði Blair að hann myndi styðja framboð Japans til varanlegrar setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en Japan telur það vera nauðsynlegt skref til þess að vernda hagsmuni sína gegn Norður-Kóreu. 9.1.2007 23:14
Fjárfestar flýja frá Venesúela Fjárfestar losuðu sig við eignir og hlutabréf í Venesúela í dag vegna yfirlýsingar Hugo Chavez í gær um að hann ætlaði sér að þjóðvæða hluta efnahagslífsins. Hlutabréfaverð hrundi og gjaldeyrir landsins lækkaði mikið í dag út af þessu. Fjármálamarkaðir voru nálægt því að hrynja þar sem Chavez lofaði því að binda endi á sjálfstæði seðlabanka ríkisins. 9.1.2007 23:11
20 þúsund hermenn til Íraks Áætlun George W. Bush Bandaríkjaforseta varðandi nýja stefnu í stríðinu í Írak þykir ekki boða miklar breytingar. 20 þúsund hermenn í viðbót verða sendir til Íraks og Írakar eiga að taka við öryggisgæslu í öllum héruðum fyrir lok nóvember. Meirihluti hermanna á að fara til Bagdad en 4 þúsund verða sendir til Anbar héraðsins. 9.1.2007 22:26
50 vígamenn láta lífið í Írak Íraskar hersveitir, með stuðningi bandarískra hersveita, bönuðu í dag allt að 50 manns við Haifa götuna í miðborg Bagdad. Bardagar hafa geisað þar í grennd í um fjóra daga. Íraskir embættismenn segja að allt að því 130 manns hafi látið lífið í átökunum síðan á laugardaginn var. 9.1.2007 22:08
Búist við dýrustu forsetakosningum í sögu USA Búist er við því að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári verði þær dýrustu í sögu Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur benda hins vegar á að kostnaðurinn eigi eftir að skilja að þá hæfu og þá óhæfu mjög fljótlega. Þegar hafa tíu manns lýst því yfir að þau ætli að bjóða sig fram og eru fjáraflanir þegar hafnar hjá sumum þeirra. 9.1.2007 21:38
Engin áform um þjóðvæðingu Helsti aðstoðarmaður Daniels Ortega, verðandi forseta Níkaragúa, sagði í dag að engar áætlanir væru uppi um að þjóðvæða fyrirtæki líkt og Hugo Chavez, forseti Venesúela og náinn samstarfsmaður Ortega, ætlar sér að gera. Ortega kemur þó til með að njóta efnahagsaðstoðar frá Venesúela til þess að berjast gegn hinni gríðarlegu fátækt í landinu. 9.1.2007 21:18